Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGL'K 14. SEPTEMBER 1991
KNATTSPYRNA / ENGLAND
KNATTSPYRNA
Tap í London
Nú er að duga eða drepast!
Grindavík - ÍR
á Grindavíkurvelli laugardaginn
14. september kl. 14.00.
Verður ekkert Suðurnesjalið í 1. deild að ári?
Grindvíkingar og aðrir Suðurnesjamenn:
Nú fjölmennum við á völlinn
og hvetjum strákana til sigurs.
Taktu lýsi daglega
heilsunnar vegna
HAGKAUP
Söluturninn Stiarnan
^42___________________
Mm
■ FOLK
■ KANADA og Bandaríkin leika
til úrslita í keppninni um Kanada-
bikarinn í íshokkí. Kanada vann
Svíþjóð 4:0 í undanúrslitum.
Tommy Söderström var hetja
Svía og varði 43 af 47 skotum, en
Wayne Gretzky kom Kanada-
mönnum á bragðið undir iok ann-
ars leikhluta. Þetta er fimmta mó-
tið og hefur Kanada ávallt leikið
til úrslita, en Bandaríkin, sem
_unnu Finnland 7:3, hafa ekki fyrr
■^náð svona langt.
■ GRÍGORI Mísútín frá Sov-
étríkjunum fékk gullverðlaunin í
frjálsum æfingum karla á HM í fim-
leikum. Hann fékk 59,050 sti gúr
sex greinum eða 9,84 að meðaltali.
Sovétmenn voru í þremur efstu
sætunum, en þeir hafa unnið til
gullverðlauna á síðustu átta heims-
meistaramótum.
■ SOVÉSKU stúlkurnar fengu
gullverðlaunin í liðakeppninni á HM
í fimleikum, sem fer fram í Indiana-.
polis í Bandaríkjunum. Sovésku
stúlkurnar hafa þar með sigrað á
fimm af síðustu sex heimsmeistara-
mótum.
■ MICK Harford er aftur kominn \
til Luton eftir 18 mánaða veru hjá
Derby. Luton borgaði 325.000
pund (Um 33 millj. ÍSK) fyrir þenn-
an fyrrum miðheija enska landsl-
iðsins, en hann er 32 ára.
■ FRJÁLSÍÞRÓTTAFÓLK,
sem fellur á lyfjaprófi hefur hingað
til verið dæmt í tveggja ára bann
við fyrsta brot, en frá og með HM
í Japan á dögunum verður bannið
fjögur ár.
DAVID Szewczul frá Banda-
ríkjunum greiddi um 300.000 ÍSK
til að komast í fyrsta sinn á breska
áhugamannamótið í golfi. Hann sló
aldrei upphafshöggið — var dæmd-
ur úr keppni fyrir að mæta ekki á
réttan keppnisvöll! Szewczul er í
aganefnd á heimaslóðum og hefur
einu sinni dæmt mann úr leik fyrir
sams konar atvik.
Guðni mikil-
vægur hlekkur
hjá Spurs
Valsstúlkur tryggðu sér
Reykjavíkurmeistaratitilinn í
knattspyrnu, þegar þær unnu KR-
stúlkur 5:2 í úrslitaleik á gervigras-
inu í Laugardal í fyrrakvöld.
Bryndís Valsdóttir gerði þijú mörk
fyrir Val og Arney Magnúsdóttir
og Kristín Arnþórsdóttir sitt markið
hvor, en Helena Ólafsdóttir og
Valdís Rögnvaldsdóttir skoruðu fyr-
ir KR.
Liðin léku tvo leiki um titilinn
sl. vor. Valur vann fyrri leikinn 3:1,
en KR þann seinni 2:0. Því þurfti
þriðja leikinn og fór hann loks fram
í fyrrakvöld.
Strákarnir í íslenska unglinga-
landsliðinu voru óheppir að tapa,
1:2, fyrir Englendingum í Evrópu-
keppni U 18 á Selhurst Park í fyrra-
kvöld. „Það voru allir sammála um
að kraftaknattspyrnan hafi borið sig-
urorð á léttleika og tækni,“ sagði
Helgi Þorvaldsson, formaður ungl-
inganefndar. „Strákarnir áttu að vera
búnir að gera út um leikinn í fyrri
hálfieik og skora þetta fjögur mörk.
Markvörður Englendinga var rekinn
af leikvelli í seinni hálfleik, en það
dugði ekki. Englendingar skoruðu tvö
skallamörk áður en Óskar Þorvaldsson
svaraði fyrir okkur,“ sagði Helgi.
Fótboltaferð
til Glasgow
Úrval-Útsýn gengst fyrir þriggja
daga ferð til Glasgow dagana 21.
til 23. september n.k. og er ferðin
sett upp fyrir meistaraflokksmenn
íslenskra knattspyrnufélaga, að-
standendur liðanna, stjórnarmenn
og maka. Möguleiki verður að sjá
Guðmund Torfason og félaga í St.
Mirren leika gegn Glasgow Ran-
gers, en ferðin er aðallega hugsuð
til að gefa íslensku knattspyrnu-
fólki tækifæri til að slappa af eftir
keppnistímabilið.
Valur meistari
Guðni Bergsson hefur leikið vel með Tottenham að undanförnu.
TOTTENHAM hefur gengið vel í ensku knattspyrnunni að undanf-
örnu og segir Gary Mabbutt, fyrirliði, að mannabreytingar í vörn-
inni hafi styrkt hana til muna og góður varnarleikur geti gert
það að verkum að Spurs eigi raunhæfa möguleika á að berjast
um titilinn. Breytingarnar eru þær að lan Walker hefur tekið
stöðu Norðmannsins Eriks Thorstvedts í markinu, Guðni Bergs-
son er miðvörður í stað Steves Sedgleys og Paul Stewart hefur
verið færður úr fremstu víglíu og leikur fyrir framan miðverðina.
