Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 EES-samningarmr snú- ast um fleira en fisk Ótímabærar siguryfirlýsingar draga athygli frá örlagaríkari ákvæðum um fjórfrelsið eftir Hannes Jónsson Fréttum af samningafundi EFTA- og EB-ráðherra um Efnahagssvæði Evrópu (EES) 18. þ.m. hafa fylgt ummæli um „mikilvægan sigur Is- lendinga". Er þar vitnað til líkinda um að EB falli frá kröfum um veiði- heimildir í íslenskri fiskveiðilögsögu gegn aðgangi að tollfijálsum mark- aði með sjávarafurðir, en í stað komi skipti á veiðiheimildum sem nemi ígildi 300 tonna af karfa eða 2.600 tonna af þorski. Ýmislegt er við þessar sigurfréttir að athuga. Fyrst, skrifleg samningsdrög um þessi atriði liggja ekki fyrir en ósam- hljóða frásagnir af þeim í Brussel og Reykjavík. Annað, á óréttmætar kröfuri EB um veiðiheimildir fyrir markað hefur aldrei verið fallist þótt þær hafi margoft verið bornar fram, enda eðlilegt lögmál fríverslunar, sem við- urkennt er af GATT, að frjáls að- gangur að markaði komi fyrir fijáls- an markað, en ekki fijáls aðgangur að auðlindum. Þriðja, samningarnir um EES eru margfalt víðtækari og geta orðið örlagaríkari fyrir okkur en samning- sviðaukinn um sjávarútveg og fríverslun með fisk. Af þessum og fleiri ástæðum er nauðsynlegt að grandskoða út frá íslenskum hagsmunum aðalatriði samningsdraganna um fjórfrelsið, sem 3. gr. Rómarsáttmála skilgrein- ir og EB ákvað 1985 að taka til framkvæmda í ársbyijun 1993 með myndun markaðsbandalags, en EFTA-ríkjunum var í janúar 1989 boðin þátttaka í samningum um slíkan innri markað 18 ríkja. Ákvæðin, sem fylgja 3. gr. Róm- arsáttmála um fjórfrelsiskerfið, eru svo víðtæk að ástæða er að hvetja til fyllstu varfærni við ákvarðana- töku, en ekki láta blindast af ímynd- uðum sigri á sviði fisksölu. Ekki má heldur vanmeta það utanríkis- viðskiptakerfi, sem við búum við. Mættu menn gjarnan velta kostum þess fyrir sér með hæfilegri þjóð- legri íhaldssemi, en skoða fjórfrels- iskerfið með gagnrýnandi rök- hyggju. Skoðum nokkur meginatriði máls- ins og þá fyrst aðalatriði gildandi utanríkisviðskiptakerfis, en síðan nokkra þætti, sem leiða mundu af framkvæmd fjórfrelsiskerfisins. 1. Víðtæk fríverslun þjónar hagsmunum Islands best Efnahagsleg landafræði og fram- leiðslusérgreining íslands valda því, að milliríkjaviðskiptahagsmunum okkar verður best borgið með víðtækri fríverslun, hnattrænni fremur en svæðisbundinni. Gildandi milliríkjaviðskiptakerfi hefur verið byggt upp í samræmi við þetta meg- insjónarmið, en helstu einkenni þess eru: a) Sem sjálfstætt og fullvalda ríki, óháð yfirþjóðiegum stofn- unum, höfum við á fijálsum hagkvæmnisgrundvelli átt við- skipti við ríki Ameríku, Asíu, Austur- og Vestur-Evrópu og Afríku. Lögmál viðskipta og hagsmuna hafa ráðið ferð, hvorki stjórnmálalegar skuld- bindingar né þvingandi og full- veldisskerðandi kostir. b) Við erum ásamt 101 ríki aðilar að GATT, sem vinnur að al- hliða fríverslun á grundvelli bestu kjarasamninga. Jafn- framt erum við þátttakendur í margþættu fjölþjóða- og al- þjóðasamstarfi, sem miðar að efnahagslegum framförum og fijálsri milliríkjaverslun. Má þar m.a. nefna Alþjóðagjald- eyrissjóðinn (IMF), Alþjóða- bankann (IBRD), Álþjóðalána- stofnunina (ICF), Alþjóða- framfarastofnunina (IDA), Efnahags- og