Morgunblaðið - 14.09.1991, Page 34
WRCffiBLAÐIÐ LApGAHPAqyfi' Mf-
M
fólk í
fréttum
OPNUN
Þúsundir við opnun Húsasmiðjunnar
Húsasmiðjan opnaði fyrir
skömmu nýja glæsilega
verslun að Helluhrauni í Hafnar-
firði. Mikið var um dýrðir í tilefni
dagsins og íjölmenni var á staðn-
um. Meðal þess sem efnt var til í
tilefni dagsins var happadrætti þar
sem dregið var um vinninga að
andvirði hundruð þúsunda króna,
en happadrættis var þannig fram-
kvæmt, að dreyfibréf var borið í
öll hús í Hafnarfirði, á Álftanesi
og í Garðabæ, en þeir sem vildu
vera með þurftu að koma bréfinu
útfylltu í kassa sem komið var
fyrir við opnun verslunarinnar.
Alls bárust nöfn 5350 þátttak-
enda.
Fjölmenni þáði veitingar í tilefni dagsins.
AKRANES
Pele gerður að heiðursfélaga IA
Knattspyrnugoðið brasilíska,
Pele, kom við á Akranesi á
dögunum á ferð sinni um landið.
Eins og nærri má geta var vel tek-
ið á móti honum í knattspyrnubæn-
um og var fjöldi manns samankom-
in á knattspyrnuveliinum þegar
þyrla sem flutti kappann lenti þar.
Gísli Gíslason bæjarstjóri ávarp-
aði gestinn og afhenti honum lykil
af Akranesbæ fyrstum manna.
Alfreð W. Gunnarsson gullsmiður
á Akranesi smíðaði gripinn.
Þá var Pele gerður að heiðursfé-
laga Knattspyrnufélags ÍA og er
hann þriðji heiðursfélagi félagsins.
Fyrir voru gömlu knattspyrnu-
stjörnurnar Ríkharður Jónsson og
Þórður Þórðarson.
í stuttu ávarpi Gunnar Sigurðs-
sonar þegar heiðursútnefningin
var tiikynnt sagði hann að mesti
heiður sem knattspyrnufélagið
gæti veitt nokkrum manni væri
að gera hann að heiðursfélaga.
Nafnbótin væri tákn þess að Akur-
nesingar kynnu vel að meta fram-
lag hans til knattspyrnunnar um
víða veröld fyrr og síðar og vildu
þakka honum það.
- J.G.
MYNDLIST
Olíkir karlar
undir sama þaki
Tveir myndlistamenn opnuðu
nýlega sýningar í salar-
kynnum Kjai-valsstaða og standa
sýningarnar enn yfir. Þetta eru
þeir Birgir Andrésson og frans-
maðurinn Philip Cazal. Margt
var um manninn og stemming
góð eins og endranær á „opnun-
um“. Á meðfylgjandi myndum
geta lesendur meðtekið nokkuð
af umræddri stemmingu.
Gestir virða fyrir sér nokkur verka Birgis.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Birgir Andrésson blandar geði við sýningargesti, Birgir er
fremst, lengst t.h.
Það fer ekki á milli mála eftir hvern listaverkið er...Phillip
Cazal við eitt verka sinna, en til hliðar skeggræða gestir listina.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Heiðursfélagar Knattspyrnufélags ÍA. F.v. Ríkharður Jónsson, Pele
og Þörður Þórðarson.
KVIKMYNDIR
Freddy Kruger er allur
Sjötta kvikmyndin um ófreskjuna
Freddy Kruger verður frum-
sýnd í kvikmyndahúsum fyrir vest-
an haf í dag og þess er varla langt
að bíða að hún bjóðist íslenskum
kvikmyndahúsagestum. Freddy
þessi er enginn annar er hinn morð-
óði fjandi sem stráfellt hefur fleiri
tylftir ungmenna í kvikmyndunum
um martraðirnar í Álmstræti.
Freddy heimsækir fórnarlömb sín í
draumi sem endar jafnan með þeim
blákalda veruleika að hann myrðir
krakkana með hinum fjölbreytileg-
ustu og ferlegustu aðferðum að-
ferðum. Notar hann jafnan klippikr-
umlur sínar til þess arna. Þótt alla
tíð hafui menningarlegt gildi þess-
ara fjöldamorða verið dregið í efa,
er ljóst að vinsældir Fredda hafa
verið ótrúlegar og raunar athyglis-
verðar. Þær hafa staðið undir sex
kvikmyndum hvorki meira né
minna. En nú er mál að linni.
Það þykir við hæfi að kvikmyndin
sé sýnd í dag, því nú er ekki bara
föstudagur, heldur 13. mánaðar að
auki, en önnur svona maraþonmorð-
saga sem gengið hefur hart nær
jafn lengi og Álmstrætismorðin er
einmitt kennd við „Föstudaginn
13.“. Robert Englund hefur alla tíð
leikið Fredda, fyrst árið 1984 og
nánast árlega síðan. Hann segir
framleiðendurna ákveðna í að hætta
og vitnar í nafn myndarinnar,
„Freddys Dead - The Final Nig-
htmare", eða „Freddy er dauður -
Síðasta martröðin". „Ég geri ráð
fyrir að þeir passi sig að halda
smugu opinni ef það dytti í þá að
taþa aftur upp þráðinn, en hvað
Robert Englund, öðru nafni
Freddy Kruger.
mig snertir, er þessu lokið. Ég
reikna með því að sakna Fredda
eftir nokkur ár, en sem stendur er
ég hæst ánægður að vera laus við
að smyrja þennan fjandans farðagr-
út í andlitið nær daglega.