Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÚNÍ 1991 Morgunblaðið/HB Mikil rekistefna, margir veiðimenn og enn fleiri veiðistangir. En enginn lax í sjónmáli. Þetta gæti talist táknræn mynd fyrir flest- ar laxveiðiárnar enn sem komið er á þessu sumri. Enn gengur hvorki né rekur í flestum ám landsins þótt alltaf komi skot og skot hér og þar. Allur þorri manna fær lítið eða ekkert enn sem komið er. Við skulum líta á nokkra staði. Slakt í Asunum Fyrir nokkru voru aðeins rúmir 40 laxar komnir á land úr Laxá á Ásum sem er lítil veiði á nærfellt heilum mánuði í „bestu laxveiðiá í heimi“. Bót í máli að flestir þess- ara laxa hafa verið stórir boltar. Margir hafa komið fisklausir úr ánni og fyrir skömmu voru til dæmis útlendingar í ánni sem höfðu báðar stangirnar í tvo daga, en fengu engan fisk. Þá hefur það litla sem gengið liefur af laxi lítið dreift sér, hann veiðist helst á neðra svæðinu, aðallega í Dulsun- um. Byrjar bærilega í Selá „Þetta var í góðu lagi í Selánni, veiðin byrjaði í morgun og þeir fengu 8 laxa fyrir hádegi á fjórar stangir. Þengill bróðir minn og félagar hans fengu þessa fiska og þeir sáu dálítið af fiski í ánni. Laxamir voru 8 til 12 pund og veiddust aðallega í Fosshylnum og við sundlaugina," sagði Vífill Oddsson í samtali við Morgunblað- ið í gærdag. Þær fregnir hafa bor- ist frá nágrannaánni Hofsá, að enginn lax hafi veiðst þar fyrsta daginn og veiðimenn hafi engan lax séð. Báðar árnar eru í svoköll- uðu „venjulegu sumarvatni“ eins og veiðimenn kalla það, sem er góðu lagi, en samt vatnslítið miðað við árstíma. Gengur hægt í Langá Það gengur hægt í Langá, aðeins um 30 laxar komnir á land af neðsta svæðinu fyrir nokkru og örfáir fiskar af mið- og efra svæð- inu. Lax hefur sést í ánni fyrir ofan Sveðjufoss, þannig að einhver reytingur er kominn vel fram í dal. Ekki þjáist Langá af vatns- ieysi, vatnsmiðiunin í Langavatni hefur séð til þess að enn er áinvel „veiðanleg" ef þannig mætti að orði komast. Ef það rignir ekki senn, mun hins vegar ganga á vatnsbirgðir uppistöðunnar eins og aðrar vatnsbirgðir og mun þá síga vatnið í Langá eins og víðar. Hér ogþar... Lítið veiðist í Laxá í Leirársveit sem er vatnslítil á og háð úrkomu. Fyrir skömmu var vaskur hópur veiðimanna sem fékk aðeins 4 laxa á sjö stangir á tveimur dögum og lýsir það ástandinu prýðilega. Ein af bestu veiðisögum sumars til þessa gerðist þar fyrir skömmu. Skal hún skráð hér og nú: Tveir kappar voru saman um stöng og var annar að renna maðki í hyl nokkurn. Lax tók og hófst snörp viðureign, því laxinn var stór og ætlaði ekki að gefa sig. Er hann var tekinn að lýjast, gerði hann strákunum þá skráveifu að snara línunni fyrir stein og slíta! Sáu veiðimenn síðan hvar laxinn lét sakka úr hylnum og eitthvað niður með á. Svona eiginlega án þess að hugsa út í það, fylgdu mennirnir laxinum eftir uppi á bakkanum og reyndu að fylgjast með því hvað hann tæki til bragðs. Barst þessi för talsvert niður með á og kom þar loks að áin breikk- aði talsvert og grynntist eftir því. Rétt fyrir ofan útvíkkunina misstu mennirnir sjónar á laxinum og öslaði annar þeirra því út á grunnu brotin og skimaði ákaft. Þarna stóð hann nokkur andartök, en sá síðan allt í einu hvar glitti í sporð sem þokaðist smám saman nær honum. Þarna var laxinn kominn og veiðimaðurinn áttaði sig allt í einu á því að hann hélt að háf þeirra félaga. Það var því ekkert annað að gera í stöðunni en að láta laxinn sakka inn í háfinn. Svo var öllu dótinu sveiflað upp úr ánni og félagarnir tveir héldu glað- ir í bragði til veiðihúss með 12 punda hrygnu. Svo rækilega hafði laxinn gleypt maðkinn, að neðsta sakkan nam við tungu fisksins. GALLERÍ SIGURÞÓRS JAKOBSSONAR VÍÐIMEL 61 - SÍMI 91 -25212 OPB DAGLEGA 13“-18“ UM ALLAN HEIM Maxfli golfboltinn fæsf á öllum golfvöllurr landsins og hjá sportvöruverslunum. —~ _______ _____ Einkaumboð >t ' gggj Austurbakki sf. plo Maxfli HxH QO FOR THE MAX ImiP-l HR mmmmmmmmmmmmmmmmmm^mm jjp ■■ ■: epol FAXAFENI 7 108 REYKJAVÍK SÍMI: 91-687733 á listrœnum húsgögnum Opiö laugardag 10—17 og sunnudag 14—17 15% afmœlisafsláttur Á sýningunni veröur mxi. margverölaunaður sófi eftir NÖNNU DITZEL.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.