þróunarstofnun- ina (OECD), og Efnahags- nefnd SÞ fyrir Evrópu. Innan þessara stofnana vinnum við með fjölmörgum öðrum ríkjum að framförum á sviði efna- hags-, peninga- og utanríki- sviðskiptamála. Aðild okkar að öllum þess- um stofnunum gerir okkur kleift að fylgjast vel með hnattrænni þróun í efnahags- og viðskiptamálum, gæta íslenskra hagsmuna og fyrir- byggja að við einangrumst í þessum efnum. c) Við erum aðilar að EFTA og njótum á svæðinu fyllstu fríverslunar með iðnvöru og með ailar sjávarafurðir síðan á miðju ári 1990. Á grundvelli EFTA-aðildar gerðum við fríverslunarsamning við EB. Hann tryggir okkur fríverslun á EB-svæðinu með allar iðn- vörur og meginþorra sjávaraf- urða, þótt EB leggi enn inn- flutningstoll á saltsíld, saltfisk, skreið, flök, og flatfisk, sem þarlendir innflytjendur, ekki við, þurfa að greiða og reikna inn í vöruverðið til neytenda. Þrátt fyrír þennan innflutning- stoll EB er samkeppnisstaða fiskafurða okkar svo góð á markaðinum, að t.d. saltfískur hækkaði um 35% á milli ár- anna 1989 og 1990. Á grundvelli þessa gildandi ut- anríkisviðskiptakerfis höfum við hvorki verið í vandræðum með að selja okkar framleiðsluvöru né afla okkur innfluttrar vöru á samkeppn- ishæfu verði. Er engin ástæða til að ætla að á því verði breyting í átt til einangrunar þótt við gerumst ekki aðilar að Efnahagssvæði Evr- ópu, enda er vaxandi bjartsýni um öra þróun fríverslunar í hnattrænu samhengi, þar sem þjóðríki versla hvert við annað án allra hafta, svo sem framtíðarhugsuðurinn John Naisbitt hefur m.a. bent á. 2. Forðumst takmarkað fullveldisafsal Ástæða er til að vara sérstaklega við því takmarkaða fullveldisafsali, sem ráðgert er að fari fram til yfír- þjóðlegra stofnana Efnahagssvæðis Evrópu, ef til aðildar kemur. Gert er ráð fyrir að lögtaka þurfí um 1.400 lög, reglugerðir og tilskipanir EB sem réttargrundvöll Efnahags- svæðis Evrópu. Mun þetta verða meira en fjórum sinnum meiri bálkur en allt gildandi lagasafn íslands, líklega um 11.000 blaðsíður í sama broti og lagasafnið, sem er aðeins 2.718 bls. Þessi bálkur EB á að hafa forgang fyrir íslenskum lögum. Stangist hann á við gildandi íslensk lög eiga þau að víkja en Iög EB að ríkja. Yfirþjóðleg framkvæmda- stjórn EES á að hafa eftirlit með þessu og framkvæmd samningsins, tryggja algert réttarsamræmi við framkvæmd samningsins, en dóm- stóll skipaður 5 dómurum frá EB og 3 frá EI'TA-ríkjunum, ekki Hæstiréttur Islands, á að vera æðsti dómstóll í ágreiningsmálum. Virðast þessi samningsdrög, ef samþykkt yrðu, bijóta gegn 2. gr. íslenskrar stjórnarskrár vegna skerðingar valds stjórnvalda, 21. gr. vegna kvaða á ríkið og breytinga á stjórn- arhögum og 44. og 45. gr. vegna afbrigðilegrar afgreiðslu lagafrum- varpa. Hannes Jónsson „Ljóst ætti að vera af öllu því, sem nú hefur verið sag^t, að hagsmunum Is- lands væri best borgið með því, að við hættum þegar í stað þátttöku í samningum um evrópskt efnahagssvæði en snerum okkur markvisst að því að tryggja okkur sem víðtækasta fríverslun í hnattrænu fremur en svæðisbundnu sam- hengi.