Morgunblaðið - 14.09.1991, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 1991
29
Valdimar Guðmunds
son - Minning
Fæddur 13. maí 1917
Dáinn 2. ágúst 1991
Myndbandahátíð
í Norræna húsinu
DAGANA 17.-22. septeinber verður haldin myndbandahátíð í Norr-
æna húsinu við Hringb'raut. Hátíðin liefur fengið yfirskriftina „Danc-
in’ Visuals 1991“.
Ég vil með fáeinum orðum, þó
seint sé, minnast mágs míns og
vinar, Valdimars Guðmundssonar.
Það eru nú orðin rúm 40 ár síðan
Valdimar kom heim til okkar á
Kársnesbraut 12 í fylgd með Aðal-
björgu systur minni, en þá voru
þau á leiðinni í hjónabandið. Ég
hafði ekki séð manninn fyrr, en
fannst hann sérlega þekkilegur.
Mér fannst þá strax að ég myndi
ekki verða fyrir neinum vonbrigð-
um við lengri kynni af þessum
manni, enda reyndist það svo.
Valdimar var fæddur og uppal-
inn á Högnastöðum í Hruna-
mannahreppi, sonur hjónanna
Guðmundar Þórðarsonar og Ingi-
bjargar Halldórsdóttur. Hann fór
ungur að heiman og gerðist lög-
regluþjónn í Reykjavík. Það starf
stundaði hann í mörg ár, en gerð-
ist síðan yfirfangavörður við hegn-
ingarhúsið á Skólavörðustíg og
stundaði það starf þar til hann
hætti vegna aldurs.
Valdimar var giftur Rögnu
Þórðardóttur frá Högnastöðum í
Borgarfirði. Með henni átti hann
tvö börn, Gunnvöru, sem var alin
upp hjá ömmu sinni og nöfnu, og
Guðmund, sem alla tíð var hjá föð-
ur sínum. Ragna dó þegar Guð-
mundur var á fyrsta ári. Valdimar
giftist í annað sinn Aðalbjörgu
Björnsdóttur frá Borgarfirði
eystra, með henni átti hann þijú
börn, Rögnu, Halldór og Sigurð.
Leiðir þein’a Aðalbjargar og Valdi-
mars skildu, hún flutti út til Sví-
þjóðar og bjó þar til dauðadags en
Valdimar bjó eftir það með Guð-
mundi syni sínum. Valdimar var
gæfumaður, hann eignaðist 5
elskuleg börn auk þess stjúpsoninn
Björn sem var honum sem sonur.
Öll reyndust þau honum fádæma
vel meðan hann barðist við sjúk-
dóm þann, sem dró hann til dauða,
en alveg sérstaklega Ragna, sem
er hjúkrunarfræðingur, og Guð-
mundur, sem mátti heita að vekti
við rúm hans nótt og dag þar til
yfir lauk.
Ég átti því láni að fagna að
dvelja einn vetur á heimili þeirra
Valdimars og Aðalbjargar, þá
reyndist hann mér sannur dreng-
skaparmaður og æ síðan. Valdimar
var góðum gáfum gæddur, vel rit-
fær, ættfróður og hagmæltur í
besta lagi og eru til eftir hann ljóm-
andi falleg kvæði, sálmar og tæki-
færisvísur. Hann hélt lítt saman
vísum sínum og mun flest glatað.
Valdimar var prúðmenni, hóg-
vær og hlédrægúr og lagði ætíð
gott eitt til manna og málefna.
Fyrir 6 ái’um skrifaði hann minn-
ingargrein um Dag mág sinn. í
henni sagði hann á éinum stað:
„Hann mun alla tíð lifa í minning-
unni, hinn sanni góði drengur sem
gekk meðal vina og vandamanna
og sáði ilmjurtum við götu sína.“
Þessi orð hans vil ég heimfæra
upp á hann sjálfan. Með honum
er genginn góður drengur, sem
gott var að kynnast. Ég mun ætíð
minnast hans með þakklæti og
hlýjum huga.
Samúðarkveðjur sendi ég börn-
um hans og öðrum ættingjum og
vinum.
Ingibjörg Björnsdóttir
Þessi listahátíð er sýning á 30
nýjum myndböndum sem sameina
fleiri listform í einni mynd. Sam-
runi dans, leikrænnar tjáningar,
sviðssetning og myndbandatækni
gefa tjáningunni nýja vídd og
ótæmandi möguleika. Undirstaðan
er hreyfing, óbundin af þvingandi
kvöðum þyngdarlögmálsins. Sýn-
ingar verða daglega 16.30-20.00
virka daga en kl. 13.00 um helgina.
Video Galleriet í Kaupmannahöfn
á frumkvæðið að þessari liátíð sem
er samnorræn listahátíð. Frá ís-
landi fer hátíðin til Svíþjóðar, Finn-
lands, Noregs og að lokum til Dan-
merkur aftur.
Myndbandalist er ný listgrein er
nýtur sífeilt meiri viðurkenningar,
ekki síst á meginlandi Evrópu.
Danshöfundar og leikstjórar nýta
möguleika myndbandsins og nýjar
stjörnur skína.
