Morgunblaðið - 29.06.1991, Síða 11
aÍÓRbíyNBLADlÍÉ) 'l^VÍÍÖÁÍtDÁCÍuW'íé. iM'
Gaman að takast á við ný verk
Morgunblaðið/Bjami
Sigrún Eðvaldsdóttir og Þorsteinn Gauti Sigurðsson halda tónleika
í Hafnarborg annað kvöld.
Sigrún Eðvaldsdóttir
og Þorsteinn Gauti
Sigurðsson leika sam-
an í Hafnarborg
Síðustu tónleikarnir á Lista-
hátíð í Hafnarfirði verða annað
kvöld í Hafnarborg klukkan
20.30. Það eru þau Sigrún Eð-
valdsdóttir fiðluleikari og Þor-
steinn Gauti Sigurðsson sem
binda verðugan endahnút á vel
heppnaða fyrstu Listahátíð í
Hafnarfirði.
Þau Þorsteinn Gauti og Sigrún
eru flestum kunn og óumdeilanlega
í fremstu röð tónlistarmanna okkar
af yngri kynslóðinni. Þau sýna einn-
ig dirfsku og forvitni í verkefnaskrá
tónleikanna því ekkert verkanna
hafa þau spilað áður og Sigrún seg-
ir:-„Þetta er kannski dirfska en á
meðan maður er ungur langar mann
að spila allt og spreyta sig á ein-
hveiju nýju.“ Reyndar tóku þau
örlítið forskot á sæluna með því að
flytja Perpetuum Mobile eftir
Novacék á minningardagskrá um
Ragnar í Smára í Borgarleikhúsinu
á dögunum.
Efnisskráin að öðru leyti erþann-
ig að fyrst og viðamest er Itölsk
svíta eftir Stravinsky sem sumir
kannast eflaust við sem Pulcinellu-
svítuna skrifaða fyrir fíðlu og
hljómsveit, en í útsetningu Strav-
inskys fyrir fiðlu og píanó heitir hún
þessu einfalda nafni, ítölsk svíta.
Þá leika þau nokkur lög fyrir fiðlu
og píanó eftir Josef Suk, áðurnefnt
verk eftir Novacék, þarnæst Róm-
önsu eftir Ludwig van Beethoven,
prelúdíur eftir George Gershwin í
útsetningu Jascha Heiferts og ljúka
svo tónleikunum á íslensku verki,
Spuna II eftir Guðmund Hafsteins-
son. Sannarlega fjölbreytt efnisval
og spennandi.
Þau Sigrún og Þorsteinn Gauti
hafa ekki leikið saman áður og segj-
ast hafa haft mjög gaman af sam-
starfinu. „Sigrún er svo mikill mú-
síkant og geysilega flínk,“ segir
Þorsteinif'Gauti og bætir við, „það
er ekki oft sem maður spilar með
svona músíköntum, að öðrum ólöst-
uðum.“ Sigrún segir einnig gaman
að kynnast nýjum píanóleikara en
Selma Guðmundsdóttir sem leikið
hefur með henni á tónleikum und-
anfarin misseri er erlendis í sumar.
„Ég valdi efnisskrána," segir Sig-
rún, „en það kom í ljós að Þorsteinn
Gauti var mjög ánægður með hana
og nokkur verkanna eru einmitt
eftir hans uppáhaldstónskáld eins
og t.d. svítan eftir Stravinsky.“
Þorsteinn kinkar kolli við þessu og
segir svítuna dálítið barokklega
með tilbrigðum inn á milli,
...kannski ekki eitt af flóknari
verkum Stravinskys en mjög
skemmtilegt og áheyrilegt.“
„Lögin eftir Suk eru í sérstöku
uppáhaldi hjá mér,“ segir Sigrún.
„Eg á plötu með þessu lögum sem
eru mjög gamlar upptökur af leik
fiðluleikara sem lést ung um miðjan
4. áratuginn. Mig hefur alltaf lang-
að til að spila þessi lög og nú læt
ég verða af því. Perpetuum Mobile
var mjög vinsælt verk á efnisskrám
fíðluleikara fyrir allnokkrum árum,
Björn Ólafsson og Guðný Guð-
mundsdóttir léku það oft á tónleik-
um en nú er orðið nokkuð síðan það
ii
hefur heyrst og því tilvalið að spila
það á svona sumartónleikum.
Annars er alltaf mikill höfuðverk-
ur að setja saman efnisskrá. Mér
fannst eðlilegt að taka svolítið mið
af árstímanum og velja verk sem
eiga við sumarbirtuna,“ segir Sig-
rún. Þorsteinn Gauti bætir því við
að samt séu verkin innbyrðis ólík
og nánast sitt úr hverri áttinni.
„Allt frá háklassískri Rómönsu
Beethovens til nútímaverksins eftir
Guðmund Hafsteinsson.“
Þau Þorsteinn Gauti og Sigrún
eiga annasamt sumar og haust
framundan. Sigrún er á leið til
Bandaríkjanna þar sem hún tekur
þátt í kammertónlistarhátíð í Col-
orado. „Síðan fer ég til Skotlands
í ágúst með strengjasveit Tónlistar-
skólans í Reykjavík og leik þar á
nokkrum tónleikum. í október kem
ég svo heim til að spila fiðlukonsert-
inn eftir Brahms með Sinfóníu-
hljómsveit íslands.11 Þorsteinn Gauti
undirbýr tvenna tónleika í sumar,
einleikstónleika í ágúst, „... og í
september fer ég til Moskvu á nokk-
urs konar píanóráðstefnu þar sem
ég leik etíður eftir Rachmaninoff á
einleikstónleikum."
En það eru tónleikarnir í Hafnar-
borg annað kvöld sem næstir eru á
dagskránni og því ekki til setunnar
boðið að stilla saman strengina og
hefja æfingu. Blaðamaður lætur sig
hverfa hljóðlega af vettvangi og
fyrstu tónarnir byija að hljóma áður
en hurðin fellur að stöfum. jjg
Gísli Jónsson & Co.
Sýningarsalur, Borgartúni 31 Sími 626747
Með þennan tjaldvagn ert þú viss
um pottþétt ferðalag. Þú tjaldar
öllu, fortjaldi og svefntjöldum á
sviþstundu og nýtir tímann í lífs-
gleðjandi verk (ekki heilabrot um
hvernig súlur raðist saman').
Verð kr. 389.500,-
MEÐ
CAMP-LET
TJALDAR ÞÚ
ÖLLUÁ
SVIPSTUNDU, -
FORTJALDI OG
SVEFNTJÖLDUM
Þú getur verið viss um ósvikin
þægindi í útilegunni með
Camp-let tjaldvagn, — óra-
löng reynsla sannar það.
Sættu þig aðeins við fyrsta
flokks tjaldvagn sem stenst ís-
lenskar aðstæður og er fró
öruggum aðila.
Greiðslukjör: 25% útborgun
og eftirstöðvar í allt að 30
mánuði.
Sýniitg um
helgina i
Borgartúni 31.
Flaggskiþið frá Camþ-let. Sann-
kallaður lúxustjaldvagn m.a. með
innbyggðum ísskáþ, eldavél og
vaski með rennandi vatni. Toþþ-
urinn í tjaldvögnum.
Verð kr. 454.100,-
Grunnútgáfan af Camþ-let
þar sem allir kostimir birtast:
áfast fortjald og eldhúskassi,
tvö sjálfstœð svefntjöld o.fl. o.fl.
Verð kr. 342.800,-