Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 22
I
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JUNÍ 1991
Frá Light Nights sýningum Ferðaleikhúsins.
Ferðaleikhúsið 25 ára
FERÐALEIKHÚSIÐ mun halda upp á 25 ára afmæli sunnudaginn
30. júní en það hefur í meira en tuttugu ár staðið fyrir sýningum
á Light Nights. Ferðaleikhúsið er fjölskyldufyrirtæki rekið af hjónun-
um Kristinu G. Magnús og Halldóri Snorrasyni ásamt syni þeirra
Magnúsi S. Halldórssyni.
í ár eru liðin 25 ár frá stofnun
Ferðaleikhúsins og er þetta tuttug-
asta og fyrsta sýningarár Light
Nights. Að sögn Halldórs Snorra-
sonar, eins af stofnendum og eig-
endum Ferðaleikhúsins, verður
venjuleg sýning á Light Nights
sunnudaginn 30. júní að því undan-
skyldu að í lok sýningar mun Kristín
G. Magnús halda afmælisræðu og
heiðra þá sem hafa sýnt Ferðaleik-
húsinu góðvild og stuðing á þeim
25 árum sem það hefur starfað.
Halldór sagði einnig að nokkrir
boðsgestir kæmu á sýninguna þar
á meðal forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir. Ennfremur sagði
Halldór að í tilefni afmælisins yrðu
veitingar veglegar í hléinu á sýning-
unni.
Ferðaleikhúsið hóf starfsemi sína
fyrir 25 árum með sýningu á tveim-
ur einþáttungum eftir Peter Shaffer
og sýndu þá á 40 stöðum á jafn-
mörgum dögum að sögn Halldórs.
Síðan þá hefur leikhúsið sett um
ýmis verk og sýnt t.d. á Edinborgar-
hátíðinni í Skotlandi og í The Uni-
com Theatre for Children en það
er eitt þekktasta barnaleikhús Lon-
don. Langh'fasta verkefni Ferðaleik-
húsins er sýningar þess á Light
Nights er hafa staðið í tuttugu og
eitt ár og eru nú haldnar í Tjam-
arbíó. Light Nights sýningarnar eru
sérstaklega færðar upp til skemmt-
unar og fróðleiks enskumælandi
ferðamönnum. Meðal efnis em þjóð-
sögur, gamlar gamansögur og atr-
iði úr Egilssögu en sýningar eru
nokkuð breytilegar frá ári til árs.
í sumar verða sýningar Light
Nights 4 kvöld í viku frá fimmtu-
degi til sunnudags. Sýningar heíj-
ast kl. 21.00 og standa til kl. 23.00.
Síðasta sýning sumarsins verður
sunnudaginn 1. september.
Morgunblaðið/KGA
» .1 •'—V THi
w mu f } I
''
m j 1 — ’iffl, WiM /< í 8 ’i iíii - i
í 1 ■
i I I I j I 8 1 j | 1 » § |8 ! r
Myndlistarsýning í Perlunni
Sex íslenskir myndlistarmenn sýna verk á fyrstu myndlistarsýningunni er
haldin er í Vetrargarði Perlunnar í sumar. Þessi sýning var opnuð um leið
og Perlan var tekin formlega í notkun föstudaginn 21. júní sl. og stendur
út ágúst. Vetrargarðurinn er á jarðhæð Perlunnar og hefur upp á mikið
rými að bjóða. Gólfflöturinn er samtals 1.000 fermetrar og lofthæðin er
10 metrar. Verk flestra listamannanna er sýna í Vetrargarðinum í sumar
eru stór í sniðum og nýta vel hið mikla rými sýningarsvæðisins. Listamenn-
irnir er sýna eru Asa Ólafsdóttir, Hulda Hákon, Ingunn Benediktsdóttir,
Jón Óskar, Ragnheiður Jónsdóttir og Sigurður Örlygsson. Öll listaverkin
eru til sölu.
Aðstoðarforstjóri Skandia um kaupin á Reykviskri tryggingu;
Höfum ekki í hyggju að
umturna íslenska vá-
tryggingamarkaðinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gísli Örn Lárusson, forstjóri Reykvískrar tryggingar hf., og Leif
Victori, aðstoðarforstjóri Skandia samsteypunnar, að lokinni und-
irritun samnings um kaup Skandia á meirihluta hlutafjár í Reyk-
vískri tryggingu.
