Morgunblaðið - 29.06.1991, Page 29
r.oer i cí: s" j" /«ih/;> jf nra/jn/'to.aoií 8S
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JÖNÍ 1991 -----------------29
Grænlensk og sam-
ísk tónlist kynnt
í Norræna húsinu
DAGSKRÁ verður í Norræna
húsinu mánudagskvöldið 1. júlí
kl. 20.30 þar sem fólki gefst
kostur á að fræðast um tónlist-
arhefð Grænlendinga og Sama.
Pualine M. Lummholdt segir frá
trommudansi og trommusöng og
Anda Kooitsi dansar trommudans
og syngur. Samarnir Ola Graff,
Ánte Mikkel Gaup og Johan And-
ers Gaup kynna ljóðsöng Sama,
jojkið.
Pauline M. Lumholdt hefur á
síðustu tólf árum ferðast um Thule
og Austur-Grænland til þess að
rannsaka og safna fróðleik um
trommudansinn og -sönginn.
Hún hefur haldið námskeið í
Danmörku fyrir börn og fullorðna
í trommudansi og haldið fyrirlestra
í Danmörku og Grænlandi um
menningarlegan bakgrunn hans.
Pauline M. Lundholdt fékk
INNLENT
grænlensk menningaiverðlaun
fyrir þetta starf sitt. Hún vinnur
nú að kennslubók um trommudans
og trommusöng.
Anda Kooitsi er frá Austur-
Grænlandi þar sem trommudans-
inn á rætur sínar og fjölskylda
hans hefur- stundað trommudans
kynslóð eftir kynslóð. Anda Koo-
itsi hefur ferðast um Norðurlönd,
Frakkland og víðar og sýnt
trommudans og söng.
Ola Graff frá Noregi fjallar um
jojkið, samband þess og náttúr-
unnar. Hann er safnvörður við
þjóðlagadeild Þjóðminjasafnsins í
Tromso.
Hann lauk magistersprófí 1985
í tónlistarfræðum við háskólann í
Osló. Hann stofnaði norður-norksa
vísnahópinn 1975, sem spilaði
hefðbundna tónlist frá þessu svæði
og hlaut Proysen-verðlaunin fyrir
leik sinn 1977.
Ánte Mikkel Gaup er frá Kauto-
keino og er kennari að mennt.
Hann heldur gjarnan fyrirlestra
og kynnir jojk.
Frændi hans Johan A. Gaup er
hreindýrabóndi og er einnig frá
Kautokeino.
Dagskráin er öllum opin og að-
gangur er ókeypis.
Morgunblaðið/Júlíus
Fjallað um norræn landbúnaðarmál
Landbúnaðarráðherrar Norðurlandanna ásamt embættismönnum
landbúnaðarráðuneyta og forsvarsmönnum landbúnaðarsamtaka á
Norðurlöndum hafa undanfarna daga fundað á Hótel Örk í Hvera-
gerði og rætt ýmis mál varðandi landbúnað og skógnytjar. Meðal
þess sem rætt hefur verið á fundinum er staða framleiðslu og afurða-
sölu landbúnaðarafurða og skógarafurða, þýðingarmiklar breytingar
í landbúnaðarmálum og framtíðaráform, landbúnaður og umhverfi,
norrænt samstarf á sviði landbúnaðarmála eftir 1992 og ýmis al-
þjóðamálefni. Fundinum lauk í gær, föstudag.
Morgunblaðið/Theodór
Yfirlitsmynd frá opnunarhátíð Hyrnunnar.
>’ -,7.
Épi.Jufcifcilí
Þjónustumiðstöðin Hym-
an opnar með glæsibrag
Borgarnesi.
Margmenni var við opnunar-
hátíð Hyrnunnar við Brúartorg
sem var formlega tekin í notkun
fyrir skömmu. Boðið var upp á
mjög fjölbreytta dagskrá og
veðrið lék við gestina sem fjöl-
memit höfðu á hátíðina.