Við val á efni til hátíðarinnar var
víða leitað fanga. Eftir sjö mánaða'
leit og eftirgrennslan bárust 250
myndbönd og voru 30 þeirra valin
úr, flest framleidd á tímabilinu
1990-1991.
■ NA UÐUNGARUPPBOÐ Hrannargötu 9, neðri hæð, ísafirði, þingl. eign Stígs Arnórssonar, eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs. Hvilft, Flateyrarhreppi, þingl. eign Gunnlaugs Finnssonar, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Annað og síðara. Nauðungaruppboð fyrri sala á eftirtöldum eignum fer fram fimmtudaginn 19. septem- ber kl. 10.00 á skrifstofu embættisins á Bjóifsgötu 7, Seyðisfirði:
Nauðungaruppboð Þriðjudaginn 17. september 1991 fara fram nauðungaruppboð á eftirtöldum fasteignum f dómsal embættisins, Hafnarstræti 1, ísafirði, og hefjast þau kl. 14.00:
Ólafstúni 12, Flateyri, þingl. eign Hjálms hf... eftir kröfu veðdeildar Landsbanka (siands. Annað og síðara. Spildu úr landi Teigasels, Jökuldal, þingl. eign Jóns Kr. Sigurðsson- ar, eftir kröfu Jóhannesar Á. Sævarssonar hdl.
Þólgötu 10, ísafirði, þingl. eign Magnúsar Haukssonar, eftir kröfum Laugarásbíós, Skífunnar hf., Billjardsbúðarinnar, innheimtumanns ríkissjóðs og Sjóvá-Almennra. Sindragötu 10, ísafirði, þingl. eign þrotabús Pólstæknis hf., eftir kröfum Ríkissjóðs íslands og Byggðastofnunar. Annað og síðara. Smiðjugötu 1, neðri hæð, ísafirði, þingl. eign Halldórs Kr. Magnús- sonar, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Múlavegi 17, Seyðisfirði, þingl. eign Magnúsar Stefánssonar og Lilju Kristinsdóttur, eftir kröfum Magnúsr M. Norðdahl hdl., Friðjóns Arn- ar Friðjónssonar hdl., Búnaðarbanka Islands, Ólafs Axelssonar hdl., Gunnars Viðars lögfr., Byggingasjóðs ríkisins og Landsbanka íslands lögfrdeildar. Skógom I, að 'h hluta, Vopnafirði, þingl. eign Jósefs S. Jónssonar, eftir kröfum Stofnlánadeildar landbúnaðartns og innheimtumanns rlkissjóðs.
Brautarholti 6, ísafirði, þingl. eign Kristjáns Guðmundssonar, eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs.
Eyrargötu 7, Suðureyri, þingl. eign Gunnars Pálssonar, eftir kröfu Innheimtustofnunar sveitarfélaga. Annað og síðara.
Eyrargötu 12, Suðureyri, talinni eign Fannýjar Jónsdóttur og Gunn- ars Jónssonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka (slands. Annað og síðara.
Suðurtanga 7, (Hveragerði), ísafirði, þingl. eign Skipasmíðastöðar Marsellíusar hf., eftir kröfu Byggðastofnunar. Botnahlíð 32, Seyðisfirði, þingl. eign Trausta Marteinssonar, eftir kröfum Magnúsar M, Norðdahl hdl., Húsnæðisstofnunar ríkisins og Gjaldheimtu Austurlands. Vélbátnum Diönu NS-165, þingl. eign Hermanns Ægis Aðalsteins- sonar, eftir kröfu Byggðastofnunar,
Fiskverkunarhúsi á hafnarbakka, Suðureyri, þingl. eign Fiskiðjunnar Freyju hf., eftir kröfu Hannesar Halldórssonar. Annað og síðara. Suðurtanga 8, stóraslipp, ísafirði, þingl. eign M. Bernharðssonar skipasmíðastöðvar, eftir kröfu Bæjarsjóðs ísafjarðar. Annað og síðara.
Grundarstíg 26, Flateyri, þingl. eign Reynis Jónssonar, eftir kröfu Tryggingastofnunar ríkisins. Annað og síðara.
Túngötu 18, 3. hæð t.h., isafirði, þingl. eign Halldórs Helgasonar, eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs. Hafnarbyggð 2A, Vopnafirði, þingl. eign Sveins A. Karlssonar, eftir kröfum Byggðastofnunar og Vátryggingafélags (slands.
Grænagarði, neðri haeð, ísafirði, þingl. eign Gunnars Þéturssonar, eftir kröfu Ríkissjóðs (siands.
Vallargötu 10, Þingeyri, þingl. eign Mikaels Ágústar Guðmundsson- ar, eftir kröfum Ríkisútvarpsins innheimtudeildar og veðdeildar Landsbanka íslands. Annað og síðara. Kolbeinsgötu 62, Vopnafirði, þingl. eign Hilmars Þ. Magnússonar, eftir kröfum innheimtumanns rikissjóðs og veðdeildar Landsbanka íslands.
