Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUÐAGUR 4. OKTÓBER 1991 Minning: Asdís Sigrún Guðm undsdóttir Fædd 23. febrúar 1943 Dáin 28. september 1991 Að hryggjast og gleðjast hér um fáa daga að heilsast og kveðjast það er lífsins saga. (P.J. Árdal) Það var á haustmánuðum 1986 að við komum saman nokl^rir ætt- ingjar til að leggja drög að undir- búningi fyrir ættarmót, sem halda skyldi þá um sumarið. Við frænd- fólkið sem vorum saman komin þetta kvöld þekktumst misjafnlega mikið, en áttum eftir að eiga marg- ar góðar stundir saman þá um vet- urinn við að undirbúa hið fjölmenna ættarmót sem síðan var haldið í júlímánuði. I dag kveðjum við eina úr hópn- um, Ásdísi Sigrúnu Guðmundsdótt- ur, en hún lést langt fyrir aldur fram eftir stutt en erfitt veikinda- stríð. Ásdís var dóttir hjónanna Ragn- heiðar Olafsdóttur og Guðmundar ' Hannessonar, sem bæði eru iátin. Þau eignuðust fjögur börn og var Ásdís yngst þeirra, af þeim komust tvö upp, en Ingi Ólafur bróðir henn- ar lést í blóma lífsins 25 ára. Þau ólust upp á Vesturbrautinni í Hafn- arfirði við mikið ástríki foreldra sinna. Var mjög náið samband milli þeirra mæðgna alla tíð. Ung að árum giftist hún Þórði Árelíussyni, hófu þau búskap í Kópavoginum og kom önnur okkar mikið á heimili þeirra fyrstu hjú- ’skaparárin og minnist þeirra með mikilli gleði. Ásdís og Þórður eign- uðust þijá syni, Árelíus, sem er stýrimaður, Ragnar Guðmund, við- skiptafræðing, og Inga Olaf, nema. Þeir hafa allir stofnað sín heimili og eru barnabörnin orðin þrjú. Þegar Ásdís frænka okkar er kvödd á besta aldri kemur upp í hugann hversu mikils virði það er í stórri fjölskyldu sem okkar, að haldin séu ættarmót, en þau stuðla að því að frændfólkið kynnist bet- ur, hafi tök á því að efla og styrkja ættarböndin. Þau eru ekki mörg árin sem liðin eru frá ættarmótinu í Dölunum en á þeim tíma hafa þau bæði kvatt þetta líf, Ásdís og Guðmundur fað- ir hennar. Að leiðarlokum þökkum við allar þær góðu stundir sem við áttum með Ásdísi og minnist Alla æsku- áranna með sérstakri hlýju ogþakk- læti. Innilegar samúðarkveðjur til þín Þórður og drengjanna ykkar og þeirra fjölskyldna. Blessuð sé minn- ing hennar. F.h. niðjanefndar Hannesar- ættarinnar, Aðalheiður og Sigurlaug Látin er eftir skamma en mjög erfiða sjúkdómslegu föðursystir okkar, Ásdís Sigrún Guðmunds- dóttir. 20. júlí sl. varð Ásdís fyrir slysi, er hún var á ferðalagi í Eng- landi ásamt eiginmanni sínum. Gekkst hún undir áðgerð, þar er- lendis, en skömmu eftir aðgerðina fór að síga á ógæfuhliðina með heilsu hennar. Eftir að hún var flutt á sjúkrahús hérlendis, fyrir rúmum mánuði síðan, uppgötvaðist að Ás- dís var með alvarlegan sjúkdóm. Gekkst hún undir stórar og erfiðar aðgerðir vegana þessa, en sjúkdóm- urinn hafði betur. Á þessum tíma sýndi Ásdís slíkt hugrekki og æðru- leysi að aðdáun vakti. I máli henn- ar kom fram að hún vissi hvert stefndi, en lét það ekki aftra sér í að tala um drauma sína og fjöl- skyldunnar. Elsti sonur hennar er um þessar mundir að fjárfesta í stærri fasteign og lét hún í ljós skoðanir sínar og vilja þrátt fyrir hversu helsjúk hún var. Ásdís var mjög myndarleg kona, dugmikil og nýttist það henni og fjölskyldu hennar vel á lífsleiðinni. Ásdísi var í blóð borið mikið hug- rekki í ákvörðunum og allri fram- kvæmd og því var hún vinsæll starfskraftur -þar sem hún starfaði. Ásdís hafði létta lund og var hún hrókur