Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 Minning: Þorgerður Jónsdóttir frá Svartanúpi Fædd 20. janúar 1897 Dáin 22. júní 1991 í júlímánuði árið 1857 gengu í hjónaband Þorgerður Jónsdóttir frá Svartanúpi í Skaftártungu þá 27 ára gömul og Brynjólfur Guð- mundsson frá Götum í Mýrdal þá 24ra ára. Þorgerður átti m.a. ættir að rekja til Ólafs Ólafssonar bónda í Hjörleifshöfða og Sturla Jónsson bóndi á Þórustöðum í Grímsnesi var afi hennar. Langafi Brynjólfs var hins vegar Ögmundur sonur Högna Sigurðssonar á Breiðabólstað (Presta-Högni) eh hann var kvænt- ur Salvöru Sigurðardóttur frá Ás- garði í Grímsnesi. Hjúskapur Þorgerðar og Brynj- ólfs varð upphaf fjölmennrar ættar sem margir nefna Heiðarættina. Nýgiftu hjónin bytjuðu búskap sinn á Litlu-Heiði en voru síðar 5 ár í Breiðuhlíð í Mýrdal en fluttu svo aftur að Litlu-Heiði 1867 og bjuggu þar síðan, þar til Brynjólfur lést árið 1900 er hann hrapaði í Heiðarfjöllum. Þorgerður átti heima á Litlu-Heiði þar til hún lést árið 1920. Þorgerður á Heiði, eins og hún var kölluð, var ljósmóðir og þekkt kona í Mýrdal fyrir myndarskap á flestum sviðum. Börn þeirra Þor- gerðar og Brynjólfs sem upp kom- ust voru sex talsins. Næst yngstur í þeirra hópi var Jón Brynjólfsson sem fæddist í Breiðuhlíð árið 1865. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum. Um fermingu varð hann fyrir því áfalli að fá lömunarveiki, sem olli því að hann missti mátt í annarri hlið líkamans. Þetta lagaðist en þó ekki að fullu. Hann var haltur á öðrum fæti það sem eftir var ævinn- ar. Þrátt fyrir þennan áverka gat Jón stundað flesta líkamlega vinnu og mun það hafa hjálpað til hve harðfylginn hann var enda lét ná- granni Jóns þau orð falla að hann væri harðgerður maður með af- brigðum. Árið 1892 giftist Jón Rannveigu Einarsdóttur. Hún var dóttir hjón- anna Einars Einarssonar frá Þykkvabæ í Landbroti, síðar bóndi á Strönd í Meðallandi og Rannveig- ar Magnúsdóttur frá Skaftárdal. Þau Jón og Rannveig dvöldu tvö fyrstu búskaparárin á Litlu-Heiði en árið 1894 hefja þau búskap á Höfðabrekku. Þannig vildi til, að Rannveig og Vilborg eldri systir hennar fengu Höfðabrekkuna í arf. Magnús Magnússon bóndi á Skaft- árdal hafði fest kaup á jörðinni og reyndar eignaðist hann fleiri jarðir. Honum auðnaðist bláfátækum að komast í góð efni með miklum dugnaði. Hann náði þeim metorðum að verða útnefndur Dannebrogs- maður. Jón Brynjólfsson og Rannveig eignuðust helming Höfðabrekkunn- ar og bjuggu á vestri partinum en þau Vilborg og Sveinn Ólafsson maður hennar áttu hinn helminginn og bjuggu á eystri partinum með sonum sínum þremur: Karli, Gústaf og Einari Ólafi (síðar prófessör). Rannveig og Jón eignuðust sjö börn sem upp komust. Þriðja í röð- inni var Þorgerður sem fæddist á Höfðabrekku 1897. Nú eru aðeins tveir synir á lífi, Ólafur -sem dvelur á dvalarheimili aldraðra í Vík. Hann var giftur Elísabetu Ásbjörnsdóttur, og Brynjólfur sem var giftur Maren Guðmundsdóttur og dvelur nú einn á heimili sínu í Reykjavík. Þessir tveir öldungar eru enn við ótrúlega góða heilsu. Hin systkini Þorgerðar sem nú eru látin voru: Magnús, giftur Halldóru Ásmundsdóttur sem lifir mann sinn, nú 95 ára, Guðrún sem gift var Guðmundi Þorsteins- syni, Einar, giftur Kristínu Páls- dóttur, og Steinunn, gift Valmundi Björnssyni. Þorgerður ólst upp á Höfða- brekku með foreldrum sínum. Hun minntist oft á veruna þar og, hvað lífsbaráttan var hörð. Faðir hennar sótti vinnu til Víkur við smíðar, einnig