Morgunblaðið - 25.08.1991, Qupperneq 31
13.05 í dagsins önn - Nóttin, nóttin. Umsjón:
Valgerður Benediktsdóttir.
13.30 Söguraf dýrum. Umsjón: JóhannaÁ. Steingr-
ímsdóttir.
14.00 Fréttir.
14.03 Útvarpssagan: „í morgunkulinu". eftirWilliam
Heinesen Þorgeir Þorgeirsson les eigin þýðingu
(6)
14.30 Miðdegistónlist.
15.00 Fréttir.
15.03 „Þú ert Rauðhetta bæði og Bláskjár". Geð-
veiki og persónuleikaklofningur i bókmenntum.
Umsjón: Friðrika Benónýsdóttir. Lesarar með
umsjónarmanni: Ragnhéiður Tryggvadóttir og
Guðmundur Ólafsson.
16.00 Fréttir.
16.05 Völuskrin. Kristín Helgadóttir les ævintýri og
barnasögur.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Á förnum vegi. Um Vestfirði með Finnboga
Hermannssyni. (Frá ísafirði.)
16.40 Lög frá ýmsum löndum.
17.00 Fréttir.
17.03 Vita skaltu. Ari Trausti Guðmundsson sér
um þáttinn.
17.30 Rómeó og Júlía, fantasíuforleikur. eftir Pjotr
Tsjajkovskíj. Fílharmóníusveitin i Berlín leikur;
18.00 Fréttir.
18.03 Hér og nú.
18.18 Að utan. (Einnig útvarpað eftir fréttir kl.
22.07.)
18.30 Auglýsingar. Dánarfregnir.
18.45 Veðurfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Um daginn og veginn. Jórunn Sörensen talar.
20.00 Sumartónleikar í Skálholti 1991. Orgeltón-
leikar Rose Kirn 3. ágúst. Á efnisskránni eru
verk eftir Johann Sebastian Bagh.
21.00 Sumarvaka, a. Fugl vikunnarF Umsjón: Sig-
urður Ægisson. b. „Sagan af honum Lappa”
Frásögn eftir Eystein Gislason í Skáleyjum. c.
Þjóðsögur í þjóðbraut. Jón R. Hjálmarsson flyt-
ur. Umsjón: Pétur Bjarnason.(Frá isafirði.)
22.00 Fréttir.
22.07 Að utan. (Endurtekinn þátturfrá kl. 18.18.)
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Orð kvöldsins. Dagskrá morgundagsins.
22.30 Sumarsagan: „Drekar og smáfuglar". eftir
Ólaf Jóhann Sigurðsson Þorsteinn Gunnarsson
byrjar lesturinn.
23.10 Stundarkom í dúr og moll. Umsjón: Knútur
R. Magnússon. (Einnig útvarpað á sunnudags-
kvöld kl. 00.10.)
24.00 Fréttir.
0.10 Tónmál. (Endurtekinn þáttur úr Árdegisút-
varpi.)
1.00 Veðurfregnir.
1.10 Næturutvarp á báðum rásum til morguns.
RÁS2
FM 90,t
7.03 Morgunútvarpiö — Vaknað til lífsins. Leifur
Hauksson og Eiríkur Hjálmarsson hefja daginn
með hlustendum.
8.00 Morgunfréttir. - Morgunútvarpið heldur
áfram.
9.03 9 - fjögur. Úrvals dægurtónlist í allan dag.
12.00 Fréttayfírlit og veður.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 9 - fjögur. Úrvals dægurtónlist, i vlnnu,
heima og á ferð. Umsjón: Margrét Hrafnsdóttir,
Magnús R. Einarsson og Eva Ásrún Albertsdótt-
ir.
16.00 Fréttir.
16.03 Dagskrá: Dægurmálaútvarp og fréttir. Starfs-
menn dægurmálaútvarpsins; Sigurður Þór Sal-
varsson, Katrin Baldursdóttir, Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson, Guðmundur Birgisson, Þórunn
Bjarnadóttir og fréttaritarar heima og erlendis
rekja stór og smá mál dagsins.
