Morgunblaðið - 29.06.1991, Blaðsíða 40
iMOR(jt?|^BLAÐIÐ ilyVpGARDAGUR. 29i JUNl 1991
t
Ástkær sonur minn og bróðir okkar,
BJÖRN SVEINBJÖRNSSON,
Kópavogsbraut 22,
sem lést 20. júní, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudag-
inn 1. júlí kl. 13.30.
Elín Helgadóttir,
Ómar Sveinbjörnsson, Helga Björg Sveinbjörnsdóttir,
Þórkatla Sveinbjörnsdóttir.
t
Elskuleg dóttir okkar,
INGA DAGMAR JABLONSKI,
andaðist í Svíþjóð 18. júní sl.
Útförin fer fram í Bandaríkjunum 1. júlí nk.
Vilborg Gunnarsdóttir,
Thomas E. Jablonski.
t
Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RAFN SÍMONARSON,
Austurkoti,
Vatnsleysuströnd,
lést í Sjúkrahúsi Keflavíkur 27. júní.
Útförin auglýst síðar.
Alfreð Steinar Rafnsson,
Hörður Rafnsson,
Simon Rafnsson,
Bryndís Rafnsdóttir,
Guðmunur Rafnsson,
Erla Helgadóttir,
Valberg Helgason,
Karólína Ingvarsdóttir,
Margrét Pétursdóttir,
Edda Friðþjófsdóttir,
Sigurður Kristinsson,
Hrafnhildur Einarsdóttir,
Birkir Jónsson,
Ríta Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Föðursystir mín og fóstra,
ÁSDÍS BÖÐVARSDÓTTIR
frá Seyðisfirði,
elli- og hjúkrunarheimilinu Grund,
er látin.
Jarðarförin hefur farið fram.
Fyrir hönd aðstandenda,
Nína Lárusdóttir.
Jóhann Ingi Sigur-
geirsson — Kveðjuorð
Fæddur 11. október 1989
Dáinn 21. júní 1991
Það er með djúpri sorg og sökn-
uði sem við sitjum hér og skrifum
þessi kveðjuorð um hann litla
frænda okkar, Jóhann Inga.
Okkur hlotnaðist að fá að fylgj-
ast með þessum yndislega dreng
allt frá fyrsta degi lífs hans og sjá
hann vaxa og dafna. Frá fyrstu tíð
var hann svo blíður og kátur. Bros-
ið hans var alveg sérstakt og hreif
það alla með sér.
Þar sem Jóhann Ingi var jafn-
aldra dóttur okkar, fylgdumst við
náið með vexti hans og þroska.
Veitti það okkur margar ánægju-
stundir að ræða saman um bömin
okkar og sjá hversu álíka þeim fór
fram. Þessi elskulegi drengur gaf
okkur svo mikið og langar okkur
að þakka allar samverustundirnar.
Við biðjum þann sem öllu ræður
að styrkja foreldra hans, bræður
og aðstandendur í þeirra miklu
sorg.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér,
sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(H.P.)
Blessuð sé minning Jóhanns
Inga.
Hrafnkell, Björg og
Margrét Lilja
Við stóðum sem lömuð, þegar
við fengum þá harmafregn að hann
Jóhann Ingi hefði lent í slysi og
dáið. Við horfðum hvert á annað
og sögðum: „Kannski er þetta ekki
satt, kannski tókst að bjarga hon-
um.“ Þannig eru viðbrögð okkar
þegar börn deyja af slysförum, við
neitum að trúa því, við neitum að
viðurkenna að einhver tilgangur
hljóti að vera með svona hræðileg-
um atburði, þegar litlum dreng er
miskunnarlaust svift úr faðmi for-
eldra sinna og bræðra.
En um síðir verðum við að trúa
að allir hlutir hafi tilgang og Jó-
hanni litla sé ætlað annað og meira
hlutverk á öðrum stað.
Með þessum orðum kveðjum við
vin okkar og frænda og þökkum
Minning
Svava Björnsdóttir
Fædd 19. október 1897
Dáin 17. júní 1991
Mig langar til að minnast vin-
kónu minnar Svövu Björnsdóttur
er andaðist á Landspítalanum 17.
júní sl.
Það sem kom fyrst í huga mér
er ég heyrði andlát Svövu var hve
hún hafði ævinlega fagnað öllum
hátíðis- og tyllidögum svo sem af-
mælum og því væri við hæfi að hún
gengi inn í fögnum himnaríkis á
þjóðhátíðardaginn, laus við þjáning-
ar og þrautir. Svava var fædd og
uppaiin í Reykjavík, dóttir Björns
Jónssonar skósmiðs og Ingibjargar
Þorvaldsdóttur konu hans er bjuggu
á Hverfisgötunni.
Móðir hennar lést er hún var 8
ára og var hún þá tekin til fósturs
af Júlíönu Guðmundsdóttur og
manni hennar Jóni Baldvinssyni,
alþingismanni, og ólst hún þar upp
til fullorðinsára.