reri hann þar á árabát, þeg- ar gaf á sjó en það gat verið stop- ult. Þótt oft væri þröngt í búi hjá mörgum á þessum árum þá mun aldrei hafa skort mat hjá þeim Jóni og Rannveigu. Fýlatekjan í Höfða- brekkuhömrunum var mikil matar- björg fyrir ábúendur jarðarinnar og éinnig fiskur þegar gaf á sjó. Þau Sveinn og Vilborg bjuggu á Höfðabrekku 1894-1905 en þá seldu þau Björgvin Vigfússyni sýsl- umanni sinn jarðarpart en hann tók við Skaftafellssýslu vorið 1905. Fluttu Sveinn og Vilborg með fjöl- skyldu sína að Suður-Hvammi í Mýrdal og bjuggu þar til ársins 1922 er þau fluttu til Reykjavíkur. Það kom fljótt í ljós að Björgvin sýslumaður hafði líka áhuga á því að kaupa vestri part Höfðabrekk- unnar. Mun það m.a. hafa haft áhrif á þá ákvörðun Jóns Brynjólfs- sonar og Rannveigar að selja sinn part og flytja til Víkur 1907 með fjölskyldu sína (Brynjólfur sonur þeirra dvaldi þó áfram einhvern tíma á Höfðabrekku), en þorpið var þá í örri uppbyggingu. Jón hafði þá þegar byggt sér íbúðarhús undir Víkurbökkum. Þorgerður ólst svo upp áfram hjá foreldrum sínum í Vík. Hún stund- aði barnaskólanám eftir því sem þá gefðist og síðar fór hún í unglinga- skólann. Þar lærði hún dönsku og nokkuð í ensku. Hún notaði vel þetta stutta skólanám og tungu- málanámið gerði henni kleift að lesa dönsku. Mikill gestagangur var á heimili foreldra Þorgerðar í Vík og oft þröng í húsi, ekki síst á vor- in þegar vorkauptíðin stóð yfir og sama á haustin þegar bændur ráku sauðfé til slátrunar. Þorgerður hóf störf í foreldrahúsum eins fljótt og kraftar leyfðu. Allir þurfa að vinna til þess að framfleyta sjálfum sér og fjölskyldunni. Þorgerður starfaði svo utan heimilisins eins og algeng- ast var um ungar stúlkur á þeim árum. Hún fór í sveit á sumrin fyrst sem unglingur og síðar kaupakona. Var hún á nokkrum bæjum í Mýr- dal og einnig fyrir austan Mýrdals- sand. Árið 1918 dvaldi Þorgei-ður hjá Guðrúnu systur sinni sem þá var búsett á Patreksfirði með fjöl- skyldu sinni. Hafði hún oft orð á því, að það hefði verið lærdómsríkt að dvelja þar. Meðal annars lærði hún þar að dansa laneier. Þorgerður giftist hinn 24. júií 1920 Einari Erlendssyni verslunar- manni hjá Kaupfélagi Skaftfellinga í Vík. Bjuggu þau tvö fyrstu árin í húsi Erlendar föður Einars sem giftur var Ragnhildi Gísladóttur frá Norður-Götum. Erlendur Björnsson var annar innflytjandinn í Víkur- þorp árið 1797. Þröngt var í litla húsinu hjá þeim Einari og Þorgerði fyrstu árin en sambúðin þar var góð. Árið 1920 hófust þeir feðgar Erlendur og Einar handa um bygg- ingu nýs íbúðarhúss uppi á Víkur- bökkum. Byggingin var hafin 4. júlí og henni var lokið 7. desember. Bjó Einar með fjölskyldu sinni í eystri hluta hússins (2A) og Erlend- ur í vestri hlutanum ('/.<). Hafði Erlendur smíðastofu í kjallara húss- ins. Útsýni úr nýja húsinu sem fékk nafnið Grund var mikið og fagurt. Reynisdrangar og Reynisfjall í vestri, Gæsatindar og Mýrdalsjök- ull í norðri Arnarstakksheiði með Höttu, Hrafnatind og Víkurhamra ásamt Hjörleifshöfða í austri og í suðri innsiglaði hafið þennan fagra hring. Enda þótt aðalstarf Einars Er- lendssonar \'æri hjá Kaupfélagi Skaftfellinga hafði hann í nokkur ár umsjón með vöruflutningaskip- inu Skaftfellingi sem flutti vörur til Víkur og fleiri staða við suður- ströndina. Þá hafði Einar leyfi frá kaupfélaginu að stunda sjóróðra á vetrarvertíð. Átti hann ásamt Er- lendi föður sínum og fleirum sexær- inginn Svan, sem Erlendur hafði smíðað. Var Einar