Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 51
:GRI ívm . or, írja^oUAjWlTQHfll flWAoHMUDÍIOM MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 51 KNATTSPYRNA GOLF / EM Guðmundur til Ekeren? Hefur þegar gefið Stuttgart í Þýskalandi afsvar og vill leika í Belgíu GUÐMUNDUR Benediktsson, knattspyrnumaður í Þór á Akureyri, gengur sennilega frá þriggja ára atvinnumanna- samning við belgíska 1. deild- ar félagið Ekeren um helgina. Stuttgart í Þýskalandi hafði einnig áhuga á viðræðum við Guðmund, en hann gaf félag- inu afsvar ífyrrakvöld. Guðmundur, sem verður 17 ára í september, æfði hjá báðum félögunum sl haust. Stuttgart vildi fá hann til að vera með í uppbyggingu nýs liðs, en Ekeren hefur hug á að láta hann spila með aðalliði félagsins um leið og hann hefur náð sér eftir að hafa slitið krossband í hné í síðasta mánuði. Samningar við Ekeren hafa ekki verið undirritaðir, en Guð- mundur sagði að ákveðið hefði verið að reyna að ganga frá þessu fyrir mánaðarmót. „Ég er spennt- ari fyrir Belgíu vegna þess að þá fer ég strax að spila — ef ég tek þessa ákvijrðun er ekki eftir neinu að bíða.“ Hann sagðist samt í fyrsta lagi geta gert ráð fyrir að leika á ný um áramót. Guðmundur sagði við Morgun- biaðið í gær að hann hefði talað við Stuttgart og greint frá ákvörð- uninni, seni hefði ekki verið vel tekið. „Ég sagði að ég færi ekki til Þýskalands að svo stöddu og þeir sögðu að ég væri að gera vitleysu rétt eins og Ekeren segir að ég geri rétt með því að koma til Belgíu." Guðmundur Benediktsson Hanna Katrín Fríóríksen skrífar KRá toppinn KR-stúlkur eru efstar í 1. deild eftir 2:0 sigur á Þrótti frá Neskaupstað í gærkvöldi. Fyrri hálfleikur var markalaus þrátt fyrir nokkur ágæt mark- tækifæri á báða bóga. KR-stúlkur voru reyndar meira með boltann, en Þróttur nær því að ná forystunni þegar Inga Bima Hákonardóttir skaut í stöng af stuttu færi. Þá voru um tíu mínútur liðnar af leikn- um. Áður hafði Helena Ólafsdóttir fengið tvö góð færi hinum megin á vellinum eftir góðan undirbúning Guðrúnar Jónu Kristjánsdóttur. Anna G. Steinsen kom KR yfir með fallegu skallamarki snemma í síðari hálfleik. Guðrún Jóna átti þá langa sendingu þvert yfir völlinn, beint á kollinn á Önnu sem var öryggið uppmálað. Síðari hálfleikur var ekki eins fjörugur og vel spilaður og sá fyrri og mikið var um miðjuþóf. Bæði lið áttu þó sín færi, en herslumuninn vantaði. Guðrún Jóna Kristjánsdótt- ir kórónaði síðan frábæran leik með því að gera annað mark KR nokkr- um mínútum fyrir leikslok. Anna Steinsen sendi upp í vinstra hornið þar sem Guðrún Jóna afgreiddi boltann með snúningi í hornið fjær, framhjá Þórveigu sem var komin út úr markinu. Barátfta Keflvíkingar máttu sætta sig við skiptan hlut þegar þeir mættu nágrönnum sínum frá Grindavík í Keflavík í gærkvöldi. Hvort lið skor- uði tvö mörk og ein- Björn kenndist leikurinn Blöndal af mikilli baráttu. skrífarfrá Nokkur harka sást og fengu þrír gest- anna að berja gula spjaldið augum. Heimamenn fengu óskabyrjun, þegar þeir náðu forystunni með marki úr vítaspyrnu á fyrstu mínútu leiksins. Kjartani Einarssyni var brugðið innan vítateigs og dómar- inn benti umsvifalaust á vítapunkt- inn þrátt fyrir áköf mótmæli Grindvíkinga. Marko Tanasic skor- aði örugglega. Aðeins fimm mínút- um síðar komust Keflvíkingar svo í 2:0 með marki Gests Gylfasonar sem afgreiddi laglega stungusend- ingu frá Kjartani Einaresyni í mark gestanna. Hjálmar Hallgrímsson náði að minnka muninn með glæsi- legu marki beint úr aukaspyrnu af um 30 m. færi á 24. mínútu og jöfnunarmarkið kom svo á 60. mínútu þegar rangstöðugildra heimamanna brást. Einar Daníels- son