Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991 Séð yfir kórinn. Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar kórnum á tónleikum á hátíðinni. Hamrahlíðarkórinn á kórahátíðinni Europa Cantat 11 18.-28. júlí: Forréttindi að flylja góða tónlist með góðu fólki - segir Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnandi kórsins „ÞVI FYLGIR mögnuð tilfinning og er ógleymanleg reynsla að fylgj- ast með ungu fólki sem aldrei hefur farið á hátið af þessu tagi, upplifa hátíðina með þeim og vísa þeim veginn inn í þennan heim listarinnar. Söngferðalögin eru sérstök og ólík öðrum ferðalögum að því leyti að þú ert ekki einungis búinn að safna fyrir þeim verald- lega heldur einnig andlega," segir Þorgerður Ingólfsdóttir, kór- stjóri, í samtali sem átt var við hana í tilefni af síðustu ferð hennar og Hamrahlíðarkórsins á kórahátíðina Europa Cantat. Hún heldur áfram. „Við erum búin að mæta á allar þessar æfingar og leggja svo hart að okkur í myrkrinu sem ætlaði aldrei að taka enda í vet- ur, hafa trú á einhverju sem virtist fjarrænt en varð um síðir að veruleika," bætir hún við og augun glampa. Áhuginn leynir sér ekki í fari Þorgerðar þegar hún talar um kórana sína tvo sem hafa und- ir hennar stjórn sungið um víðan heim. Hátíðin heitir uppá latínu Europa Cantat eða Evrópa syngur og er haldin þriðja hvert ár í löndum Evrópu. Sú sem nú var haldin var sú ellefta í röðinni. Hún var haldin í höfuðborg Baska á Norður-Spáni, Vitoriu. Þorgerður er ekki ókunnug hátíð- inni þar sem hún hefur sex sinnum tekið þátt í henni með Hamrahlíð- arkórnum. „Við tókum við af Pól- ýfónkórnum sem tvisvar hafði tekið þátt í hátíðinni áður. Árið 1976 var okkur boðið að syngja með sem gestakór og gekk svo vel að okkur var boðið að gerast fullgildir aðilar að samtökunum sem standa að hátíðinni. Síðan höfum við tekið þátt í fímm hátíðum, á Englandi, í Sviss, Belgíu, Frakklandi og fyrstu hátíðinni í Austur-Evrópu, í Ung- verjalandi árið 1988.“ Öflugt lið frá íslandi Ákvörðun um að taka þátt í Spánarhátíðinni var tekin síðastliðið sumar. „Skipan hópsins var þó ekki endanlega ljós fyrr en í febrúar á liðnum vetri þegar 110 kórfélagar úr báðum kórunum, sem kenna sig við Hamrahlíð, fluttu Ljóðasinfóníu Hróðmars Sigurbjörnssonar í Há- skólabíói með Sinfóníuhljómsveit íslands. Þá var ákveðið að 80 kórfé- lagar úr þeim hópi tækju þátt í hátíðinni," segir Þorgerður og bæt- ■ir við að kórinn hafí ekki verið eini fulltrúi íslands í Europa Cantat 11. „Dómkórinn var líka á hátíðinni," segir hún. „íslendingar voru með afskaplega gott og öflugt lið.“ Sameining í söng og tónlist Þorgerður segir að yfirlýstur til- gangur hátíðarinnar sé að sameina Evrópu í söng og tónlist. „Á hátíð- inni fer fram kynning á tónlist hinna ýmsu landa þar sem kórarnir flytja tónverk frá sínum heimalöndum. Mikil áhersla er einnig lögð á sam- söng allra þátttakenda. Á Spáni fór hann fram á Plaza de Toros [nauta- atshringur] þar sem stjórnandinn stóð út í hringnum og stjórnaði kór með 3.400 söngvurum." „Flutningur á viðamiklum tón- verkum í samvinnu kóranna er líka mikilvægur þáttur hátíðarinnar. Að