Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 9
, ftjQRGUþíBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14- SpPTEMBER 1991
9
Krabbameinsfélag
íslands
SAMHJÁLP
KVENNA
Leikfimi fyrir konur
sem hafa gengið undir brjóstaaðgerð
Nýtt námskeið er að hefjast. Enn eru nokkur pláss laus.
Allar upplýsingar veita fyrir hönd Samhjálpar kvenna,
Kristbjörg í síma 65 78 13 og Lovísa í síma 42777.
NÝJA BÍLAHOLLIN
FUNAHÖFÐA 1-112- Rvík.- FAX 673983
Nissan Primera 2.0 GLX '91, 8.000 km.f
hvítur, sjálfsk., með öllu.
MMC Pajero langur EXt, diesel turbo
'88, hvítur, krómfelgur, brettakantar,
grind. V. 1.790 þús. Skipti.
Toyota Landcruiser langur, diesel 86,
126.000 km., brúnn. V. 1.850 þús. Skipti.
Ford Bronco II ’86, 90.000 km., blár,
sjálfsk. V. 1.280 þús. Skipti.
Saab 900i ’88, 45.000 km., brúnn.
V. 1.250 þús. Skipti.
Pajero stuttur EXE, diesel turbo
’88, 93.000 km., sjálfsk. V. 1.450 þús.
Skipti.
Mazda 626 2.0 '88, grar,
V. 990 þús. Skipti.
Mercedes Benz 0309D '78, hvítur/blár,
gott eintak, nýtt lakk, mjög mikið end-
urnýjaður. V. 1.190 þús.
Aðstoð við Sovétríkin
Þýska dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung
gagnrýnir Hans Dietrich Genscher utanríkisráð-
herra Þýskalands harðlega í forystugrein í vik-
unni. Er hann sakaður um skort á skarpskyggni
í viðskiptum við ráðamenn í Sovétríkjunum er
hann leggur upp á sitt eindæmi til að alþjóðlegar
fjármálastofnanir liðsinni Sovétmönnum. Er hann
minntur á að á leiðtogafundi sjö helstu iðnríkja
heims í júlí hafi verið ákveðið að ekki væri ráð-
legt að ausa fé í botnlausa hít Sovétríkjanna. í
breska vikuritinu The Economist kemurfram svip-
að sjónarmið og þar segir að peningar komi Sov-
étmönnum ekki að haldi nema ákveðin skilyrði
séu uppfyllt. I bandaríska dagblaðinu The New
York Times er Bandaríkjastjórn hins vegar hvött
til að grípa nú þegar til aðgerða til að afstýra
hungursneyð og almennri óánægju í Sovétríkjun-
um.
Skarpskyggni
Genschers
I forystugrein Frankf-
urter Allgemeine Zeit-
ung 12. september sl.
segir: „Genscher er [...]
þeirrar skoðunar að hlut-
verk þýskrar utanríkis-
stefnu sé að skerpa vest-
rænum bandamönnum
sýnina á hversu miklar
breytingamar í Sov-
étríkjunum séu. Ráðherr-
ann heyrðist segja frá því
í sjónvarpi að hann hefði
orðið var við miklar
bréytingar í Sovétríkjun-
um sem „margir á Vest-
urlöndum" hefðu ekki
gert sér grein fyrir. Þar
á hann við sína helstu
bandamenn og sá sem
heyrir hann tala „allt að
því reiðan“ um þetta efni
veit að hann á einkum
við frönsku og bresku
ríkisstjómina.
En á fyrsta degi valda-
ránsins í Moskvu var sýn
þýska utanríkisráðherr-
ans ekki sérlega skörp
en það mátti hins vegar
segja um Bush og Major.
Þeir urðu fyrstir til að
segja að þeir myndu ekki
viðurkenna valdaræn-
ingjana; þeir yrðu að
segja af sér og kalla
Gorbatsjov aftur til
starfa. Það var ekki fyrr
en eftir þessi orð sem
Genscher tók afstöðu. Þó
hafði Jeltsín á þessum
örlagaríka degi fyrst
reynt að ná sambandi við
þýsku stjórnina með
hjálp neyðarsíma. Hann
vildi veita stjóminni upp-
lýsingar um ástandið og
láta í þós þann ásetning
sinn að beygja sig ekki
undir valdarænhigjana.
En þýska stjórnin var
ekki til viðræðu. Þá sneri
Jeltsín sér til bresku
stjómarinnar með beiðni
til umheimsins um dipl-
ómatískan stuðning.