Hafraholti 38, ísafirði, þingl. eign Arnórs Magnússonar, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vestfirðinga.
Bæjarfógetinn á isafirði. Sýslumaðurinn / isafjarðarsýsiu. Sýsiumaður Norður-Múlasýslu. Bæjarfógetinn á Seyðisfirði.
Hjallavegi 31, Suðureyri, talinni eign Suðureyrarhrepps, eftir kröfum veðdeildar Landsbanka íslands og Lífeyrissjóðs Vestfirðinga. Annað og síðara.
SmO auglýsingar
Til sölu handprjónaðar
lopapeysur
Upplýsingar í síma 41942 milli
kl. 17 og 19 flesta daga.
FÉLAGSLÍF
Sjómannaheimilið Örkin,
Brautarholti 29
Samkoma á sunnudag kl. 17.00.
Ræðumaður séra Magnús
Björnsson.
....SAMBAND (SLENZKRA
KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Grænmetismarkaður
til ágóða fyrir kristniboðið verður
haldinn í dag kl. 14.00 í húsi
KFUM og KFUK við Holtaveg.
Margskonar grænmeti á boð-
stólnum. Komið og styðjið gott
málefni.
Kristniboðssambandið.
Vakningar- og
kristniboðssamkoma
í Kristniboðssalnum Háaleitis-
braut 58 í kvöld kl. 20.30. Ræðu-
maður: Skúli Svavarsson.
Þú ert velkominn.
Kristniboðssambandið,
KFUM, KFUK.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
ÖLOUGÖTU 3 s. 11798 19533
Dagsferðir F.í. sunnu-
daginn 15. sept.:
1) Kl. 10.00 Hestagjá - Víði-
ker/gosbeltið 11. ferð a.
Ekið um Mosfellsheiði til Þing-
valla, en þar hefst gangan við
Hestagjá. Gert er ráð fyrir að
fylgja Almannagjá (Stekkjargjá,
Snókagjá og Hvannagjá) að
Leynistig, þá liggur leiðin um
Bolabás, Sleðaás og áfram um
Hofmannaflöt og Ormavelli svo
endar gangan við Víðiker.
2) Kl. 13.00 Þingvellir - Ár-
mannsfell - Víðiker/11. ferð b.
Þessi gönguferð hefst hjá Viði-
völlum, undir hliðum Ármanns-
fells og endar við Víðiker.
Verð í ferðirnar er kr. 1.100,-
Brottför frá Umferðarmiðstöð-
inni, austanmegin. Fritt fyrir
börn í fylgd fullorðinna.
Ath.: Göngunni um gosbeltið
að Skjaldbreið lýkur sunnudag-
inn 21. sept. Missið ekki af
skemmtilegum gönguferðum.
Leggið land undir fót með
Ferðafélagi íslands.
Spurning 11. ferðar a og b: Hver
gaf Hofmannaflöt nafn?
Ferðafélag íslands.
'fcfttoífa'
H ÚTIVIST
GRÓFINH11 • tEYKMVÍK • SÍMI/SÍMSVAJtl 14(06
Sunnud. 15. sept.
Kl. 08: Básar
Dagsferð í Bása á Goðalandi.
Kl. 10.30: Gjár og
hrauntraðir
Reykjavíkurgangan, 9. áfangi
Nú verður aftur tekið til við
Reykjavíkurgönguna en það er
laustengd raðganga úr Básum
til Reykjavíkur í framhaldi af
Þórsmerkurgöngunni, raðgöngu
Útivistar 1991. Á sunnudaginn
verður gengið um og skoðaðar
gjár, hrauntraðir og eldstöövar
sem fáir hafa séð. Frá Hrútagjá
verður gengið um Mávahlíðar
að Lambafellsgjá og hópurinn
siðan selfluttur að Grindavík-
urgjá. Gangan verður um 12 km.
Kl. 13: Rólegheitarölt
um Höskuldarvelli
Síðdegisgangan verður fyrir þá,
sem eru að byrja í gönguferðum,
og fólk með börn. Gengið verður
um Höskuldarvelli og nágrenni.
Brottför í allar ferðirnar frá Um-
ferðarmiðstöð-bensínsölu.
Við erum að flytja!
Ath.: Skrifstofa Útivistar verður
lokuð mánudaginn 16. sept.
vegna flutninga. Opnum aftur i
Iðnaðarmannahúsinu við Hall-
veigarstig 1, þriðjudaginn 17.
sept. kl. 12. Óbreytt símanúmer:
14604 og 23732.
Sjáumst!
ÚJivist.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænastund í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur: Almenn samkoma
kl. 16.30. Ræðumaður Kristinn
Þ. Birgisson. Skírn. Þorvaldur
Halldórsson og sönghópurinn
„Án skilyrða" syngja. Athugið
breyttan samkomutíma.
Miðvikudagur: Biblíulestur kl.
20.30.
Föstudagur: Æskulýðssam-
koma ki. 20.30.
Laugardagur: Bænastund kl.
20.30.
Hvítasunnukirkjan Völvufelli.
Fimmtudagur: Almenn sam-
koma kl. 20.30.