Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 04.10.1991, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR*4. OKTÓBER 1991 Heimsmeistaramótið í brids; Islenska liðið tryggði sér sæti í fjórðungsúrslitum W Yokohama, Japan. Frá Guðmundi Sv. HermannSsyni, blaðamanni Morgunblaðsins. ISLENSKA landsliðið tryggði sér í gærkvöldi, fyrst liða, eitt af átta sætum í úrslitakeppni Heimsmeistaramótsins í brids í Japan þótt tveir leikir séu eftir í riðlakeppninni. Þetta virtist gleðja fleiri en íslendinga því fjöldi fólks kom og óskaði íslensku spilurun- um til hamingju með árangurinn. Þorlákur og Guðmundur hafa spilað mjög vel í Japan eins og allir íslensku spilararnir. Andstæðingarnir í fjórðungs- úrslitunum ráðast af lokaröð í riðlinum. Efsta sveitin i öðrum riðlinum mætir sveit númer 4 í hinum riðlinum og áfram koll af kolli. Guðlaugur R. Jóhanns- son, einn íslensku spilaranna, sagði að íslenska liðið vildi helst mæta Hong Kong, eða B-sveit Bandaríkjanna, en annað hvort þeirra liða verður væntanlega i fjórða sæti í hinum riðlinum. „Þetta eru allt erfiðir andstæð- ingar, en við viljum ekki mæta Brasilíu, Svíum eða Pólveijum," sagði Guðlaugur. Það þýðir, að ísland verður að halda efsta sætinu í sínum riðli og því eru leikirnir tveir í dag, gegn A- sveit Bandaríkjanna og Venezu- ela, mjög mikilvægir. Hins vegar getur ísland ekki lent neðar en i 4. sæti í riðlinum, þótt liðið tapi báðum leikjum sínum 0-25. Þrír leikir voru á dagskrá í gær og fyrirfram var ljóst, að ef íslenska Iiðið tapaði þeim ekki stór væri úrslitasætið nokkuð öruggt. Það virtist þó eiga við íslendingana að þurfa að sitja á puttunum á sér og spilamennsk- an í fyrsta leiknum, gegn Egypt- um, var ekki nægilega sannfær- andi. Enda fór það svo, að leikur- inn gegn Egyptum tapaðist 11-19. Það kom þó lítið að sök því úrslit í öðrum leikjum riðils- ins gerðu það að verkum að staða íslands á toppi riðilsins hélst áfram. Guðmundur Páll Arnar- son, Þorlákur Jónsson, Guðlaug- ur R. Jóhannsson og Örn Arn- þórsson spiluðu leikinn. Annar leikurinn var gegn Ást- rölum, sem ísland vann stórt í fyrri umferð keppninnar. Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörg- ensen komu inn fyrir Guðlaug og Örn. Ástralimir voru erfíðari nú, og heppnin var einnig með þeim, að mati Jóns Baldursson- ar. Honum þótti sérstaklega blóðugt, þegar Ástralirnir fóru í alslemmu á móti honum, sem þurfti i fyrsta lagi svíningu og i öðru lagi varð sagnhafi að þvinga Jón í lokastöðinni og að auki að lesa stöðuna rétt til að vinna spilið. íslenska liðið Jiurfti því að hafa fyrir að ná jafntefli, 15-15, í leiknum. Síðasti leikur gærdagsins var gegn heimamönnum, Japönum. Guðlaugur og Örn skiptu við Guðmund og Þorlák og bæði pörin áttu þéttan leik. Jón og Aðalsteinn voru þó ekki nógu ánægðir með frammistöðuna og fannst að þeir hefðu sleppt of mörgum tækifærum til að skora stig, en spilamennska liðsins nægði samt til að vinna, 21-9. Veiku margræðu opnanirnar, sem öll íslensku pörin spila, hafa valdið andstæðingum þeirra miklum erfíðleikum. í þessu spili gegn Japan komust Jón og Aðal- steinn í 3 grönd og unnu þau þótt Japanirnir ættu fleiri punkta: N/Enginn. Norður ♦ D82 VD73 ♦ Á109874 Vestur ♦ 8 Austur ♦ K954 ♦ G106 VÁG4 ¥ K1095 ♦ G62 ♦ D ♦ KD3 ♦ G7642 Suður ♦ Á73 ¥862 ♦ K53 ♦ Á1095 Við annað borðið opnaði jap- anski spilarinn á 1 tígli í suður eftir 2 pöss. Guðlaugur doblaði og norður stökk i 3 tígla sem voru spilaðir. Guðlaugur spilaði út litlum tígli en þegar sagnhafi fann ekki tígulgosann síðar í spilinu fór hann einn niður: Vestur Norður Austur Suður Hisatomi Aðalstein-Imakura Jón n — 2 lauf Pass 2 grönd Pass 3 lauf Pass 3 grönd Opnunina á 2 laufum mátti ■ JÓN Baldursson og Tony Forrester hafa ákveðið að halda með sér sáttafund en það kastað- ist í kekki milli þeirra eftir fyrri leik íslands og Bretlands. Forr- ester gaf Jóni tvívegis ófull- nægjandi eða rangar upplýs- ingar um sagnir, og í annað skipt- ið kom til kasta keppnisstjóra og dómnefndar mótsins, eins og áður hefur komið fram, og Jón sendi Forrester tóninn eftir dómnefndarfundinn. I seinni leiknum voru þeir Jón og Forrester aftur borðfélagar og þá fór allt friðsamlega fram. nota með ýmsar veikar skipt- ingahendur, eða mjög sterka grandhendi. 