Morgunblaðið - 29.09.1991, Qupperneq 4
4 FRÉTTIR/YFIRLIT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991
ERLENT
Irak:
Eftirlitsmömium Sameinuðu
þjóðanna sleppt í Bagdad
Bagdad. Reuter.
44 eftirlitsmönnum á vegum Sameinuðu Jjjóðanna var sleppt í gær,
laugardag, en þeir höfðu verið í haldi Iraka á bílastæði bak við
skrifstofubyggingu í miðborg Bagdad í fjóra daga. Eftirlitsmennirn-
ir sneru til hótels síns eftir að hafa náð samkomulagi við iraska
embættismenn um gögn er varða kjarnorkuvopnaframleiðslu íraka.
INNLENT
Vaxtalækkun
framundan
Búnaðarbanki lækkar útláns-
vexti um 1,25 - 1,75% og innláns-
vexti sérkjarareikninga um 3% um
mánaðamót. Sparisjóðimir munu
einnig lækka sína vexti um mán-
aðarmótin, útlánsvexti um 3% og
innlánsvexti um 1,5-2,25%.
Landsbankinn heldur óbreyttu
vaxtastigi enn um sinn en Islands-
banki lækkar útlánsvexti um 1,5%
og innlánsvexti á bilinu 1% til
rúmlega 2%. Fjármálaráðuneytið
Iækkaði forvexti ríkisvíxla um
1,5% í vikunni og banka lækkuðu
forvexti á bankavíxlum, fyrst um
3-4% en síðan hækkuðu þeir aftur
til samræmis við ákvörðun fjára-
málaráðuneytisins.
Lækkun nautakjötsverðs
Sláturleyfishafar telja offram-
boð vera á nautgripakjöti og hefur
skilaverð til bænda verið lækkað
um allt að 7%. Guðmundur Lár-
usson formaður Landssambands
kúabænda segir framboð nú vera
síst meira en undanfarin haust
og ekki verði unað við verðlækk-
un, sem sé skýlaust brot á búvöru-
lögum.
Fijáls olíuiiuiflutningur
Allur innflutningur á olíuvörum
verður fijáls frá næstu áramótum
að ákvörðun Jóns Sigurðssonar
viðskiptaráðherra. I kjölfarið
i verða afskipti verðlagsyfirvalda
j af ákvörðun olíuverðs tekin til
í endurskoðunar. Viðskiptaráð-
herra segir að þetta eigi að hafa
f för með sér lækkun á verði til
neytenda en forstjórar olíufélag-
anna segja lítið svigrúm til verðs-
amkeppni.
ERLENT
Námamenn
neyða Rúm-
eníustjórn
til afsagnar
Þúsundir vígmóðra kolanáma-
manna þröngvuðu stjórn Petre
Romans, forsætisráðherra Rúm-
eníu, til að
segja af sér á
fimmtudag eft-
ir að mannsk-
æðar óeirðir
höfðu brotist út
í Búkarest þar
sem a.m.k.
Qórir menn
féllu og 300
særðust. Námamennirnir ruddust
inn í þinghúsið í borginni og um-
kringdu einnig sjónvarpsbygg-
ingu. Þeir kröfðust og afsagnar
Ions Iliescus forseta. Kolanáma-
mennirnir krefjast verðstöðvunar
og launahækkana, en verðbólga í
landinu er um 130% eftir að verð-
lag var gefið fijást og framleiðsla
hefur minnkað um 17%.
Eftirlitsmenn teknir í írak
Hópur eftirlitmanna Samein-
uðu þjóðanna (SÞ) var tekinn til
fanga við stjómstöð íraska kjam-
orkuráðsins í Bagdad á þriðju-
dagsmorgun þar sem þeir fundu
mikilvæg skjöl um kjarnorku-
vopnasmíði Iraka. Eftirlitmenn-
irnir, 44 talsins, neituðu að af-
henda gögnin. Viðbrögð Banda-
ríkjamanna við handtökunni voru
hörð og varaði George Bush
Bandaríkjaforseti íraka við því að
þjáningar yrðu kallaðar yfir þjóð-
ina ef störf mannanna yrðu hindr-
uð frekar. A fimmtudag sam-
þykkti öryggisráð SÞ að írakar
fengju skrá yfír og afrit af gögn-
unum, og virtist sem greitt hefði
verið fyrir því að eftirlitsmönnun-
Sigur á Spáni í fyrsta sinn
íslendingar unnu Sjánveija 2:0 í
landsleik í knattspyrnu í fyrsta
skipti á Laugardalsvelli á mið-
vikudag. Þetta var fyrsti leikur
landsliðsins undir stjórn Asgeirs
Elíassonar _ landsliðsþjálfara.
Þorvaldur Orlygsson og Eyjólf-
ur Sverrisson skomðu mörkin.