Iðgjaldavelta
Skandia sam-
steypunnar 350
milljarðar kr. á
síðastliðnu ári
Á HLUTHAFAFUNDI í Reyk-
vískri tryggingu hf. sl. fimmtu-
dag var skrifað undir kaup-
samning við sænska trygginga-
félagið Skandia, sem keypti
meirihlutann í Reykvískri
tryggingu með forkaupsrétti að
öllu fyrirtækinu í framtíðinni.
Með í kaupunum fylgja
Reykvísk líftrygging hf. og
Reykvísk Endurtrygging hf.
Undirbúningur að þessari sam-
einingu hefur staðið yfir í sex
mánuði, að sögn Gísla Arnar
Lárussonar, forstjóra, sem er
jafnframt annar aðaleigandi fé-
lagsins með 35% hlut. Skandia
er stærsta vátryggingafélagið á
Norðurlöndum og eitt af stærri
vátryggingafélögum Evrópu
með starfsemi viða um heim. I
gær var tilkynning um kaup
Skandia birt samtímis í Stokk-
hólmi, Kaupmannahöfn, Osló og
London.
Heildariðgjaldavelta Reyk-
vískrar tryggingar á síðasta ári
var 154 milljónir kr. og hagnaður
nam 6,6 milljónum. Iðgjaldavelta
Skandia samsteypunnar nam hins
vegar 350 milljörðum króna á
síðasta ári eða sem svarar til rúm-
lega þrefaldra fjárlaga íslenska
ríkisins og til samanburðar má
einnig geta að heildariðgjaldavelta
íslenska tryggingamarkaðarins á
síðasta ári var 11 milljarðar.
Samtengd tryggingaþjónusta
„Það er stefna Skandia að gera
Norðurlöndin að sínum heima-
markaði og þar sem Island er hluti
af Norðurlöndunum höfum við
áhuga á að tengja saman starfsem-
ina í þessum löndum og sjáum
fram á að geta boðið upp á góðar
lausnir í vátryggingamálum í
gegnum Reykíska tryggingu,"
sagði Leif Victorin, aðstoðarfor-
stjóri Skandia samsteypunnar í
samtali við Morgunblaðið.
Sagði hann áhugaverða þróun
framundan á íslenskum trygginga-
markaði og fyrirtækið myndi bjóða
upp á ýmsar nýjungar I trygginga-
málum.
Reykvísk trygging og dótturfé-
■ lög þess verða framvegis rekin sem
sjálfstæð fyrirtæki en í nánu sam-
starfí við Skandia. Sagðist Leif
Victorin sjá ýmsa kosti við sameig-
inlegan rekstur og samnýtingu
trygginga- og fjármálaþjónustu
fyrirtækjanna sem Skandia sam-
steypan rekur nú á öllum Norður-
löndunum. Skandia hefur nýverið
eignast tryggingafélögin Konglig
Brand í Danmörku og Vesta í
Noregi og hefur náið samstarf við
Pohjola í Finnlandi.
Nýir kostir við
lífeyrissparnað
Leif Victorin sagðist einnig sjá
framundan áhugaverða möguleika
á sviði lífeyris- og eftirlaunatrygg-
inga en Skandia rekur m.a. eitt
stærsta lífeyristryggingafyrirtæki
á Spáni og á stórt fyrirtæki á því
sviði í Englandi. „Ef löggjöf á ís-
landi gefur okkur tækifæri til
munum við einnig bjóða íslending-
um góðar lausnir við lífeyrissparn-
að. Island hefur átt við mikla verð-
bólgu að stríða og fólk ekki séð
sér hag í spamaði en nú virðist
vera að komast á meiri stöðug-
leiki. Er kominn tími til að efla
sparnaðinn því það er ein mikil-
vægasta forsenda þess að efna-
hagslífið fái að vaxa. Það er óhjá-
kvæmilegt að langtímaspamaður
aukist á Islandi og við getum boð-
ið upp á ýmsa möguleika til að
koma á auknum sparnaði," sagði
hann.
Gísli Örn sagði að ísland væri
eina landið í Vestur Evrópu þar
sem spamaður í formi lífyeris-
trygginga væri ekki frádráttarbær
frá skatti. „Hugmyndin að nýjum
lífeyristryggingasparnaði byggist
á að veita einstaklingum kost á
að velja á milli leiða til sparnaðar.
Fyrirtæki hér á landi hafa senni-
lega verið of smá, með tiltölulega
litla eiginfjárstöðu, til að geta
byggt upp líftryggingaspamað og
þess vegna er mikilvægt fyrir okk-
ur að koma á þessu samstarfi við
Skandia til að útfæra hugmyndir
okkar og koma nýjungum í fram-
kvæmd.“ sagði Gísli Örn.
