Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
Mímir norður í
byrjun október
Sjóvinnukennsla mun fara fram í skipinu
SKÓLA- og rannsóknaskipið Mímir er væntanlegt til nýrrar
heimahafnar, Akureyrar, í byrjun næsta mánaðar. Með tilkomu
þess verður í fyrsta sinn unnt að sinna verklegri kennslu í sjáv-
arlíffræði og fiskifræði í sjávarútvegsdeild Háskólans á Akur-
eyri.
Fjórir aðilar munu hafa afnot
af skipinu, Háskólinn á Akureyri,
Háskóli íslands, Hafrannsókna-
stofnun og Fiskifélagið, sem hefur
með sjóvinnuskennslu grunnskóla-
nema að gera.
Steingrímur Jónsson forstöðu-
maðu'r Hafrannsóknastofnunar á
Akureyri sagði að á vegum stofn-
unarinnar yrði skipið einkum not-
að til rannsókna í Eyjafirði, en nú
er unnið að rannsóknaráætlun fyr-
ir næsta ár.
Mímir kemur til Akureyrar í
byijun október og verður hér í
nokkrar vikur, en leggur síðan í
hringferð um landið fram í des-
ember, en á þeim tíma mun skipið
nýtast til kennslu grunnskóla-
nema. Samskonar ferð verður far-
in í febrúar og mars, en Mímir
mun í framtíðinni fara eina til tvær
hringferðir um iandið á ári til að
sinna kennslu grunnskólanema.
Þrjú ungmenni játa
innbrot á fimm staði
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gúlsopi af lýsi
Nýnemar Verkmenntaskólans á Akureyri fengu að bragða á lýsi á busavígslu sem haldin var í skólanum í
gær. Busunum var smalað saman í samkomusal, þar sem lesið var yfir þeim og þeir merktir. Síðan var boðið
í „kaffí og kökur“ í kjallara skólans, en er þangað var komið reyndist kaffiboðið nokkur blekking, því á
boðstólum var gúisopi af lýsi og gamalt brauð. Ekki voru allir jafnhrifnir af hinum ágæta drykk og þurfti
að aðstoða suma við að innbyrða drykkinn.
ÞRJÚ ungmenni hafa játað að
hafa brotist inn á fimm staði á
Akureyri og á Dalvík undan-
farnar nætur.
í fyrrinótt var brotist inn í
Svarfdæiabúð á Dalvík og stolið
þaðan eitthvað af peningum og
vindlingum. Þá var tilkynnt um
tvö innbrot á Akureyri aðfaranótt
miðvikudags, annars vegar í Vél-
smiðju Steindórs við Frostagötu
og hins vegar í Rúmfatalagerinn
við Oseyri. Höfðu ungmennin fé
og fatnað upp úr krafsinu. Nóttina
áður höfðu þau farið inn í hús-
næði Karlakórs Akureyrar, Geys-
is, Lón, og haft á brott með sér
þaðan áfengi og tóbak. Þá viður-
kenndu þau einnig að hafa brotist
inn í Félagsborg, sal starfsmanna-
félags Álafoss á Gleráreyrum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Arnar Birgisson, eigandi herrafataverslunarinnar Toppmanna.
Ný herrafataverslun opnuð
Ný herrafataverslun, Toppmenn, var opnuð á Ráðhústorgi 7 á
Akureyn i gærmorgun, en eigandi
Verslunin er til húsa þar sem áður
var húsgagnaverslunin Örkin hans
Nóa, en auk Toppmanna er sport-
vöruverslunin Allir sem 1 á sama
stað og innangengt milli verslan-
anna. Þá mun einnig verða opnað
kökuhús á vegum Einarsbakarís í
þessu húsnæði.
Arnar Birgirsson sagði að viðtök-
urnar hefðu verið afar góðar í gær
og þær í raun komið sér á óvart. í
versluninni verður áhersla lögð á
herrafatnað fyrir unga menn á öllum
hennar er Arnar Birgisson.
aldri, jafnt sportlegan fatnað sem til
sparibrúks. Árnar flytur vörumar inn
sjálfur, en fatnaðurinn er aljur fram-
leiddur í Þýskalandi og á Italíu.
„Ég hef lengi velt því fyrir mér
að opna svona verslun, en ávallt ver-
ið að leita að hentugum stað. Þegar
þetta tækifæri bauðst, að opna versl-
un við Ráðhústorgið, þá skellti ég
mér út í þetta. Mér hefur fundist
vanta meiri samkeppni á þessu sviði
hér í bænum og ég trúi því að mark-
aðurinn sé nægur," sagði Arnar.
Iðja, félag verksmiðjufólks;
Sameinast verði undir
merkjum ASI í haust
FÉLAGSMENN í Iðju, félagi
verksmiðjufólks á Akureyri,
hvetja stjórnvöld til að leita ann-
arra leiða við tekjuöflun en með
auknum álögum á launafólk.
Á almennum félagsfundi í Iðju,
sem haldinn var nýlega, var sam-
þykkt ályktun um kjaramál, þar
sem fram kemur að fundarmenn
mótmæli harðlega öllum hugmynd-
um um auknar álögur á launafólk
og skerðingu félagslegrar þjónustu,
hvort sem um er að ræða í heilbrigð-
is-, húsnæðis- eða skólamálum. 011-
um slíkum tilraunum verði mætt
af fullri hörku, segir í ályktuninni.
Fundurinn hvetur ríkisvaldið til
að leita annarra leiða við tekjuöflun
sína m.a. með skatti á óhóflegar
fjármagnstekjur og aukinni skatt-
heimtu á þá sem meira mega sín
en almennt launafólk. „Fundurinn
krefst þess að stjórnvöld taki nú
þegar á vaxtaokri og að bankar og
fjármagnsmarkaðir verði knúðir til
að koma á hóflegu vaxtastigi,“ seg-
ir í ályktuninni.
Þá segir ennfremur að fundurinn
leggi áherslu á að í komandi samn-
ingum verði fyrst og fremst hugað
að auknum kaupmætti og sérstakri
hækkun launa til þessa sem lægstu
launin hafa. Þá er hvatt til þess að
stéttarfélög og landssambönd sam-
einist undir merkjum ASÍ í kom-
andi samningum, „þannig að hrinda
megi boðuðum andfélagslegum að-
gerðum ríkisvaldsins gegn börnum,
öldruðum og sjúklingum sem og
harðnandi afstöðu atvinnurekenda
gagnvart almennu launafólki“.
XJöfðar til
JL Xfólks í öllum
starfsgreinum!