formaður með bátinn. Það var hins vegar undir hælinn lagt hve oft var hægt að róa til fiskjar. Brimótt suðurströndin var oft spör á gæftir. Þá stundaði Einar einnig bjargsig í Reynisfjalli um fýlatímann síðustu viku í ágúst- mánuði. Hann og nokkrir aðrir höfðu fjallið á leigu af Víkurbænd- um. Var fýllinn góð búbót og á haustin voru á Grund ein til tvær tunnur af söltuðum fýl. Var þetta talin herramannsmatur þeirra sem komust á bragðið. Ofannefnd auka- störf Einars lögðust niður þegar kom fram á fjórða áratug aldarinn- ar. Þau Þorgerður og Einar eignuð- ust þrjú börn. Þau eru: Erlendur sem gegndi forstjórastarfi Sam- bands ísl. samvinnufélaga í þrjá áratugi. Hann kvæntist Margréti Helgadóttur frá Seglbúðum og eiga þau þijú börn, Helgu meinatækni, Eddu píanóleikara og Einar Ijós- myndafræðing. Steinunn (Nenna) sem lærði hjúkrunarfræði bæði í Reykjavík og í Bandaríkjunum. Hún hefur verið búsett vestra frá 1948 og hefur verið yfirhjúkrunarkona á Háskóláspítalanum í Los Angeles um árabil. Hún kvæntist Albert Fink lækni. Þau eiga tvö börn, Dísu magister í Norðurlandamálum, bú- sett í Danmörku, og Henry Einar lögfræðing búsettan í Kaliforníu. Erla, hún útskrifaðist úr Kvenna- skólanum og síðar íþróttaskólanum á Laugarvatni. Hún hefur stundað kennara- og skrifstofustörf. Hún kvæntist Gísla Felixsyni rekstrar- stjóra og eiga þau þijú böm, Einar Indriða tæknifræðing, Efemíu Hrönn kennara og Omar Loga matvælafræðing. Erla og Gísli hafa verið búsett á Sauðárkróki. Þá ólst upp hjá þeim Einari og Þorgerði bróðursonur Einars, Björn Berg- steinn Björnsson. Faðir Bjöms fórst ásamt Bergsteini bróður hans í fiskiróðri frá Vestmannaeyjum árið 1918 áður en Björn fæddist. Hann ólst fyrst upp hjá Erlendi afa sínum og Ragnhildi ömmu en þegar þau féllu frá ólst hann upp hjá þeim Þorgerði og Einari. Björn Berg- steinn Björnsson giftist Ólöfu Helgadóttur hjúkrunarkonu frá Seglbúðum. Þau áttu fjögur börn: Ragnhildi kennara, Helga flugum- ferðarstjóra, Erlend líffræðing og bónda og Gyðu Björk líffræðing. Barn Björns fyrir hjónaband með Jónu Bjömsdóttur er Birna gift Guðmundi Þorsteinssyni kennara. Björn lést í bifreiðaslysi 1986 og Ólöf kona hans lést 1990. Þorgerður var mikil húsmóðir og lagði mikinn metnað í að halda fag- urt heimili. Einnig lagði hún sig fram í matargerð meira en algengt var á þeim tíma. Hún eignaðist fljótt danska matreiðslubók sem hún nýtti sér vel. Þá fékk hún líka mataruppskriftir úr dönskum viku- blöðum sem Einar maður hennar var áskrifandi að. Á þessum árum var í Skaftafellssýslum ekki um að ræða aðra gististaði en í heimahús. Þess vegna voru flest heimili í Vík gististaðir fyrir þá sem þurftu að dvelja í Vík í lengri eða skemmri tíma. Það kom oft í hlut Þorgerðar að hýsa ýmsa frammámenn þjóðarinn- ar er þeir þurftu að gista í Vík og minntist hún stundum á nokkra þeirra. Einn heimilisgesturinn var Guðmundur Einarsson frá Miðdal sem oft gisti hjá þeim þegar hann var á ferðinni í jöklaleiðöngrum sín- um. Þannig eignuðust þau hjónin vináttu við fólk hvaðanæva að. En fyrst og fremst vora það þó sveit- ungarnir nær og fjær sem voru tíð- ir gestir alveg eins hjá þeim eins og hafði verið hjá foreldram þeirra. Þorgerður var áhugasöm um garðrækt. Hún lagði verulega vinnu í blómabeðin í garðinum á Grund og ræktaði þar líka grænmeti. Ég minnist þess er við Erlendur vorum á ferð síðla sumars þegar hún fæddi okkur á jarðarbeijum úr garðinum sínum. Þau smökkuðust frábærlega vel. Það