þessu sinni gátum við valið um að taka þátt í flutningi eins af tuttugu og sjö stórum verkum sem voru æfð og flutt á hátíðinni. Við völdum að taka þátt í verki sem Benjamin Britten samdi í tilefni af 100 ára afmæli Rauða' krossins 1963 en textinn er frásögnin um miskunn- sama Samveijann. Verkið Cantata Misericordium er skrifað fyrir kór, hljómsveit og 2 einsöngvara, tenór og baritón. Æfíngar fóru fram á hveijum degi á hátíðinni og verkið var flutt í kirkju heilags Mikaels undir stjórn Johans Duijck frá Belg- íu. Nú hefur verið ákveðið að hann komi hingað til íslands í byijun næsta árs og flytji verkið með okk- ur.“ Kórinn byrjaði að æfa fyrir hátíð- ina seinnihluta vetrar. „Efnisskráin, sem við héldum út með, var bæði kreijandi og erfið en ég álit að hún hafí gefíð góðan þverskurð af ís- lenskri kórtónlist,“ segir Þorgerður og telur upp nöfn nokkurra þeirra tónskálda sem áttu verk á efnis- skránni. Má þar nefna Jón Leifs, Þorkel Sigurbjörnsson, Atla Heimi, Jón Nordal, Hafliða Hallgrímsson o.fl. Kórnum var afar vel tekið á hátíðinni og hann beðinn að halda aukatónleika. Strik í reikninginn Þorgerði er mikils virði að kynna kórstarfið fyrir ungu fólki. Þessi hugsunargangur kemur sér líka vel þegar litið er til þess að sífelld end- urnýjun á sér stað í kórnum. Má í því sambandi geta þess að 50 af 80 Spánarförum höfðu aldrei áður farið með henni í söngferðalag til útlanda. Nokkurt strik setti í hátíðina að þessu sinni að matareitrun kom upp meðal þátttakenda hátíðarinnar og raskaði hátíðarhaldinu í tvo daga. „Fólk lagðist í veikindi eftir að hafa borðað skemmdan mat eitt kvöldið. Menn tóku þessu, eins og gengur, með mismiklu jafnaðargeði en okk- ar fólk var sem betur fer sterkt og reis fljótt á fætur. Heilbrigðisyfir- völd Spánar gáfu út skýrslu um málið sem síðar var dreift til allra hátíðargesta." Það var því í mörg horn að líta því ýmsu er að sinna í stórum hópi á tónleikaferðalagi. „En sem betur fer höfðum við fararstjóra, Sigurð Hjartarson sagnfræðing, sem reyndist okkur afar vel,“ segir Þor- gerður., „Hann er ótæmandi fróð- leiksbrunnur og spænskumælandi." Trúboð í tvær áttir I minningabók sem kemur út eftir hátíðina hafa verið valin tvö viðtöl við kórstjóra, að þessu sinni tvær konur, önnur er Þorgerður, hin er kórstjóri frá Venesúela. „Konur eru sjaldgæfar sem stjórn- endur á hátíðinni, oftast erum við 2-5 á móti rúmlega 100 körium. Þetta er algjört karlaveldi og ekki svo einfalt að hljóta viðurkenningu til jafns við þá,“ segir Þorgerður og bætir við að í viðtalinu segist hún vinna hálfgildirigs trúboðastarf í kóratónlistinni. „Eg kynni íslenska tónlist með kórnum mínum á þess- um stóra vettvangi og flyt síðan tónlist annarra þjóða með mér heim þar sem ég kem henni á framfæri." Þorgerður hrósar hópnum sem fór með henni út til Vitoria. Segir hann hafa verið afskaplega góðan, bæði félagslega og tónlistarlega, en þess má geta að kórfélagar voru á aldrinum 16 til 30 ára. Hún seg- ir erfítt að bera hátíðirnar sem hún hafi farið á saman því hátíðir af þessu tagi einkennist oftast þó- nokkuð af því landi þar sem þær séu haldnar