Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 33
33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
Minning:
Svavar Hjaltested
skrifstofusijóri
Fæddur 16. nóvember 1901
Dáinn 14. september 1991
Þegar Svavar Hjaltesed réðst til
Almennra trygginga hf. síðla árs
1959 var hann kominn af léttasta
skeiði og átti þá að baki langt starf
sem blaðamaður og útgefandi. Sú
saga verður ekki rakin hér, en er
þó um margt merkileg og má með-
al annars minnast á mikilvægan
hlut Svavars við heimildaöflun um
hernám íslands á stríðsárunum.
Engu að síður varð starfsferill
hans hjá Almennum tryggingum
iangur og farsæll, því árin þar voru
orðin 28 þegar hann lét af störfum
í árslok 1987, þá 86 ára að aldri.
Svavar starfaði lengst af sem
fulltrúi í sjódeild félagsins og hafði
umsjón með vörutryggingum. Það
starf krafðist nákvæmni í öllum
vinnubrögðum sem og náinna sam-
skipta við viðskiptamenn félagsins
á þessu sviði. Hvoru tveggja reynd-
ist Svavari auðvelt. Hann var mik-
ill verkmaður með ríka réttlætis-
kennd og átti jafnframt afar auð-
velt með að umgangast fólk. Þar
naut sín vel hin létta lund hans og
hæfileikinn til þess að sjá björtu
hliðarnar á tilverunni og það sem
spaugilegt var, hvort sem það var
í eigin fari eða annarra. Með slíkum
mönnum er gott að starfa og þeir
auðga umhverfi sitt.
A þeim árum sem við störfuðu
saman átti Svavar oft við vanheilsu
að stríða og var raunar stundum
sárþjáður við vinnu sína. Við sam-
starfsmennirnir sem betur vissum
undruðumst þá hversu vel honum
tókst að láta á engu bera og dáð-
umst að því hversu karlmannlega
hann tók slíku mótlæti.
Axel Siggeirs-
son - Minning
Fæddur 22. október 1910
Dáinn 14. september 1991
Nú er hann frændi okkar farinn
í ferðina löngu. Það er erfitt að
hugsa um það að ekki eigum við
systurnar eftir að sjá hann aftur,
hressan í bragði líkt og venjulega,
en minningarnar um Ijúfan mann
eru það eina sem við eigum eftir.
Skrýtið verður að koma á Hverf-
isgötuna til Jónu án þess að Axel
fr'ændi komi til dyra. Og jafnán er
við komum í heimsókn sló frændi
á létta strengi og mikið var hlegið
og brosað. Axel frændi var einstak-
lega bamgóður og nutum við þess
ótakmarkað. Með sanni má segja
að hann hafi verið líkari afa en
frænda okkar.
Erfitt verður að sætta sig við það
að hann sé farinn svo snögglega
því alltaf var hann svo hress og
varla leið sá dagur að gekk ekki
Laugaveginn sér til heilsubótar og
yndis.
Sjómennsku stundaði hann í
fjölda ára og ófáar voru sjósögurn-
ar sem hann sagði okkur.
Við viljum þakka Axel frænda
fyrir allar ljúfu minningarnar og
biðjum Guð að styrkja elsku Jónu
okkar í sorginni því erfiðast verður
fyrir hana að sætta sig við það að
ástríkur eiginmaður og vinur sé
farinn svo snögglega.
Sofðu rótt, sofðu rótt
nú er svartasta nótt.
Sjáðu sóleyjarvönd,
geymdu hann sofandi við hönd.
Þú munt vakna með sól,
guð mun vitja um þitt ból.
(Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.)
Megi elsku frændi hvíla í friði.
Dagmar og Bryndís.
Þegar ég fékk þær fregnir laug-
ardaginn 14. september að minn
ástkæri frændi, Axel Siggeirsson,
hefði látist, var eins og allt stans-
aði augnablik.
Kallið kemur alltaf að óvörum,
enginn veit sín örlög. Axel var ynd-
islegur maður, og alltaf verður það
mér minnisstætt.
Ég á margar ljúfar minningar
um hann og mun ég varðveita þær
á góðum stað.
Alltaf var maður velkominn á
heimili þeirra Axels og Jónu.
Elsku Jóna mín, ég sendi þér
innilegar samúðarkveðjur.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Erla Vignisdóttir
Hér sitjum við eftir með minning-
amar sem streyma fram í hugann,
en einhvern veginn er ekki hægt
að festa þær allar á blað. Allar
heimsóknirnar til Axels frænda og
Jónu er ljúft að muna, það var al-
veg sama hver kom til þeirra hann
var alltaf velkomin, aldrei fór mað-
ur þaðan nema með fullan magann
af allskonar góðgæti.
Jóna mín, við sendum þér innileg-
ar samúðarkveðjur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðar hnoss þú hljóta skait.
(V. Briem.)
