Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 31
ICP.I í/r.'l MS. íJ-JOAaíIAD’JAi QISAJaWjOHOJC
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991
Hornstrandir heilla
Víkurnar þrjár, Hælavík, Hlöðuvík og Kjaransvík, tekið af Hælavíkurbjargi.
Ferðahópur FÍ fyrir utan Búðir í Hlöðuvík, Skálar - Kambur í bak-
sýn.
eftir Guðmund
Hallvarðsson
í sumar býður Ferðafélag íslands
upp á ýmsá freistandi möguleika í
Hornstrandaferðum. Þar kennir
margra grasa, s.s. styttri og lengri
ferðir, hreinar bakpokaferðir þar
sem gengið er með alian útbúnað
frá einum stað til annars og síðan
sk. húsferðir þar sem dvalið er í
húsum og skipt um bækistöð í miðri
ferð, en að öðru leyti alltaf gengið
út frá bækistöðinni. Sem dæmi um
slíkar ferðir má nefna, Hornvík-
Hlöðuvík 3.-12. júlí. Hlöðuvík-
Hornvík 10.-19. júlí ojg Hlöðuvík-
Hesteyri 8.-16. ágúst. I öllum þess-
um ferðum er dvalið í fyrri bæki-
stöð (húsi) í 3-4 daga og gengið
þá yfir í seinni bækistöð með far-
angur (ekki mat) og dvalið í aðra
3-4 daga. Út frá þessum bækistöðv-
um eru svo farnar reglulegar dags-
ferðir.
Afnot af húsum
í fyrrasumar gerði Ferðafélagið
samkomulag við eigendur
Frímannshúss á Horni og eigendur
að Búðum í Hlöðuvík um leigu á
húsunum fyrir tilteknar ferðir
Ferðafélagsins og nú í sumar bæt-
ist við skólinn á Hesteyri. Þessa
nýja aðstaða sem þarna hefur feng-
ist skapar auðvitað algerlega ný
skilyrði í ferðastarfsemi Ferðafé-
lagsins í friðlandi Hornstranda. Ef
þessi aðstaða verður til frambúðar
geta skapast forsendur fyrir öflugri
sókn í ferðastarfsemi á þessum
slóðum, en því miður hefur þar
verið um nokkra lægð að ræða á
síðustu árum. Sumarið í fyrra var
þar að vísu ánægjuleg undantekn-
ing. En eins og allir vita sem á
annað borð hafa ferðast um þessar
slóðir, þá er veðrið afgerandi atriði
hvort menn sæki á þessi mið eða
ekki.
Fyrirkomulag ferðanna
í þessari grein mun ég leitast við
að útskýra hvað felst í þessari nýj-
ung, þ.e. húsferðunum. í sumar
förum við þijár slíkar ferðir eins
og áður segir. Fyrsta ferðin 3.-12.
júlí er Homvík-Hlöðuvík. Fyrsti
dagurinn fer í það að koma sér til
ísaijarðar, en á öðrum degi er siglt
til Hornvíkur. Áður en siglt er til
Hornvíkur verða farþegar að hafa
gengið þannig frá nesti sínu, að
helmingurinn fari í land í Hlöðuvík
og hinn helmingurinn í Hornvík,
því maturinn er fluttur í upphafi
ferðar á báða staðina. Miðað við
reynsluna frá síðasta sumri má
reikna með að reynt verði að hafa
matinn að hluta til sameiginlegan,
s.s. kvöldverð, kaffi, mjólk, græn-
meti, hreinlætisvörur o.s.frv., en í
fyrra gaf slík skipan mála afar
góða raun og þótti mjög hagnýt.
Til undirbúnings ferðunum mun
fararstjóri halda sértaka undirbún-
ingsfundi með hveijum hóp fyrir
_____________Brids________________
Amór Ragnarsson
Sumarbrids 25. júní
28 pör mættu til leiks og spilaður
var Mitchell-tvímenningur með 10
umferðum og 3 spilum á milli para.
Úrslit urðu á þann veg:
N-S
Guðmundur Auðunsson - Bjöm Amarson 305
Guðjón Jónsson - Guðlaugur Sveinsson 303
Gísli Steingrímsson - Sigurður Steingrimsson 296
Sigrún Pétursdóttir - Gunnþómnn Erlingsd. 292
A-V
Ólína Kjartansdóttir - Ragnheiður Tómasd. 315
Cecil Haraldsson - Alfreð Kristjánsson 307
Gylfí Ólafsson—Siguijón Harðarson 300
PállBergsson-HjálmdrPálsson 299
Keppnisstjóri var Sveinn R. Eiríksson
en næstu þriðjudagskvöld tekur Jón
Baldursson við stjóminni.