17.00 Fréttir. - Dagskrá heldur áfram.
18.00 Fréttir.
18.03 Þjóðarsálin — Þjóðfundur i beinni útsend-
ingu. þjóðin hlustar á sjálfa sig Sigurður G. Tóm-
asson situr við símann, sem er 91 - 68 60 90.
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Rokkþáttur Andreu Jónsdóttur. (Einnig út-
varpað aðfaranótt fimmtudags kl. 01.00.)
21.00 Gullskífan: „Circle of one" með Oletu Adams
frá 1990. - Kvöldtónar.
22.07 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Úr-
vali útvarpað kl. 6.01 næstu nótt.)
0.10 í háttinn.
1.00 Næturútvarp á báðum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.00 Sunnudagsmorgunn með Svavari Gests.
(Endurtekinn þáttur.)
2.00 Fréttir. - Þáttur Svavars heldur áfram.
3.00 í dagsins önn — Nóttin, nóttin. Umsjón:
Valgetður Benediktsdóttir. (Endurtekinn þáttur
frá deginum áður á Rás 1.)
3.30 Glefsur. Úr dægurmálaútvarpi mánudagsins.
4.00 Næturlög.
4.30 Veðurfregnir. - Næturlögin halda áfram.
5.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
5.05 Landið og miðin. Sigurður Pétur Harðarson
spjallar við hlustendur til sjávar og sveita. (Endur-
tekið úrval frá kvöldinu áður.)
6.00 Fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum.
6.01 Morguntónar. Ljúf lög í morgunsárið.
LANDSHLUTAÚTVARP Á RÁS 2
8.10-8.30 og 18.35-19.00. Útvarp Norðurland.
AÐALSTÖÐIN
FM 90,9 / 103,2
7.00 Morgunútvarp. Umsjón ÓlafurTr. Þórðarson
og Hrafnhildur Halldórsdóttir. Kl. 7.20 Morgun-
. 1 . flOTAVTU ara/ua/jjya(
MORGUNBLAÐIÐ UTVARP/SJONVARP SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1991
OP
31
Gárur
eftir Elírtu Pálmadóttur
Fjölmiðla-
hugsjónir
leikfimi með Margréti Guttormsdóttur. Kl. 7.30
Morgunorð. Séra Cecil Haraldsson.
9.00 Fram að hádegi. Umsjón Þuriður Sigurðar-
dóttir. Kl. 9.20 Heiðar, heilsan og hamingjan.
9.30 Heimilispakkinn. Kl. 10.15 Hver er þetta?
Verðlaunagetraun. Kl. 11.30 Á ferð og flugi.
12.00 í hádeginu. Létt lög. Óskalagasíminn er
626060.
13.00 Á sumarnótum. Umsjón Ásgeir Tómasson.
16.00 Á heimleið með Erlu Friðgeirsdóttur.
18.00 Á heimamiðum. íslensk dægurlög að ósk
hlustenda. Óskalagasíminn er 626060.
19.30 Kvöldmatartónlist. \
20.00 Rokkað og rólað með Bjarna Ara.
22.00 Blár mánudagur. Blúsþáttur Aðalstöðvasr-
innar í umsjón Péturs Tyrfingssonar.
24.00 Næturtónar Aðalstöðvarínnar. Umsjón Rand-
ver Jensson
ALFA
FM 102,9
9.00 Tónlist.
23.00 Dagskrérlok.
BYLGJAN
FM 98,9
7.00 Morgunþáttur. Eirikur Jónsson og Guðrún
Þóra næringarráðgjafi. Fréttir á heila og hálfa-
tímanum.
9.00 Bjarni Dagur Jónsson. Veðurfregnir kl. 10.
íþróttafréttir kl.' 11. Valtýr Björn Valtýsson.
12.00 Hádegisfréttir.
12.15 Haraldur Gislason á vaktinni: (þróttafréttir kl.
14 og fréttir kl. 15.
15.00 Snorri Sturluson. Kl. 16 Veðurfréttir.
17.00 Reykjavik síðdegis. Hallgrimur Thorsteinsson
og Siguröur Valgeirsson. Fréttir kl. 17.1.7.
19.30 Fréttir.
20.00 Ólöf Marin.