komst einn innfyrir og jafnaði metin. Undir lokin munaði minnstu að Grindvíkingar bættu við þriðja markinu, en þversláin bjargaði Keflvíkingum. Maður leiksins: Jakob Már Jónharðsson, ÍBK. Morgunblaðið/Bjarni Guðrún Jóna Kristjánsdóttir sækir, en Karítas Jónsdóttir, er til varnar. Tryggvi með þrennu ÆT IR vann auðveldan sigur á Hauk- um í Hafnarfirði í gær, 1:4. ÍR- ingar komst í 3:0 eftir 17 mínútur og nánast var um einstefnu að ræða hjá þeim allan leikinn. Haukar léku langt undir getu, náðu aldrei að ógna marki ÍR að neinu gagni fyrr en í lokin er ÍR-ingar Voru farnir að gefa eftir. Tryggvi Gunnarsson gerði þrennu og átti einnig stóran þátt í fjórða markinu sem Kjataran Kjartansson gerði. Eina mark Hauka gerði Kristján Þór Kristjánsson. Haukar nældu sér í þrjú gul spjöld og ÍR tvö. Maður leiksins: Tryggvi Gunnarsson, ÍR. Agúst Ásgeirsson skrífar Skagamenn óstöðvandi Skagamenn sigruðu Fylki öðru sinni í vikunni, unnu 2:0 í 2. deild í gærkvöldi og tryggðu enn örugga forystu sína í deildinni. ^■^^■g Heimamenn hófu Sigþór leikinn af miklum Eiríksson krafti og skoruðu skrífarfrá þegar á 3. mín. Þá Akranes, Alexander Högnason laglega sendingu á Karl Þórðarson, sem skaut þrumuskoti að marki, en markvörður Fylkis varði. Hann hélt samt ekki knettin- um og Þórður Guðjónsson kom aðv- ífandi og þrumaði í netið af stuttu færi. ÍA sótti stíft eftir þetta og eftir að hafa misnotað nokkur góð mark- tækifæri bætti liðið öðru marki við. Akveðnir Þórsarar Þórsarar unnu sannfærandi 3:1 sigur á Selfyssingum. Leikurinn var mjög daufur framan af og ekkert markvert gerðist fyrr en á 30. mínútu. ^■■■■1 Halldór Áskelsson Reynir nýtti sér þá mistök Eiriksson öftustu varnar, náði skrífarfrá boltanum af mark- Akureyrí vcrði og renndi knett- inum í autt markið. Sex mínútum siðar bætti Bjarni Sveinbjörnsson öðru marki við fyrir Þór með góðu skoti af stuttu færi. Þórsarar hófu síðari hálfleik af miklum krafti og áttu þrjú góð mark- tækifæri á fyrstu fimm mínútum hálf- leiksins en tókst ekki að koma knettin- um í netið. Á 82. mínútu fengu heima- menn vítaspyrnu er Árna Þór Árna- syni var brugðið innan teigs og Júlíus Tiyggvason skoraði úr spyrnunni. Þórsarar voru vart hættir að fagna markinu þegar þeir máttu hirða knött- inn úr eigin neti eftir fallegan skalla Sævars Birgissonar. Maður leiksins: Bjarni Sveinbjömsson, Þór. Það var ekki ósvipað því fyrra. Þá átti Haraldur Ingólfsson fast skot á markið af um 35 m færi, mark- vörðurinn hálfvarði, en nú var það Alexander Högnason, sem var mættur á réttan stað og skaut upp í þaknetið. í síðari hálfleik snerist dæmið algjörlega við. Skagamenn voru heillum horfnir og Fylkismenn gengu á lagið. Þrátt fyrir góða sóknartilburði tókst þeim samt aldr- ei að ógna marki Skagamanna vegna góðs leiks Luca Kostics í vörninni fyrr en á 78. mín. Þá átti Guðmundur Baldursson góðan skalla af stuttu færi, en Kristján Finnbogason varði glæsilega. Maður leiksins: Luca Kostic, ÍA. Öruggft hjá Þrótti Þróttur vann öruggan sigur á botn- liði Tindarstóls 3:0 og geta gest- irnir þakkað markverði sínum, Stefáni Stefánssyni, fyrir að mörkin urðu ekki •■■■■■ fleiri. Tindarstóll lék Frosti án Bandaríkjamann- Eiðsson anna tveggja, sem eru skrífar farnir heim, en hafði i fullu tré við Þrótt fyrstu 20 mínúturnar en síðan ekki söguna meir. Þróttur náði fmmkvæð- inu um miðjan hálfleikinn og þrátt fyrir að liðið næði ekki að sýna sínar bestu hliðar þá var fyrirstaðan lítil hjá gestunum sem aldrei náðu upp spili á miðjunni. Fyrsta markið kom á lok amínútu fyrri hálfleiks. Goran Micic, var felldur innan teigs og Sigurður Hallvarðsson skoraði úr spyrnunni