Elínborg, Axel, Svala og
Sigurbjörg Vignisbörn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmæl-
is- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofu blaðsins í Hafnarstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Ég hygg að hin heilsteypta skap-
gerð Svavars hafi öðru fremur gert
honum kleift að skila svo löngum
starfsdegi sem raun bar vitni og
víst er að starfskraftar entust hon-
um lengur en flestum mönnum.
Þessum starfskröftum hélt Svavar
lengst af óskertum og allt fram til
starfsloka var enginn svikinn af
verkum hans.
I einkalífi sínu var Svavar gæfu-
maður. Eiginkona hans, Lára
Hjaltested, bjó honum fallegt heim-
ili og þar og í sumarbústaðnum við
Elliðavatn undi hann sér best með
fjölskyldunni.
Þau hjónin eignuðust eina dótt-
ur, Erlu, og þegar hún eignaðist
sína fjölskyldu og barnabörnunum
fjölgaði var gaman að samgleðjast
Svavari.
Að leiðarlokum kveðjum við sam-
starfsmennirnir góðan vin og minn-
umst hans með virðingu.
Ástvinum hans öllum sendum við
samúðarkveðjur.
Ólafur B. Thors
Tengdafaðir minn Svavar Hjalte-
sted er látinn og verður hann jarð-
sunginn í dag frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Fyrir fjórum árum veiktist Svav-
ar alvarlega og hefur verið rúmfast-
ur síðan.
Ég kynntist Svavari fyrst fyrir
um 23 árum og með okkur tókst
strax mikil og góð vinátta. Mér
þótti vænt um þennan lífsglaða
mann sem var kominn á eftiriauna-
aldur þegar ég fyrst kynntist hon-
um.
Hann var þá í fullu starfi sem
skrifstofustjóri hjá Almennum
tryggingum og gaf sér yngri mönn-
um ekkert eftir. Þar starfaði hann
þar til hann varð 85 ára gamall og
þótti afburða starfsmaður alveg
fram á þann dag er hann lét af
störfum sökum aldurs.
Mikil veikindi hetjuðu á Svavar
allta tíð en þrátt fyrir það var hann
alltaf léttur og hress og var það
aðdáunarvert hvað hann tók þess-
um veikindum létt. Svavar var
fæddur í Reykjavík og unni hann
borginni sinni, sem hann hefur
fylgst með vaxa úr litlu þorpi upp
í stórborg. Svavari þótti gott að
fara í gönguferðir um bæinn og
spjalla við vini og kunningja niður
í miðbæ þar sem mér fannst hann
þekkja annan hvern mann, og í
áratugi fór hann á Hótel Borg til
að fá sér kaffisopa með sínum nán-
ustu og bestu vinum.
Svavari þótti gaman að ferðast
þó sérstaklega hér innanlands og
það var unun að ferðast með hon-
um, hann var svo fróður um landið
okkar. Hans mesta tómstundaga-
man var þó eflaust sumarbústaður-
inn sem hann byggði ásamt Kjart-
ani heitnum bróður sínum, þar áttu
þau hjónin ásamt Vilborgu og
Kjartani margar góðar stundir sam-
an, ásamt mörgum vinum þeirra
sem minnast gestrisni þeirra.
Á þessum stað undi Svavar sér
best, hann elskaði að vera úti í
náttúrunni, enda var gaman að
koma til hans í heimsókn upp í
bústað, hann var svo fullur af fjöri,
léttur í skapi og hress í anda.
Ég mun alltaf minnast Svavars
sem góðs vinar, ég mun minnast
hans fyrir heiðarleika, hispursleysi,
hjálpsemi og glaðværð ásamt því
að reynast mér góður tengdafaðir.
Blessuð sé minning hans.
Ragnar Kristinsson
Handsaumaðir Timberland skór,
jafn þægilegir í óbyggðum sem
á teppinu heima. Og þeir
batna með aldrinum.
Öll förum við okkar eigin leiðir.
Sumar leiðir liggja upp metorðastigann
í viðskiptalífinu, aðrar út í óbyggðir. En
hvert sem þínar leiðir kunna að liggja
þá lærist þér fljótt að meta vandaða
skó úr völdu leðri, handsaumaða
Timberland skó sem láta vatn og veður
ekkert á sig fá og skeyta álíka mikið um
stokka og steina, hraun og harðfenni
og fjallageit.
Leðurskór sem eru handsaumaðir til
að endast ár eftir ár í öilum veðrum en
jafnþægilegir og jafnfallegir og þeir
voru þegar þeir komu upp úr
kassanum. Þessa getur þú vænst af
sígildu handsaumuðu Timberland
skónum okkar - jafnvel þótt leiðir þínar
liggi aðeins um teppalagða sali.
Timberland, því vegleysurnar eru
víðar en í óbyggðum.
Handsaumaðir,lágir,háir, /
vatnsþolnir, Gori tex, standast tímans
tönn.
HANZ
KRINGLUN N I