í. Næsta hátíð verður SOLBER (Ribes nigrum) Blóm vtkunnar Umsjón: Ágústa Björnsdóttir 221. þáttur Hérlendis hefur ræktun sól- beija í heimilisgörðum aldrei náð útbreiðslu í líkingu við rifs sem líklega er langalgengasta runna- tegundin á lóðum í þéttbýli. Má vera að ein af ástæðunum fyrir því að sólber hafi ekki náð að öðlast tryggan sess kunni að vera hinn sérkennilegi þefur runnans og hið kynlega kryddbragð beij- anna, en lyktin kemur frá kirtlum sem eru á víð og dreif á grænum hlutum plöntunnar. Eins er það að sólbeijarunninn er heldur við- kvæmari en rifs þar sem kjörin eru óblíð. Sólber eru mjög holl og mikilvæg uppspretta C-vítam- íns. Þau eru ríkari C-vítamíngjafí en flestur annar jarðargróður. í 100 g beija eru nálægt 190 mg á móti 150 mg í papriku og 50 mg í appelsínum. Berin geyma einnig ýmis sölt. Smám saman hafa þessi ber náð að verða mik- ilsmetinn ræktunargróður víðs- vegar annars staðar en hér. Einn- ig má geta þess að frá gamali tíð hefur sólbeijarunnanum verið hrósað sem góðri lækningaplöntu hér og þar. Te af blöðum þótti gott gegn hitasótt og seyði af rótum og greinum var ráðlagt gegn gigt. Á þýsku voru sólber og nefnd gigtarber. Sólbeijasafi þótti einnig kælandi og svalandi. Ræktun sólbeija í heimilis- görðum ætti í raun að vera jafn algeng og rifsbeijaræktun því hún er ekki vandasöm. Auk þess hafa komið fram ýmis þolnari og fijósamari ræktunaryrki á seinni árum en áður þekktust. Sólber gera nokkru meira tilkall en rifs til skjóls, jarðvegs og raka, en þola aftur á móti aðeins meiri skugga. Þó kemur það venjulega niður á afrakstrinum ef slakað er mikið á hvað þetta atriði varð- ar. Árleg beijatekja sólbeija er minni en hjá rifsi. Reikna má með að runni í fullum vexti geti skilað 2,5-3 kg í mesta lagi hjá þeim sem hlúa vel að gróðrinum. Beijatekjan er að sjálfsögðu einn- ig mikið háð árferði og vaxtar: rými. Runnar þurfa gott pláss. í heimilisgörðum gæti gengið með rými í kringum 1,25-1,70 m ef árlegri afkvistun er vel fram- fylgt. Reglubundin klipping er líka nauðsynleg, því ungar grein- ar eru fijósamar. Greinar skyldu því endurnýjaðar á 3-4 ára fresti. Frá gamalli tíð hafa að mestu verið hér í görðum miðevrópsk yrki, frekar kalgjörn. Á seinni árum hafa verið hér fáanleg mun vetrarþolnari skandinavísk yrki, eins og Brödtorp og Öjebyn. Á vegum Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins hefur verið feng- ist við að athuga og bera saman fjölda erlendra yrkja undanfarin 12-14 ár. Það sem komið hefur best út úr könnun RALA er norð- ur-sænskur og fínnskur efniviður sem hefur upprunalega verið tek- inn úti í náttúrunni og fluttur í garða. Hér skulu nefnd 5 „heima- yrki“ sem virðast skara fram úr: Erkheikki VII, Jánkisjárvi, Melal- athi, Nikkala XI, Sunderbyn II. Melalathi er með stærst ber og gefur jafn besta uppskeru. Þessi yrki eru nú aðeins í upp- eldi á örfáum gróðrarstöðvum. Fjölgun er auðveld með græð- lingum, en uppeldi á útplöntunar- hæfum plöntum tekur ein 3 ár. Hvernig væri nú að athuga þessa ræktun, hugleiða málið í vetur? Óli Valur Hansson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.