Leif Victorin sagði að Skandia
hefði ekki í hyggju að umtuma
íslenskum vátryggingamarkaði
heldur muni það athafna sig með
varfærni og skoða vandlega hvaða
kosti það geti boðið upp á hér á
landi.
„Reykísk trygging hefur verið
leiðandi í nýjungum í vátrygginga-
málum á íslandi en við emm litlir
og höfum því verið að leita að
sterkum samstarfsaðila til að að-
stoða okkur við að koma þeim í
framkvæmd. Vandi margra trygg-
ingafélaga hér hefur verið sá að
þau starfa hvert í sínu horni í stað
þess að eiga samstarf á ýmsum
sviðum svo sem með sameiginleg-
um tölvubanka," segir Gísli Örn.
Bentu þeir á að fijálsari reglur um
fjármagnsviðskipti á milli landa
gerðu þetta mögulegt. Vildu þeir
ekki gefa upp kaupverð Skandia á
meirihluta hlutaíjár í Reykvískri
tryggingu.
Stjórn Reykvískrar tryggingar
eftir sameininguna skipa Werner
I. Rasmusson, stjómarformaður,
Leif Victorin og Gísli Öm Láms-
son.
Geisladiskur með Sig-
rúnu Eðvaldsdóttur
Geisladiskur kom út í gær, föstudaginn 28. júní, sem inniheldur
upptökur sem fram fóru í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar og Víði-
staðakirkju nú í vor. Það er Sigrún Eðvaldsdóttir sem ieikur á fíðlu
við undirleik Selmu Guðmundsdóttur píanóleikara.
Sigrún Eðvaldsdottir er fædd í
Reykjavík árið 1967 og hóf að læra
á fiðlu aðeins fimm ára að aldri.
Síðar hóf hún nám við Tónlistar-
skólann í Reykjavík hjá Guðnýju
Guðmundsdóttur og útskrifaðist
sem einleikari þaðan árið 1984,
yngst allra sem það höfðu gert.
Framhaldsnám stundaði Sigrún
í Bandaríkjunum oglauk burtfarar-
próíi frá hinum þekkta Curtis tón-
listarskóla í Philadelphiu árið 1988
með BM gráðu í tónlist.
Sigrún hefur margoft komið
fram bæði hér á landi og eriendis
við ýmis tækifæri og jafnan hlotið
mikið lof fyrir.
Sigrún Eðvaldsdottir hefur hlotið
ýmis tónlistarverðlaun og viður-
kenningar fyrir leik sinn þrátt fyrir
Sigrún Eðvaldsdóttiiv jíiii
stuttan en glæislegan feril. Árið
1987 hlaut hún 2. verðlaun í Leop-
old Mozart keppninni í Augsburg í
Þýskalandi og í framhaldi af því
var henni boðið að halda tónleika
í Munchen og Numberg. Árið 1988
vann Sigrún til 5. verðlauna í Carl
Nielsen tónlistarkeppninni í Dan-
mörku þar sem flutningur hennar
á fiðlusóntötu Nielsens hlaut sérs-
takt lof. Það var svo í desember
1990 sem Sigrún hlaut 3. verðlaun
í hinni þekktu Síbelíusar tónlstar-
keppni í Helsinki, en slíkum ár-
angri hefur enginn íslendingur náð
í jafn virtri keppni.
Á geisladisknum Catabile sem
nú kemur út eru 16 tónsmíðar eftir
ýmsa höfunda á borð við Paganini,
Sibelíus, Rachmaninoff, Kreisler,
Chopin, Brahms svo einhverjur séu
nefndir,- - (Fréttatilkynning)
■ SPYRNUKEPPNI Jeppa-
klúbbs Reykjavíkur verður haldin
sunnudaginn 30. júní stundvíslega
kl. 14.00, rétt sunnan við Grinda-
víkurafleggjara. Þetta verður
fyrsta keppni ársins sem gefur stig
í keppninni um Bikarmeistaratitil
Jeppaklúbbs Reykjavíkur. Kepp-
endur hafa undanfarið líst miklum
áhuga á keppni sem þessari og má
því búast við því að flestir hörðustu
torfæruökumenn landsins mæti á
staðinn með bíla sína sem hafa aldr-
ei verið kraftmeiri en núna. Keppt
verður í tveimur flokkum, flokki
sérútbúinna bíla og flokki götubíla.
Skilyrði er að bílar hafi drif á báð-
um öxlum. Keppnisform skal vera
útsláttur og vinnur sá sem er á
undan yfir endalínu, án tillits til
tíma.
(Fréttatilkynning)