Guðni var úti í kuldanum hjá
Terry Venables, en Peter
Shreeves hefur gert árangursríkar
brejrtingar á liðinu. Hann settj
Guðna inná sem varamann gegn
Nottingham Forest fyrir skömmu
og síðan hefur allt gengið í haginn
með óbreyttu liði — Tottenham
hefur ekki fengið á sig mark í tæp-
lega ijórum leikjum. Guðni hefur
fengið góða dóma og er að vonum
ánægður. „Það er allt annað að fá
að spila sem miðvörður, en í þeirri
stöðu kann ég best við mig,“ sagði
Guðni við Morgunblaðið aðspurður
um stöðu hans hjá liðinu. „Walker
hefur staðið sig vel í markinu og
haldið hreinu í þremur leikjum. Þá
hefur verið mjög gott að leika með
Mabbutt á miðjunni og Stewart,
sem er geysilega sterkur, hefur
verið sem múi’brjótur fyrir framan
okkur og dæmið hefur gengið upp.
Tal um meistaratitil er samt óraun-
hæft, því keppnin er rétt að byija,
en auðvitað vonum við að við höld-
um okkar striki.“
Tottenham fær QPR í heimsókn
- í dag, en mætir síðan Hadjuk Split
frá Júgóslavíu í Evrópukeppni bik-
arhafa og fer leikurinn fram í Aust-
urríki á þriðjudag. Guðni verður
væntanlega í byijunarliðinu í báð-
um leikjunum, nema eitthvað óvænt
komi uppá. „Með sigri gegn QPR
yrði staða okkar, vænleg og við
höfum fullan hug á að standa okk-
ur í Evrópukeppninni."
Kemur í landsleikinn
ísland leikur gegn Spáni í Evr-
ópukeppninni á Laugardalsvellinum
25. september, en sama dag á Tott-
enham leik. Guðni sagði að Shree-
ves hefði spurt hvort landsleikurinn
skipti nokkru máli og bent a'að
Erik Thorstvedt hefði misst stöðu
sína í liði Spurs eftir að hafa farið
í landsleik með Noregi. ,Ég sagðist
fara í landsleikinn og það stendur,“
sagði Guðni.
Boðsmiðar á Evrópukeppni félagsliða
Athygli íþróttaforystumanna, dómara og annarra hand-
hafa aðgönguskírteina (passa) er vakin á því, að breytt
hefur verið reglum um frímiða (boðsmiða) að landsleikj-
um, Evrópukeppnum félagsliða og Mjólkurbikarkeppni
KSÍ. Aðgönguskírteini (passar) gilda ekki að framan-
greindum leikjum, en handhafar þeirra geta sótt miða
á leikina á skrifstofu KSÍ í Laugardal gegn framvísun
skírteina (passa). Miðar á leiki Vals, Fram og KR í
Evrópukeppni félagsliða, verða afgreiddir á skrifstofu
KSÍ 16.-18. sept. kl. 12-18.
Þá er rétt að benda handhöfum boðsmiða á, að eftirleið-
is er þeim ætlað að ganga inn um sérstakt hlið, merkt:
Boðsmiðar. Við hliðið verða skírteinishafar að sýna
skírteini sín ásamt boðsmiða.
ALHENHT STIG
KSÍ heldur þjálfaranámskeið - ALMENNT STIG
- í íþróttamiðstöðinni í Laugardal 20.-22. sept-
ember nk. (Sambandsþjálfari II).
Efni: Markmannsþjálfun, 10 leiðir í þálfun, leik-
fræði/taktik og erindi Friðfinns Sigurðssonar,
íþróttalæknis frá Svíþjóð, um álagsmeiðsl í knatt-
spyrnu.
Inntökuskilyrði: Sambandsþjálfari I.
Verð kr. 7.500,-
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu KSÍ, sími 814444.
Góð þjálfun - betri knattspyrna
Fræðslunefnd KSÍ
Um helgina
Knattspyrna í dag kl. 14
1. deild:
Laugardalsv......Fram-ÍBV
Garðsv........Víðir-Víkingur
Akureyrarv............KA-KR
Valsv..............Valur-FH
Stjörnuv......Stj arnan-UBK
2. deild:
Grindavíkurv...Grindavík-ÍR
Fylkisv..........Fylkir-Þór
Akranesv.........ÍA-Selfoss
Keflavíkurv..ÍBK-Tindastóll
Hvaleyrarholtsv.
.............Haukar-Þróttur
Handknattleikur
Haustmóti Stjörnunnar lýkur
í dag og verður úrslitaleikur-
inn kl. 13 í íþróttamiðstöðinni
Garðabæ, en átta 1. deildar
lið tóku þátt.
FN-mótið í handknattleik
verður í íþróttahöllinni á Ak-
ureyri á morgun, sunnudag,
og hefst kl. 16, en Þór, KA
og Islandsmeistarar Vals taka
þátt.
Fjölskylduskokk
Á morgun, sunnudag, verður
íjölskylduskokk KR og hefst
það kl. 14. Farið verður frá
KR-heimilinu upp Kapla-
skjólsveg eftir' Hringbraut,
Suðurgötu, Starhaga, Ægis-
íðu og Kaplaskjólsveg að
KR-heimilinu, samtals 3,7
km. Skráning hefst kl. 13 í
KR-heimilinu.
Golf
Opið öldungamót verður á
Jaðarsvelli í dag kl. 14. Keppt
verður um Jóhannesarbikar-
inn.
Nýliðamót verður einnig
haldið á Jaðarsvellinum í dag
og hefst það kl. 10.