Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 44
T-Jöfdar til JLifólks í öllum starfsgreinum! LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. l,8milljarðar í lán vegna greiðsluerfið- , -íeika frá áramótum Einn lánþegi hafði hálfa millj. í tekjur og yfir 9 millj. kr. hreina eign HUSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur veitt 635 umsækjendum lán á þessu ári vegna greiðsluerf- iðleika. Heildarupphæð skuld- breytinga vegna greiðsluerfið- leika frá áramótum nemur 1.800 milljónum kr. að sögn Sigurðar Geirssonar, forstöðumanns hús- bréfadeildar. Sigurður staðfesti að meðal þeirra sem fengu afgreidd lán -■^na greiðsluerfiðleika væru 12 umsækjendur sem hefðu um eða yfir 400 þús. kr. mánaðarlaun en miðað er við samanlagðar tekjur þegar um hjón er að ræða. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins var einn lánþegi með yfir 500 þús. kr. laun á mánuði og hrein eign hans var rúmlega níu millj. kr. Að sögn Sigurðar verður greiðslubyrði umsækjenda vegna húsnæðiskaupa að ná ákveðnu há- marki til að þeir eigi kost á skuld- „þœytingu og einnig er miðað við aKveðin tekju- og eignamörk að teknu tilliti til ljölskyldustærðar og íbúðarstærðar. Tæplega 10% lánþega fengu minna en eina millj. kr. lán en meðallán vegna greiðsluerfiðleika á þessu ári nema um þremur millj. kr., skv. upplýsingum Sigurðar. 13 umsækjendur fengu greiðsluerfið- leikalán að upphæð átta millj. kr. eða meira. Alls hafa borist 1.326 umsóknir um greiðsluerfiðleikalán það sem af er árinu og er það töluvert meira en áætlanir gerðu ráð fyrir að sögn Sigurðar. 272 umsóknum hefur verið synjað en enn eru óafgreiddar 352 umsóknir og sagði Sigurður ljóst að þær fengjust ekki allar af- greiddar. Hlutabréf í Flugleiðum seld fyrir 22,5 millj. HJÁ Verðbréfamarkaði Islands- banka hf. voru einum viðskipta- aðila seld hlutabréf í Flugleiðum í gær að upphæð tíu miHjónir kr. á nafnvirði á sölugenginu 2,25 og söluverðið var þvi 22,5 millj- ónir kr. Svanbjörn Thoroddsen, deildar- stjóri hlutabréfaviðskipta, sagði í samtali við Morgunblaðið að verð- lækkanir hlutabréfa í Flugleiðum að undanförnu hefðu átt sér stað þar sem framboð var meira en eftir- spurn en nú stæðu vonir til að botn- inum hefði verið náð og áhuginn væri að glæðast að nýju. Kjötsalan til Mexíkó: FYRIRSPURNUM um kaup á kindakjöti hefur rignt yfir land- búnaðarráðuneytið eftir að spurðist út um sölu á 800 tonnum af ærkjöti til Mexíkó, að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar, að- stoðarmanns landbúnaðarráð- herra. í 500 tonn 1. september 1992, auk þess sem umframframleiðsla þessa hausts væri áætluð um 800 tonn. Áætluð útflutningsþörf á einu ári væri því um 1.700 tonn. Veiðitímanum að ljúka Stangveiðitímabilinu lýkur senn. 20. september lýkur veiðum í síðustu laxveiðiánni en sjóbirting má veiða við Suðurland til 20. október. í mörgum vötnum er veitt allt árið. Laxveiði hefur almennt verið dræm í sumar en silungsveiði hefur verið góð, t.d. í Þingvallavatni, þar sem þessi mynd var tekin fyrir skömmu. Ríkisreikningar 1989: Fyrirspumum uin kjöt rignir yfir ráðuneytið Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson Ferða- og risnukostnaður 1,33% af ríkisútgjöldum Ferðakostnaður ríkisins nam 1.004 