Sumarbrids byrjenda
11 pör mættu til leiks. Spilaður var
sig. Sá fyrri verður þriðjudaginn
18. júní til undirbúnings ferðinni
3.-12. júlí og verður haldinn í húsi
Ferðafélagsins á Öldugötu 3 og
næsti fundur fyrir ferðina 10.-19.
júlí verður svo haldinn þriðjudaginn
25. júní á sama stað. Báðir heij'ast
þeir kl. 20.30. Fundur til undirbún-
ings ferðarinnar Hlöðuvík-Hesteyri
8.-16. ágúst verður auglýstur síðar.
Hornvík - helstu gönguleiðir
Með bækistöðvunum tveim,
Frímannshúsi á Horni og Búðum í
Hlöðuvík, getum við nálgast þau
svæði Homstranda sem ferðamönn-
um hefur þótt hvað eftirsóknarverð-
ust. Hornvíkin er stundum kölluð
perla Homstranda og ekki af
ástæðulausu. Fyrir utan formfeg-
urð sína og lögun skartar Hornvík-
in báðum björgunum, Hælavíkur-
bjargi og Hornbjargi. Úr eldhús-
glugganum í Frímannshúsi á Horni
horfir maður beint í ægifagra
hamraveggi Hælavíkurbjargs og
víst eru fá eldhúsin sem geta státað
af slíku útsýni. Því að í Hælavíkur-
Mitchell-tvímenningur, og voru spilað-
ar 5 umferðir með 5 spilum á milli
para. Úrslit urðu eftirfarandi:
N-S
Bjöm Svavarsson - Eyþór Hauksson 113
Guðmundur Þóröars. - Guðný Hálfdánardóttir 105
Maria Jónsdóttir - Þorbjörg Bjamadóttir 101
A-V
ÞórirMagnússon-ÓskarJónHelgason 117
Guðmundur Kr. Sigurðsson - Jóhannes Laxdal 102
Álfheiður Gísladóttir - Pálmi Gunnarsson 101
Hjördís Siguijónsdóttir - Maria Guðnadóttir 101
Vegna misskilnings hjá nokkrum
pörum er ítrekað að spilamennska
byijar kl. 19 á miðvikudagskvöldum
í Sumarbrids.
Sumarbrids sl. fimmtudag
Góð þátttaka var í Sumarbrids sl.
fimmtudag. 60 manns mættu til leiks.
Spilað var í 2 riðlum. Úrslit urðu (efstu
pör):
A)
Gylfi Baldursson - Sigurður B. Þorsteinsson 254
Guðlaugur Sveinsson - Lárus Hermannsson 240
bjarginu kemur saman í einni heild
mikil fegurð og hrikaleiki.
Frá Horni er um margar göngu-
leiðir að ræða, en þar sem við höf-
um aðeins þijá daga til ráðstöfunar
verðum við að takmarka valið. Það
er t.a.m. sjálfsagt á fyrsta degi að
ganga yfir í Látravík og húsvitja
hugsanlega hjá vitaverðinum á
Hornbjargsvita. Frá Látravík má
sjá Hornbjarg frá afar fögru sjónar-
homi, sem þekkt er orðið af póst-
kortum, s.s. Fjalir, fossinn Drífandi,
Blakkabás, Kyrfi o.s.frv. Leiðin til
Látravíkur er létt dagsganga. Við
göngum út Innstadal og stefnum á
sk. Almenningsskarð, en þar eru
m.a. leifar af hliðstólpum sem áður
mörkuðu hreppamörkin milli Sléttu-
hrepps og Grunnavíkurhrepps. Rétt
áður en komið er í Almennings-
skarð leggjum við lykkju á leið
okkar og komum við í Harðviðr-
isgjá. Þar er tryggilega umbúinn
vaður sem eggjamenn nota á vorin,
en sem stundum gengur udir nafn-
inu „túristakaðallinn“! Ef sól er á
lofti og skyggni gott má helst eng-
Guúrún Júliaunesdóttir - Jón Hersir Elíasson 235
DaóiBjömsson-GuðjónBragason 231
Dúa Ólafsdóttir - Ragnheiður Tómasdóttir 223
Guðrún Jörgensen - Sigrún Pétursdóttir 217
B)
Guðmundur Eiriksson - Jón St. Gunnlaugsson 207
BemhardLinn-ÓliBjömGunnarsson 183
Guðmundur Baldursson - Guðbjörn Þórðarson 175
RúnarLámsson-ValdimarElíasson 174
HaukurHarðarson-VignirHauksson 162
Bikarkeppni Bridssambands
Islands
Til viðbótar áður birtum úrslitum,
er kunnugt um úrslit í tveimur leikjum
tii viðbótar.
