Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGÁRDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
Atak fjármálaráðuneytis:
Skattskuldir
hafa lækkað um
milljarð króna
SKATTSKULDIR vegna virðisaukaskatts og staðgreiðslu tekju-
skatts hafa lækkað um tæpan milljarð króna frá því átak til inn-
heimtu þessara skulda hófst að frumkvæði fjármálaráðuneytisins
1. júlí síðastliðinn.
Skuldir vegna virðisaukaskatts
frá árinu 1990 voru í byijun maí
á þessu ári um 1,7 milljarðar króna
eða um 4,3% af álagningu ársins.
Þessi upphæð hafði lækkað í tæp-
lega 1,5 milljarða í byijun ágúst.
Skuldir vegna fyrsta skatttímabils
árið 1991 lækkuðu á sama tíma
úr 655 milljónum í 335 milljónir.
Virðisaukaskattskuldir höfðu því
lækkað alls um 540 milljónir.
Skuldir vegna staðgreiðslu
tekjuskatts áranna 1988-90 voru
í júní sl. tæplega 2,3 milljarðar
króna eða um 3,1% af álagðri stað-
greiðslu þessara ára. Þar af skuld-
uðu gjaldþrota fyrirtæki rúmlega
1,25 milljarða, og þær kröfur eru
því ekki í höndum fjármálaráðu-
neytisins en einn milljarður var til
innheimtu hjá innheimtumönnum
ríkissjóðs. í ágúst hafði þessi upp-
hæð lækkað um 372 milljónir
króna.
Indriði H. Þorláksson skrif-
stofustjóri í fjármálaráðuneyti
sagði á blaðamannafundi þar sem
þetta var kynnt, að innheimtutalan
sjálf væri hærri en ofangreindar
tölur sýndu, vegna þess að þær
fælu í sér breytingar á stofninum,
sem kynnu að vera gerðar vegna
ákvarðana skattyfirvalda, og einn-
ig hækkaði skuldastaðan vegna
dráttarvaxta og álaga.
Indriði sagði að erfítt væri að
meta beinan árangur innheimtu-
átaksins þar sem ekki væri hægt
að segja til um hve mikið hefði
innheimtst ef átakið hefði ekki
hafíst. Hins vegar yrði þessu átaki
haldið áfram og þess gætt að ekki
söfnuðust upp skattaskuldir í stór-
um stíl.
Ólafsvík:
Morgunblaðið/Gísli Bogason
Varúð, við þessa götu leika 33 börn sér
Djúpavogi.
í SUMAR tóku íbúar við Borgarland á Djúpavogi sig til og útbjuggu þetta skilti ökumönnum til viðvörun-
ar. Við þessa götu býr mestmegnis ungt fólk með mikið af börnum og fer fjölgandi.
Samkomulag bæjarsljórnar og
fyrirtækja um átak í atvinnumálum
BÆJARSTJÓRN Ólafsvíkur og
meiri hluti útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækja á staðnum hafa
gert með sér samning um átak í
atvinnumálum á staðnum. Sam-
kvæmt samningnum á að kanna
Hugmyndir uppi um að stofna
banka í Eystrasaltsríkjunum
KÖNNUN sem Norræna ráð-
herranefndin hefur látið gera á
því hvaða möguleikar séu fyrir
Norðurlöndin til að styðja efna-
hagslega þróun í Eystrasaltslönd-
unum hefur leitt til hugmynda um
að koma á fót nýrri fjármálastofn-
un með norrænni þátttöku á sviði
fjárfestinga í Eystrasaltslöndun-
um. Um yrði að ræða sérstakan
þróunar- og fjárfestingarbanka
innan hvers hinna þriggja rílga.
Könnunin var unnin af Norræna
fjárfestingarbankanum, (NIB) í
Helsinki í samvinnu við sérfræðinga
og stjórnvöld í Eystrasaltsríkjunum.
Samkvæmt henni er talið að fjár-
málastofnanimar þijár þurfi að njóta
stuðnings eins konar „regnhlífar“
stofnunar, sem í athuguninni hefur
fengið nafnið Fjárfestingarbanki
Eystrasaltslandanna og lagt er til
að hann hafi aðsetur utan Eystra-
saltslandanna, t.d. á Norðurlöndum.
Hugmyndin er að Pjárfestingar-
bankinn verði sameign Norðurlanda
og Eystrasaltslandanna, væntanlega
með 70% eignarhiut hinna fyrr-
nefndu en 20% eignarhlut hinna
síðarnefndu. Afgangur yrði eign al-
þjóðlegra fjármálastofnana.
möguleika á sameiningu fyrir-
tækja, aukinni samvinnu sveitar-
félaga og hagræðingu af ýmsum
toga. Jón Atli Krisljánsson, rekstr-
arráðgjafi, hefur verið fenginn til
að vinna að framkvæmd samn-
ingsins. í fréttatilkynningu frá
bæjarstjórn Ólafsvíkur segir með-
al annars, að fyrsta verkefni Jóns
Atla verði að greiða úr aðkallandi
málefnum sem várði útgerð togar-
ans Más og tryggja að hann verði
áfram i byggðarlaginu. Þá muni
hann einnig vinna að þeim málum,
sem varði Hraðfrystihús Ólafsvík-
í fréttatilkynningunni segir að
með þessu samstillta átaki bæjar-
.stjórnar og atvinnufyrirtækja sýni
Ólafsvíkingar frumkvæði, sem ekki
hafi áður þekkst hér á landi. Ljóst
sé, að bregðast verði við þeim kalda
veruleika, sem blasi við bæjarfélög-
um, sem byggi allt sitt á sjávarút-
vegi og fískvinnslu. Hagræðing og
aukin arðsemi séu lykilorð í þeim
efnum. Miklu máli skipti að atvinnu-
fyrirtæki og stjórnendur bæjarfélaga
vinni saman að lausnum fyrir alla
heildina.
Þá segir í tilkynningunni að fyrstu
tillögur Jóns Atla Kristjánssonar um
framtíðarskipan atvinnumála líti ljós
innan tíðar. Þar verði ekki um að
ræða skammtímalausnir, heldur
muni þær taka mið af því, að til að
Ólafsvík geti áfram haldið að dafna,
verði að taka mið af þeim gjör-
breyttu aðstæðum, sem við blasi í
sjávarútvegi og fiskvinnslu. Jafn-
framt verði að huga að meiri fjöl-
breytni í atvinnulífi.
□AIHATSU
CHARADE
Sedan
KRAF: IR ,
KÐRYMI
866.000 stgr. á götuna.
—
FAXAFENI 8 • SIMI91 - 68 58 70
Það eru fáir ef nokkrir bílar í
þessum stærðarflokki sem búa yfir
öllum þessum kostum. Daihatsu
Charade Sedan er búinn 90 hest-
afla vél með beinni innspýtingu
sem skilar miklum krafti um leið
og hún er sparneytin og búin full-
kominni mengunarvörn.
Vökvastýrið gerir hann líka ein-
staklega lipran og skemmtilegan í
akstri og hann fæst einnig
sjálfskiptur.
- Charade Sedan er góður kostur!
tAÐ 100.000 KM.
CHARADE SEDAN KOSTAR FRÁ KR.