var eitthvert ferskt íslenskt bragð af þeim. Faðir minn var einn af þeim mörgu sem oft dvaldi dögum saman hjá þessum ágætu hjónum. Hann var endurskoðandi kaupfélagsins og þurfti því að eyða talsverðum tíma í þau störf. Á síðustu árum ævi hans átti hann við erfið veik- indi að stríða. Þá mátti á stundum heita að Þorgerður vekti yfir honum dag og nótt. Meiri nærgætni og hugulsemi var ekki hægt að sýna. Þorgerður tók virkan þátt í fé- lagslífinu í Vík. Hún gerðist félagi í Kvenfélagi Hvammshrepps, fljótt eftir að það var stofnað árið 1919. Þegar Guðlaug Halldórsdóttir í Suð- ur-Vík féll frá árið 1926 tók Þor- gerður við gjaldkerastarfi félagsins sem hún gegndi um árabil. Þá var hún kjörin formaður félagsins en vegna annarra starfa gegndi hún því aðeins í eitt ár. Þá var Þorgerð- ur virkur félagi í sambandi við leik- starfsemi kvenfélagsins. Um árabil færði félagið upp leiksýningar í samkomuhúsinu í Vík. Tók Þor- gerður þátt í þessum sýningum meira og minna. Hún var mjög áhugasöm um þessi mál og las mik- ið enda átti Einar all-gott bókasafn á þessum árum. Þá starfaði Þor- gerður í skólanefnd í Vík í fjölda ára. Þótt hún sýndi þessum félags- málum mikinn áhuga stóð hugur hennar þó næst heimili sínu. Þegar ég var 14 ára gömul í Seglbúðum kynntist ég fyrst fjöl- skyldu Einars og Þorgerðar þegar þau komu í sumarfrí ásamt annarri fjölskyldu úr Vík og tjölduðu við túngarðinn heima rétt við Grenlæk. Þau höfðu ákveðið að dvelja þar tvær vikur. Nærri má geta hve mikla fyrirhyggju þurfti af hendi húsmæðranna til þess að tryggja að nóg væri til af matföngum og nauðsynlegum áhöldum þennan tíma sem dvalið var í sveitinni, en næsta verslun var í 100 km fjar- lægð. Nokkur búdrýgindi voru þó af silungsveiði karlmannanna úr Grenlæk en konur og börn stunduðu berjatínslu. Ég minnist þess hve oft var gestkvæmt hjá þeim í tjöldun- um, jafnvel komu næturgestir langt að. Síðar meir reistu þau hjónin ásamt vinafólki lítinn skúr, að vísu án allra þæginda en þetta var samt stórt stökk frá tjöldunum. Oft undr- aðist ég hve margt fólk gat komist fyrir í þessum litla skúr, en sam- komulagið var gott og myndarskap- ur Þorgerðar leysti flest mál. Jafn- vel mestu óveðursdagamir voru ánægjulegir, þá fór faðir minn í heimsókn til þeirra og slegið var í slag og spilað fram á rauðanótt. Kynni við þessa fjölskyldu lögðu grundvöll að hamingju lífs míns, þar sem ég giftist síðar Erlendi syni þeirra Einars og Þorgerðar. Eftir að öll börn Þorgerðar og Einars fóru að heiman dvöldu þau alltaf hjá okkur á jólum. Má segja að þegar börnin okkar komu til sögunnar þá voru afi og amma þýðingarmikill þáttur jólahaldsins, því Einar afi lék jólasvein á að- fangadagskvöld í fjölda ára. Við Erlendur og börnin okkar áttum einnig ánægjulegar stundir á heim- ili Einars og Þorgerðar í Vík og einnig vorum við stundum öll saman á æskuslóðum mínum við Seglbúð- ir. Síðar kom veglegur sumarbú- staður fyrir fjölskylduna og þróunin hélt áfram. Við Erlendur byggðum okkar eigin bústað við Grenlæk árið sem hringvegurinn var opnaður 1974. Þar tókum við á móti mörgum gestum meðan Erlendur starfaði í Sambandinu. Árið 1975 fluttu Einar og Þor- gerður til Reykjavíkur í íbúð Hrafn- istu við Jökulgrunn. Að búa í húsi sínu í Vík var orðið þeim ofviða. Það voru samt ekki létt spor fyrir þau að flytja úr Víkinni, sérstaklega fyrir Einar. Hann hafði dvalið þama svo til allan sinn aldur. Tilboðum um kaupfélagsstjórastöður utan Víkur hafði honum boðist en