Morgunblaðið - 29.09.1991, Page 48
MORGUNBLADIÐ, ADALSTRÆTI 6. 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTIIÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTR/ETI 85
SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991
VERÐ I LAUSASOLU 100 KR.
LÖGREGLA í Hafnarfirði lagði í
fyrradag hald á 50-60 grömm af
hassi og um 10 grömm af amfet-
amíni og handtók 6 manns á aldr-
inum 20 til 28 ára. Á einum hinna
grunuðu fannst einnig stolið ávís-
anahefti. Tveir hinna handteknu
höfðu falið fíkniefni í endaþarmi
sínum.
Á sjötta tímanum á föstudag var
stöðvaður bill í Hafnarfirði og við
leit í honum fundust um 10 grömm
af hassi. Við leit á ökumanni og far-
þega fundust einnig 10 grömm af
amfetamíni sem farþeginn hafði falið
í endaþarmi og stolið ávísanahefti. I
framhaldi af þessu voru fjórir aðrir
handteknir og húsleitir gerðar.
Þegar upp var staðið hafði rann-
sóknarlögreglan í Hafnarfirði, sem
vann að málinu ásamt lögreglunni
og í samráði við fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Reykjavík fundið 50-60
grömm af hassi og tól sem tengjast
neyslu þess.
Ólafsvík:
Bæjarsjóðurinn kaupir út-
gerðarfélag togarans Más
Fyrirtækið leitar leiða til að kaupa þrotabú Hraðfrystihúss Ólafsvíkur
BÆJARSJOÐUR Olafsvíkur hef-
ur keypt rúmlega 90% hlutafjár í
útgerðarfélaginu Utveri hf. á 01-
afsvik sem gerir út togarann Má
og hefur bæjíirstjórn samþykkt
að kaupa allt fyrirtækið en bærinn
átti fyrir 40% hlut í því. Að sögn
Stefáns Garðarssonar bæjarstjóra
mun bærinn auk þessa leggja fram
90 millj. í útgerðarfélagið. Stefnt
er að því að togarinn Már landi
afla á fiskmarkaði sem verði kom-
ið á fót í Ólafsvík. í framhaldi af
þessu mun fyrirtækið kanna leiðir
til að kaupa eignir þrotabús Hrað-
frystihúss Ólafsvíkur og kveðst
Stefán bjartsýnn á að þar verði
hægt að hefja rekstur í síðasta
lagi í lok nóvember.
Stefán viídi ekki greina frá kaup-
verði bréfanna en sagði að skuldir
bæjarsjóðs ykjust úr 175 millj. í 280
millj. við þessar ráðstafanir. „Það er
stefnt að því að reka Útver sem sjálf-
stætt fyrirtæki en togarinn landi á
fiskmarkaði sem væntanlega verður
stofnaður hér,“ sagði Stefán. Kvaðst
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra:
Kjarasamningar verði til 2 eða
3 ára án hækkana á næsta ári
FRIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra segir í viðtali, sem birtist í
Morgunblaðinu í dag, að hann telji að gera eigi kjarasamninga til
tveggja eða þriggja ára og reyna að ná verðbólgunni niður, en al-
mennar launahækkanir komi ekki til á næsta ári. Frekar verði
stefnt að raunverulegum lífskjarabata á síðari hluta samningstímans.
„Við gerð kjarasamninganna
verða menn að hafa í huga að það
liggur fyrir — og því verður því
miður ekki breytt — að kaupmáttur
dregst saman á næsta ári vegna
minni afla og minni framleiðslu,"
segir íjármálaráðherra. „Þess
vegna er ekkert til skiptanna á
næsta ári. Við slíkar aðstæður, þar
sem menn þurfa í raun að skipta
byrðunum á milli sín, tel ég eðlilegt
að kjarasamningarnir taki fullt til-
lit til þess og séu gerðir til tveggja
eða þriggja ára með það að mark-
miði að ná verðbólgunni niður í
það, sem gengur og gerist í ná-
grannalöndunum, og helzt niður
fyrir það. Með þeim hætti þarf að
freista þess að ná fram raunveru-
legum kjarabótum á síðari liluta
samningstímabilsins."
Fjármálaráðherra varar við því
að menn reyni að skipta á milli sín
því, sem ekki er tii, slíkt verði að-
eins til þess að kynda verðbólgubál-
ið. „Eg sé því fyrir mér að kjara-
samningarnir geti ekki snúizt um
almennar launahækkanir á næsta
ári, heldur bætt lífskjör og meiri
kaupmátt þegar til lengri tíma er
litið. í því sambandi er það auðvit-
að von okkar að við fáum erlenda
samstarfsaðila í stóriðju, sem
myndi að sjálfsögðu hjálpa okkur
í þessum þrengingum."
