Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991 15 Ríkisútvarpið eftir Guðjón Petersen Á þingi Sambands ungra sjálf- stæðismanna, sem haldið var á ísafirði helgina 17.—18. ágúst sl., gaf Ólafur G. Einarsson mennta- málaráðherra til kynna að hann væri hlynntur hugmyndum um að gera Ríkisútvarpið að almennings- hlutafélagi. Þó taldi hann, að því að mér skilst, að margt þurfi að skoða í því sambandi og nefndi það sérstaka hlutverk Ríkisútvarpsins að standa vðrð um íslenska menn- ingu og að tryggja landsmönnum hlutlausan fréttaflutning. Þriðja hlutverk Ríkisútvarpsins var ekki nefnt í þessu samhengi, en það er hlutverk þess í öryggi landsmanna. Það eru fáar þjóðir ef nokkrar í heiminum sem búa við eins inarg- háttaðar náttúruhættur og íslend- ingar. Landið er einn stærsti þurr- iendisstaður jarðar, sem er á gliðn- unarmótum meginjarðfleka og þar að auki yfir „heitum reit“ jarðmött- ulsins, en þessir þættir ráða því að eldvirkni er hér með því mesta sem gerist á jörðinni. Landið er einnig á hliðrunarsvæði jarðflekanna, með tilheyrandi jarðskjálftavirkni, það er vogskorið og fjöllótt á helstu snjósöfnunarsvæðum þess, enda snjóflóð og skriðuföll mjög tíð auk þess sem það er á einu versta veðra- svæði heims, sem er í byggð. Að meðaltali. er endurtekningar- tíðni eldgosa á íslandi talin vera um 5 ár, en hleypur á tugum eða hundruðum ára, miðað við einstaka svæði á landinu. (Dæmi: Hekla, Katla, Grímsvötn, Eyjafjallajökull, Öræfajökull og Veiðivatnasvæðið.) Jarðskjálftar af þeirri stærðargráðu að þeir finnist verða á innan við 5 ára fresti en skjálftar af þeim styr- leika að tjón verði á mannvirkjum verða með tuga ára millibili. (Dæmi: Kópasker 1976, Dalvík 1934, Brennisteinsfjöll 1929, Landsveit 1912 og meginhluti Suðurlands 1896.) Snjóflóð eru árviss, en í byggð á um 10 ára fresti og endur- tekningartíðni hamfaraveðra er um 10 ár. (Dæmi: 1991, 1981, 1973 og 1963.) Þetta segir þó ekki nema brot af sögunni. Stórviðburðir í náttúru- hamförum, sem geta valdið skaða í heilum landshlutum eða á landinu öllu, eiga sér stað með lengra milli- bili en að ofan greinir. Minna má því sambandi á sögu- og jarðfræð- legar heimildir um eldsumbrot í Heklu, Eyjafjallajökli, Mýrdalsjökli, Öræfajökli og öði-um eldstöðvum í Vatnajökli, Oskju og Lakagígum, auk hálendisns norður og norðaust- ur af Mýrdalsjökli, sem eru af þeirri stærðargráðu að ösku- og gasfram- leiðsla af eitruðum lofttegundum nær til alls landsins og út fyrir land- steinanna með skaðvænlegum áhrifum. Einnig er nauðsynlegt að minna á þá jarðskálfta sem eru jafn- vel um 7 á Richter og þar yfir, sem óhjákvæmilega valda skemmdum á mannvirkjum og tæknibúnaði á umtalsverðu svæði. Samfélagshættir á íslandi hafa tekið byltingum á þessari öld og þá sérstaklega á síðari helmingi hennar. Þannig hefur þjóðfélagið breyst úr bændasamfélagi í borgar- samfélag sem byggir afkomu sína á gjörólíkum forsendum. Allt hefur þetta gerst innan endurtekning- artíma stórhamfara í náttúru Is- lands. Því má segja að það þjóðfé- lag og sá búnaður og tækni í orku- öflun, samskiptum og samgöngum, sem nútímaþjóðfélagið er háð, auk þeirra mannvirkja sem byggð hafa verið á síðustu 50—100 árum, hafi aldrei „mætt“ þeirri tegund nátt- úruhamfara sem orðið geta á ís- landi, þrátt fyrir Vestmannaeyja- gos, stórviðri og aðrar tíðari ham- farir. Sama má segja um mannleg- ir hamfarir. Skammdrægi hertóla seinni heimsstyijaldarinnar hélt ís- landi utan átakasvæða að mestu, sem ekki myndi eiga við ef ófriður yrði nú á eða við Norður-Atlants- haf. Slys í notkun kjarnorku, svo sem í kafbátum, gervitunglum og kjarnorkuverum, geta einnig haft mikil áhrif til tjóns hér á landi. Miðlun upplýsinga er ein af for- sendum þess að viðbúnaður al- mannavarna virki og varnir takist. Til að mynda er miðlun svo mikil- væg á hættutímum að hvergi meðal annarra þjóða eru viðvörunarkerfi án þess að í merkjakerfi þeirra séu merki sem þýði að hlusta eigi á útvarp. Sama á við hér á landi og