Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 40
’40 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991 // Ég x£bx. cuS berc\ ÁÆym- s i/ö/tA.. þcL þcirftu -c-tíci s/feLlt aS t/em m '/ru'ÆryvQ d fv/em'/h'íhann kostaác." pabbi? Hefur þú hér heillaóska- kort fyrir galdramenn? Stafsetningarkimnátta Stundatöflu þessari var dreift til nemenda í einum skóla borgarinn- ar. Aðstandandi eins þeirra hafði orð á því við Velvakanda, að ekki væri við góðu að búast úr því að stafsetningarkunnáttu þess, sem gekk frá töflunni væri ekki betri. Það skal tekið fram að leiðrétt ein- tak var sent út daginn eftir. Tannlæknakostnaður: Það er hægt að spara Miklat' umræður eru nú í gangi um heilbrigðismál og því finnst mér rétt að benda á leið til sparnaðar og þá á ég við tannlæknakostnað því að hann er alltof hár hér á landi. Ég og dóttir mín fórum til Eng- lands á þessu ári fyrst og fremst til þess að spara og iækka þennan dýra kostnaðarlið. I hreinskilni sagt varð þessi kostnaðarliður tvisvar til þrisvar sinnum ódýrari þar en hér. Við vorum mjög ánægðar með þessa ferð. Fólk á hiklaust að notfæra sér vandaða og ódýra tannlæknaþjón- ustu erlendis því að nú er ódýrt að fljúga og auðvelt að velja um ferðir. Mér finnst sjálfsagt að fólk geri eitthvað í alvöru vat'ðandi þessa rándýru tannlæknaþjónustu hér á landi. Kristin Stunrflr M&nud. tMðJuí. Mlflvhtud. Flmmtud.. Fflstud. 8.10-IL50 8^0.9JO 5un i á k 'Htótöf' vrc /0”- /0* D&HCr'it lo^-ll20 STÍfLKl/þ STULKuf < 12** MÍHMÐÍl 1^ yjÍHMWí 2S°~- Uahd$. /j,D Hmnt JTÓNMenT SAMVK,f þifcmr LLÆ r isiViMi IMCFÍIHf i * va 2V~. j»0£> 5j40-8J0 Cb 1 öuquuyy t- 6.20-7.00 Fjarvlstir nomijnd* jkulu tilkynnur 1 ilm» 331110 ou 30745. Þessir hringdu .. Lady Rós Fimm ára gömul læða, Lady Rós, hvarf frá Grettisgötunni 19 ágúst síðastliðinn. Lady Rós er litskrúðugur köttur, svört, brún, gul, framan á hálsi og loppum er hún hvít. Ef einhver hefur séð þessa kisu eða veit hvar hún er, er sá hinn sami vinsamlega beðinn um að hafa samband við Rósu í símum 45652 eða 609674. Lyklakippa týnd Svört lyklakippa með mörgum lyklum, húslyklum, bíllyklum o.fl. tapaðist í nágrenni við Lindargöt- una fimmtudaginn 5. september. Sá sem kynni að finna eða hefur fundið lyklakippuna er beðinn um að skila henni til lögreglunnar. Finnandi má gjarnan láta nafn og heimilisfang fylgja með svo eigandi geti veitt honum fundar- laun. Frábær Perla Kona hringdi, hún gat ekki orða bundist vegna kvartana og hnútukasts um Perluna í Öskju- hlíð. Konan vildi sérstaklega þakka afgreiðslufólki í kaffiter- íunni fyrir alúðlega framkomu, góða afgreiðslu og veitingar. Ex- presso-kaffið sem hún hefði keypt hefði smakkast ágætlega. Konan sagði Reykvíkinga geta verið stolta af Perlunni þótt hún' væri nokkuð dýr. Utlendingar sem hún hefði verið í fylgd með hefðu tæpast átt orð til að lýsa ánægju sinni og hrifningu á veitingunum og öllu því sem fyrir augu bar í Perlunni. Kjarasamningar BSRB Ríkisstarfsmaður vill benda fréttamönnum á, að á formannar- áðstefnu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, BSRB, var