Sveit Sigurðar Stefánssonar,
Reykjavík, sigraði sveit Runóifs Jóns-
sonar, Selfossi, örugglega. Lokatölur
urðu 86 stig gegn 38.
Sveit Sigurðar Skúlasonar, Horna-
firði, sigraði sveit Hjörleifs Jenssonar,
Vestmannaeyjum, í nokkuð jöfnum
leik. Úrslit urðu 118 stig gegn 89.
Greinilega mikið fjör í þeim leik. Spil-
að var í Eyjum.
inn skorast undan því að rölta upp
á Kálfatinda, en það er hæsti punkt-
ur Hornbjargs, 534 metrar yfir
sjávarmáli. Af Kálfatindum er
gífurlega fagurt útsýni til allra átta.
I góðu skyggni sést austur allar
Hornstrandir þ.m.t. Geirólfsnúp,
sem markar skilin milli Horn-
stranda og Strandasýslu. Oft sést
enn lengra, jafnvel norður á Skaga.
Af Kálfatindum sjáum við Drang-
jökul gnæfa yfír og tindar Horn-
stranda í vesturátt blasa við svo
langt sem augað eygir.
A leiðinni niður af Kálfatindum
er tilvalið að ganga niður í Miðdal,
en þaðan sést dranginn Jörundur
afar vel. Undir rótum Jörundar er
Gífurlega fögur blómabrekka sem
tilvalin er fyrir nesti, afslöppun og
andlega íhugun af einhverri gerð.
Hetjurnar geta svo gengið á Mið-
fell til að bæta enn við afrekaskrá
sína. Sem kvöldganga er svo tilval-
ið að ganga á núpinn á Horn-
bjargi, sem stundum hefur verið
talinn nyrsti hluti íslands, og að-
gæta sólarlagið.
Frá Homi má svo einnig taka
létta dagsgöngu vestur Hornvíkina
með viðkomu. í Höfn í Hornvík, en
gamla íbúðarhúsið í Höfn er nú
skipbrotsmannaskýli. Á leiðinni til
Hafnar í Hornvík' þarf að vaða
Hafnarós og verður staða sjávar-
falla að ráða því hvaða vað er val-
ið, Sjávarvað, Standavað eða Kýr-
vað, en það síðastnefnda dregur
væntanlega nafn sitt af Kýrá og
Kýrskarði, sem er nokkuð greiðfær
leið til Látravíkur frá Höfn í
Hornvík.
Frá Höfn er svo tilvalið að stefna
göngunni í Hvannadal, en Hvanna-
dalur er dalverpi í enda Hælavíkur-
bjargs, sem skilur að Hælavíkur-
bjarg og Rekavíkurfjall. Á leiðinni
í Hvannadal er gengið fyrir sk.
Tröllakamb og þvert yfir Rekavík
bak Höfn. Síðan er gengin gata
hátt í bröttum hlíðum Rekavíkur-
ljalls til að komast inn í Hvannadal
og verða sum hjörtu sundum æði
smágerð á þeirri göngu! Úr
Hvannadal sjást hlutar bjargsins frá
mögnuðu sjónarhorni eins og t.a.m.
Festarskörðin. Úr Hvannadalnum
ganga tveir berggangar í sjó fram,
Langikambur og Fjöl og á milli
þeirra Kyrfí.
Gönguleiðir frá Búðum
í Hlöðuvík
Á leiðinni til Hlöðuvíkur frá
Horni göngum við vestur Hornvík-
ina eins og áður er lýst, fyrir Trölla-
kamb, en göngum nú upp Rekavík
bak Höfn og stefnum á sk. Atla-
skarð. Í Atlaskarði er Atladys, sem
hefð er fyrir að kasta í þremur stein-
um. Sumir telja það ógæfumerki
að gera það ekki. Síðan er gengin
vörðuð leið í talsverðri hæð og
stefnt á fjallið Skálarkamb. Á þess-
ari vörðuðu leið erum við allan
tímann yfir Hælavíkinni. Skálar-
kambur er bratt fjall, en hinsvegar
er gatan niður góð og liggur í krók-
óttum stigum niður í svonefnda
skál og þá er stutt eftir niður á
Á slóóum
Ferðafélags
íslands
jafnsléttu þ.e. niður Skálarbrekku
framhjá Skálarbrekkufossi og þá
erum við komin að Búðum í
Hlöðuvík.