svarið var alltaf það sama, „ég vil starfa áfram hjá Kaupfélaginu í Vík“. Hann var þarna rótfastur. Drang- arnir, Reynisíjall og Jökullinri voru vinir hans og minningarnar í lífs- hlaupi hans voru úr Víkinni, þar veitti lífið honum mikla hamingju og þar fékk hann líka sína lífsfyll- ingu, enda þótt dimma skugga bæri fyrir hugskotssjónir þegar sjó- slysin komu upp í hugann. Fjölskylda okkar og annarra skyldmenna reyndi að hjálpa tengd- aforeldram mínum til þess að aðlag- ast breytingunum, enda fór svo að þau sættu sig við að dvelja í Jökul- grunni. Kannski varð þeim þetta léttara fyrir það, að húsið okkar var í næsta nágrenni við íbúðina þeirra. Þorgerður hafði oft á orði, að hún hefði ekki þorað að vona að svo stutt yrði á milli okkar. En dæturnar vora lengra í burtu, en væru þær á ferðinni í Reykjavík eyddu þær öllum stundum sem þær gátu hjá foreldrum sínum. Árin í Jökulgrunni voru að mörgu leyti góð ár fyrir Einar og Þor- gerði. Með þeirri hjálp sem þau fengu frá Hrafnistu gátu þau hald- ið þar heimili í sjö ár en síðan fluttu þau að Hrafnistu. Þá þurfti líka aðlögun en aldurinn var að færast yfir og hjálpaði til þess að þau sættu sig betur við breytingarnar. Einar hélt upp á 90 ára afmæli sitt 1. febrúar 1985 og var við sæmi- lega heilsu, en svo fór að halla undan fæti. Hann lést á Borgarspít- alanum eftir stutta legu 1987. Þorgerður bar missinn með jafn- aðargeði, þótt söknuðurinn undir niðri væri mikill. Þau höfðu lifað saman í óvenjulega kærleiksríku hjónabandi í 67 ár og hún var þakk- lát fyrir þessi ár og fyrir það að börnunum þeirra hafði vegnað vel. Eftir að Þorgerður varð ein, heimsótti ég hana á Hrafnistu næst- um daglega. Það var einhver sterk- ur þráður sem batt okkur saman. Þorgerður bjó yfir einhverri dul- skynjun sem erfitt var að skýra. Hún sá fyrir ókomna atburði. Hún hugsaði mikið um trúmál og eyddi miklum tíma í að bijóta til mergjar boðskap Krists í Nýjatestamentinu. Trú hennar var sterk en þó ofin vissu raunsæi. Sum börnin mín og tengdabörn trúðu því að Þorgerður amma gæti sent þeim jákvæðar hugsanir þegar þau þurftu að ráða fram úr málum eða koma fram opinberlega t.d. á tónleikum. Þá var oft sagt við Þorgerði ömmu: „Viltu hugsa til mín.“ Þeim fannst þetta bera árangur. Það var erfiðara fyrir Þorgerði að bera ellina vegna þess hve hún missti mikla sjón. Hún hafði áður þegar þau bjuggu í Jökulgrunni unnið mikla handavinnu með því að hekla dúka og mottur. Afköstin voru ótrúlega mikil. Hún gafst samt ekki upp á handavinnunni eftir að sjónin dofnaði. Þá tók hún til við að pijóna sokka og vettlinga handa börnum og barnabörnum og fleir- um. Þessi vinna stytti henni stundir og hún naut þess að geta hlustað á útvarpið og fylgst með öllum fréttum innlendum sem útlendum. Þorgerði byijaði að hraka þann 13. júní. Það urðu henni sérstök von- brigði vegna þess að hún átti von á langþráðri heimsókn dóttur sinnar frá Bandaríkjunum. Nokkru síðar varð hún rúmliggjandi. Þá virtist ljóst að hveiju stefndi. Þegar dóttir hennar frá Bandaríkjunum kom tij hennar var það af henni dregið að hún gat aðeins sagt: „Ertu nú kom- in.“ Það voru hennar síðustu skýru orð. Hún andaðist á Hrafnistu laug- ardaginn 22. júní. á nítugasta og fimmta aldursári. Fyrir hönd fjölskyldunnar vil ég bera fram þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir framúrskarandi umhyggju og nærgætni sem það sýndi Þorgerði í gegnum árin. Þær

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.