Síðari hálfleikur fór fram á vallarhelm- ingi Tindarstóls og Þróttarar fengu urmul af marktækifæmm en nýttu aðeins tvö þeirra. Theodór Jóhannsson skoraði með viðstöðulausu skoti á 75. mínútu eftir að gestunum hafði mis- tekist að koma boltanum frá vítateign- um og Micic skoraði það þriðja með skoti fyrir utan vítateig. Maður leiksins: Goran Micic, Þrótti. Island leikur um 16. sætið' Íslenska landsliðið í golfi leikur um 16. sætið gegn Belgum í dag á Evrópumóti landsliða áhuga- manna í Madrid á Spáni. ísland sigraði Finna 5:3 í höggleiknum í gær og á sama tíma vann Belgía lið Tékka, 6:1. Holland, Ítalía, England og Skot- land leika í undanúrslitum keppn- innar í dag. Holland vann Spán 4:2 í gær, Ítalía vann Sviss með sömu tölu, Skotland vann Frakka 5:2 og England vann Austurríki 6:1. 2. DEILD ÍA-Fylkir..........................2:0 Þóiður Guðjónsson (3.), Alexander Högna- son (22.). _ Iiaukar-ÍR.........................1:4 Krislján Þór Kristjánsson (86.) - Tryggvi Gunnarsson 3 (9., 14., 75.), Kjartan Kjart- ansson (17.). Þór-Selfoss........................3:1 Halldór Áskelsson (30.), Bjami Sveinbjöms- son (36.), Július Tiyggvason (vsp. 82.) - Sævar Birgisson (83.). ÍBK - Grindavík....................2:2 Marro Tanasic vsp. (1.), Gestur Gylfason (6.) - Hjálmar Hallgrímsson (24.), Einar Daníelsson (64.). Þróttur - Tindastóll...............3:0 Sigurður Hallvarðsson (vsp. 45.), Theódór Jóhannsson (75.), Goran Micic (80.) Fj. leikja U J T Mörk Stig ÍA 6 6 0 O 20: 1 18 ÞRÓTTUR 6 4 1 1 10: 4 13 ÞÓR 6 4 1 1 12: 9 13 ÍR 6 3 1 2 12: 8 10 ÍBK 6 2 2 2 11: 8 8 GRINDAV. V 6 2 2 2 9: 7 8 SELFOSS 6 2 1 3 10: 10 7 FYLKIR 6 0 4 2 6: 9 4 HAUKAR 6 0 1 5 6: 23 1 TINDAST. 6 O 1 5 4: 21 1 3. DEILD Magni-KS.........................3:1 Kristján Kristjánsson, Ólafur Þorbergsson, Þorsteinn Friðriksson - Óðinn Rögnvalds- son: 4. DEILD Grótta - Hafnir..................9:2 Erling Aðalsteinsson 2, Sæbjöm Guð- mundsson 2, Þröstur Bjarnason 2, Engil- bert Friðfinnsson, Gísli Jónasson, Kristján Pálsson - Hallgrímur Sigurðsson 2 SM-UMSEb.........................1:3 Sindri - Leiknir.................2:3 Kistján Baldursson og Gunnar Ingi Val- geirsson - 1. DEILD KVENNA KR - Þróttur N...................2:0 Anna Guðrún Steinsen (50.), Guðrún Jóna Kristjánsdóttir (74.). Fj. leikja U J T Mörk Stig KR 6 5 0 1 19: 7 15 VALUR 5 4 1 0 20: 3 13 l'A 5 3 1 1 17: 3 10 UBK 5 3 1 1 9: 6 10 ÞRÓTTUR N. 5 1 0 4 6: 11 3 ÞÓR 4 1 0 3 3: 16 3 TÝR 4 0 1 3 2: 21 1 KA 4 0 0 4 4: 13 0 2. DEILD KVENNA ÍBK - Reynir S.................4:0 Olga Færseth 2, Katrín Eiríksdóttir, Ingi- björg Emilsdóttir. Körfuknattleikur EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA Haldin á Italíu: Undanúrslit: Júgóslavía- Frakkland........97:76 Italía-Spánn.................93:90 ' ■ Ítalía og Júgóslavía leika um Evrópu- meistaratitilinn í dag. Frakkland og Spánn um 3. sætið og Tékkóslóvakía og Grikkland um 5. sætið. Pétur Amþórs- son frá í mánuð? PÉTUR Arnþórsson lék ekki með Fram gegn FH í vikunni og verður ekki með gegn Víkingi á morgun. Á mánudag skýrist hvort hann þarf að fara í uppskurð vegna meiðsla í hné og ef svo fer verður hann frá í a.m.k. mán- uð. Pétur Arnþórsson þriðjudagskvöld. æfingu á „Ég tók hliðarskref og allt í einu heyrðist smellur í hnénu,“ sagði Pétur. hann bætti við að speglun á mánu- dag myndi leiða í ljós hvort upp- skurður væri nauðsynlegur. „Éf þarf að skera verð ég frá í fjórar til fimm vikur, en svo er mér sagt að maður sé viku að ná sér eftir speglun, þannig að óvíst er hvort ég get leikið með gegn KR á fimmtudag, burtséð frá öðru.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.