“ Aðalatriðið er þó sú staðreynd, að með þessum ákvæðum samnings- draganna, ef til framkvæmda kæmu, mundi valdi íslenskra stjórnvalda á samningssviðinu afsalað úr landi til Evrópustofnana, þar sem áhrif ís- lands yrðu smávægileg. Þótt einstaka lögfræðingur og einn lagaprófessor við Háskóla ís- lands hafi haldið því fram, að aðild okkar að EES feli ekki í sér fullveld- isafsal, af því að gert sé ráð fyrir að Alþingi samþykki samninginn, réttargrundvöll EB og ákvæðin um framkvæmdastjórnina og dómstól- inn, þá er þarna greinilega um bren- glaða hugsun að ræða. Fullveldisaf- salið fer fram þótt afsalið yrði sam- þykkt á Alþingi alveg eins og menn þurfa að afhenda fasteign eða bif- reið, sem þeir gefa afsal fyrir, þótt gert sé af fijálsum og fúsum vilja. Fullveldisafsalið á samningssviðinu verður í reynd veruleiki, þótt sam- þykkt kynni að vera að afsala því til Brussel. 3. ísland mundi tapa á fjórfrelsinu Það verður aldrei réttlætt, að smáríki fórni hluta af fullveldi sínu fyrir efnahags- og viðskiptalegan ábata, sem fylgja kynni aðild að Efnahagssvæði Evrópu. þar að auki benda yfirgnæfandi líkur til þess, að tap en ekki gróði fylgi hugsan- legri aðild íslands að EES. Sést þetta bæði þegar a) skoðuð er niðurstaða EB af könnun á ábata 12 aðildarríkj- anna af framkvæmd íjórfrelsisins og b) enn betur þegar skoðað er, hvernig framkvæmd íjórfrelsisins mundi snerta hagsmuni íslands. a) Endurskoðaðar áætlanir EB frá 1990 um ábata ríkjanna 12 af framkvæmd íjórfrelsisins sýnir, að það muni taka aðildarríkin minnst 6 ár frá ársbyijun 1993 að ná fram fyllsta ábata af framkvæmd hins alhliða markaðsbandalags ijórfrels- isins, sem EB var með 3. gr. Rómar- sáttmála frá 1957 ætlað að verða. Þessi ábati gæti samkvæmt nýjustu áætlunum orðið 2-4,5% af lands- framleiðslu í lok 6 ára tímabilsins en minni fyrst framan af, mestur í S-Evrópuríkjum EB, minni í Mið- og Norður-Evrópuríkjunum. Um helmingur ábatans, um 2% samkvæmt efri mörgum, á að koma vegna framleiðsluaukningar og hag- ræðingar í iðnaði, stærra fram- leiðslu- og markaðssvæði án landa- mæra og tollafgreiðslna í innri við- skiptum, meiri samkeppni stærri ein- inga m.a. í þjónustugreinum, fijáls- ara ijármagnsflæði og frelsi til íjár- festinga í fasteignum, landi og fyrir- tækjum, og einum vinnumarkaði. Hinn'helmingur ábatans á að skila sér sem 6% lækkun á iðnaðarvöru- verði á svæðinu. Greinilegt er, að þessi ábati skil- aði sér ekki til Islands, ef til aðildar kæmi. Stafar þetta fyrst og fremst af því, að iðnvöruframleiðsla okkar er óveruleg og nýtur þegar fríversl- unarkjara á EFTA- og EB-svæðinu. Sjávarútvegur er utan fjórfrelsis- kerfisins og yrði utan EES nema sérsamningar kæmu til, en um þá er enn allmikil óvissa. Sjávarafurðir eru aftur a móti aðalútflutningsvara okkar. í þriðja lagi mundum við njóta helmings ábatans samkvæmt áætlunum EB, þ.e. 6% lækkunar iðnvöruverðs við vörukaup frá EB-ríkjunum, hvort sem við gerðumst aðilar að EES eða ekki. Raunhæf íslensk hagsmunagæsla kallar því ekki á aðild að Efnahags- svæði Evrópu, ef rétt er skoðað í Ijósi rannsókna EB á ábata íjórfrels- isins. b) Nánari skoðun á málinu í ljósi íslenskra aðstæðna bendir eindregið til þess, að framkvæmd fjórfrelsisins á Islandi mundi að öllum líkindum skila okkur meiri háttar þjóðhags- legu tapi, ekki ábata, og stefna bæði efnahagslegu og stjórnarfars- r jffltóáur á moraun v ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sigurður Pálsson messar. