Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 44
Bögglapóstur
um Qllt Iflnd
varða i
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTI 6. 101 REYKJAVÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
„ , Morgunblaðið/Þorkell
Börn úr Arbæjarskóla við gróðursetningu á Hólmsheiði. Eftir að þau höfðu lokið við að gróðursetja tóku þau sig til og tíndu upp rusl
sem þarna var.
Tíu ára böm gróðursetja 3.200 plöntur
UM 800 ungmenni munu á
næstu dögum planta 3.200
plöntum á Hólmsheiði, norðan
Rauðavatns.
Það eru Skógræktarfélag
Reykjavíkur og Fræðsluskrifstofa
Reykjavíkur sem standa að þessu
skógræktarátaki. Tíu ára börn úr
grunnskólum Reykjavíkur sjá um
að planta um 3.200 plöntum, aðal-
lega birki, á Hólmsheiði sem er
norðan við Rauðavatn. Skógrækt-
arfélag Reykjavíkur gefur allar
plönturnar.
I fyrra hófst gróðursetning á
þessum stað og var ákveðið að
halda því starfi áfram í ár. Land
þama er erfitt til gróðursetningar
en Guðrún Þórsdóttir hjá Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkur segir að
unga fólkið sé harðduglegt og
með þessu fái það tilfínningu og
meiri tengsl við náttúruna og
gróður í Iandinu.
ÁgreiningTir um skattameðferð kvótaviðskipta:
Kvótakaup eru komin inn á
borð hjá Ríkisskattanefnd
Löggjöf um kvótann gerir ekki ráð fyrir viðskiptum með hann
RIKISSKATTANEFND hefur
nú til athugunar eitt mál er
varðar viðskipti með kvóta og
hvernig meðhöndla eigi þau við-
skipti í bókhaldi útgerðar.
Ágreiningur er á milli skatta-
yfirvalda og endurskoðenda um
afskriftir, eða fyrningu, á
kvótakaupum. Túlkar ríkis-
skattstjóri málið svo að kvóta-
kaup beri að afskrifa sem um
skipakaup væri að ræða eða um
8% á ári. Endurskoðendur hafa
hinsvegar þá vinnureglu að
þessi kaup beri að afskrifa á
fimm árum eða um 20% á ári.
Keyptur kvóti er skráður sem
eign í bókhaldi útgerða en kvóti
leigður til eins árs er skráður
sem rekstrarkostnaður og virk-
ar sem slíkur sem skattafrá-
dráttur. Um það er ekki deilt.
í löggjöf um kvótann er ekki
að fínna nein ákvæði sem ná yfir
viðskipti með hann. Þessi viðskipti
hafa vaxið mjög á undanförnum
árum og var veltan á kvótamark-
aðinum 1,5 milljarður króna á
síðasta ári. Það að löggjöf skortir
veldur skattayfirvöldum vandræð-
um þar sem engin hliðstæða við
kvótaviðskipti finnst hérlendis
nema ef vera skyldi fullvirðisréttur
i landbúnaði.
í bréfi sem ríkisskattstjóri sendi
öllu skattstjórum landsins á
síðasta ári um kvótakaup segir
m.a.: „Vandamál er hinsvegar
varðandi hvernig fara eigi með
kaup á svokölluðum framtiðar-
kvóta. Sú afstaða hefur verið tek-
in af hálfu rikisskattstjóra að þeg-
ar slik réttindi eins og veiðiheim-
ildir eru keypt beri að eignfæra
þau á kostnaðarverði í efnahags-
reikningi og að fallast megi á að
fyrna þau. Talið hefur verið eðli-
legt að fyrningarhlutfallið væri 8%
eða það sama og er vegna skipa
og skipabúnaðar...“.
Þessari túlkun ríkisskattstjóra
eru endurskoðendur ekki sam-
mála. Þeir mynduðu vinnuhóp í
fyrra um málið og komst sá hópur
að þeirri niðurstöðu að afskrifa
bæri þennan kvóta á fimm árum.
í áliti vinnuhópsins segir að rökin
fyrir þvi séu m.a. að um sé að
ræða óviss réttindi tengd mikilli
áhættu vegna takmörkunar laga'
um fiskveiðiheimildir, endurskoð-
unarákvæða í lögunum um stjóm
fiskveiða, stærð fiskistofna og
annarra atriða. í álitinu segir svo:
„í samræmi við meðferð á hlið-
stæðum keyptum réttindum í
reikningsskilahaldi hér á landi og
erlendis og með hliðsjón af því
verði sem almennt hefur verið
miðað við í viðskiptum með afla-
kvóta er hæfilegur afskriftartími
slíkra réttinda talinn vera fimm
Mikilölvuní
miðbænum
MIKILL mannfjöldi safnaðist
saman í miðbæ Reylqavíkur að-
faranótt laugardagsins í kjölfar
skólaútskrifta og var ölvun tals-
verð. Að sögn lögreglu var fólks-
fjöldinn í miðbænum klukkan
hálffimm um morguninn eins og
á góðum sautjánda júní.