í ræðu sinni við opnunarathöfn-
ina sagði Þórir Páll Guðjónsson
kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borg-
firðinga, meðal annars: „Með til-
komu þessarar þjónustumiðstöðvar
er loks að rætast gamall draumur
Borgnesinga og íbúa í Borgarfjarð-
arhéraði um að geta tekið vel á
móti ferðamönnum sem leið eiga
um þetta fagra hérað og um leið
að styrkja enn frekar stöðu Borg-
arness sem þjónustukjarna fyrir
héraðsbúa og ferðamenn. Þetta er
því stór viðburður fyrir okkur hér
og merkur áfangi í starfsemi
Kaupfélags Borgfirðinga. Bygging
þessa glæsilega húss væri tæplega
orðinn veruleiki nú ef ekki hefði
komið til samstarf við Olíufélagið
hf. sem er aðaleigandi að þessari
þjónustumiðstöð ásamt Kaupfélagi
Borgfirðinga."
Þá kom fram í ræðu kaupfélags-
stjórans að í öllum aðalatriðum
hefðu byggingarframkvæmdir ver-
ið í höndum heimamanna enda
hafí það frá upphafi verið stefna
eigenda að halda þessari vinnu
fyrir heimaaðila og styrkja með
því atvinnustarfsemi í héraði.
Byggingafélagið Borg annaðist
alla smíðavinnu og framkvæmda-
stjóri þess, Eiríkur Ingólfsson, fór
með byggingaverkstjórn á staðn-
um. Loftorka hf. framleiddi steypu
í húsið, steypti og reysti veggein-
ingar og sá auk þess um alla jarð-
vegsvinnu og frágang lóðar.
Að lokinni ræðu Þóris Páls
kaupfélagsstjóra tók Vilhjálmur
Jónsson, forstjóri Olíufélagsins hf.
þjónustumiðstöðina formlega í
notkun með þvi að klippa á borða
og afhenda Guðmundi Ingimund-
arsyni forstöðumanni Hyrnunnar
lykla stöðvarinnar.
Þórir Páll Guðjónsson kaupfé-
lagsstjóri dansar við gesti á
opnunarhátíð Hyrnunnar.
Ein sú stærsta
Hyrnan verður ein stærsta og
fullkomnasta þjónustumiðstöðin
við hringveginn. Stöðin er rúmir
900 fermetrar að flatarmáli. Þar
er starfrækt kjörbúð, 70 sæta veit-
ingasalur, greiðasala með fjöl-
breyttu vöruúrvali og yfírbyggð
bensínafgreiðsla með 10 hraðvirk-
um dælum. Þá opnaði Sparisjóður
Mýrasýslu afgreiðslu í Hyrnunni
og þar verður einnig starfrækt
upplýsingamiðstöð fyrir ferða-
menn. Bifreiðastæði og plön stöðv-
arinnar eru um 8.000 fermetrar
og stór hluti þeirra er upphitaður.
Áætlaður byggingarkostnaður
stöðvarinnar er um 100 milljónir
króna.
Réttnefni
Efnt var til verðlaunasamkeppni
um nafn á staðnum og bárust um
150 tillögur. Fyrir valinu varð
nafnið Hyrnan sem talið var á
margan hátt réttnefni fyrir þjón-
ustumiðstöðina. Kemur þar til í
fyrsta lagi lögun hússins og líking
við fjallatindana sem blasa við úr
gluggum veitingasalarins og heita
m.a. Baula, Skessuhorn, Tungu-
kollur og Hafnarfjall. Það var
Hólmfríður Héðinsdóttir í Borgar-
nesi sem átti hugmyndina að nafn-
inu og hlaut hún 25 þúsund krónur
í verðlaun.