Starfsvettvangur Svövu urðu
versiunarstörf, lengst af í Edinborg-
arversluninni er alkunn var á þeirri
tíð.
Svava giftist Einari Einarssyni,
foreldrar hans voru Sigrún Bald-
vinsdóttir og Einar Þorsteinsson,
skipstjóri.
+ GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Syðra-Velli,
verður jarðsunginn frá Gaulverjabæjarkirkju laugardaginn 29. júní
kl. 14.00. Vandamenn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
BJÖRN BJÖRNSSON
yfirvélstjóri,
Tómasarhaga 46,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn
1. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins.
Guðrún Egilsdóttir,
Kristín Ágústa Björnsdóttir, Viðar Friðriksson,
Estiva Birna Björnsdóttir, Baldur Harðarson
og barnabörn.
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, dóttur, móður,
tengdamóður og ömmu,
ÁSDÍSAR HELGU HÖSKULDSDÓTTUR,
Breiðási 10,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til heimahlynningar Krabbameinsfélgsins.
Erlingur Magnússon,
Guðbjörg Þórðardóttir,
Jóhanna Erlingsdóttir, Reynir Kristinsson,
Ragnar Erlingsson,
Höskuldur Erlingsson,
Guðbjörg Erlingsdóttir, Marinó Pálmason,
Ellen Erlingsdóttir, Róbert Ragnarsson,
Maria Erlingsdóttir
og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
mannsins míns, föður, fósturföður og afa,
BALDVINS JÚLÍUSSONAR,
Fossheiði 28,
Selfossi.
Margrét Ólafsdóttir,
Júlíus H. Baldvinsson, Jóna G. Ásgeirsdóttir,
Ólöf og Ingi Guðjónsbörn,
Ásgeir Ólafsson,
og barnabörn.
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför móður okkar,
KRISTÍNAR AÐALSTEINSDÓTTUR
frá Lyngholti.
Jóhanna B. Austfjörð,
Aðalsteinn Björnsson,
Kristbjörn Björnsson,
Steingrímur Björnsson,
barnabörn og
Heiðar Austfjörð,
Jóhanna Árnadóttir,
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Gunnur Gunnarsdóttir,
barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og systur,
KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Gerðum í Garði,
Hvassaleiti 56,
Reykjavík.
Guðmundur Ingimundarson, Rósa Einarsdóttir,
Einar Þór Guðmundsson,
Ingimundur Kristinn Guðmundsson,
Kristín Guðmundsdóttir.
Systkinin frá Gerðum í Garði,
Guðrún Guðmundsdóttir, Haukur Guðmundsson,
Hjördís Guðmundsdóttir.
honum samfylgdina, sem var so
allt of stutt.
Fari hann í friði.
Hvert ðrstutt spor var auðnuspor með þér,
hvert andartak er tafðir þú hjá mér.
Var sólskinsstund og gæludraumur hár,
minn sáttmáli við Guð um þúsund ár.
(H.K.L.)
Elsku Guðný, Geiri og synir,
megi ykkur auðnast styrkur og trú
í sorginni.
Bestu kveðjur.
Sólmundur, Madda og
börnin, Kambahrauni 23.
Svava og Einar bjuggu lengst
af á Mánagötu 9 í Reykjavík, þar
reistu þau sér fagurt heimili sem
gott var að koma á.
Ég kynntist Svövu vel því þegar
maðurinn minn, Kristján Jón Ein-
arsson, lést 1946, kom bróðir hans
Einar norður til Húsavíkur og tók
við rekstri síldarsöltunarstöðvar er
hann hafði rekið hér og stóð fyrir
þeim rekstri í 9 ár eða þar til síldin
hvarf af miðunum og rekstrinum
var hætt.
Þau hjónin komu á hveiju sumri
og dvöldu hér á heimili mínu. Við
Einar áttum ætíð góða samvinnu.
Eftir það átti ég alltaf samastað
á heimili þeirra er ég þurfti að dvelja
í borginni lengri eða skemmri tíma,
og fyrir það vil ég þakka.
Svava var lágvaxin, grönn, og
fínleg kona er ætíð klæddist mjög
vönduðum og smekklegum fötum.
Hún hafði yndi af öllu sem fagurt
var í kringum sig, enda heimili
þeirra vel búið fögrum listmunum
hverskonar. Hún var sannkallaður
fagurkeri.
Þau Einar og Svava eignuðust
ekki börn en frændum og vinum
var vel tekið og dvöldust á heimili
þeirra er með þurfti.
Sonur minn Elías átti samastað
hjá þeim er hann var í skóla í
Reykjavík. Einnig voru börn mín
frá seinna hjónabandi ætíð velkom-
in.
Svava var greind kona og
skemmtileg, og höfum við á langri
leið átt margar ánægjustundir sam-
an ásamt manni hennar, sem á
seinni árum hefur annast hana af
alúð og kærleika er aldur og krank-
leiki sóttu að.
Við hjónin sendum honum okkar
innilegustu samúðarkveðju og
blessunaróskir um ókomin ár.
Blessuð sé minning Svövu.
Þórunn