00.00 Heimir Jónasson.
EFFEMM
FM 95,7
7.00 A-Ö. Steingrímur Ólafsson í morgunsárið.
Kl. 7.10 Almanak og spakmæli dagsins. Kl. 7.15
Islenskt tónlistársumar. Kl. 7.20 Veður, flug og
færð. Kl. 7.30 Slegið á þráðinn. Kl. 7.45 Dagbók-
in. Kl. 8.00 Fréttir. Kl. 8.15 Blöðin koma í heim-
sókn. Kl. 8.30 Viðtal dagsins. Kl. 8.45 Slegið á
þráðinn
9.00 Tveir með öllu. Jón Axel Ólafsson og Gunn-
laugur Helgason. Kl. 10 Fréttir. Kl. 10.30 Hrek-
kjalómafélagið. Kl. 10.45 Kjaftasaga, fyrri hluti.
kl. 11.00 Erlendar fréttir frá fréttastofu. kl. 11.15
Persónuleg mál ber á góma. kl. 11.25 Kjafta-
saga, seinni hluti. kl. 11.36 Hádegisverðarpottur-
inn. kl. 11.55 Jón og Gulli taka lagið.
12.00 Hádegisfréttir. Kl. 12.10 ívar Guðmundsson.
kl. 12,30.Fyrsta staðreynd dagsins. Ki. 13.30
Staðreynd úr heimi stórstjarnanna. Kl. 14.00
Fréttir. Kl.. 14.05 Tónlistin helduráfram. Kl. 14.30
Þriðja og siðasta staðreynd dagsins kl. 14.40
kl. 15.00 íþróttafréttir. Kl. 15.05 Anna Björk Birgis-
dóttir. kl. 15.30 Óskalagalinan öllum opin. Simi
670-957. Kl. 16.00 Fréttir. Kl. 16.30 Topplög
áratuganna. Kl. 17.00 Fréttayfirlit. Kl. 17.30 Þægi-
leg síðdegistónlist. Kl. 18.00 Kvöldfréttir. Kl.
18.10 Gullsafnið. Tónlist frá árunum 1955-1975.
19.00 Valgeir Vilhjálmsson.
21.15 Pepsi-kippa kvöldsins.
22.00 Auðun G. Ólafsson á kvöldvakt.
01.00 Darri Ólason á næturvakt.
HUÓÐBYLGJAN
Akureyri
FM 101,8
16.00 Tónlist. Axel Axelsson. Óskalög og afmælis-
kveðjur i síma 27711.
17.00 ísland i dag. (Frá Bylgjunni). Kl. 17.17 Frétt-
ir frá fréttastofu Bylgjunnar og Stöðvar 2
18.30 Tónlist.
STJARNAN
FM 102/104
7.00 Páll Sævar Guðjónsson.
10.00 Helgi Rúnar Óskarsson.
13.00 Sigurður Ragnarsson. kl. 15 Húslestur Sig-
urðar.
16.00 KlemensArnarson. kl. 18Gamansögurhlust-
enda.
19.00 Björgúlfur Hafstað.
20.00 Arnar Bjarnason.
00.00 Næturtónlist.
Ofbeldi er ofarlega í umræð-
unni nú um stundir. Þessi
skrifari biður forláts að vera að
höggva í þann sama knérunn.
Hefur lengst af forðast að
blanda sér í það sem þá stundina
glymur í eyrum og ber fyrir
augu í fjölmiðlum. Agætt dæmi
Létt-og-laggott umræðan fyrir
skömmu, með áköfum ásökun-
um um að nú vildu einhveijir
skúrkar fara að leyfa innflutning
á smjörlíki. Eftir fjölþættar rok-
ur í fréttum í marga daga sprakk
sápukúlan,
enda hafði inn-
flutningur víst
verið leyfileg-
ur í mörg ár
án þess að
nokkur hafi
tekið eftir því.
Púff, málið
búið! Vísast
kemst einn
sunnudagspistlahöfundur hvort
eð er ekki nógu fljótt í slaginn.
Ofbeldi í fjölmiðlum er svosem
ekki nýtt. I því samhengi verður
gjarnan tíðrætt um sjónvarpið,
þar læri börn og unglingar of-
beldi. Þar skortir raunar ekki
ofbeldisseggi og skotglaðar
löggur og varla vefengt að börn
og fullorðnir læri - illt og gott
- af því sem fyrir þeim er haft.
