Morgunblaðið - 04.10.1991, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
27
Forsætisnefnd Alþingis:
Harma að stj órnarandstað-
an dæmi sig til áhrifaleysis
- segir Geir H. Haarde
STJÓRNARANDSTAÐAN tók ekki þátt í kosningu fjögurra varafor-
seta þingsins í gær. Því var einungis sameiginlegur listi stjórnarflokk-
anna lagður fram og eru því allir varaforsetar úr hópi stuðnings-
manna ríkissljórnarinnar. Asamt forseta Alþingis skipa varaforset-
arnir forsætisnefnd þingsins.
Fyrsta mál á dagskrá Alþingis í
gær var kosning varaforsetanna.
Eins og ítarlega hefur áður komið
fram í fjölmiðlum var stjórnarand-
staðan mjög ósátt við þá afstöðu
sjálfstæðismanna að gera tilkall til
að einn varaforsetanna verði úr
þeirra flokki, því ella hefði stjórnar-
andstaðan meirihluta í forsætis-
nefndinni. Alþýðuflokkurinn studdi
Sjálfstæðisflokkinn í þessari af-
stöðu. Stjómarandstaðan hafði lýst
því yfir að hún myndi engan hlut
eiga í kjöri varaforseta ef stuðn-
ingsmenn ríkisstjómarinnar héldu
þessu til streitu.
Forseti Alþingis, Salome Þorkels-
dóttir, greindi frá því í upphafi
fundar að fundi yrði frestað. Að
loknu 40 mínútna fundarhléi bað
forseti um lista. Einungis einn listi
var lagður fram; listi stuðnings-
manna ríkisstjórnarinnar. A listan-
um voru nöfn Gunnlaugs Stefáns-
sonar (A-Al), Sturlu Böðvarssonar
(S-Vl), Karls Steinars Guðnasonar
(A-Rn) og Björns Bjarnasonar
(S-Rv). Þar sem ekki voru aðrir í
kjöri eru fyrrgreindir réttkjörnir
varaforsetar Alþingis. Anna Olafs-
dóttir Björnsson (SK-Rn) kvaddi sér
hljóðs um þingsköp og lýsti harmi
yfir þessum tíðindum í þingsög-
unni, að forsætisnefndin skipaðist
eftir pólitískum styrkleika og ekki
tekið tillit til lýðræðissjónarmiða.
Nokkrar hugmyndir munu hafa
verið reifaðar manna í millum til
málmiðlunar. Að sögn Páls Péturs-
sonar, formanns þingflokks fram-
sóknarmanna, mun stjórnarand-
staðan hafa boðið til sátta að fjölg-
að yrði í forsætisnefndinni. þannig
að Kvennalistinn hefði þar fulltrúa
og sjálfstæðsmenn einnig. Sam-
kvæmt þessari tillögu hefðu stuðn-
ingsflokkar stjórnarinnar skipað
þijú sæti og stjórnarandstæðingar
þrjú. Einnig kveða þingsköp á um
'að þingforseti hafi úrslitavald ef
ágreiningur verður í nefndinni.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins taldi Össur Skarphéðins-
son, formaður þingflokks Alþýðu-
flokks, þessa hugmynd koma sterk-
lega til greina. Geir H. Haarde
(S-Rv), formaður þingflokks sjálf-
stæðismanna, sagði að sjálfstæðis-
menn hefðu ekki talið það koma til
greina; stjórnarandstaðan hefði þá
haft jafn marga fulltrúa í nefndinni
og stuðningsmenn ríkisstjórnarinn-
ar en þingstyrkur skiptist 36 á
móti 27. Þar að auki þætti sér.óeðli-
legt að breyta lögum til að leysa
mál sem þetta sem hefði legið beint
við hvernig ætti að fara með sam-
kvæmt gildandi þingskaparlögum.
Geir sagðist harma það að stjórn-
arandstaðan skyldi hafa dæmt sig
til áhrifaleysis í forsætisnefnd
þingsins með því að hafna þeim
sætum sem hún hefði átt kost á
en hann vænti þess að samstarf
yrði eigi að síður gott í þinginu og
minnti á að ákvæði þingskaparlag-
anna gerðu ráð fyrir samráði milli
forseta og formanna þingflokk-
anna.
