Morgunblaðið - 29.09.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 29.09.1991, Qupperneq 26
 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991 HVER VERDURIHVITA HÚSINU EFTIR 1992? Bush forseti nýtur mikilla vinsælda almennings eftir Persaflóastríðið. LIKLEGIR FRAMBJOÐENDUR? eftir írisi Erlingsdóttur Stjórnmálaskýrendur í Banda- ríkjunum velta nú vöngnm yfir hvorir muni hrósa sigri i forseta- kosningunum í nóvember 1992 repúblikanar eða demókratar. Margir telja sigur demókrata óhugsandi þar sem Bush nýtur mikilla vinsælda almennings eft- ir sigurinn yfir írökum í Flóa- bardaga. Aðrir eru ekki eins sig- urvissir og telja að ýmsir draug- ar úr fortíðinni, svo sem óleystar gátur í íran-Contra-málinu ;og ásakanir um landráðasamninga gegn Jimmy Carter árið 1980, geti spillt fyrir möguleikum Bush á endurkjöri. Þegar hafa þrír þjóðkunnir demókratar boð- ið sig fram til útnefningar og fleiri yfirlýsingar eru, væntan- legar. Paul E. Tsongas, fyrrum þingmaður frá Massa- chusettes, bauð sig fram í apríl; Douglas Wilder, ríkisstjóri í Virginíu, og Tom Harkin, þingmaður frá Iowa, til- kynntu báðir í síðustu viku að þeir hefðu ákveðið að gefa kost á sér. Fleiri óska eftir útnefningu. Búist er við að Bill Clinton, ríkis- stjóri í Arkansas; Bob Kerrey, þing- maður frá Nebraska, og Edmund G. (Jerry) Brown, fyrrum ríkis- stjóri í Kalifomíu, muni allir innan skamms gefa yfíriýsingu um fram- boð sitt. Mario M. Cuomo, ríkis- stjóri í New York-fylki, hefur verið nefndur sem mögulegur frambjóð- andi, sem og Jesse Jackson en óvíst er hvort þeir muni gefa kost á sér. George Bush nýtur mikilla vin- sælda hjá löndum sínum, sem enn eru í sigurvímu eftir Flóabardaga. Nýleg skoðanakönnun sýndi að væri gengið til kosninga nú, myndi hann sigra Mario Cuomo (óska-for- setaefni demókrata), hljóta 60% atkvæða, en Cuomo 30%. En allt er í heiminum hverfult og skoðanir almennings eru jafnhvikular og veðurfar a Fróni. „Það er ómögu- legt að spá um hvað muni gerast," segir Roger Ailes, ímyndarsmiður George Bush í samtali við Time tímaritið. „Ef 75 ára gamalt komm- únistastjómkerfi getur hrunið á þremur dögum, þá getur allt gerst." Þó staða Bush sé sterk telja stjómmálaskýrendur að ýmis mál geti komið Bush í klípu í kosninga- baráttunni: • Ásakanir á hendur Bush, Reag- an og yfirmönnum CIA (þ.á m. Robert Gates sem Bush hefur út- nefnt sem yfirmann leyniþjón- ustunnar) þess efnis að þeir hafi bæði vitað af og samþykkt hina ólöglegu vopnasölu til Iran. • Sannað þykir að William Casey, fyrrum yfirmaður CIA, ásamt fleiri fulltrúum úr Reagan-Bush-kosn- ingahópnum hafi árið 1980 samið við írönsku byltingarstjórnina um að halda bandarísku gíslunum í haldi þar til forsetakosningamar væm um garð gengnar, til að tiyggja að Carter yrði ekki endur- kjörinn. Ef þingið lætur rannsaka þetta mál ofan í kjölinn em Bush og nánustu samstarfsmenn hans í slæmum málum. PAUL TSONGAS, fyrrum öld- ungadeildarþingmaður fró Massachusetts. Hann gaf kost á sér í apríl sl. en fremur lítið hefur þó borið á honum enn sem komið er. ROBERT KERREY, öldungadeild- arþingmaður frá Nebraska og fyrr- um rikisstjóri fylkisins. Hann hlaut heiðursorðu fyrir frammistöðu sína í Víetnamstríðinu, þar sem hann missti hægri fótinn í bardaga. BILL CLINTON, ríkisstjóri í Arkans- as, þykir fremur hægri sinnaður og gæti þvi átt erfitt uppdráttar meðal demókrata á vinstri væng flokksins. TOM HARKIN, öldungadeildar- þingmaður frá lowa. Hann nýtur mestrar hylli meðal flokksmanna og er sá frambjóðandi sem repúbl- ikanar hafa mestar áhyggjur af. JERRY BROWN, fyrrum rikisstjóri i Kaliforníu, hefur gagnrýnt spillingu í bandarískum stjórnmálum. DOUGLAS WILDER, rikisstjóri i Virginiu, fyrsti svertingi í Bandaríkj- unum til að gegna embætti rikis- stjóra. Hann boðar samdrátt i rikis- fjármálum til að létta byrðar hins almenna skattborgara. • Ef Hæstiréttur Bandaríkjanna breytir ákvörðuninni í Roe v. Wade, málinu sem lögleiddi fóstureyðing- ar í Bandaríkjunum, er möguleiki á að konur sem kosið hafa repúblík- ana muni hverfa frá flokknum. • Bush þykir ekki hafa staðið sig nægilega vel í utanríkismálum. Það þykir hálfskömmustulegt hversu fáir sáu fyrir valdaránið í Sovétríkj- unum — CLA kom af fjöllum. • Margir hafa áhyggjur af heilsu- fari Bush og því meiri áhyggjur af (van)hæfni varaforsetans. • Er slunginn og ákveðinn barátt- umaður innan vébanda demókrata? Að Mario Cuomo aðskildum er Tom Harkin, þingmaður frá Iowa, sá frambjóðandi sem repúblíkanar hafa mestar áhyggjur af. • Slæmt efnahagsástand í Bandaríkjunum. Aðilar innan stjórnar Bush hafa viðurkennt að þeir hafi ekki hugmynd um hvernig efnahagsástandið verði árið 1992. En ráðgjafar Bush hafa ekki áhyggjur. „Forsetinn mun horfa beint í sjónvarpsmyndavélina," sagði einn þeirra í viðtali við Time- tímaritið, „og minna fólkið á að ástandið í heiminum sé afar brot- hætt“, og að hann, en ekki hinn gæinn, hefur sýnt fram á að hann getur tryggt öryggi Bandaríkjanna. Það ætti að vera nóg.“ Er það nóg? Framtíðin mun leiða það 5 ljós. En hvað hafa demó- kratar upp á að bjóða í næstu kosn- ingum? Geta þeir komið sér saman um einn sterkan frambjóðanda gegn George Bush? Það er óvíst,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.