Hvernig ættu þau annars að
læra? En af hveiju eru blöðin
oftast útundan í slíkri umræðu.
A.m.k. tvö dagblöð hafa samt í
áravís tryggt lesendum sína vik-
ulegu morðsögu í helgarblöðum.
Þetta eru raunar nokkuð sér-
stæðar frásagnir. Hafið þið lesið
morðmálasíður Tímans og DV?
Þessi skrifari hefur öðru hverju
skoðað þær og velt fyrir- sér
hvort þessi tegund frásagnar sé
raunverulega svona vinsæl á ís-
landi. Það hlýtur að vera. Ann-
ars væri þetta sértæka efni ekki
svo afdráttarlaust látið ganga
fyrir í takmörkuðu rými í blaði.
Þetta eru ekki hefðbundnar sak-
amálasögur með flókinni at-
burðarás og glímu lögreglu-
mannsins og lesenda við lausn
á því hver gerði það, eins og í
sögum Agöthu Christie? Fylgir
ekki einu sinni alltaf hver morð-
inginn er. Því þetta eru morðsög-
ur, aðallega morð á konum og
ósjaldan með kynferðislegu of-
beldi. Kjarninn lýsing á ofbeld-
inu. Hver sem er getur kynnt
sér tegundina með því að lesa
eina eða tvær. Svo má velta fyr-
ir sér hvers vegna lesendur hafi
svona mikla ánægju einmitt af
þessháttar morðsögum. Hljóta
þeir ekki að vera nægilega
margir sem það gera til þess að
slíku sé haldið úti árum saman?
Lengi hefur sú spurning gárað
sinnið, og tilefnið nýtt til að
senda þær gárur út.
Eldsneytið sem heldur mann-
fólkinu í gangi hraðar en
áhyggjurnar eru víst peningar,
eða svo segir bandaríski gagn-
rýnandinn og greinarhöfundur-
inn Wilfried Speed. Hlýtur það
ekki að eiga við hér. Lýsing á
morðum og ofbeldi á konum
hlýtur að vera svo góð söluvara
að það geri meira en að vega
upp á móti áhyggjum af því að
einhveijir, börn eða fullorðnir,
kunni að læra þá iðju.
Auðvitað er þessi tegund of-
beldis annarar náttúru en frétt-
ir, frásagnir af því sem raun-
verulega er að gerast nær eða
fjær í heiminum, þótt þar skorti
ekki ofbeldið. Við sáum óhugn-
anlegu ofbeldi beitt á Torgi hins
himneska friðar í Peking og við
þinghúsið í Vilnius í Litháen.
En nú höfum við líka séð með
eigin augum hvernig væntanlegt
ofbeldi gat gufað upp í Moskvu.
Sáum að þetta getur líka gerst
andspænis hugrekki. Er þetta
annars ekki orðið alveg maka-
laust? Að heyra kl. 7.30 að
morgni í útvarpinu að Gorb-
atsjov hafi verið steypt af stóii,
geta opnað snarlega fyrir Sky á
skjánum og verið með stírurnar
enn í augunum staddur á átaka-
svæðinu í Moskvu. Þetta breytir
ekki svo litlu. Ekki er lengur
hægt að ljúga að heiminum og
fela eða mótmæla skipulegu of-
beldi eða andsvari fjöldans við
slíku ofbeldi.
Hitt er ljótt ef satt er, sem
hann Þorgeir Þorgeirsson var
að benda fjölmiðlaráðstefnu á í
rómuðu erindi, að fréttaflutning-
ur sé í æ ríkara mæli að færast
frá því að beinast að kjarna
hvers máls og yfir í áherslu á
stílinn, hvernig fréttir eru sagð-
ar en ekki hvað, ef ég hefi rétt-
ar spurnir af því erindi. Það er
umhugsunarvert, sést raunar
þegar á er bent. Það er þessi
smarti stíll, stíll auglýsinganna.
Fer varla á milli mála að auglýs-
ingar og þeirra upphafni stíll
setur æ sterkari svip á fjölmiðla
og raunar víðar á þjóðfélagið.
