Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 14.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER L991 19 Stofnun Sigxirðar Nordals fimm ára: Nauðsynlegt að hafa opinn glugga til annarra landa A _ - segir Ulfar Bragason forstöðumaður stofnunarinnar STOFNUN Sigurðar Nordals var komið á fót 14. september 1986 þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu Sigurðar Nordals eða fyrir réttum fimm árum í dag. Samkvæmt reglugerð fyrir stofnunina er það hlutverk hennar „að efla hvarvetna í heiminum rannsóknir og kynningu á íslenskri menningu að fornu og nýju og tengsl íslenskra pg erlendra fræðimanna á því sviði“. Stofnunin er á vegnm Háskóla Islands en lýtur eigin sljórn. í reglugerðinni segir ennfremur að hlutverki sínu gegni stofnunin einkum með því að afla gagna um rannsóknir tengdar íslenskri menn- ingu; með því að bjóða erlendum fræðimönnum til Islands til að kynna rannsóknir sínar, afla gagna til þeirra eða til að stunda rannsókn- ir; með því að gangast fyrir ráð- stefnum, umræðufundum, nám- skeiðum og fyrirlestrum um ís- lenska menningu; með því að styðja eða standa fyrir útgáfu rita um ís- lenska menningu, hafa forgöngu um kennslu í íslensku og íslenskum fræðum erlendis og annast þjónustu við íslenska sendikennara; með því að styrkja íslenska fræðimenn til utanfara til að stúnda rannsóknir í fræðum sínum eða til að kynna þau; og með því að hafa samvinnu við erlenda aðila einkum á Norður- löndum um hver þau verkefni sem falþa undir verksvið stofnunarinnar. Úlfar Bragason, bókmennta- fræðingur, var ráðinn forstöðumað- ur stofnunarinnar í ársbyrjun 1988. Hann sagði í samtali við Morgun- blaðið að undanfarin ár hefði mest- um tíma verið varið í að kynna hlut- verk stofnunarinnar, ganga frá húsnæðismálum hennar og sinna þeim verkefnum sem henni voru falin eftir því sem naurnar flárveit- ingar hafa leyft. Stofnunin hefur aðsetur á Þingholtsstræti 29 en húsið var keypt undir starfsemi hennar á árinu 1987. Það var reist fyrir aldamót og er í svokölluðum „sveitser“-stíl. Húsið er eitt hið elsta sinnar te'gundar á landinu. Það er að mestu óbreytt frá því það var byggt og heyrir til A-flokki friðaðra húsa. Jón Magnússon, síðar forsæt- isráðherra, keypti viði þess til- höggna frá Noregi og lét reisa það en það var í mikilli niðurníðslu þeg- ar það var keypt handa stofnun- inni. Allar endurbætur á því hafa verið gerðar í samvinnu við húsfrið- unarnefnd og er þeim nýlokið. End- urbætumar hafa kostað rúmar níu milljónir og hafa auk ríkisins Há- skóli íslands, ýmsar opinberar stofnanir og sjóðir og einkafyrir- tæki lagt fram fé til þeirra. Skrif- stofur stofnunarinnar eru á neðri hæðinni en á þeirri efri hefur verið innréttuð íbúð sem erlendir fræði- menn á sviðum íslenskra fræða geta fengið afnot af gegn vægu gjaldi meðan þeir dveljast hérlendis við rannsóknir. Tveir tékkneskir fræðimenn dvelja þar nú. Úlfar sagði að mikill tími hefði einnig farið í það að koma á sam- bandi við fjölmarga fræðimenn og stofnanir um víða veröld sem fást við íslensk fræði. Nú væru um 900 einstaklingar og stofnanir utan ís- lands komnar á póstfangsskrá stofnunarinnar og þeim væri sent fréttabréf um íslensk fræði tvisvar á ári. Þá hefðu á undanförnum árum verið haldnar tvær ráðstefnur um íslensk fræði og íslenska menn- ingu og í undirbúningi væri ráð- stefna í júní á næsta ári til heiðurs Halldóri Laxness níræðum. Þessi ráðstefna yrði haldin í tengslum við listahátíð og þar myndu bæði inn- lendir og erlendir fræðimenn halda fyrirlestra. Stofnunin hefði einnig staðið að ráðstefnum með öðrum aðilum og í næstu viku yrði haldið þýðendaþing í samvinnu við Bók- menntakynningarsjóð. Til ráðstefn- unnar hefði verið boðið um 20 er- lendum þýðendum íslenskra forn- og samtímbókmennta. Ætlunin væri að kynna þeim það sem efst væri á baugi í íslenskum bókmennt- um nú. Þá yrði rætt um útgáfu ís- lenskra bókmennta erlendis og fjall- að um þann vanda sem fylgdi því að þýða af einu tungumáli á annað. Stofnuninni væri einnig ætlað að efla íslenskukennslu erlendis og þjóna þeim Íslendingum sem væru að kenna íslensku við háskóla er- lendis. Núna væru íslenskir sendi- kennarar á öllum Norðurlöndunum, auk