Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
fólk í
fréttum
Morgunblaðið/Bjarni
Fernanda Raas markaðsstjóri frá Isabelle Lancray, Christel Johansen snyrtisérfræðingur hjá Nýju út-
liti sf. ogf Viken Samúel Samúelsson forstjóri Nýs útlits.
ÚTLIT
Þekktar franskar snyrtivörur kynntar
Nýtt útlit sf. kynnti þekktar
franskar snyrtivörur í fyrsta
skipti á íslandi á dögunum. Fyrir-
tækið er með umboð fyrir snyrtivör-
umar Isabelle Lancray, Arcancil og
Playboy frá Valdor Labratory í
Frakklandi.
Kynningin var í Hótel Holiday
Inn við Sigtún og tókst vel að sögn
Christel Johansen hjá Nýju útliti.
Þar mætti fjöldi fólks úr snyrtivöru-
verslunum og fleiri fyrirtækjum
sem vinna með snyrtivörur.
Christel sagði að nafn Madame
Isabelle Lancray væri mjög þekkt
í franska snyrtivöruheiminum.
„Hún hóf að framleiða snyrtivörur
fyrir 40 árum. Útgangspunktur
hennar er að allar konur séu aðlað-
Honda 91
Civic
Sedan
16 ventla
Verð frá kr. 1.090 þús.
GLr-special
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
UHONDA
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
andi og hlutverk fegurðarvara sé
að laða fram og undirstrika, þokka
þeirra.“
Undir Isabelle Lancray merkinu
er selt krem fyrir allar húðgerðir
og litalína. í Arcancil eru allar lita-
vörur fyrir förðun. Playboy er
herrailmur.
Hljómsveitin Upplyfting.
SKEMMTANIR
Upplyfting leikur á Hótel
íslandi í vetur
Hljómsveitin Upplyfting mun
leika fyrir dansi á Hótel ís-
landi föstudags- og laugardags-
kvöld í vetur. Sveitina skipa 7 tón-
listarmenn en meðal þeirra eru
tvær söngkonur þær Sigrún Eva
Ármannsdóttir og Berglind Björk
Jónsdóttir sem nýlega gekk til liðs
við hljómsveitina.
Aðrir hljómsveitarmeðlimir eru
Haraldur Þorsteinsson, bassaieik-
ari, Birgir Birgisson, hljómborðs-
CEEŒMHH
Lausnin er: EnzjunoJ
Nýtt í Evrópu
EUQO-HAIR
á Islandi
| JB aEngin hárígræðsla
* -*■ J<* ■Engingerfihár
Jtf ■Enginlyfjameðferð
■Einungistímabundinnotkun
Elgið hár rneð hjálp lifefnti-oriiu
ESK!l!,«n- 091 -676331e.ki.i6.oo
leikari, Már Elíson, trommuleikari,
Sigurður Dagbjartsson, gítarleik-
ari, og Kristján Snorrason sem
leikur á harmónikku og hljómborð.
í samtali við Kristján kom fram
að leikin yrði vinsæl lög, ný og
gömul, en einnig kæmi til greina
að textar yrðu samdir á staðnum.
Hann sagði að reynt yrði að leika
óskalög fyrir alla og von væri á
alls kyns uppákomum, meðal
þein-a mætti nefna ítalskan hetj-
utenór. Sérstök skémmtiatriði
verða fyrir þá sem koma á Hótel
ísland fyrir miðnætti en hljóm-
sveitin byrjar að leika uppúr 11 á
kvöldin. Um 1.30 verður valið dan-
spar kvöldsins. Verður það verð-
launað af húsinu.
Hljómsveitin kemur fyrst fram
í kvöld, föstudag.
ÓÚTREIKNANLEIKI
Tilstand og fífla-
skapur fellur í mis-
jafnanjarðveg
Sagt er, að leikarinn
Alec Baldwin gangi
stöðugt nánast fram af sér
í uppátækjum sem eiga að
sanna fyrir leikkonunni
Kim Basinger, að hann el-
skar hana út af lífinu. Hún
hlýtur að vera fyrir nokkru
sannfærð, því brúðkaups-
klukkumar fara senn að
klingja, en málin hafa ekki
gengið gauragangslaust,
enda leikkonan þekkt fyrir
bráðlæti og skapofsa.
Baldvin fékk að fmna fyr-
ir því að lífið er ekki bara
dans á rósum er hann ætl-
aði að tjá Basinger ást sína
á dögunum. Þau voru að
vinna saman að kvikmynd
og Baldwin datt alit í einu
í hug að leigja sér flugvéi
sem átti að fljúga yfir kvikmynda-
verið á tilsettum tíma. Ætlunin
var að flugvélin dragi á eftir sér
borða með áletruninni „Ég elska
þig Kim“. Svo óheppilega vildi til,
að Basinger var stödd innan dyra
er rellan fór að suða yfir höfðum
manna þannig að flestir sáu borð-
ann nema sú sem leikurinn var
gerður til.
Skjótt hlupu nokkrar skríkjandi
stelpur inn til Basingers og sögðu
henni að hún yrði að sjá hvað hinn
guðdómlegi Alec hefði verið að
bralla að þessu sinni! Þær sögðu
upp og ofan hvað um var að vera,
en Basinger stífnaði upp og neit-
aði að fara út fýrir hússins dyr.
Eftir miklar fortölur og marga
hringi rellunnar yfir svæðinu
skyldist henni að annað hvort liti
hún á dýrðina eða að rellan yrði
eldsneytislaus. Hún gægðist út og
lax, „Ég elska þig Kim“. Þá
sprakk hún gersámlega. Öskraði,
„fjandinn hirði hann, hann-veit að
ég þoli ekki tilstand og fíflaskap!"
Kim Basinger.
Og með það var hún rokin aftur
inn með hurðaskellum, en Baldwin
var þarna á höttunum og í stað
þess að meðtaka heitan koss fyrir
rómantíkina, fóru næstu dagar í
að útskýra og biðjast velviringar
á frumhlaupinu!
Þessi viðbrögð ungfrúarinn þykja
skjóta nokkuð skökku við, því að
hermt er, að þegar Baldwin bað
um hönd hennar, gerði hann það
mjög svo óvænt er þau voru stödd
á útinmarkaði í New York. Er
Basinger andaði út úr sér þungu
jái, hljóp Baldwin inn í búðar-
skrifli og keypti páfagauk í búri
og færði elskunni sinni í trúlofun-
argjöf. „Tilstandið og fíflaskapur-
inn“ féll í góðan jarðveg í það
skiptið...
SLYS
Hollands-
drottning
fótbrotin
Beatrix Holiandsdrottning kom fyrir
skömmu fram opinberlega í fyrsta
skiptið eftir að hún varð fyrir því óhappi
að fótbijóta sig. Drottningin staulaðist
áfram á hækjum og reytti af sér brand-
ara um eigin klaufaskap, en slys henn-
ar var með þeim hætti að hún datt um
mublu í sumarhúsi sínu á Ítalíu 12.
ágúst síðast liðinn. Læknar segja
meiðslin ekki alvarleg og skjótt verði
hún laus við gifsið.
Beatrix drottning á hækjum
sínum.
COSPER