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Sr. Pálmi Matt- híasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn H. Friðriksson. Sr. Hjalti Guðmundsson. GRENSÁSKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Árni Arinbjarnarson. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson. Þriðjudag: Fyrirbænaguðsþjón- usta kl. 10.30. Beðiðfyrirsjúkum. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöld- bænir og fyrirbænir eru í kirkj- unni á miðvikudögum kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Messa kl. Guðspjall dagsins: Lúk 5.: Jesús kennir af skipi. 11. Sr. Sigurður Haukur Guðjóns- son kveður söfnuðinn. Kór Lang- holtskirkju frumflytur „Messe Basse“ eftir Cabriel Fauré í út- setningu Anders Örwall. Ólöf Kolbrún Harðardóttiróperusöng- kona og Lárus Sveinsson tromp- etleikari flytja verk eftir Hándel. Kórstjóri og organisti er Jón Stef- ánsson. Ritningarlestra flytja sóknarnefndarmennirnir Ragn- heiður Finnsdóttir og Ólafur Orn Arnarson. Altarisganga. Að messu lokinni verður í boði safn- aðarins sameinast að léttri máltíð í safnaðarheimilinu. Allir kirkjugestir hjartanlega velkomn- ir. LAUGARNESKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson. Heitt á könnunni eftir guðsþjón- ustuna. Fimmtudag: Kyrrðar- stund kl. 12. Orgelleikur, altaris- ganga, fyrirbænir. NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Jón Pálsson guðfræðinemi prédikar. Athugið, að kirkjubíllinn fer um sóknina hálftíma fyrir guðsþjónustuna. Sr. Frank M. Halldórsson. Miðvikudag: Bæna- messa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Messa kl. 11. Organisti Gyða Halldórsdóttir. Prestur sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir. FRIKIRKJAN í Reykjavík: Guðs- þjónusta kl. 14.00. Miðvikudag 3. júlí kl. 7.30 morgunandakt. Orgelleikari Violeta Smid. Kirkjan er opin í hádeginu virka daga. Cecil Haraldsson. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Jón Mýr- dal. Sr. Guðmundur Þorsteins- son. BREIÐHOLTSKIRKJA: Engin guðsþjónusta verður í Breið- holtskirkju vegna sumarleyfis sóknarprests, en vísað er á guðs- þjónustu í Seljakirkju kl. 20.30. ELLIHEIMILIÐ Grund: Guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Sigurðui Guðmundsson. FELLA- og Hólakirkja: Sunnu- dag: Kvöldguðsþjónusta kl 20.30. Prestursr. Hreinn Hjartar- son. Mánudag: Fyrirbænir í kirki- unni kl. 18. Fimmtudag: Helgi- stund í Gerðubergi kl. 10 í um- sjón Ragnhildar Hjaltadóttur. HJALLAPRESTAKALL: Sameig- inleg guðsþjónusta Kárnes- og Hjallasókna kl. 11 í Kópavogs- kirkju. Sóknarnefndin. KÓPAVOGSKIRKJA: Guðsþjón- usta kl. 11. Organisti Guðmundur Gilsson. Ægir Fr. Sigurgeirsson. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20.30. Organisti Kjartan Sigur- jónsson. Molasopi að lokinni guðsþjónustu. Sóknarprestur. KRISTSKIRKJA Landakoti: Lág- messa kl. 8.30, stundum lesin á ensku. Hámessa kl. 10.30. Lág- messa kl. 14. Ensk messa kl. 20 í júní og júlí. Rúmhelga daga er lágmessa kl. 18, nema á laugar- dögum, kl. 14. Ensk messa laug- ardag kl. 20. MARÍUKIRKJA Breiðholti: Messa kl. 11. Rúmhelga daga lágmessa kl. 18 nema fimmtudag kl. 19.30 og laugarþag kl. 14. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson. KAPELLA St. Jósefssystra, Garðabæ: Hámessa kl. 10, lesin á þýsku.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.