alls fagnaðar þar sem hún kom meðal fólks. Hafði hún þá eig- inleika að sjá hið skoplega og skemmtilega í fari fólks. Ásdís frænka var listakokkur og nutum við góðs af því er við heimsóttum liana. Heimili hennar bar vott um snyrtimennsku og góðan smekk. Ásdfs var metnaðargjörn og vildi að synir sínir gengju menntaveginn og var henni umhugað um hag þeirra. P’oreldrar Ásdísar voru hjónin Guðmundur S. Hannesson, sjómað- ur, fæddur 25. júní 1906 í Dala- sýslu, dáinn 27. apríl 1989 og Ragn- heiður Ólafsdóttir, fædd 5. júní 1909 í Hafnarfirði, dáin 1. nóvem- ber 1985. Ásdís var yngst fjögurra barna foreldra sinna, en systkini sín öll hafði hún misst. Systur hennar lét- ust sem kornabörn, Bjarney, f. 2. mars 1930, lést 1. ágúst 1930, Sig- ríður, fædd 23. desember 1933, lést 8. maí 1934. Bróðir Ásdísar, Ingi Ólafur, fæddist 9. ágúst 1937, og lést 14. nóvember 1962 aðeins 25 ára gamall. 20. október 1962 giftist Ásdís eftirlifandi eiginmanni sínum Þórði Bjarkar Árelíussyni, stýrimanni og eignuðust þau fallegt heimili. Byggðu þau sér hús á Garðaflöt í Garðabæ. Síðar keyptu þau sér rað- hús að Hlíðarbyggð 21, Garðabæ, og bjuggu þau þar síðan. Eignuðust þau Ásdís og Þórður þrjá myndar- lega drengi: Árelíus Örn, fæddur 3. júlí 1962, sambýliskona hans er Sesselja Jörgensen; Ragnar Guð- mundur, fæddur 15. febrúar 1964; og Ingi Ólafur, fæddur 9. febrúar 1972, unnusta hans erRutMagnús- dóttir. Barnabörn þeirra Ásdísar og Þórðar eru þijú. Nú er lífsbaráttu Ásdísar lokið, víst er ljúft að fá að sofna, en Ás- dís var aðeins 48 ára gömul er hún lést og er það ekki hár aldur. Við vitum að nú hefur Ásdís frænka okkar öðlast frið. Guð gefi henni góba heimkomu. Elsku Þórður, Alli, Sella, Raggi, Ingi, Rut, barnabörn og aðrir vand- amenn, megi góður Guð styrkja ykkur á sorgarstund. Guðmundur Ingi, Ragnheiður og Ingi Ólafur í dag er kvödd hinstu kveðju mágkona mín Ásdís Sigrún Guð- mundsdóttir, Hlíðarbyggð 21, Garðabæ, eftir hetjulega baráttu við ólæknandi sjúkdóm. Ásdís fæddist og ólst upp í Hafn- arfirði og voru ’foreldrar hennar hjónin Ragnheiður Ólafsdóttir og Guðmundur Hannesson, sjómaður og síðan verslunarmaður, sem bjuggu meðan Ásdís var í heima- húsum á Vesturbraut 4. Foreldrar Ásdísar eignuðust fjögur börn. Tvær dætur þeirra dóu á barnsaldri og bróður sinn missti Ásdís aðeins 25 ára gamlan, þegar hún sjálf var tvítug, og tregaði hún fráfall hans sárt og hafði söknuðurinn um hann lengi áhrif á þessa geðríku og stór- látu konu. Ásdís varð gagnfræðingur frá Flensborgarskóla 1959 og eftir það skamman tíma í Kennaraskólanum, en hætti og tók ásamt föður sínum þátt í verslunarrekstri bróður síns og _var í því afburða rösk. Ásdis giftist í október 1962 Þórði Árelíussyni veiðieftirlitsmanni og eignuðust þau þijá syni, Árelíus stýrimann, en sambýliskona hans er Sesselja Jörgenssen, Ragnar Guðmund, viðskiptafræðing, og Inga Ólaf, menntaskólanema, og er sambýliskona hans Rut Magnús- dóttir. Barnabörn þeirra eru orðin þijú. Mestan hluta búskapar síns bjuggu þau á Garðaflöt 33 sem þau ung að árum réðust í að byggja. Við húsbygginguna kom vel í ljós hve úrræðagóð og föst fyrir hún var, en það voru eiginleikar sem einkenndu líf hennar. Fyrir áratug fluttu þau sig um set að Hlíðar- byggð 21. Ásdís var ákaflega vinnusöm og fyrirhyggjusöm kona og féll henni sjaldan verk úr hendi, auk þess að sinna heimili sínu vann hún alltaf utan heimilis, nú