Hlöðuvíkin er ein af fegurstu
víkum sem Hornstrandir skarta
hvað formfegurð og lögun varðar.
Fjallahringvrmn er stórfenglegur.
Vestast er það Kjalárnúpur, síðan
Alfsfellið, sem er eitt tignarlegasta
og formfegursia fjall Hornstranda,
Hlöðuvíkurskarðið yfír í Veiðileýsu-
fjörð, Jökladalirnir, Þórishornið,
Skálarkambur og að sfðustu
Hælavíkurbjarg. Undiriendi er
nokkuð og víkin talsvert víðáttu-
mikil. Á fáum stöðum Hornstranda
sést miðnætursól jafn vel snemma
sumars, en einmitt í Hlöðuvík.
Frá Hlöðuvík er um marga val-
kosti að ræða hvað gönguleiðir
varðar. Ef veður er ákjósanlegl,
þ.e. sól og skyggni gott, þá setjum
við númer eitt í forgangsröðina að
ganga yfir í Hælavík og skoða síðan
Hælavíkurbjargið. Þetta er yfír-
gripsmikil ganga og því ríður á að
taka daginn snemma.
Fyrsti farartálmninn er Skálar-
kambur, sem á vetrum þótti illfær-
asta fjallaleið á Hornströndum.
Síðan liggur leiðin niður í Hælavík-
ina, yfir Þönglá og að gömlu bæj-
arrústunum. Ef gestsaugað er
glöggt má koma auga á forláta
eldavél frá fyrri tímum. Við bæj-
arrústirnar er tilvalið að taka „aka-
demískar“ 15 mínútur áður en hald-
ið er upp á núp Hælavíkurbjargs.
Þegar komið er upp á Hælavíkur-
bjarg er nauðsynlegt að gefa sér
góðan tíma til að virða fyrir sér
fuglalífið, því að á fáum stöðum eru
skilyrði til þess ákjósanlegri. Eins
er sjálfsagt að gefa sér góðan tíma
í röltið inn eftir bjarginu, því að
mynd-„mótífin“ eru svo að segja
við hvert fótmál. Þegar inn eftir
bjarginu kemur og við förum að
nálgast svonefndar axlir fer fremsti
núpur Hombjargs að gægjast fram
og er það afar skemmtilegt sjónar-
horn. Ef haldið er áfram lengra inn
eftir bjarginu koma Litluskörð,
síðan Festarskörð og Festarskarða-
tindur, sem er hæsti tindur inn á
Hælavíkurbjargi, 530 metrar. Síðan
komum við að Hvannadalshnjúk,
sem markar enda Hælavíkurbjargs.
Þaðan er hægt að komast niður í
Hvannadal, sem áður hefur verið
nefndur í þessari grein.
Úr Hlöðuvíkinni er ógrynni af
öðrum gönguleiðum, sem of langt
mál yrði að tíunda hér. Þó vil ég
geta nokkurra. Þægilega dags-
ganga er að ganga vestur Hlöðuvík-
ina, fyrir Álfsfellið til Kjaransvíkur
og uppí Kjaransvíkurskarð, en þar
liggur einmitt leiðin til Hesteyrar.
Úr Kjaransvíkurskarði er fagurt og
víðaáttumikið útsýni. Þar opnast
fyrst fyrir okkur Hesteyrarfjörður-
inn, sem er gífurlega formfagur,
langur og mjór. Síðan má segja að
ísafjarðardjúpið opnist fyrir manni
eins og landakort. í góðu skyggni
sér maður alveg vestur til Bolung-
arvíkur.
Fjallahringurinn í Hlöðuvíkinni
er einnig afar freistandi göngu-
svæði, sem gefur ýmsa möguleika.
í kvöldsólinni er svo auðvitað sjálf-
sagt að ganga fjöru út að Hæla-
víkurófæru, kveikja varðeld, taka
lagið og njóta þess að vera yfirleitt
til. Og hugsanlega verður miðnæt-
ursólin okkur hliðholl í þetta sinn.
Höfundur er fararstjóri í
Hornstrandaferðum
Ferðafélagsins.