Morgunblaðið - 14.09.1991, Page 41

Morgunblaðið - 14.09.1991, Page 41
MORGUNBLAÐÍÐ LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBÉR 1991 Lít þér nær Ábending — Allir starfi í friðsemd í lífsins manntafli er stundum svo að sjá, sem ákveðnum ein- staklingum hætti til að máta sjálfa sig, eða skáka út af borðinu. Frammi fyrir alþjóð hefur nú slíkt hent einn fyrrverandi „bæjarbróð- ur“ minn, Richardt Ryel. Var það raunar löngu fyrir séð, að þannig tækist til. Þessi R.R. hefur að undanförnu haldið uppi leiðum og óhreinum skrifum með annarlegu hugarfari. Ekki mun ég rekja gang þeirra ritverka, en beini máli mínu til þeirra mörgu, sem hafa fylgst með og skilja hvað við er átt. Föstudaginn 6. sept. sl. kom opinber orðsending frá R.R., þar sem beðið er um aðstoð við að fínna einn ákveðinn mann. Enda þótt svar sé mér ekki skyldast get ég ekki orða bundist: Maður (breyskur), lít þér nær! Að þekkja sjálfan sig er gulls ígildi en því miður of fáir, sem stunda þá dyggð. R. Ryel mætti taka ábendingu til athugunar, sæi ef til vill móta fyrir þeim manni, sem auglýst er eftir, hver veit? Séra Habets skulu færðar þakk- ir fyrir ítarleg og góð skrif. Veit ég mig mæla þar fyrir margra hönd. Reynir Valdimarsson, Akureyri. — Meinleg prentvilla Hildur Kristín Jakobsdóttir hefur bent Morgunblaðinu á meinlega prentvillu í greininni „Lifi heilsu- hælið“ sem birtist 28. ágúst, en hún er höfundur þeirrar greinar. A ein- um stað ætti að standa: „Eg vona að hamingja fylgi þessum yndislega stað og að allir fái að starfa hér í friðsemd, sáttir við Guð og menn.“ í meðförum Morgunblaðsins varð ofangreint að: „Eg vona að ham- ingja fylgi þessum yndislega stað og að ekki allir fái að starfa hér í friðsemd“ o.s.frv. Morgunblaðið bið.ur greinarhöf- und, lesendur og starfsfólk heilsu- hælisins í Hveragerði afsökunar á þeim misskilningi, óþægindum og ófriði sem þessi mistök kunna að hafa valdið. Alúöarþakkir og kveðjur sendi ég öllum þeim, sem glöddu mig á einn eða annan liátt þann 28. ágúst síðastliðinn. Guðmundur Pétursson frá Gullberastöðum. r v. Vefnaðarvörur - dreifingaraðili Við leitum að samstarfsaðila í söluá vefnað- arvöru til minni saumastofa og heimasauma. Okkar vara er meðal-tískuvara á meðal-verði en í háum gæðaflokki (aðeins vörur upprunn- ar á EES-svæðinu). Allar tegundir eru á lager í Kaupmannahöfn tilbúnar til sendingar. Skrifió og fáió nánari upplýsingar og segió okkur frá þér og hugmyndum þínum um dreifingu til: Mr. Niels Boegh, FUNtex Aps. Peter Bangsvej 153, DK-2000 Frederiksberg, sími 90 45 31 71 01 02, fax 90 45 31 71 01 03 __________________________________J Myndir sem birtast í Morgunblaöinu, teknar af Ijósmyndurum blaösins fást keyptar, hvort sem er til einkanota eöa birtingar. UÓSMYNDADEILD „SALA MYNDA“ Aöalstrœti 6, sími 691150 101 Reykjavík 1 s Blaðió sem þú vaknar við!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.