Friðrik iýsir sig andvígan þeirri
hugmynd að fella gengið til að rétta
hag fiskvinnsiunnar. Með því muni
innflutningsverðlag aðeins hækka,
verðbólgan æða af stað og erlendar
skuldir verða óhagstæðari. Fjár-
máiaráðherra segir að menn verði
að ræða opinskátt um að aukin
hagkvæmni, sameining fisk-
vinnslufyrirtækja og fækkun fiski-
skipa hljóti að kalla á breytingar á
byggð í landinu, þar sem stærri
byggðaeiningar styrkist.
Sjá „Þörf á breyttum hugsun-
arhætti" á bls. 10
hann telja að stofnun fiskmarkaðar
yrði að veruleika í næsta mánuði.
Stefán sagði að endanlega yrði
gengið frá kaupunum um miðja
næstu viku þegar bæjarsjóður yfír-
tæki félagið og tilnefndi nýja stjóm
þess. „Næsta skref er að þetta nýja
fyrirtæki leiti leiða til að kaupa
þrotabú Hraðfrystihúss Ólafsvíkur
og heiji þar rekstur ef það er arð-
bært, en það er ekki fullkannað. Ég
er bjartsýnn á að það takist og að
finna megi rekstrarflöt svo við getum
hafið þar rekstur í síðasta lagi í lok
nóvember," sagði Stefán.
Hann sagði sterkar líkur á að
fleiri aðilar kæmu inn sem eignar-
aðilar í félaginu. Bæjarstjórn vill
gera félagið að almenningshlutafé-
lagi og væntir þess að útgerðaraðilar
á svæðinu sameinist um að kaupa
hlut í félaginu sem leiði hugsanlega
til sameiningar, að sögn hans.
Stefán sagði ljóst að skuldastaða
bæjarins þyngdist við þessar aðgerð-
ir. „Við teljum að við getum frekar
greitt niður skuldir bæjarins ef hér
verður áfram 1.200 manna bæjarfé-
lag en ef fólksflótti vegna hráefniss-
korts leiðir til þess að bæjarbúum
fækkar niður í 700,“ sagði hann.
Stefán sagði að Landsbankinn
tæki þessum tillögum bæjarins vel
þótt eftir væri að ganga frá því við
bankann hvernig fjármögnun færi
fram. „Við erum með ákveðnar hug-
myndir í þeim efnum og reiknum
ekki með að Landsbankinn þurfi að
lána viðbótarfé. Það er verið að leita
framtíðarlausna fyrir Ólafsvík og það
er algjör einhugur innan bæjarstjórn-
ar í þessu máli,“ sagði Stefán.
ÓPERAN Otello eftir Verdi verð-
ur tekin til sýninga í íslensku
óperunni í byijun næsta árs. Um
er að ræða afmælissýningu í til-
efni þess að tíu ár eru liðin frá
því að íslenska óperan tók til
starfa í húsnæði Gamla bíós í Ing-
ólfsstræti. Þórhildur Þorleifsdótt-
ir verður leikstjóri sýningarinnar
og Robin Stapleton hljómsveitar-
sljóri.
Garðar Cortes mun syngja titil-
hlutverkið í óperunni og verður þetta
jafnframt kveðjuhlutverk hans en að
sýningum loknum mun hann halda
til Svíþjóðar þar sem hann tekur við
starfi óperustjóra í Gautaborg.
Ekki hefur verið gengið endanlega
frá öðrum hlutverkum en fyrirhugað
er að Ólöf Kolbrún Harðardóttir
syngi hlutverk Desdemónu. Enn á
eftir að ákveða hver fari með hlut-
verk Iagos, sem er þriðja stóra hlut-
verkið í óperunni.
Otello er gerð eftir leikriti Shake-
speares og var næstsíðasta óperan
sem Verdi samdi.
Hafnarfjörður:
Fundu hass og
amefetamín
Islenska óperan:
Otello á fjöl-
uiium í byrj-
un næsta árs
Mokka-kaffi á Skólavörðustíg er einn af þessum stöðum sem segja hafi. Þá er það til að þriðji ættliður fastagesta sé farinn að sækja
má að sé orðin stofnun í bæjarlífinu. Mokka hefur nú verið opið í rúm staðinn reglulega.
32 ár og til mun í dæminu að fólk hafi verið fastagestir þar frá upp-
Mjúkar línur á Mokka
Grunnur
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
BöðQlapóstur
um ollt lond
PÓSTUR oe sfM|