Morgunblaðið - 25.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1991
19
>
>
>
>
>
>
>
>
>
Morgunblaðið Árni Sæberg
Árni Samúelsson t.h. ásamt þeim Birni Arnasyni, Art Sickles og’ Tom Miltner í öðrum af hinum
nýju sölum kvikmyndahússins.
Fullkominn tæknibúnaður í Sam-bíóunum:
Veggtjöldin bæði hljóð-
deyfing og branavörn
- hafa verið sett upp í 23.000 kvikmyndasölum víða um heim
NÚ ER búið að setja upp veggtjöldin sem verða í hinum nýju
kvikmyndasölum Sam-bíóana þar sem Broadway var áður.
Þessi tjöld eru úr sérstöku gerfiefni og virka bæði sem hljóð-
deyfing og brunavörn. Það er fyrirtækið Soundfold sem setti
tjöldm upp en þau hafa venð
Bíóborginni
Árni Samúlesson eigandi
Sam-bíóa segir að tjöld sem þessi
hafi verið sett upp í 23.000 kvik-
myndasölum víða um heim auk
þess að kirkjur, keilusalir og
aðrir staðir sem hljóðdeyfingar
er þörf falist mjög eftir þeim.
Það er bandaríkjamaðurinn Art
Sickles sem fann upp þessi tjöld
og hefur einkaleyfi á þeim um
allan heim. Hann kom hingað
til staðar bæði í Bíóhöllinni og
sjálfur ásamt samstarfsmanni
sínum Tom Miltner en Árni seg-
ir að Art sé mjög hrifinn af landi
og þjóð og í þau skipti sem tjöld
þessi hafi verið sett upp hérlend-
is hafi hann ætíð annast það
verk sjálfur.
Auk þessara tjalda verður
THX hljóðkerfi til staðar í sölun-
um tveimur sem verða í nýja
kvikmyndahúsinu en þeir munu
samanlagt hýsa 750 manns. Þar
með er þetta hljóðkerfi til staðar
í fjórum kvikmyndahúsum hér-
lendis eða álíka mörgum og á
öllu Englandi. Árni segir að
fyrsta kerfið þessarar tegundar
sé þar að auki að koma í Svíþjóð
og í Noregi. Sem kunnugt er af
fréttum stendur nú yfir sam-
keppni um nafn á nýja kvik-
myndahúsið, og raunar þau öll
sem eru í eigu Árna. Alls hafa
75.000 tillögur borist en ætlunin
er að opna nýju salina um mán-
aðamótin október/nóvember og
þá jafnframt tilkynnt um sigur-
vegarann í samkeppninni.
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Tónleikar vegna
útgáfu geisladisks
Fimmtudaginn 26. september,
heldur Sinfóníuljómsveit íslands
tónleika í Háskólabíói og hefjast
þeir klukkan 20.00.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
vinnu við breska hljómplötuútgáfu-
fyrirtækið Chandos á Englandi, en
hljómsveitin og Chandos hafa gert
þriggja ára samning um hljóðritun
og útgáfu tónlistar á geisladiskum,
sem útgáfufyrirtækið dreifir í
hljómplötuverslanir í um 40 löndum.
Þessir tónleikar verða þeir fyrri af
tvennum tónleikum, sem haldnir
verða í vetur vegna hljóðritana.
Á efnisskránni eru fjögur verk.
Þijú eftir Edward Grieg: Að hausti,
forleikur, Gömul norsk rómansa
með tilbrigðum og ljóðræn smálög.
Einnig verður flutt sinfónía nr. 3
eftir finnska tónskáldið Leevi Mad-
etoja.
Hljómsveitarstjóri verður Petri
Sakari, aðalhljómsveitarstjóri Sin-
fóníuhljómsveitar íslands. Miða-
verði á tónleikana er mjög stillt í
hóf, eða kr. 500 og eru sætin í
húsinu ónúmeruð.
Skoðanakönnun DV:
Um 80% á móti bíl-
um um Austurstræti
SAMKVÆMT skoðanakönnun DV, sem fram fór um helgina eru um
80% landsmanna á móti opnun Austurstrætis fyrir bílaumferð. Úrtak
könnunarinnar var 600 manns af landinu öllu.
70% íbúa á höfuðborgarsvæðinu
reyndust vera á móti bílaumferð
um Austurstræti en 20,3% voru
fylgjandi opnuninni. 9,3% voru óá-
kveðnir og 0,3% svöruðu ekki
spurningunni. Af þeim sem tóku
afstöðu voru því 22,5% fylgjandi
opnun götunnar en 77,5% á móti.
Af þeirrt sem tóku afstöðu á lands-
byggðinni voru 81,7% andvígir
ákvörðun borgarstjórnar 'en 18,3%
fylgjandi.
Niðurstaðan er sú að samanlagt
eru 20,6% þeirra landsmanna, sem
taka afstöðu fylgjandi opnun Aust-
urstrætis en 79,4% eru á móti opn-
un götunnar fyrir bflaumferð.
Verslunarráð sagði
samningnum upp
- segir formaður Félags íslenskra stórkaupmanna
BIRGIR R. Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, segir
það rangt sem fram kemur í yfirlýsingu Verslunarráðs íslands, sem
birtist í Morgunblaðinu síðastliðinn sunnudag, að Félag íslenskra stór-
kaupmanna hafi slitið viðræðum við Verslunarráðið um áframhald-
andi sameiginlegan skrifstofurekstur.
„Hið rétta í þessu er það að þeir faldlega hafnaði að ræða, því þar
sögðu þessum samningi upp í júní var nánast um yfirtöku á félaginu
síðastliðnum, og það hafa ekki farið að ræða. Við höfum því ekki slitið
fram neinar viðræður milli félaganna neinum viðræðum, og það sem eftir
síðan þá. Þeir sendu okkur síðan stendur er að Verslunarráðið sagði
drög að nýjum samningi, sem stjórn þessum samningi við félag stórkaup-
Félags íslenskra stórkaupmanna ein- manna upp,“ sagði Birgir.
I
I
GOÐIR VEXTIR OG
VASAPENINGAR!
Þú nýtur góörar ávöxtunar á
Sparileib 2 og getur samib um
reglubundinn vasapening.
Komdu í klúbbinn!
í takt vib nýja tíma!
émm V/J
■
'v ‘yjp r. .
f . a