Talað opinskátt um að auglýs-
ingin skipti hjá háum sem lágum
meira máli en það sem að baki
býr. Að auglýsa landið, menn-
inguna, þjóðina tekið fram yfir
það að skoða og bæta það sem
um ræðir hveiju sinni. Gengur
undir nafninu kynning.
Auglýsingar geta samt óneit-
anlega orðið dulítið skemmtileg-
ar þegar kjarninn týnist í orðun-
um. Til dæmis þegar auglýst eru
kvenleg dömubindi. En ekki
hvað? Eða vistvænar pappírs-
bleiur. Rassinn á barninu þá lík-
lega orðinn heilt vistkerfi. Bleian
sú víst minna skaðleg botninum.
Nema fullyrt sé að ekki hafi
þurft að fella tré til að búa til
þennan pappír? Nýlega kvartaði
ung kona, nýkomin frá Banda-
ríkjunum, þar sem nágranna-
konur hennar voru farnar að
nota bómullarbleiur og skömm-
uðust sín jafnvel fyrir að sjást
með pappírsbleiupakka úr stór-
markaðinum, undan því að hér
væri ekki þvottaþjónusta fyrir
bleiur, sem þar eru sóttar heim.
En ætli einhver tæki ekki að sér
slíka þjónustu ef nægilega
margir viðskiptavinif stæðu til
boða? Allt er þetta víst afstætt
- og mundi ekki saka að beita
á það skynsamlegu viti, eins og
einn stjórnmálamaðurinn okkar
ráðlagði þjóðinni í viðtali.
Sjónvarpið:
Drekar og
smáfúglar
■1 í kvöld hefst lestur nýrrar sumarsögu á Ras 1, þá byijar
30 Þorsteinn Gunnarsson að lesa Dreka og smáfulga eftir
Olaf Jóhann Sigurðsson.
Drekar og smáfuglar er þriðji og síðasti hluti sagnabálks Ólafs
Jóhanns um Pál Jónsson þlaðamann. Fyrri hlutar sagnabálksins
hafa einnig verið lesnir í Útvarp. Gangvirkið árið 1974 og Seiður
og hélog '1982. í kynningu útgefanda bókarinnar frá 1983 segir að
í Drékum og smáfuglum fái lesendur loks að vita full deili á Páli
Jónssyni og jafnframt er brugðið upp margbrotinni mynd af íslensku
þjóðlífi á fimmta áratugnum þar sem kímilegar persónur og atvik
fléttast inn í alvöruþrungna samfélagskrufningu. Öþægilegar spurn-
ingar leita á: Var framinn glæpur á fyrstu árum lýðveldisins? Ef svo
var, hver framdi hann?
SUMARHÚSALÓÐIR
Sumarhúsalóðir á góðum stað, 75 km frá Reykjavík.
Sérstaklega heppilegar til skógræktar.
Framkvæmdir sem fylgja með eru: Ný heildargirðing
umhverfis svæðið, pípuhlið, vegakerfi, bílastæði, kalt
vatn, einn metra inn á lóð, tæting fyrir skjólbeltum
og húsdýraáburður.
Svo ef óskað er á föstu verði: Vegur að væntanlegu
húsi, kalt vatn tengt við hús, frárennslislagnir ásamt
rotþró með tilheyrandi greftri og fyllingum, undirstöð-
ur og sumarhús.
Allt eftir óskum hvers og eins.
Sérstök kjör fyrir kunningjahópa, stórar fjölskyldur
og félagasamtök, sem taka þrjár eða fleiri lóðir saman.
Upplýsingar í síma 98-64418.
kirkjan
Sumarferd eldri borgara í Dómkirkjusókn
Efnt verður til sumarferðar eldri borgara í Dómkirkjusókn
miðvikudaginn 28. ágúst nk. kl. 13.00. Ekið verður um
Krísuvík til Grindavíkur og Vatnsleysuströnd á heimleið.
Kaffi drukkið í Bláa lóninu. Þátttökugjald kr. 600,-
Þátttaka tilkynnist í síma 622755 mánudag 26. ágúst og
þriðjudag 27. ágúst kl. 9.00-12.00.
L: > . i Sóknarnefnd.