Þrátt fyrir hinn mikla mannfjölda
gekk nóttin nokkurn veginn stór-
slysalaust fyrir sig. Þó var eitthvað
um smávægilegar líkamsárásir og
alls voru fimmtíu teknir fyrir of
hraðan akstur. Tvær rúður voru
brotnar í miðbænum. Þá var einnig
ekið á ölvaðan mann við Snorra-
braut rétt fyrir klukkan fjögur um
morguninn en hann meiddist ekki
alvarlega.
Það var ekki fyrr en fór að rigna
hressilega um ídukkan fimm að
morgni laugardagsins að fólk fór að
tygja sig heim á leið og miðbærinn
tæmdist.
Sjá nánar á bls. 10 og 11.
Sölusamtök lagmetis:
Bankaábyrgð
vegna sölu
til Búlgaríu
SÖLUSAMTÖK lagmetis hafa
fengið bankaábyrgð í Búlgaríu
vegna sölu á um 100 tonnum af
gaffalbitum þangað en hluti af
lagmetinu verður seldur áfram til
Grikklands, að sögn Garðars
Sverrissonar framkvæmdasljóra
samtakanna. Þetta er í fyrsta
skipti, sem Islendingar selja lag-
meti til Búlgaríu. Tékkar og Ung-
verjar hafa keypt lagmeti héðan
og Pólverjar hafa mikinn áhuga
á að kaupa íslenskt lagmeti en
vegna gjaldeyrisskorts í Póllandi
hefur ekki orðið af kaupunum,
að sögn Garðars.
Stefnt er að því að gaffalbitarnir,
sem Búlgarar kaupa, verði fluttir
út fyrir miðjan næsta mánuð. Gaffal-
bitarnir voru framleiddir fyrir Rúss-
landsmarkað frá 6. október síðast-
liðnum fram í desember eftir að
Sovétmenn höfðu tilkynnt að þeir
myndu ekki standa við samning um
kaup á lagmeti héðan vegna gjald-
eyrisskorts. K. Jónsson á Akureyri
framleiddi 70-80% af þessum gaffal-
bitum en Hafnarsíld á Höfn í Horna-
firði afganginn.
Sovétmenn hefðu greitt um 25
milljónir króna fyrir gaffalbitana en
Búlgörum var veittur 5% afsláttur
til að liðka fyrir sölunni.
Stefán Már Stefánsson um EES dómstólinn:
Dómstóllinn hefur minna
vald en rætt hafði verið um
STEFÁN Már Stefánsson lagaprófessor við Háskóla íslands segir í
viðtali, sem birtist í Morgunblaðinu í dag, að oft hafi í undirbúning-
sviðræðum EFTA og EB vegna Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
verið rætt um miklu meira vald EES-dómstólsins heldur en virðist
koma fram í ráðherrayfirlýsingu frá 13. maí síðastliðnum. Stefán
hefur átt sæti í laganefnd við undirbúningsviðræðurnar.
Stefán segir að sér sýnist, með
vissum fyrirvara, að EES dómstóln-
um sé ætlað vald meira í hefðbundn-
um stíl heldur en nýjum stíl. „Það
er eins og aðrir dómstólar sem við
erum bundnir við, sérstaklega
Mannréttindadómstóllinn í Strass-
borg. Eg tel þetta í flestum tilvikum
ekki sambærilegt við lagaáhrif
dómsúrlausna EB dómstólsins. Við
yrðum bundnir við úrlausnir þessa
dóms að því er mér sýnist af þjóða-
rétti, sem er ekki sama binding, ef
svo má segja, eins og þjóðir EB eru
bundnar af úrlausnum dómstóls
EB,“ segir Stefán.
Hann segir að nokkuð skorti á
þekkingu manna hér á landi á Evr-
ópumálum, ekki síst Evrópurétti.
Efla þurfí rannsóknir á þessu sviði
og auka menntun fólks. Verði af
samningi um aðild íslands að EES,
segir Stefán að leita þurfi samstöðu
um að koma á fót sérstakri Evrópu-
stofnun við Háskóla Islands í þessu
skyni.
Hann segir jafnframt að aðlögun
íslendinga að Evrópuþróuninni sé
þegar nokkuð á veg komin og muni
að öllum líkindum halda áfram,
hvort sem um verði að ræða form-
lega aðild íslands að EES eða ekki.
Sjá „Menntun, menntun,
menntun,“ á bls. 20-21.