Engar kauphækkanir segir
VSÍ
Einar Oddur Kristjánsson
formaður VSÍ sagði á aðalfundi
Samtaka fískvinnslustöðva á Ak-
ureyri að kauphækkanir væra
ekki í sjónmáli svo langt sem
'augað eygði. Han sagði gengis-
fellingu ófæra leið og tími hennar
væri liðinn.
Kaupmenn vilja kaupa
Ríkisskip
Fyrirtæki innan Félags
íslenskra stórkaupmanna vilja
skoða mö-guleika á að kaupa
Skipaútgerð ríkisins og hafa sent
Halldóri Blöndal, samgönguráð-
herra bréf þess efnis. Ráðherra
fagnar áhuga stórkaupmanna á
málinu.
Ráðhús umfram áætlun
Heildarkostnaður vegna bygg-
ingar Ráðhúss Reykjavíkur er
áætlaður rúmir 2,9 milljarðar
krona á verðlagi þessa árs. Það
er um 26% umfram kostnaðará-
ætlun frá árinu 1989.
um yrði sleppt. Þeir voru þó enn
í haldi á föstudagsmorgun.
Neyðarástand í Tbilisi
Zviad Gamsakhurdia Ge-
orgíuforseti lýsti yfír neyðará-
standi í höfuðborginni Tbilisi á
þriðjudag eftir að andstæðingar
út. Fimm menn
féllu í bardögum aðfaranótt mið-
vikudags og stjómarandstæðing-
ar sökuðu hermenn um að hafa
gert árás á búðir sínar á fímmtu-
dag þar sem þrír hefðu fallið.
Stjómvöld vísuðu þessu bug. Aðf-
aranótt fímmtudags var skotárás
á heimili forsetans hrundið, en
loftið í borginni er lævi blandið
og hætta er talin á að borgara-
styijöld bijótist út.
Vopnahlé virt í Júgóslavíu
Vopnahlé sem samið var um
síðasta sunnudag í Júgóslavíu var
virt að mestu alla síðustu viku.
Veljko Kadijevic, varnarmála-
ráðherra og yfirmaður hersins,
átti fund með forsetum Króatíu
og Serbíu á miðvikudag þar sem
þeir komust að samkomulagi um
að leysa ágreining sinn eftir frið-
samlegum leiðum.
Armenía lýsir yfir sjálfstæði
Þing Armeníu lýsti einróma
yfir sjálfstæði á mánudag og þar
með hafa 13 af 15 lýðveldum
Sovétríkjanna lýst yfír sjálfstæði.
Sama dag var fundur um hið
umdeilda hérað Nagorno-Karabak
haldinn að undirlagi Borís
Jeltsíns Rússlandsforseta, en
hann sagði að hægt miðaði að
finna lausn á deilunni.
Eftirlitsmönnunum var meinað
að fara af bílastæðinu eftir að þeir
höfðu tekið í sína vörslu gögn sem
þeir segja gefa mikilvægar upplýs-
ingar um kjamorkuvopnafram-
leiðsluna. Þeir fundu gögnin í bygg-
ingu í Bagdad, sem írakar höfðu
ekki gefíð upplýsingar um að tengd-
ist kjarnorkuiðnaði þeirra. Mennim-
ir vora reknir úr byggingunni og
fengu ekki að fara á brott með
skjölin.
„Irakar féllust algjörlega á að
við fengjum að halda gögnunum
og þau verða áfram hjá. okkur,“
sagði David Kay, _sem fer fyrir eftir-
litsmönnunum. írösku embættis-
mennirnir samþykktu að eftirlits-
mönnunum yrði sleppt með því skil-
yrði að gerð yrði skrá um öll gögn-
in sem þeir héldu.
Reuter
Rúmenðkir kolanámumenn ganga með rotkylfur um miðborg Búkarest áður en þeir réðust inn í
þinghúsið í borginni á fimmtudag.
Rúmenía:
Hefur Guð gleymt bestu
sonum verkalýðsins?
RÚMENSKIR námuverkamenn gengu berserksgang í Búkarest
í fjórða sinn nú í vikunni síðan Nicolae Ceausescu var bylt og
Endurreisnarráðið tók völdin. Þeir fóru þrisvar til borgarinnar
úr Jiu-dal árið 1990 til að veita Ion Iliescu forseta og ríkis-
stjórn Petre Romans forsætisráðherra stuðning gegn stjórnar-
andstöðunni. Ilieseu þakkaði þeim þá hátíðlega fyrir góða
frammistöðu og lofaði þeim betri kjörum. Því var spáð í fram-
haldi af því að námuverkamennirnir myndu láta sjá sig aftur
í höfuðborginni ef efnahagsástandið í landinu skánaði ekki og
þá til að bylta ríkisstjórninni. Það virtist rætast á fimmtudag.
