Morgunblaðið - 14.09.1991, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
5
Hundurinn
Krummi í
tollgæsluna
Labrador-hundurinn Krummi
hefur gengið til liðs við Tollgæslu
Islands og mun aðstoða tollgæslu-
menn við leit að fíkniefnum.
Krummi er nýlega kominn úr
sóttkví og tekinn til starfa, eins og
sést á myndinni, en hann var keypt-
ur í Danmörku þar sem hann og
umsjónarmaður hans hlutu sérstaka
þjálfun. Saman munu þeir félagar
annast leit í öllum tollumdæmum
landsins eftir því sem þörf krefur.
Lionsklúbburinn Freyr keypti
Krumma og gaf tollgæslunni. Að
sögn Brynjólfs Karlssonar skrifstof-
ustjóra Tollgæslunnar er þetta ekki
í fyrsta skipti sem klúbburinn sýnir
í verki stuðning við baráttu gegn
vaxandi fíkniefnavanda. Auk
Krumma eu nú til í landinu fjórir
leitarhundar; tveir hjá lögreglunni í
Reykjavík og tveir hjá tollgæslunni
á Keflavíkurflugvelli.
---------------
Þingvellir:
Níu sækja
um embætti
þjóðgarðs-
varðar
UMSÓKNARFRESTUR um laus
embætti sem biskup íslands aug-
lýsti laus til umsóknar 15. ágúst
síðastliðinn er runninn út.
Um embætti sóknarprests og þjóð-
garðsvarðar á Þingvöllum eru níu
umsækjendur. Þrír þeirra óska nafn-
leyndar. Aðrir umsæjendur eru: Séra
Ágúst Sigurðsson, sóknarprestur á
Prestbakka, séra Guðmundur Örn
Ragnarsson, Reykjavík, Guðrún
Edda Gunnarsdóttir, guðfræðingur,
Reykjavík, séra Hanna María Péturs-
dóttir, Skálholti, séra Ragnheiður
Erla Bjarnadóttir, sóknarprestur á
Raufarhöfn og séra Rögnvaldur
Finnbogason, sóknarprestur á Stað-
arstað.
Um Raufarhafnarprestakall í
Þingeyjarprófastsdæmi sækir Jón
Hagbarður Knútsson, guðfræðingur,
Reykjavík.
Um Stykkishólmsprestakall í Snæ-
fellsnes- og Dalaprófastdæmi sækja
séra Gunnar Hauksson, sóknarprest-
ur á Þingeyri, og dr. Siguijón Ey-
jólfsson, guðfræðingur, Reykjavík.
Um starf fræðslufulltrúa á bisk-
upsstofu sóttu Adda Steina Bjöms-
dóttir, guðfræðingur, Ragnheiður
Sverrisdóttir, djákni, og Vigfús Hall-
grímsson, BA í uppeldisfræðum.
Engar umsóknir bárust um
Hólmavíkurprestakall í Húnavatns-
prófastsdæmi og Patreksfjarðarpre-
stakall í Barðastrandarprófasts-
dæmi.
---------------
Nefnd um
húsaleigu-
kostnað
Félagsmálaráðherra hefur
skipað nefnd til að gera tillögur
um aðgerðir til að draga úr hús-
næðiskostnaði leigjenda í sam-
ræmi við stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar, svo sem húsaleigu-
bætur til lágtekjufólks.
Formaður nefndarinnar er Ingi
Valur Jóhannsson deildarstjóri í fé-
lagsmálaráðuneytinu en aðrir nefnd-
armenn eru Rannveig Guðmunds-
dóttir alþingismaður, Sólveig Péturs-
dóttir alþingismaður og Þórhallur
Jósepsson deildarstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu.
Morgunblaðið/Þorkell
Atvinnuleysi minnkaði í ágúst:
Aukinn fjöldi útlend-
inga í fiskvinnslu
UM 1.400 manns voru að meðal-
tali atvinnulausir í ágústmánuði
eða um 1% af áætluðum mann-
afla á vinnumarkaði að því er
fram kemur í yfirliti um at-
vinnuástandið sem vinnumála-
skrifstofa félagsmálaráðuneyt-
isins hefur látið frá sér fara.
Atvinnuleysi minnkaði frá
mánuðinum á undan. Atvinnulaus-
um fækkaði um 240 og atvinnu-
leysi var minna í öllum landshlut-
um nema á Suðurnesjum, þar sem
um nokkra fjölgun var að ræða.
Samanborið við sama tíma í
fyrra er atvinnuástand mun betra.
Atvinnuleysið var 1,5% af áætluð-
um mannafla í ágúst í fyrra en er
1% nú. í frétt Vinnumálaskrifstof-
unnar segir að aukin eftirspurn
eftir vinnuafli komi meðal annars
fram í vaxandi innflutningi útlend-
ingatil ýmissa starfa. 1.100 manns
höfðu fengið atvinnuleyfi hjá skrif-
stofunni í júlílok í ár en 850 á
sama tíma í fyrra. Aukningin er
svo til ölí í fiskvinnslu en 440 at-
vinnuleyfi hafa verið veitt þar nú
samanborið við 265 í fyrra.
VANDADIR
VINNUBÍLAR
J/tÁ
VOLKSWAtEN
Kjörnir til hverskonar
vöruflutninga og fólksflutninga
Lokaður VW Transporter
6 manna VW Transporter með palli
□ Án vsk
03 Bensín- eða Dieselhreyfill
H Aflstýri
□ Framhjóladrif
□ 5 gíra handskipting/sjálfskipting
□ Þriggja ára ábyrgð
BÍLL FRÁ HEKLU BORGAR SIG
3 manna VW Transporter með palli
m
HEKLA
LAUGAVEGI174
SÍMI695500