sam- þykkt að aðildarfélög bandalags- ins semdu hvert í sínu lagi. Fjölm- iðlum væri því nær að spyija for- menn sérfélaganna um kjara- samningana. Ögmundur Jónasson formaður bandalagsins hefði ekk- ert umboð til að svara. Víkverji skrifar Almennur áhugi á skógrækt hefur vaxið á undanförnum árum eins og merkja má af aðal- fundum Skógræktarfélags íslands. Fyrir nokkrum árum þótti viðburð- ur ef ungt fólk sýndi skógræktinni verðskuldaðan áhuga en nú ber svo við að öldungarnir og frumkvöðl- arnir eru í minnihluta á fundunum, unga fólkið er tekið við og komast færri að en vilja. Það ánægjuleg- asta er að samkomulag milli kyn- slóðanna er með miklum ágætum enda er það hugsjónin sem tengir þær saman. Þarna hittist fólk úr öllum stéttum, úr dreifbýli og þétt- býli, fulltrúar skógræktarfélag- anna á hveijum stað. Hér má því segja að orðið hafi þjóðarvakning og tímabært að ráðamenn þjóðar- innar vakni og styðji við bakið á þeim fjölmörgu áhugamönnum um allt land sem vilja klæða landið skógi. Minna má á að Skógræktar- félagi íslands voru veitt Umhverf- isverðlaun Norðurlandaráðs í sum- ar, í fyrsta sinn sem þau voru veitt. Ákvörðun Jóns Loftssonar skóg- ræktarstjóra um að leggja félögun- um ti! eina milljón plantna á næsta ári er vissulega ánægjulegt merki um breytt hugarfar stjómvalda. Með þessari gjöf er landgræðslu- skógaátakið, sem hófst með þátt- töku 8.000 sjálfboðaliða, tryggt þriðja árið í röð. xxx Kunningjar Víkverja af erlendu bergi, sem hafa heimsótt ís- land í sumar, hafa haft stærst orð um tvo hluti: fegurð íslenzkrar náttúru og hátt verð á matvöru. Þýzkir ferðalangar sögðust í fyrstu alls ekki hafa trúað öðru, en að það verð, sem þeim var gert að greiða fyrir gistingu og mat, væri sérstaklega ætlað útlending- um og ekkert annað en ósvífin peningafrekja. Mikil var undrun þeirra, þegar þeir komust að því að við íslendingar greiddum sömu upphæðir fyrir þessar vörur og þjónustu. Sögðust þeir hreint ekki skilja, hvemig íslendingar færu að þessu og þá ekki síst þeir, sem Þjóðveijarnir sögðust hafa frétt að ynnu í frystihúsum fyrir 60 þúsund krónur á mánuði. Þessir Þjóðveijar sögðust ekki hafa efni á að koma aftur, þótt þeir vildu, til að skoða meira af is- lenzkri náttúrufegurð, nema þeir fengju að taka stærstan hluta matarbirgðanna með sér að heim- an.. Annað dæmi er kunningi Vík- veija, sem hefur búið í Englandi um skeið. Hann kom eiginlega í uppnámi úr innkaupaferð í matvömbúð í Reykjavík. Kostar þetta virkilega svona mikið? hafði hann spurt við hvern hlut, sem keyptur var. Þegar heim var komið hringdi hann í kaupmanninn sinn í London og bað hann að segja til um, hvað þessir hlutir kostuðu hjá honum. Tekið skal fram, að um almenn matarinnkaup var að ræða og mik- ið grænmeti. Á kvittun verzlunar- innar í Reykjavík var niðurstöð- utalan um 3.100 krónur, sem jafn- gilda 30 sterlingspundum. Þegar enski kaupmaðurinn hafði lagt vörulistann saman hjá sér fékk hann út 3,5 sterlingspund!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.