Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTLTDAGUR 12. SEPTEIWBER 1921, .
Eþíópíu og þá lá leiðin oft á heim-
ili Shamebós. Og fyrir ári kom ein
dóttir hans hingað til lands til að
læra á tölvur. Samúel greiddi götu
hennar og bjó hún hjá þeim hjónum.
Gamli Shamebó lést einnig mánu-
daginn 2. september svo saman
héldu þeir heim til Drottins.
Eftir heimkomuna frá Eþíópíu í
lok árs 1986 hóf Samúel störf hjá
Lyijaverslun ríkisins sem fjármála-
og starfsmannastjóri. Honum líkaði
starfið vel og hann eignaðist þar
marga vini. Kristniboðinu lagði
hann lið og var alltaf boðinn og
búinn að rétta hjálparhönd er þess
var þörf. Hann var einnig formaður
„Brúar“, félags áhugamanna um
þróunarlönd, í tvö ár, og í bygging-
arpefnd íþróttafélags fatlaðra, var
þár gjaldkeri. En hugur hans var í
Afríku, þessarí álfu andstæðnanna
og þangað vildi hann og fjölskyldan
svo gjarnan fara aftur. Það var því
mikil gleði hjá Samúel og fjöiskyld-
unni er honum var boðið starf í
Úganda á vegum Dönsku þróunar-
samvinnustofnunarinnar. Draum-
urinn hafði ræst. Ég og fjölskylda
mín samglöddumst þeim innilega
þar sem við skildum svo vel þessa
löngun og þrá eftir því að starfa í
Afríku. Stuttu áður en þau fóru af
landi brott komu þau í heimsókn
og þá létum við hugann reika og
ræddum um framtíðina og starfið
sem biði hans.
Fyrir nokkrum vikum barst okk-
ur fyrsta bréfið frá þeessum vinum
okkar. Allt virtist svo bjart fram-
undan. Fólkið í Úganda var svo
vinalegt og hjálpsamt, landið yndis-
lega fallegt og starfið, sem Samúel
fékk, sérstaklega sniðið fyrir hann.
En óveðursskýin gera ekki alltaf
boð á undan sér. Og nú nístir sorg-
in hjartað og spurningarnar hrann-
ast upp. Þeim verður ekki öllum
svarað meðan við erum hér á þess-
ari jörð en það er gott til þess að
vita að Samúel trúði á Drottin sinn
og frelsara, hann sem veitir huggun
og styrk þeim er til hans leita.
Er harmafregnin barst kom í
huga mér 23. Davíðssálmur. Megi
hann verða okkur góðu vinum óg
aðstandendum Samúels til trausts
og huggunar. Ég votta þeim inni-
lega samúð mína og fjölskyldu
minnar. Megi Guð blessa þau og
styrkja og minning um góðan dreng
lifa.
„Drottinn er minn hirðir,
mig mun ekkert bresta.
A grænum gi'undum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mina,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns sín.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Jónas Þórir Þórisson
og fjölskylda.
Kveðja frá Brú, félagi
áhugafólks um
þróunarlöndin
í dag kveðja Brúarfélagar hinstu
kveðju góðan félaga og fyrrum
formann félagsins, Samúel Jón
Ólafsson viðskiptafræðing, sem lést
við störf í Afríkuríkinu Uganda.
Fregnin af andláti Samúels barst
okkur eins og reiðarslag í byijun
síðastliðinnar viku. Við höfðum öll
kvatt Samúel og fjölskyldu hans
með bestu óskum síðastliðið vor er
þau lögðu hamingjusöm land undir
fót og fluttust öðru sinni til Afríku
til að búa þar og starfa. Þau höfðu
lengi þráð að snúa aftur til Afríku
og taka til við þróunarstörf, en við
þau höfðu þau unnið á árunum
Minning
Semjum minningargreinar,
afmælisgreinar,
tækifærisgreinar.
Önnumst milligöngu
við útfararstofnanir.
Sími 91-677585.
Fax 91-677586.