milljónum króna árið 1989, eða um 1,16% af útgjöldum rikissjóðs það árið. Risnukostnaður var tæp- ar 148 milljónir og ferða- og risnukostnaður var því samtals 1.149 milljónir króna eða um 1,33% af ríkisútgjöldum ársins. Þau námu alls 86,4 milljörðum króna samkvæmt reikningsskilavenjum undanf- Sigurgeir sagði að áður en kjöt- salan til Mexíkó hefði komist á dagskrá hefði verið búið að leita leiða til að losna við kjötið, leitað 'Wár til Sláturféiags Suðurlands og Goða um að þeir reyndu að finna kaupendur að kjötinu. Sláturfélagið hefði komið með ákveðna lausn sem þó hefði ekki samrýmst búvörulög- unum, þar sem gert var ráð fyrir nýtingu hluta kjötsins hér á landi. Goði treysti sér ekki til að koma kjötinu úr landi á jafnhagstæðan hátt o g salan til Mexíkó feluf í sér. „Það hafa alls konar spámenn risið upp síðan. Það eru Is'endingar sem hafa haft samband við okkur en líklega fyrir hönd annarra, en bað kom bara of seint. Enda er ^?£kert sem bendir til að þau tilboð Séu á nokkurn hátt hagstæðari en kjötsalan til Mexíkó,“ sagði Sigur- geir. Hann sagði að á næsta ári yrði að flytja út verulegt magn af ær- kjöti umfram það sem nú er flutt út. Samkvæmt búvörusamningnum ,^’ði að minnka birgðir á milli ára ^r um 1.300 tonnum 1. september arinna ára. í ríkisreikningum 1989, sem lagðir voru fram í gær, kemur fram að ferðakostnaður innanlands nam rúmum 542 milljónum og utanlands rúmum 462 milljónum króna á ár- inu. Ferðakostnaður tekur til far- gjalda, dagpeninga og dvalarkostn- aðar og annars minni háttar kostn- aðar á ferðalögum, svo sem símtala. Þar kemur einnig fram, að bifreiða- kostnaður ríkissjóðs nam alls um 1,3 milljörðum króna, en sá kostn- aður telst ekki til ferðakostnaðar. Ferðakostnaður A-hluta ríkis- sjóðs var alls 748 milljónir króna. Þar af var ferðakostnaður hæstur í samgönguráðuneyti, 148 milljónir, næsthæstur í menntamálaráðu- neyti, 97,6 milljónir, í heilbrigðis- ráðuneyti er ferðakostnaður 87,7 milljónir, í dóms- og kirkjumála- ráðuneyti 83 milljónir, í utanríkis- ráðuneyti 73,6 milljónir, í iðnaðar- ráðuneyti 50,7 milljónir, í sjávarút- vegsráðuneyti 48 miiljónir, land- búnaðarráðuneyti 45,3 milljónir, félagsmálaráðuneyti 23,8 milljónir, fjármálaráðuneyti 21,4 milljónir, forsætisráðuneyti tæpar 8 milljónir, viðskiptaráðuneyti 6,8 milljónir og Hagstofu íslands 2,4 milljónir. Ferðakostnaðui' æðstu stjórnar ríkisins var 50,2 milljónir og fjár- laga og hagsýslustofnunar 1,6 millj- ónir. Risnukostnaður A-hluta ríkis- sjóðs var alls 128 milljónir króna. Hæstur var hann í utanríkisráðu- neyti, rúmar 27 milljónir króna. Þá í menntamálaráðuneyti 19,6 millj- ónir, 19,1 milljón hjá æðstu stjórn ríkisins, 12 milljónir í samgöngu- ráðuneyti, 9,4 milljónir í dóms og kirkjumálaráðuneyti, 6,9 milljónir í heilbrigðisráðuneyti, 6,5 milljónir í iðnaðarráðuneyti, 5,8 milljónir í sjávarútvegsráðuneyti, 5,67 millj- ónir í fjármálaráðuneyti, 4,9 millj- ónir í forsætisráðuneyti, 8,5 milljón- ir í landbúnaðarráðuneyti, 3,3 millj- ónir í félagsmálaráðuneyti, 2,8 milljónir í viðskiptaráðuneyti, 477 þúsund í fjáriaga og hagsýslustofn- un og 456 þúsund hjá Hagstofu íslands. Sjá nánar um ríkisreikninginn 1989 á miðopnu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.