Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 37
r .nr.fflNssímR sr viriífApiiTwn/n fi|flA.i;r/iUafl()M
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
Garður:
Morgunoiaoio/Arnor
Kvenfélagskonur sáu um kaffi og meðlæti fyrir gestina og var ekki
annað að sjá en a.m.k. yngri borgararnir tækju hraustlega til matar
síns.
ingartími var skammur. Hann bar
einnig kveðjur 'úr ráðuneyti sínu og
gat þess að ráðuneytismenn bæru
hreppsnefndarmönnum gott orð
fyrir gott samstarf.
Helgi Jónasson fræðsiustjóri lýsti
ánægju sinni með vandað og gott
skólahús. Hann sagði áhyggjur sín-
ar fara minnkandi með skólahús-
næði á Suðurnesjum sem stöðugt
batnaði. Samkomunni stjórnaði
Finnbogi Björnsson oddviti. Boðið
var upp á kaffi og bakkelsi sem
kvenfélagið Gefn sá um að lokinni
athöfn.
í nýbyggingunni eru tvær
kennslustofur, stofa fyrir raun-
greinar, kennslueldhús, sérkennslu-
stofa, aðstaða fyrir húsvörð, fund-
arherbergi, aðstaða fyrir ræstingu
og söluaðstaða nemenda.
Hin nýja bygging er tengd við
gamla skólann en þar hafa verið
gerðar ýmsar endurbætur en allar
framkvæmdir við skólann hafa haft
forgang á aðrar framkvæmdir í
hreppsfélaginu í sumar.
Svokallað norm Gerðaskóla var
mjög lágt áður en nýbyggingin var
tekin í notkurreða um 52% en eftir
að nýbyggingin var tekin í notkun
hækkar norm skólans í um 70-80%.
Arnór
-------*-*-*------
Pétur Hall-
dórsson opn-
ar sýningu
PÉTUR Halldórsson opnar sýn-
ingu í Gallerí Koti laugardaginn
4. september nk.
Pétur Halldórsson er landskunn-
ur fyrir teikningar sínar en hér
sýnir hann teikningar með bland-
aðri tækni.
Gallerí Kot fagnar því að geta
boðið upp á sýningu þessa sem •
stendur til 5. október. Sýningin er
opin á almennum verslunartíiJift
Borgarkringlunnar.
(Fréttatilkynning)
Glæsilegt 500 fm skóla-
húsnæði tekið í notkun
Garði.
NÝ 500 fermetra álma var tekin í notkun við Gerðaskóla sl. föstu-
dag að viðstöddu fjölmenni. Þeirra á meðal var Ólafur G. Einars-
son, menntamálaráðherra, Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra, Helgi
Jónasson fræðslustjóri Reykjanesumdæmis auk ýmissa sveitar-
stjórna- og skólamanna á Suðurnesjum.
Athöfnin hófst með því að sveit-
arstjóri Gerðahrepps, Sigurður
Jónsson, rakti framkvæmdasögu
nýbyggingarinnar. Hann gat þess
m.a. að hver íbúi byggðarlagsins
hefði lagt til 37 þúsund krónur til
byggingarinnar en heildarkostnað-
urinn er um 48 milljónir kr. Til
samanburðar gat hann þess að
Reykvíkingar hefðu þurft að leggja
3,6 milljarða til skólamála á tveim-
ur árum til að ná samsvarandi tölu
á hvern Reykvíking. Sigurður gat
þess að næsta stórverkefni hrepps-
féiagsins yrði bygging sundlaugar
og íþróttahúss en bygging sund-
laugar hófst fyrir nokkrum árum
og hefir verið kennt undanfarin tvö
ár í búningsklefum hennar.
Formleg afhending byggingar-
innar fór fram með þeim hætti að
Sigurður Ingvarsson byggingaraðili
3. og lokaáfanga afhenti sveitar-
stjóra lykla sem sveitarstjóri af-
henti formanni skólanefndar, Jóni
Hjálmarssyni sem afhendi síðan
skólastjóra, Eiríki Hermannssyni
lyklavöldin. Eiríkur gat þess að
Gerðaskóli væri næstelzti barna-
skóli landsins en hann hóf starfsemi
1872. Hann gat þess að þessi áfangi
væri hinn fyrsti af þremur en ný-
byggingin er teiknuð fyrir 250 nem-
endur. 230 nemendur verða í Gerða-
skóla í vetur og kennarar verða 15
auk húsvarðar og gangavarða sem
er nýmæli við skólann.
Ólafur G. Einarsson mennta-
málaráðherra bai' skólanum og íbú-
um kveðju þingmanna. Hann sagði
að vel hefði verið staðið að verki
og gat þess sérstaklega hve bygg-
Olafur G. Einarsson, menntamálaráðherra bar kveðjur þingmanna og ráðuneytis til Garðmanna.
HAUSTUTSALA
AFSLáTTUR >F OLLUM REIBHJfiLUM
ILLT U 41% AFSLáTTUR
FJALLAHJÚL 2G“:
DIAMOND TIGER 18 gíra, SHIMANO gírar,
óður 20.900 nú 18.855, Stfll. 17.805.
DIAM0ND EXPL0SIVE 21 gíra, SHIMAN0 200 GS,
óður 29.900 nú 26.910, Stgr. 25.415.
GIANT C0LDR0CK 21 gíra, SHIMAN0 400 LX,
óður 44.200 nú 35.600, Stgi. 33.800.
SC0TT B0ULDER 21 gíra, SHIMAN0 DE0RE LX,
óður 60.900 nú 48.700, Stgi. 46.265.
GITANE FAUB0URG 26“ 3ja gíra
m/fótbremsu, óður 23.200
nú 15.900, stgr. 15.105.
GÚMMÍBÁTUR
1-2 MANNA
MEB MÓT0R -
GJAFVERfl
ABEINS
KR. 4.900
BMX 20“ torfæruhjól með fótbremsu.
Ótrúlegt verð fró 8.460, Stfll. 7.990.
„SKATEBIKE“óðuri2 9oo,
i, nú 9.800, stgr. 9.310.
HJ0LABRETTI
HJÓLASKAUTAR
30% AFSLÁTTUR
HJÓLASKAUTAR
Verð aðeins fró 2.450.
STÓR HJÓLABRETTI
Verð fró kr. 1.400.
BUSLULAUGAR , sterkur plastdúkur ó röragrind.
Stærð 122 x 244 cm kr. 8.900, Stfll. kl. 8.455.
Stærð 122 x 184 cm kr. 3.900.
FJALLUJÓLISKÓR
0G GÖHGUSKÓR
Verð fró kr. 3.450.
VARAHLUTIR 0G VIÐGERÐIR
KREDITKORT 0G GREIBSLUSAMHINGAR.
SENDUM f PÓSTKRÖFU.
SÍDUSTU SÍMAR 35320
VANBIU VALID DG VERSLID f MARKINU DlkGAR
1/ferslunin
ARMULA 10