Stuttar þingfréttir
Geislavirk mál
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
(SK-Rv) hefur lagt fram þijár
fyrirspurnir til utanríkisráðherra.
1) Um herskipakomur í íslenskar
hafnir og íslenska lögsögu. Hvaða
herskip frá þeim ííkjum á norður-
hveli sem eiga kjarnavopn, þ.e.
Bandaríkjunum, Sovétríkjunum,
Frakklandi og Bretlandi, hafa
komið til íslenskra hafna eða siglt
um íslenska lögsögu á sl. 30 árum
og livenær? 2) Um umferð kjarn-
orkuknúinna herskipa um íslensa
lögsögu. Hefur ríkisstjórnin ein-
hver áform um að banna umferð
kjarnorkuknúinna herskipa um ís-
lenska lögsögu? 3) Um notkun
kjarnakljúfa á höfum úti. Hyggst
ríkisstjórnin beita sér fyrir alþjóð-
legri viðurkenningu á nauðsyn
þess að draga nú þegar úr notkun
kjarnakljúfa á höfum úti?
Islcnsk kaupskip
Guðmundur Hallvarðsson
(S-Rv) hefur lagt fram fyrirspurn
til samgönguráðherra um ráðn-
ingu erlendra sjómanna á íslensk
kaupskip. Með hvaða hætti hyggst
samgönguráðherra sporna við því
að erlendir sjómenn séu ráðnir til
starfa á skipum í þjónustu ís-
lenskrar kauskipaútgerðar?
Hagur aldraðra
Níu þingmenn Alþýðubanda-
lagsins hafa lágt fram beiðni um
að Alþingi óski eftir skýrslu frá
heilbrigðis- og tryggingamálaráð-
herra um málefni og hag aldraðra.
Ef Alþingi samþykkir að fara fram
á þessa skýrslu er þess óskað að
hún verði tekin til umræðu svo
fljótt sem verða má. Þessi ósk
Alþýðubandalagsmanna um
skýrslugerð er á dagskrá 2. fundar
Alþingis á mánudaginn.
Sjávarútvegur utan dagskrár
Næsta líklegt er talið að sjáv-
arútvegsmál verði rædd utan dag-
skrár næstkomandi mánudag.
Fulltrúar Alþýðubandalagsins í
sjávarútvegsnefnd þingsins Jó-
hann Árssælsson (Ab-VI) og Stein-
grímur J. Sigfússon (Ab-Ne) báðu
um þessa umræðu vegna hinna
alvarlegu tíðinda um hag og horf-
ur sjávarútvegsins.
Landshlutarsamtök
sveitarfélaga
Allir þingmenn Framsóknar-
flokksins standa að lagafrumvarpi
um breytingu á sveitarstjórnarlög-
um. Frumvarpið gerir m.a. ráð
fyrir að öll sveitarfélög skuli vera
aðiiar að staðbundnum landshluta-
samtökum sveitarfélaga og að
starfsvæði þessara samtaka skuli
miða við núverandi kjördæmi.
Landshlutasamtökin skulu gera
tillögur um skipulag og uppbygg-
ingu opinberrar þjónustu og ráð-
stöfun fjárveitinga úr ríkissjóð, í
hverju kjördæmi um sig. Frum-
varpið gerir einnig ráð fyrir
byggðastjórnum og byggðaráðum.
í hveiju kjördæmi skal Byggða-
stofnun falið að hafa frumkvæði
að því að koma á fót héraðsmið-
stöðvum í samvinnu við heima-
menn. Þar skal vera aðsetur
byggðastjórnar og byggðaráðs
auk fulltrúa ýmissa opinberra að-
ila, svo sem ráðuneyta og stofn-
anna.
EES utan dagskrár
Enn fjölgar beiðnum um utan-
dagskrárumræður. Stjórnarand-
staðan í heild hefur farið fram á
utandagskrárumræðu um Evr-
ópskt efnahagssvæði, EES. Áður
var fram komin beiðni frá Guðrúnu
Helgadóttur (Ab-Rv) um að mál-
efni Lánasjóðs íslenskra náms-
manna, LÍN, yrðu rædd. Ennfrem-
ur liggur fyrir beiðni frá Kristínu
Ástgeirsdóttur (SK-Rv) um að
skólamál verði tekin til umræðu.