Frakklands, Þýskalands og Bretlands. Stofnunin hefði verið í sambandi við þá og sent þeim upp- lýsingar um íslenskt mál og samfé- lag, auk þess sem stofnunin hefði tekið þátt í undirbúningi árlegra funda þeirra. Frá næstu áramótum væri síðan ætlunin að stofnunin tæki að sér stjórn þessara mála af menntamálaráðuneytinu. Þá hefði stofnunin tekið þátt í skipulagningu alþjóðlegra sum- arnámskeiða í íslensku við Háskóla íslands. Þriðja námskeiðið hefði verið haldið í sumar. Það væri mik- ill áhugi fyrir þessum námskeiðum og stöðugt fleiri sem óskuðu eftir að sækja þau. Hins vegar hefði reynst erfitt að afla nægilegs fjár til þeirra, auk þess sem komið hefði í ljós að þörf væri á fjölbreyttara námskeiðahaldi, því undirbúningur og væntingar fólks til námskeið- anna væru mjög mismunandi. Úlfar sagði að einnig væri í und- irbúningi að gefa út á ensku út- drætti úr íslenskum fræðiritum og Bók um sálfarir frá BAB BOKAKLUBBUR Almenna bóka- félagsins hefur sent frá sér nýja bók, Sálfarir, bók um dularfulla reynslu. í kynningu útgefanda segir: „Sumum finnst sem þeir yfirgefi líkamann og ferðist sálförum um heiminn, aðrir virðast deyja og vakna svo aftur til lífsins, en hafa orðið fyrir margvíslegum skynjun- um í dauðastríðinu. Þá er og al- gengt að fólk telji sig muna fyrri jarðvistir, staði, atburði og fólk sem þeir þá kynntust. Allar þessar teg- undir fyrirbæra eiga sér stað víðs- vegar um heiminn, óháð löndum og Morgunblaðið/KGA Úlfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals, fyrir framan aðsetur stofnunarinnar á Þingholtsstræti 29, en það er frið- að timburhús byggt skömmu fyrir aldamót og er eitt elsta hús sinn- ar tegundar hér á landi. greinum um íslenskt mál, bók- menntir og sögu og senda þeim sem stunda rannsóknir í íslensku að minnsta kosti einu sinni á ári. Þá færi mikill tími í að sinna hvers kyns fyrirspurnum og aðstoða er- lenda fræðimenn sem hingað koma. „Síðan stofnuninni var komið fót hefur verið unnið að því að koma henni fyrir og kynna starfssvið hennar. I framtíðinni virðist mér þróunin verða sú að stofnunin hafi með höndum umsjón sendikennsl- unnar við háskóla erlendis. Hún mun standa fyrir námskeiðum fyrir útlendinga um íslenskt mál, bók- menntir og sögu. Hún mun standa að námskeiðum fyrir þýðendur, endurmenntunarnámskeiðum fyrir útlendinga sem eru að fást við ís- lensk fræði og hún mun standa að ráðstefnum um íslensk fræði. Þetta er í raun og veru þjónustustofnun en ekki rannsóknastöð. í háskólan- um eru auðvitað rannsóknastofnan- ir á sviðum íslenskra fræða, en jafnt og Sigurður Nordal taldi mikilsvert að byggja upp háskólann var honum jafnljós nauðsyn þess að hafa opinn glugga til annarra landa. Margt af því fólki sem leggur stund á íslensk fræði erlendis kemur að þeim með öðrum hætti en við. Það er sprottið úr öðrum menningarheimi og sér hlutina í öðru samhengi og í öðru ljósi en við og það er auðvitað hollt fyrir okkur að hlusta á hvað það hefur að segja. Þannig opnast nýjar leiðir í rannsóknum í íslenskum fræðum, auk þess sem það er gott fyrir það að koma hingað og sjá að hveiju er unnið hér. Háskóli Is- lands er ekki nema 80 ára og áður var Kaupmannahafnarháskóli há- skóli íslendinga. Lengi framan af öldinni voru íslensk fræði alveg eins stunduð þar, ekki síst af því Arna- safn var þar. Nú þegar búið er að endurheimta handritin hlýtur Há- skóli íslands að vera aðalmiðstöð í rannsóknum á fornum og nýjum bókmenntum, íslenskri sögu og samfélagi og íslensku máli,“ sagði Úlfar. trúarbrögðum og er víða unnið að rannsóknum á þeipi. Bókin byggist á þessum rann- sóknum, en fjallar þó einkum um þau fyrirbæri sem fólkið telur sig hafa séð og skynjað." Bókin er í brotinu 61X49 sm, 143 bls. og er gefin út í samvinnu við Time-Life-útgáfuna og tilheyrir rit- röð sem hlotið hefur á íslensku nafnið Leyndardómar hins óþekkta. Þetta er önnur bókin á íslensku í þessari ritröð, sú fyrri heitir Duldir heimar og kom út hjá bókaklúbbn- um snemma á þessu ári. Helga Þórarinsdóttir hefur þýtt báðar bækurnar. ODYRIR OG GÓÐIR LFJKIIMI- OG IÞRÓTTAS KÓ R KM. 1.795. Stærðir 33-46 HAGKAUP Reykjavík • Njarðvík • Akureyri Póstverslun sími 91-3 09 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.