2 grönd báðu um nánari upplýsingar, og með 3 laufum sagðist Aðalsteinn eiga ■ HELGI Jóhannsson forseti bridssambandsins kom að hópi Japana sem áttu í háværum deil- um. Þeir tóku honum fegins- hendi og báðu hann að skera úr ágreinings- efninu, nefnilgga hve margir Is- lendingar væru. Flestir skutu á nokkrar milljónir, en einn hafði nefnt hálfa milljón, sem þótti ekki gáfulegt. Þess má geta, að Japön- um finnst Yokohama ekki sérlega stór borg, en þar búa 3,5 milljón- ir manna. veika hendi með tígullit, þó ekki lágmark fyrir sögninni. Jón skaut þá á 3 grönd og þegar vestur spilaði út spaða, og drottningin hélt í blindum, var hálfur sigur unninn. Jón tók síðan tígulkóng, og þegar drottn- ingin kom frá austri svínaði Jón tígultíunni í blindum í næsta slag og gat lagt upp 9 slagi. Staðan í riðli ísiands eftir 12 leiki var þessi: ísland 218,25, Bretland 199, Argentína 194, Bandaríkin 179, Venezuela 166, Ástralía 158, Egyptaland 154, Japan 146. í hinum riðlinum eru Svíar efstir með 222 stig, Bras- ilíumenn hafa 208, Pólveijar 207, Bandaríkin 195 og Hong Kong 189. í fjórðungsúrslitnum eru spil- aðir 96 spila leikir og liðin sem vinna sína leiki fara áfram í undanúrslit en hin eru úr leik. Leikirnir hefjast á laugardags- morgun, klukkan 10 að stað- artíma, eða klukkan 1 aðfara- nótt laugardags að íslcnskum tíma. Spilamennsku lýkur um miðnætti eða um klukkan 3 að íslenskum tíma, og hefst aftur klukkan 11.30 á sunnudags- morgun eða um klukkan 2.30 að íslenskum tíma, aðfaranótt sunnudags. Fjórðungsúrslitun- um lýkur um klukkan fimm á sunnudag, eða um áttaleytið á sunnudagsmorgun að ’íslenskum tíma. ■ EITT sjónvarpsfréttalið fylg- ist með Heimsmeistaramótinu í brids. Það kemur alla leið frá Póllandi, og hefur þetta vakið furðu ýmsra hér, þar sem Pólveij- ar hafa oft átt í miklum erfiðleik- um með að senda keppnislið á bridsmót erlendis vegna erfiðrar fjárhagsstöðu. ■ STJÓRN Alþjóðabridssam- bandsins ætlar að ákveða á mið- vikudag hvort það verða íslend- ingar eða Kínveijar sem fá að halda heimsmeistaramótið árið 1995. Meiri lýkur eru á að Kínveijar verði fyrir valinu, en ísland fær þá nokkuð örugglega að halda mótið árið 1997. Tony Forrester Helgi Þemasýning á listaverkum Sigurðar Guðmundssonar Listasafn íslands: Bók um listamanninn gefin út NATÚRA Rómantíka er yfir- skrift sýningar á verkum Sig- urðar Guðmundssonar, sem opnuð verður í Listasafni Is- lands, laugardaginn 5. október. Sýnd eru 70 ljósmyndaverk frá árunum 1970 til 1980 auk skúlptúrs í eigu Stedelijksafns- ins í Amsterdam. Samhliða sýn- ingunni kemur út litprentuð bók um listamanninn og er ritstjóri hennar hollenski listfræðingur- inn Zsa-Zsa Eyck. Þar fjalla hollenskir og þýskir fræðimenn um list Sigurðar auk þess sem birtir eru textar eftir listmann- inn allt frá ljóðum til fyrirlestra. Á sýningunni í Listasafninu eru verk sem hafa ekki verið sýnd á íslandi áður og eru nær eingöngu í eigu erlendra safna og einka- safna. Sýningin er unnin af Lista- safninu og mun hún verða sýnd á Norðurlöndum í Malmö Konsthall, Pori Listasafninu í Finnlandi og Kunstnernes Hus í Osló. Hver sýn- ing verður með sérstöku yfir- bragði en einungis á íslandi eru emgöngu sýnd ljósmyndaverk ásamt einum stórum skúlptúr; Hið mikla ljóð. Sýningin í Listasafninu stendur Kerfistækni og System 7.0 itarlegt námskeiö um hiö byltingarkennda stýrikerfi Madntosh, y 0 nettengingar, flutning skjala á milli IBM PC og Madntosh og flest annaö sem ábyrgöarmenn Macintosh tölva þurfa aö kunna. 4r Tölvu- og verkfrœ&iþjónustan Grensásvegi 16 - flmm ár f forystu ^ Morgunblaðið/KGA við eitt verkanna, Hið mikla ljóð, á sýning- Sigurður Guðmundsson unni í Listasafni Islands. fram til 17. nóvember og er safn- ið opið alla daga nema mánudaga frá kl. 12 til 18. Bókin, Sigurður Guðmundsson, er gefin út af Mál og menningu og er hún 320 blaðsíður að stærð með rúmlega tvöhundruð myndum af vérkum hans. Þar fjalla þýskir fræðimenn um list Sigurðar, ljós- myndaverk, þrívíddarverk, grafík- myndir og hina stóru skúlptúra sem settir hafa verið upp undanf- arin ár. í íslensku útgáfunni er jafnframt birt samtal Sigurðar og Aðalsteins Ingólfssonar en hann hefur þýtt alla texta bókarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.