Styrktarsamningair
I tengslum við opnun Hymunnar
hefur Kaupfélag Borgfirðinga gert
3ja ára samning við Knattspyrnu-
deild Ungmennafélagsins Skal-
lagríms í Borgarnesi um samstarf
og kynningar. Kaupfélagið skaffar
deildinni þúninga á alla aldurs-
llokka á þessu ári. Að sögn Þóris
Páls Guðjónssonar kaupfélags-
stjóra er það eitt af markmiðum
Kaupfélagsins að stuðla að menn-
ingar- og félagsmálum á félags-
svæðinu og segja mætti að samn-
ingurinn væri liður í þeirri stefnu.
Auk ieiaga í knattspyrnudeild
Skallagrims voru fulltrúar frá
hestamannafélaginu Skugga á
svæðinu með hestana sína og
leyfðu börnunum að fara á hest-
bak. Þá fóru félagar úr leikdeild
Skallagríms um svæðið í halarófu
í margvíslegum múnderingum.
Félagar úr björgunarsveitinni Brák
aðstoðuðu við umferðarstjórn og
dreifðu umferðaráróðri til öku-
manna. ,
4.000 pylsur
Gestunum á hátíðinni var boðið
upp á ókeypis ís, gos og pylsur.
Að sögn kaupfélagsstjórans sporð-
renndu gestirnir alls um 4.000
Borgarnespylsum, tveimur
bílförmum af ís og öðru eins af
gosi. Kvaðst Þórir Páll vera mjög
ánægður með opnunina, marg-
menni hefði verið á staðnum, öll
dagskráratriðin tekist mjög vel og
veðrið ekki getað verið betra.
Síðdegis lentu stökkvarar úr Fall-
hlífarklúbbi Reykjavíkur við Hyrn-
una eftir að hafa dreift sælgæti
úr háloftunum niður til krakkanna.
Um kvöldið var síðan stiginn dans
við undirleik Geirmundar Valtýs-
sonar sem hélt útitónleika framan
við Hyrnuna.
TKÞ
Hótei- og veitingaskólinn:
Skóflustunga að
nýju skólahúsi
SIGURÐUR Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, tók á miðvikudaginn
fyrstu skóflustungu að byggingu sem hýsa á m.a Hótel- og veitinga-
skólann og hluta af ferðamálabraut Menntaskólans í Kópavogi. Þetta
storhýsi á að rísa fyrir aldamót.
Samkvæmt byggingarsamningi
sem undirritaður var 9. apríl sl. á
tæplega 6000 fermetra stórhýsi að
rísa næsta áratug. Þar verða til
húsa Hótei- og veitingaskólinn,
matvælaiðja og hluti þess ferða-
málanáms sem nú fer fram í
Menntaskólanum í Kópavogi. Til
stendur að sameina skólana í einn
bóknáms- og verknámsskóla, að
•þeir verði tvær sjálfstæðar einingar
faglega en lúti sömu yfirstjórn.
„Þetta er mikið gleðiefni fyrir
báða skólana, sem hafa orðið að
búa við fjársvelti árum saman,“
sagði Ingólfur A. Þorkelsson, skóla-
stjóri Menntaskólans í Kópavogi, í
samtali við Morgunblaðið. „Jafn-
framt eru þetta mikil tímamót í
skólasögu íslendinga því hér mun
hótel- og matvælanám búa við betri
skilyrði en áður hafa þekkst og auk
þess er hér komin til sögunnar ný
gerð menntaskóla sem hefur bæði
Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, tekur fyrstu skóflustungu að hinu nýja hótel- og veitingaskóla-
húsi.
bók- og verknám innan sinna vé-
banda. Enn fremur er þetta mikil-
vægur áfangi fyrir Kópavogsbæ
sem hefur nú fengið margþráða
starfsmenntunarmiðstöð í bæinn.“
Fyrsti áfangi þessa nýja Hótel-
og veitingaskólahúss mun rísa
1993. Það verður stjórnunarálma.
Húsið átti hins vegar að rísa í heild
sinni fyrir árið 2000 samkvæmt
samningum sem undiritaður var í
apríl og nýlega var ákveðið að flýta
framkvæmdum svo að skólahúsið
verður væntanlega tekið í gagnið
fyrir þann tíma.