V _________________
1982 til 1986 í Afríkuríkjunum
Súdan og Eþíópíu. Þau unnu þá
fyrir Hjálparstofnun íslensku kirkj-
unnar og síðar fyrir Hjálparstofnun
norsku kirkjunnar. Þróunarlöndin
og málefni þeirra voru Samúel og
fjölskyldu hans afskaplega hug-
stæð. Þau skilja svo vel þá hugsjón,
sem allt of fáir skilja, að brúa verð-
ui' bilið milli norðurs og suðurs,
milli þróunarríkja og iðnríkja, milli
fátækra og ríkra, milli læsra og
ólæsra, milli hungraðra og mettra
eigi að búa börnum þessa heims
lífvænlega framtíð. Samúel og fjöl-
skylda lögðu sitt af mörkum til að
brúa hið stóra bil. Eftir heimkom-
una frá Afríku síðla árs 1986 réðst
Samúel til Lyfjaverslunar ríkisins
sem fjármála- og starfsmanna-
stjóri. Því starfi gegndi hann til
síðastliðins vors er hann réðst til
DANIDA, dönsku þróunarsam-
vinnustofnunarinnar. Samúel og öll
fjölskylda hans gerðust félagar í
Brú, félagi áhugafólks um þróunar-
löndin. Samúel varð kosinn formað-
ur félagsins í apríl 1988 og gegndi
formennsku þar til í apríl í vor sem
leið. í Brú fann Samúel farveg til
að vinna að áhugamáli sínu, að efla
skilning íslensku þjóðarinnar á þró-
unarríkjunum, kynna'menningu og
sögu þeirra, kynna lífshætti fólks í
þeim _og stuðla að auknum stuðn-
ingi íslands við þróunarsamvinnu
og neyðarhjálp. Samúel var ósér-
hlífinn við að vinna að þessu mál-
efni. Margt dreif á daga undir for-
mennsku Samúels í Brú. Hæst ber
þó líklega einn ijölmennasti fundur
sem haldinn hefur verið um þróun-
armál hér á landi, sem haldinn var
í nóvember í fyrrahaust, með helstu
stjórnmálaleiðtogum landsins að
viðstöddu fjölmenni. Ekki er ólík-
legt að þessi fundur hafi að ýmsu
leyti hreyft við mörgum þeim sem
á honum voru og aukið skilning
þeirra á gildi þróunarsamvinnu.
Auk starfa sinna fyrir Brú hélt
Samúel myndasýningar og kynn-
ingarfundi fyrir ýmis félög og sam-
tök hér á landi en hann átti bæði
gott myndasafn og sérlega gott
með að segja vel og skilmerkilega
frá. Brúarfélagar varðveita minn-
ingu fyrrum formanns síns og fé-
laga, Samúels Jóns Ólafssonar. Við
vottum eiginkonu Samúels, Ingi-
björgu - Júlíusdóttur, og börnum
þeirra samúð og biðjum drottin að
styðja þau .og styrkja í sorg sinni.
Blessuð sé minning Samúels Jóns
Ólafssonar.
F.h. Brúar, félags áhugafólks
um þróunarlöndin,
Stefán Þórarinsson
Félagi okkar, Samúel Jón Ólafs-
son, og vinur er fallinn frá. Það
hvarflaði ekki að okkur er við
kvöddum Samúel þegar hann fór
til Úganda að það væri í hinsta sinn.
Samúel byijaði að vinna með okkur
í ársbyijun 1987 og setti svip sinn
á lífið innan LR með sinni einstæðu
kímnigáfu. Samúel var starfs-
mannastjóri og þurftu því margir
að leita til hans. Hann var jafnan
úrræðagóður og leysti vanda fólks
með miklum ágætum. Hann eignað-
ist marga vini innan fyrirtækisins
og reyndist þeim öllum vel, ekki
síst þeim sem minna máttu sín.
Samúel var einstaklega orðheppinn
og gat komið mönnum gersamlega
í ópna skjöldu með hnyttnum til-
svörum.
Við minnumst glampans í augum
Samúels þegar hann minntist á fyrri
dvöl sína í Afríku og samglöddumst
honum innilega þegar hann fékk
langþráð starf við þróunarhjálp í
Úganda. Örlögin höguðu því þannig
að hann átti ekki afturkvæmt til
starfa með okkur, en hann var í
leyfi frá störfum við LR um óákveð-
inn tíma.
