Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 15
Tafla 1: Fjöldi kransæðadauðsfalla á íslandi 25-74 ára
MORGSNBLAÐIÐ KIMM’TL’DAGUR 12.'SBRTEMBER 1991
15
Ár 1981 1988 1988 ef tíðnin hefði verið óbreytt Fækkun dauðsfalla/ár
Karlar 184 143 194 51
Konur 48 44 60 16
Samtals 232 187 254 67
arhátta, forvarna, þar með talin
lyfjameðferð, svo og framfara í
læknismeðferð þessara sjúkdóma á
sjúkrahúsum. Starfsemi Hjarta-
verndar og Landssamtaka hjarta-
sjúklinga hefur gegnt hér mikil-
vægu hlutverki en forvarnir eru
reyndar stundaðar víða í þjóðfélag-
inu, bæði af heilsugæslustöðvum,
af sérfræðingum, að ógleymdum
þætti sjúkrahúsanna sem hafa tekið
virkan þátt í því með fræðslustarf-
semi og endurhæfingu hjartasjúkl-
inga, göngudeildum o.fl.
Þrátt fyrir að verulegur árangur
hafi náðst í baráttunni gegn krans-
æðasjúkdómum er þó vert að hafa
í huga að þessir sjúkdómar eru enn
algengir á íslandi og við erum nú
á svipuðu stigi og um miðjan 7.
áratuginn en eigum langt Mand
með að ná því stigi sem var í kring-
um 1950 eins og sést á mynd 1.
Þó er verulega raunhæft að gera
ráð fyrir að með áframhaldandi
aðgerðum á mörgum sviðum megi
draga úr tíðni kransæðasjúkdóma
í yngri aldurshópum enn frekar en
orðið er.
Heimildir:
1. Nikulás Sigfússon, Helgi Sigvaldason, Lauf-
ey Steingrímsdóttir, Inga Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, Ingibjörg Stefánsdóttir, Þor-
steinn Þorsteinsson, Gunnar Sigurðsson.
Breytingar á tíðni kransæðastíflu og krans-
æðadauðsfalla á íslandi; tengsl við áhættu-
þætti og mataræði. Læknablaðið 1991; 77:
49-58.
2. Sigfusson N, Sigvaldason H, Steingrims-
dóttir L, Guðmundsdottir II, Stefansdottir I,
Thorsteinsson Th., Sigurdsson G. A recent
decline in ischaemic heaVt disease in Iceland
and change in risk factors. British Medical
Journal 1991; 302: 1371-1375.
Hagnýt
greinaskrif
Lærið að skrifa blaða- og tímaritsgreinar,
fréttatilkynningar, minningargreinar o.fl.
Á námskeiöinu veröur lögö áhersla á aö kenna fólki undir-
stöðuatriöi greinaskrifa. Markmiöiö er aö gera þátttakendum
fært aö tjá sig í fjölmiölum. Á námskeiöinu veröur
stuðst viö nýútkomna bók um ritun eftir Ólaf M.
Jóhannesson: Þaö er leikur aö skrifa.
Nánari upplýsingar og skráning f.h. alla virka daga
frá kl. 9-12 í síma 67 16 97.
Höfundur eryfirlæknir
Iyflækningudeildar Borgarspítala
og dósent við læknadeild HI.
Undirleik-
urviðmorð
í Alþýðu-
leikhúsinu
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ frumsýnir
laugardaginn 14. september kl.
20.30 leikritið Undirleikur við
morð eftir Davis Pownall.
Þetta er gamanleikrit með dram-
atískum undirtón, þar sem segir frá
ítalska tónskáldinu Carlo Gesualdo
(1564-1612 og breska tónskáldinu
Peter Warlock (1894-1930), lífí
þeirra hvors um sig og tenglsum
innbyrðis bæði í þessum heimi og
öðrum. Höfundur veltir fyrir sér
eilífðarspurningum á borð við hvar
uppsprettu sköpunarkraftsins sé að
finna, hveiju listamaðurinn eigi að
fórna á altari listarinnar og hvort
fórnirnar séu á endanum fyrirhafn-
arinnar virði. Þá er hlutverki þeirra
sem hafa lifibrauð sitt af umfjöllum
um listirnar gerð gráglettin skil í
verkinu.
Leikendur í sýningunni eru
Bryndís Petra Bragadóttir, Hjálmar
Hjálmarsson, Jórunn Sigurðardótt-
ir, Viðar Eggertsson og Þorsteinn
Backmann.
Umsjón með tónlist eru í höndum
Árna Ilarðarsonar, leikmynd gerir
Elín Edda Árnadóttir, búninga
hannar Alda Sigurðardóttir, lýsingu
stjórnar Björn Bergsteinn Guð-
mundsson og leikstjóri er Hávar
Siguijónsson.
(Fréttatilkynning)
....■■■■■♦ ♦ +---
■ Á TVEIMUR VINUM fimmtu-
dagskvöldið 12. september skemmt-
ir ný og athyglisverð hljómsveit,
Stallah-Hú. Hljómsveitin er brass-
band og flytja þeir sveiflu, Dixie,
ballöður og þekkt lög úr kvikmynd-
um. Meðlimir sveitarinnar eru Ós-
valdur F. Guðjónsson, trompet,
Tómas Eggertsson, baritonhorn,
Jón K. Snorrason, horn, Hall-
varður Logason, básúna, Kristó-
fer Ásmundsson, túpa og Sigfús
Höskuldsson, trommur. Föstu-
dags- og laugardagskvöld skemmtir
hljómsveitin Busar úr Stykkis-
hólmi. Þeir hafa spilað saman und-
anfarin fjögur ár og síðustu tvö
árin verið ein vinsælasta ballhljóm-
sveit vestlendinga en eru nú komn-
ir á mölina til náms og tóniðkana.
Busana skipa: Ólafur Stefánsson,
Siggeir Pétursson, Njáll Þórðar-
son, Grétar E. Sveinsson og Aðal-
steinn Þorvaldsson. Sunnudags-
kvöld verða rokktónleikar í harðari
kantinum. Þá koma fram hljóm-
sveitirnar Rotþró frá Húsavík sem
flytja jarðýtuþungt norðurhjara-
rokk og fleiri sveitir í rokkkantin-
um.
(Frcttatilkynning)