Fastanefndir óbreyttar
í gær var kosið í fastanefndir
Alþingis. Engar breytingar urðu á
skipan nefndarmanna frá því sem
var á síðasta þingi. Að kjörbréfa-:
nefnd frátalinni sem kosin er fyrir
allt kjörtímabilið eru fastanefndir
Alþingis tólf. í fastanefndum
þingsins eru nefndarmenn níu
nema í fjárlaganefnd þar sem þeir
eru ellefu. Stuðningsmenn ríkis-
stjórnar og stjórnarandstöðu lögðu
fram hvorir sinn listann. Ekki voru
fleiri nöfn á listunum en svo að
allir sem þar voru skráðir hlutu
kosningu.
Gert er ráð fyrir því að hver
nefnd fundi einu sinni í viku og
verða fastir fundartímar á morgn-
ana. Hefjast sumir þeirra svo
snemma sem kl. 8.15.
■ APPLE- UMBOÐIÐ heldur
þriðjudaginn 8. október nk. náms-
stefnu í Veltubæ, Skipholti 33
(gamla Tónabíó) um vinnslu og
teikninga í Macintosh-tölvum til
notkunar í auglýsingum, umbroti
o.fl. Gestur Apple-umboðsins verð-
ur sænski. auglýsingateiknarinn og
tónlistarmaðurinn Anders F.
Rönnblom en hann hefur notað
Macintosh-tölvur við auglýsinga-
gerð í 6 ár. Tilkynna þarf þátttöku
hjá Apple-umboðinu fyrir föstudag-
inn 4. október nk.
Anders F. Rönnblom.
Háskólabíó sýnir mynd
ina „Fullkomið vopn“
HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýn-
ingar á myndinni „Fullkomnu
vopni“. Með aðalhlutverk fara
Jeff Speakman og Mako. Leik-
stjóri er Mark Disalle.
Jeff á í mesta basli í skólanum
eftir að móðir hans deyr. Faðir
hans, Carl Sanders, kemur honum
til meistara Lo í þeirri von að þar
læri hann að ná stjórn á skapi sínu.
Þar lærir hann bardagalistina
Kenpo og nær frábærum tökum á
henni. Þá víkur sögunni til kóreska
hverfisins í Los Angeles. Jeff hring-
ir í gamlan vin sinn, Kim, en verð-
ur þess áskynja að eitthvað er að
og heldur því rakleitt á fund hans.
Þar eru útsendarar eiturlyfjabaróns
að reyna að þvinga Kim til að selja
eiturlyf f verslun sinni en hann
harðneitar því. En þarna er við
Hcilsuvörur
nútímáfólks
menn að eiga sem sætta sig ekki
við synjun og áður en varir kemur
risinn Tanaka til skjalanna og
myrðir Kim. Þegar lögreglan reynir
að rannsaka málið rekst hún á vegg
þagnarinnar. Sá lögreglumaður
sem hefur rannsókn málsins með
höndum er enginn annar en Adam
og þar sem Jeff blandast mjög í
málið vinna þeir bræður saman að
rannsókn málsins.
---------------
Leiðrétting
í fréttatilkynningu frá verslun-
inni CM í blaðinu í gær, fimmtudag-
inn 3. október, var annars eigand-
ans ekki getið en hún heitir Ágústa
Jónsdóttir.
Verðlaunabíllinn í nafnakeppni
Sambíóanna.
■ SÍÐASTI dagur nafnakeppni
Sambíóanna er í dag, föstudaginn
4. október. Urslit verða síðan kynnt
á útvarpsstöðinni Effemm 957 17.
október nk. Bíllinn verður afhentur
við opnunina á hinu nýja kvik-
myndahúsi.
■ FJÁRÖFL UNARNEFND
Hrunasóknar í Hrunamanna-
hreppi verður með brodd til sölu í
Miklagarði í dag, föstudaginn 4.
október, kl. 10.30.
Excelnámskeiö • Macintosh
Excel er öflugasti töflureiknlrinn fyrir Maclntosh og PCI
©
12 klst námskeiö fyrir byrjendur og lengra komnal
%
TÖJvu- og verkfrœöiþjónustan
Grensásvegi 16 -flmm ár f forystu