hafa Almannavarnir ríkisins lagt mikla áherslu á að fólk hlusti á leið- beiningar í útvarpi á válegum tím- um. Hlutverk útvarpsstöðva í al- mannavarnakerfi landsmanna er því þetta: — Áð upplýsa um hvað er að ger- ast, hvar, hveijar afleiðingar þess geti orðið og hversu víðtæk- ar þær geta orðið. — Að upplýsa um hvað megi gera til að minnka líkur á að atburð- urinn valdi tjóni á lífi og eignum. — Að upplýsa um ráðstafanir sem gerðar eru til almannavarna eða skipulagðar eru til að forðast tjón og veita líkn ef tjón verður. — Áð gefa leiðbeiningar eða neyð- arfyrirmæli um viðbrögð og varnir. Upplýsingamiðlunin er svo mikil- væg í almannavörnum að í flestum þróuðum ríkjum eru ráðstafanir gerðar til að samtengja útvarps- kerfi á hættutímum til að tryggja að miðlun upplýsinga sé samhæfð en ekki misvísandi. Má í því sam- bandi nefna t.d. Vestur-Evrópurík- in, en þar geta almannavarnir farið fram á samtengingu allra útvarps- stöðva á hættu- og neyðartímum. Með nýrri tækni í útvarpsmálum eru nú að opnast nýir möguleikar á notkun útvarps til viðvarana vegna almannavarna og er Ríkisút- varpið að koma þessari tækni á. Hér er um að ræða svokallað „Rad- io Data System" og hafa Japanir komið því upp í ofangreindum til- gangi. Einnigjnun vera unnið að því sama í Þýskalandi. Ríkisútvarpið er eini upplýsinga- miðill almannavarna sem nær til allra landsmanna og er því ein af þungamiðjum íslenskra öryggis- hagsmuna. Byggist það einmitt á þeirri grundvallarreglu að það skuli ná til .gllra landsmanna, sem varla verður hægt að gera að skyldu fyr- ir einkastöðvar. Almannavarnir rík- isins hafa því lagt megináherslu á að tilkynningar, leiðbeiningar og fyrirmæli sem varða öryggi fólks, varnir og viðbrögð gegn vá eða hættu, séu sendar fyrst og fremst um rásir Ríkisútvarpsins. Almannavarnir ríkisins hafa frá upphafi þess að þær voru stofnsett- ar árið 1962 bent á mikilvægi þess að Ríkisútvarpið væri í stakk búið til að geta smnt öryggishlutverki sínu á válegum tímum. Til dæmis lagði almannavarnaráð mikla áherslu á að Ríkisútvarpið yrði búið varaaflstöðvum til að tryggja út- sendingar á hættutímum, auk þess sem komið hefur verið upp þreföld- um öryggissamböndum milli stjórn- stöðvar Almannavarna ríkisins og Ríkisútvarpsins til að tryggja sem best miðlun upplýsinga. Sem meginmarkmið tel ég þá stefnu vera rétta að einkavæðing í stað ríkisreksturs sé það sem stefna beri að þar sem því verður við kom- ið til hagsbóta fyrir þjóðféiagið og framþróun þess. Hins vegar hljóta öryggismál þjóðarinnar ávallt að í ljósi öryggis „ Vil ég með þessari grein minna á nauðsyn þess að í allri umræðu og stefnumörkun um framtíð útvarpsrekst- urs í landinu verði ör- yggishagsmunirnir ekki vanmetnir.“ verða í höndum viðkomandi stjórn- valda og rekin sem hluti af stjórn- sýslu ríkis og sveitarfélaga. Því vil ég með þessari grein minna á nauð- syn þess að í allri umræðu og stefn- umörkun um framtíð útvarpsrekst- urs í landinu verði öryggishagsmun- irnir ekki vanmetnir. Enn í dag fullnægir Ríkisútvarpið ekki full- komlega þeim skilyrðum sem setja verður um öryggishlutverk þess. Því er nauðsyn á að það verði enn betur styrkt þar til eftirfarandi markmið náðsts að fullu, en þau eru að: — miðlun um dreifikerfið nái til allra landsmanna, — sendar og dreifikerfi eigi ávallt minnst eina varaleið ef aðalleið bregst, helst tvær, og að vara- leiðina megi virkja tafarlaust, — dreifikerfið hafi innbyggða vörn gegn helstu náttúruhamförum, þar sem það liggur innan þekktra náttúruhamfarasvæða eða um þau, — hlekkjum í dreifikerfinu sé for- gangsraðað með hliðsjón af varaafli, þannig að forgangur eitt hafi sjálfvirkt varafl, for- gangur tvö handvirkt varaafl og forgangi þijú megi þjóna með færanlegum rafstöðvum, Guðjón Petersen — dreifikerfíð sé varið fyrir hugs- anlegri misbeitingu með fölskum upplýsingum inn á kerfið. Höfundur er forstjóri Almannavarna ríkisins Opió laugardaga 9-14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.