Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 31
ÚNBLAÐI
f atvinna/rað/smá:
____TA QICLAJaMUDíIOM
SHNNU-ÐA-TtUR 26r -MAI-1991 -
Umboðsmaður
Danskur regnfataframleiðandi óskar eftir
umboðsmanni sem er vel heima á sviði fisk-
veiða- og útgerðarþjónustu. Framleiðsluvar-
an er mjög samkeppnisfær og samanstendur
af regnfötum, vaðstígvélum og klofstígvélum
í háum gæðaflokki.
Skriflegar umsóknir sendist til: Kiba Regntpj,
Mylius Erichsenvej 91, DK-7330 Brande,
Danmörku.
Matreiðslumaður
Hótel Valaskjálf óskar að ráða matreiðslu-
mann til afleysinga í sumar. Um er að ræða
4-6 vikur frá miðjum júlí.
Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri
í síma 97-11500.
HOTEL
VALASKJALF
ECILSSTÖÐUMS9M1500
Sölumaður
Þekkt innflutningsfyrirtæki vill ráða sölu-
mann til framtíðarstarfa sem fyrst.
Starfið felst í sölu og kynningu á allskonar
skrifstofuvélum og tækjum. Um er að ræða
þekkt vörumerki á markaðnum. Starfsreynsla
í sölumennsku er nauðsynleg. Qóð laun í
boði.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
fást á skrifstofu okkar.
Gijdnt Iónsson
RÁÐC JQF & RÁÐN I N CARÞJÓN U STA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
Hjúkrunarfræðingar
Hjúkrunarfræðing vantar í sumarafleysingar
í sumar að hjúkrunar- og dvalarheimilinu
Hraunbúðum, Vestmannaeyjum.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma
98-11915.
Tölvuteiknun
Teiknistofa óskar eftir að ráða tækniteiknara
eða starfskraft sem hefur reynslu af tölvu-
teiknun. Um er að ræða framtíðarstarf.
Reyklaus vinnustaður.
Upplýsingar um menntun bg fyrri störf
sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 30.
maí nk. merktar: „Tölvuteiknari - 7863".
Fóstra
Dalvíkurbær auglýsir eftir fóstru til starfa við
leikskólann Krílakot.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk.
Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 96-61372.
Frá
Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Við sérdeildir Hlíðaskóla er laus 1/2 staða
iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara.
Jafnframt vantar sérkennara í 1/1 starf við
deild hreyfihamlaðra.
Umsóknarfrestur er til 12. júní.
Allar nánari upplýsingar veitir skólastjóri,
Árni Magnússon, í síma 25081.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir að
ráða rafvirkja í mæladeild til mælasetningar.
Rafmagnsveitan býður upp á góða vinnuað-
stöðu og mötuneyti. Góður starfsandi ríkir á
staðnum. Launakjör samkvæmt kjarasamn-
ingi Rafiðnaðarsambands íslands.
Upplýsingar um starfið veita deildarstjóri
mæladeildar og/eða starfsmannastjóri.
Umsóknum sé skilað til starfsmannastjóra
fyrir 6. júní nk.
rm
Aðalbókari
Ólafsfjarðarbær auglýsir stöðu aðalbókara
lausa til umsóknar. Krafist er góðrar bók-
haldsþekkingar.
Umsóknir, ertilgreini aldur, menntun og fyrri
störf, sendist undirrituðum fyrir 5. júní 1991.
Allar nánari upplýsingar veitir undirritaður.
Ólafsfirði, 21. maí 1991.
Bæjarstjórirm íÓlafsfirði,
Ólafsvegi 4, 625 Ólafsfjörður,
sími 96-62151.
Innflutnings/-
dreifingaraðili
Við ieitum að áreiðanlegum innflutningsaðila,
sem á að sjá um að koma upp söluneti og
bera ábyrgð á að kröfum/lögum heilbrigðis-
eftirlits sé fullnægt. Aðgangur að telexi eða
telefaxtæki nauðsynlegur.
Við erum danskt inn- og útflutningsfyrirtæki.
Okkar vörur eru fyrsta flokks sjúkdóma- og
getnaðarverjur (smokkar).
Vinsamlegast leitið upplýsinga hjá: Helse
Product, postboks 388, 5100 Odense C,
Danmörku. Telefax: +45 75 175868.
Seltjarnarneskaupstaður
Bæjarbókavörður
Staða bæjarbókavarðar við bókasafn Sel-
tjarnarness er laus til umsóknar. Menntun í
bókasafnsfræðum áskilin.
Umsóknarfrestur er til 15. júní nk.
Umsóknir sendist til formanns bókasafns-
stjórnar, Hildar Jónsdóttur, Melabraut 52,
170 Seltjarnarnesi.
Öllum umsóknum verður svarað.
Bókasafnsstjórn.
Starfsmannastjóri
Stórt og traust fyrirtæki í Reykjavík óskar
eftir að ráða starfsmannastjóra í 50% starf.
Starfið felst í umsjón með starfsmannamál-
um fyrirtækisins, s.s. launamálum, samning-
um, þjálfun og öðru, sem starfsmannahaldi
viðkemur auk sjálfrar launavinnslunnar.
Hæfniskröfur eru að umsækjendur séu við-
skiptafræðingar eða hafi sambærilega
menntun. Viðkomandi þurfa að vera tölu-
glöggir og hafa reynslu af tölvunotkun ásamt
þekkingu á launa- og kjaramálum. Áhersla
er lögð á lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til og með 28. maí nk.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Alleysmga- og radnmgaþjonusui
Lidsauki hf. W
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Áhugavert starf á
góðum spítala
Við viljum bæta í okkar hóp áhugasömum
hjúkrunarfræðingum til starfa á eftirtöldum
deildum:
Vöknun (post op.). Deildin er einungis opin
á virkum dögum frá kl. 8-16. Fullt starf, en
hlutastarf kemur einnig til greina.
Speglunardeild/göngudeild. Hér er einungis
um dagvinnu að ræða, en bakvaktir eru á
þeim dögum, sem spítalinn hefur bráðavakt.
Fullt starf en hlutastarf kemur einnig til
greina.
Landakot er þægilegur og vinalegur vinnu-
staður, þar sem hver einstakur hjúkrunar-
fræðingur getur nýtt til fullnustu hæfileika
sína til mótunar og uppbyggingar í starfi sínu.
Ef þú hefur áhuga vinsamlegast hafðu sam-
band við Hönnu Birgisdóttur, deildarstjóra á
vöknun, í síma 604352 og Hildi Stefánsdótt-
ur eða Sigrúnu Erlendsdóttur, deildarstjóra
á speglunardeild/göngudeild, ísíma 604355.
Kennara vantar
Kennara vantar að Grunnskólanum á Breið-
dalsvík. Almenn kennsla og íþróttakennsla
æskileg.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-56696 og formaður skólanefndar í síma
97-56628.
Bókari
Óskum að ráða bókara til starfa hjá þjón-
ustufyrirtæki í matvælaiðnaði.
Starfssvið bókara: Almenn bókhaldsvinnsla.
Merking fylgiskjala. Skráning bókhalds. Að-
stoð við innheimtu o.fl. Fjölbreytt starf hjá
traustu fyrirtæki.
Við leitum að bókara, sem hefur reynslu af
bókhaldsstörfum. Stúdentspróf af viðskipta-
sviði æskilegt. Laust strax.
Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson.
Vinsamlegast sendið skriflegar umsóknir til
Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu-
blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar
merktar „Bókari 282“ fyrir 1. júní nk.