Við sendum fjölskyldu Samúels
innilegar samúðarkveðjur.
Starfsfólk Lyfjaverslunar
ríkisins.
Ó blessuð stund er hátt í himnasölum
minn hjartans vin ég aftur fæ að sjá
og við um okkar ævi saman töium
sem eins og skuggi þá er liðin hjá.
(M. Joch.)
Við þökkum honum fyrir lífið og
tímann sem hann gaf okkur.
Hans er sárt saknað úr þessum
hópi, en fordæmi hans gerir okkui
götuna greiðari. Guð geymi elsku
vininn.
Kveðja frá eiginkonu, börnum,
tengdabörnum og barnabarni.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG GUÐRÚN HÖGNADÓTTIR
frá Baldurshaga í Vestmannaeyjum,
sem lést 3. september, verður jarðsungin frá Landakirkju í Vest-
mannaeyjum laugardaginn 14. september kl. 11.00.
Marta Sigurjónsdóttir, Ingólfur Þórarinsson,
dóttursynir og fjölskyldur þeirra.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns og föður okkar,
MAGNÚSAR ÍSLEIFSSONAR,
Kirkjuvegi 11,
Keflavík.
Gróa Hjörleifsdóttir og börn.
t
Móðir okkar,
FRÍÐA HALLGRÍMSDÓTTIR AUSTMANN,
Aragötu 10,
lést 10. september.
Guðlaug Benediktsdóttir,
Hreinn Benediktsson.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
UNNUR AÐALHEIÐUR JÓNSDÓTTIR
frá Stóru-Ávík,
andaðist í Sjúkrahúsi Akraness sunnudaginn 8. september.
Minningarathöfn fer fram í Akraneskirkju í dag, fimmtudaginn
12. september, kl. 14.00.
Jarðsett verður í Árnesi laugardaginn 14. september kl. 14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
45
t Eiginmaður minn, HERMANN JÓNSSON, áður Vesturbraut 24, lést á Sólvangi 31. ágúst sl." Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Jóhanna Hjörleifsdóttir, börn og tengdabörn.
t Stjúpa okkar og föðursystir, PETRÍNA KRISTÍN JAKOBSSON, Fossöldu 5, Hellu, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 13. september kl. 13.30. Aðstandendur.
t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir og afi, HAUKUR GUÐMUNDSSON fyrrum verkstjóri, Vestmannabraut 56b, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 14. september kl. 14.00. Theódóra Óskarsdóttir, börn, systkini, tengdadóttir, barnabörn og barnabarnabarn.
t Faðir minn, ÞRÁINN ÞÓRÐARSON, Gunnarsbraut 8, Búðardal, er lést í sjúkrahúsinu á Akranesi 9. september sl., verður jarð- sunginn frá Hjarðarholtskirkju, Dölum, mánudaginn 16. septem- ber kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurlaug Nanna Þráinsdóttir.
t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÁSTA KRISTBJÖRG BJARNADÓTTIR, Sólvallagötu 38b, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 14. september kl. 14.00. Börn, tengdabörn og barnabörn.
t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, JÓN GUÐNASON bóndi, Götu, Hvolhreppi, léót á heimili sínu 10. september. Ragnhildur Guðmundsdóttir, Ástríður Jónsdóttir, Guðmundur S. Guðmundsson, Bjarghildur Jónsdóttir, Helgi Einarsson, Guðni V. Jónsson, Þórunn Björgvinsdóttir og barnabörn.
t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför FANNEYJAR JÓNASDÓTTUR, Álfheimum 9. Jónas R. Jónasson, Guðrún Erla Jónasdóttir, Sigrún Jónasdóttir, Sigurvin Hannibalsson, Fanney Jónasdóttir, Guðsteinn Guðmundsson, barnabörn, barnabarnabörn, Jón Húnfjörð Jónasson, Guðrún Jónasdóttir.
Lokað
Vegna útfarar STEINARS MAGNÚSSONAR
verður fyrirtækið lokað frá kl. 13.00 í dag.
Jötunn hf.
J