Iliescu lofaði þá að ríkisstjórn Romans færi frá þegar kyrrð
og ró ríkti eftir uslaverk verkamannanna. Þeir fóru að tínast
frá borginni á föstudag en Roman sagði þá að ríkisstjórnin
ætti að sitja þangað til kosningar verða haldnar. Hann vill að
gengið verði til kosninga sem fyrst en afturhaldsöfl hafa verið
á móti því af ótta við að missa völd og forréttindi.
Efnahagsástandið í Rúmeníu
er svo slæmt að Ceausescu
er jafnvel saknað, almenningur
er sagður Ieggja blóm á gröf hans
daglega. Lífsbaráttan hefur
harðnað og var hörð fyrir. Verðlag
hefur fímmfaldast undanfarna
sex mánuði en _____________
laun rétt tvö-
faldast. Land-
búnaðurinn er
í lamasessi og
hið gróðursæla
land er ekki
nýtt til að afla þjóðinni viðurvær-
is. Óttast er að orkuskorts verði
vart þegar líður á haustið. Talið
er að spilling og glæpastarfsemi
fari vaxandi og öfund í garð þeirra
sem spjara sig er mikil. Þeir sem
sýna örlitla framtakssemi og opna
til dæmis lítið kaffíhús mega eiga
von á að vera kallaðir öllum illum
nöfnum og verða fyrir árásum.
Bestu synir verkalýðsins
Rúmenskir námuverkamenn
eru kallaðir „bestu synir“ verka-
lýðsins í áróðursritum. Þeir hafa
þrisvar sinnum hærri laun en aðr-
ir verkamenn en starfsaðstaða
þeirra er hroðaleg. Um 50.000
af 300.000 námuverkamönnum í
landinu starfa í Jiu-dal, sem er
um 350 km frá Búkarest. Námu-
störf þar hafa ávallt verið erfíð
og hættuleg. Sprengingar og slys
_____________ eru tíð. Stjórn-
BAKSVIÐ
eftir Önnu Bjamadóttur
völd hafa ekki
ráð á að standa
við loforð um
betri starfsskil-
yrði og verkföll
eru algeng, hið
síðasta hófst síðastliðinn mánu-
dag. En þau gera lítið gagn. Ilies-
cu stóð upp á fundi með fulltrúum
námuverkamanna í fyrra og sýndi
þeim tóma buxnavaxa sína til að
undirstrika að sjóðir ríkisins væru
auðir.
Það hefur dregið verulega úr
kolaframleiðslu síðan í bylting-
unni í desember 1989. Námuverk-
amenn starfa í sex tíma á dag
og afköst þeirra eru lítil. Þeir
hafa fátt annað að gera eftir vinn-
utíma en drekka brennivín eða
fara í bíó og sjá lélegar myndir.
Ungir menn kvarta undan ein-
manaleika og vonleysi. Þeir segja
að Guð hafí gleymt þeim.
Valdarán afturhaldsseggja?
Námuverkamennirnir voru
hvattir til fyrri ferða til Búkarest
og þeim séð fyrir flutningabílum
og sérstökum lestarferðum. Þeir
virðast hafa farið þangað að eigin
frumkvæði að þessu sinni. En
Roman kallar athafnir þeirra vald-
arán og það er hugsanlegt að
andstæðingar hans innan End-
urreisnarráðsins hafi ýtt við þeim.
Roman, sem er sonur gamals
stalínista og ólst upp við forrétt-
indi, hefur verið talsmaður fijáls
framtaks og skjótra efnahagsum-
bóta innan Endurreisnarráðsins.
Rikisstjómin hefur stefnt í þá átt
en stöðugt rekist á hömlur gömlu
kommúnistanna og skriffínnanna
sem enn sitja sem fastast í öllum
veigamiklum embættum. Iliescu
er umbótakommúnisti og vill ekki
að það sé haldið of hratt í átt að
opnu, vestrænu efnahagskerfí.
Raddir í Endurreisnarráðinu
gegn stefnu Romans hafa orðið æ
háværari á undanförnum mánuð-
um. Nokkrir þingmenn stofnuðu
eigin samtök í vor til stuðnings
almúganum en þeir segja Roman
hafa fórnað velferð hans fyrir
kapítalisma. Námuverkamennim-
ir hafa nú reynt að bola honum
úr embætti og líklegt er að Endur-
reisnarráðið klofni endanlega í
framhaidi af því í fylkingar með
og á móti stefnum Uiescus og
Romans. Það eitt leysir ekki vanda
þjóðarinnar. Hún þarf fyrst og
fremst á íjármagni og trausti er-
lendra lánastofnana að halda en
hvorugt vinnst á meðan námu-
verkamenn taka lögin í eigin
hendur með ofbeldi og látum þeg-
ar út af ber.