Þegar til Moskvu var
komið ráðlagði Genscher
bandamönnum sínum í
viðtölum við fréttameim
að leyfa Sovétríkjunum
að nálgast alþjóðastofn-
anir eins og Alþjóða-
bankann og Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn nú þeg-
ar og að fullu, hvað sem
það nú þýðir, en ekki
hvetja á fætur annarri.
Þess má geta að á leið-
togafundinum í London
í júlí vom bandamemúm-
ir þeirrar skoðunar að
það væri gagnslaust að
hella milljörðum í bein-
hörðum peningum í botn-
lausa hít. Þarf ekki líka
eftir valdaránið að setja
botn í hítina?“
Tvíbent aðstoð
I forystugrein breska
vikuritsins The Econom-
ist um síðustu helgi segir
um sama efni: ,,[F]ylgis-
menn nýrrar Marshall-
áætlunar hafa augljós-
lega háskalega rangt fyr-
ir sér að einu leyti: Þeir
ganga út frá því að vest-
ræn ríki geti hjálpað
þjóðum Sovétríkjanna
með því einu að undirrita
ávísanir.
Peningar koma ekki
að haldi nema uppfyllt
séu tiltekin pólitisk og
efnahagsleg skilyi-ði.
Þessi skilyrði em brýn
en lýðveldin hafa eim
ekki uppfyllt þau. Hug-
sjónamönnum finnst að
sjálfsögðu að slíkt tal sé
óbærileg smámunasemi.
Hafið í huga hvað er í
húfi, segja þeir, aðstoð
er áhætta sem er þess
virði að taka. Mai'gir
skattgreiðendur (en þeir
eiga féð, ekki má gleyma
því) myndu samsinna
þessu eða a.m.k. væri
hægt að fá þá til þess.
Þeir gætu jafnvel haft
rétt fyrir sér — ef sann-
leikurinn væri sá að mis-
heppnuð aðstoð væri í
versta falli einfaldlega
sóun. Því miður er þessu
ekki þannig farið. Aðstoð
hefur oft ýtt landi út í
meiri erfiðleika en það
átti upphaflega við að
etja annaðhvort með því
að valda skuldasöfnun
eða með því að auðvelda
ríkisstjórninni að fresta
umbótum sem annars
hefðu verið óumflýjan-
legar.“
Tafarlausar
aðgerðir
I forystugrein banda-
riska dagblaðsins The
New York Times sem
birtist í International
Herald Tribune í vikunni
er Bandarikjastjóm
hvött til að grípa þegar
til aðgerða til að afstýra
hungursneyð og al-
mennri óánægju í Sov-
étríkjunum: „Nú þegar
sovéskt hagkerfi hrinur
er æ erfiðara fyrir Sovét-
menn að eiga til Imifs og
skeiðar. Þegar vetrar-
hörkumar byija verða
matvælaflutningar erfið-
ari. Þess vegna er hyggi-
legt af stjóm Bush að
grípa tafarlaust til að-
gerða til að meta skort-
inn og ákveða með hvaða
hætti sé best að dreifa
matargjöfum.
Með góðri samvisku
em Bandaríkjamenn
reiðubúnir að rétta hjálp-
arhönd. Það er mannúð-
legt og einnig hyggilegt.
Bandaríkjamenn hafa
engan hag af því að auka
efnahagski-eppuna sem
nú vofir yfir Sovétríkjun-
um. Það myndi einungis
stuðla að almemu'i
óánægju og upplausn og
þar með torvelda lýðræð-
islega stefnumörkun og
tilurð markaðshagkerf-
is.“
HÁ ÁVÖXTUN Á ERLENDUM VERÐBRÉFUM
Opið í Kringlunni í dag á milli kl.10 og 16.
Sérfræðingur Fjárfestingarfélagsins í
erlendum verðbréfum, Agnar Jón Ágústsson
hagfræðingur, verður í Kringlunni í dag.
Verið velkomin!
Raunávöxtun í Skandifond verðbréfasjóðunum frá áramótum:
North-America 60,37% United Kingdom 24,13%
Far East 47,20% Nordic 24,09%
Global 34,84% Cöntinental Europe 8,14%
Japan 31,83%
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTINGARFÉLAGSINS HF.
HAFNARSTRÆTI 7.101 REYKJAVÍK, S. (91) 28566
KRINGLUNNI, 103 REYKJAVÍK S. (91) 689700 • RÁÐHÚSTORGI 3, 600 AKUREYRI S. (96) 11100