síðast hjá verktak- afyrirtækinu Gunnari og Guðmundi sf. Vegna starfa Þórðar, sem oft var lengi fjarverandi á sjónum, kom það í hennar hlut að sjá um allt sem snéri að heimilinu, eins og títt er um sjómannskonur. Bar hún hag fjölskyldu sinnar mjög fyrir bijósti og vildi veg hennar sem mestan. Velgengni sona hennar gladdi hana mjög mikið, og reyndust þeir henni mjög vel. Hún var ákaflega ánægð með tengdadætur sínar og barna- börn. Aðdáunarvert var hve þetta unga fólk reyndist henni vel í veik- indum hennar. Að leiðarlokum vakna upp marg- ar minningar, það var oft glatt á hjalla kring um þau hjónin og hafði Ásdís mjög gaman af hvers konar mannfagnaði og var hún hrókur alls fagnaðar á slíkum stundum. Við Hildur söknum góðs vinar, sem alltaf var boðin og búin að aðstoða ef einhvers þurfti með. Fjöl- skyldu hennar sendum við innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minn- ingu hennar. Sæmundur Árelíusson Hún Ásdís frænka okkar er fallin frá, mikið er heimurinn óútreiknan- legur. Hvernig stendur á því að svo kraftmikil og ákveðin kona skuli vera hrifsuð frá okkur á svo skjótan hátt, kona sem var í blóma lífs síns. Þarna er enn einu sinni staðfest hve örlögin ráða miklu um líf hvers og 'eins í þessari veröld. Við komum oft til frænku okkar í Garðabæinn og dvöldum þar í góðu yfirlæti. Einnig kom fjölskyld- an til okkar og dvaldi hjá okkur. Það mynduðust sterk bönd milli okkar sem urðu óijúfanleg allt fram á síðustu stund hennar. Myndarskapur hennar og rausn var okkur ógleymanlegt í fjöl- skylduboðum og á gleðistundum. Alltaf fundum við hvað við vorum hjartanlega velkomin og oft var þá glatt á hjalla. Heimili hennar var alltaf hreint og strokið svo að hvergi mátti sjá ryk eða óhreinindi og allt var í röð og reglu hjá henni innan sem utan heimilisins. Hún frestaði aldrei neinu verki til morguns sem hún gat unnið í dag, í þetta lagði hún metnað sinn. Hún var ákaflega fyrirhyggjusöm ef eitthvað mikið stóð til og gaf hún sér jafnan góðan tíma til undirbúnings. Alltaf var gott að leita til frænku þegar eitt- hvað vantaði og ef um var að ræða einhveijar ráðleggingar eða eitt- hvað bjátaði á þá var enginn betri en hún til að leysa hverskonar vand- amál. Hún var sérstaklega ráðagóð og átti svo auðvelt með að finna auðveldustu lausnir á ölju. Þegar við kveðjum Ásdísi með söknuði er okkur efst í huga þakk- læti fyrir það að hafa átt með henni samleið og vitum að vel verður tek- ið á móti henni handan við hliðið. Frændfólkið Suðureyri. I dag komum við saman í Hafnar- fjarðarkirkju til að kveðja vinkonu okkar Ásdísi Sigrúnu Guðmunds- dóttur, sem andaðist í Borgarspítal- anum laugardaginn 28. september sl., eftir erfið veikindi, sem hún hefur háð baráttu við í marga mán- uði. Við höfum verið 6 saman í saum- aklúbb í 25 ár og þegar litið er til baka er margs að minnast. Börnun- um höfum við fylgst með frá fæð- ingu þeirra, barnaskólaárunum, unglingsárunum, framhaldsnámi og nú eru þau flest gift og við höfum fengið að kynnast tengdabörnunum og sagan farin að endurtaka sig, því barnabörnin ei'u tekin við. Já, þetta eru ógleymanlegar stundir. Það var alltaf gott að koma til Ásdísar enda var hún höfðingi heim að sækja. Fallegt og snyrtilegt heimili hennar, myndarskapurinn og glæsiiegt veisluborðið var til fyrirmyndar. Það var gaman að vera með Ásdísi, hún var kát og fjörug, sagði mjög skemmtilega frá, sá strax spaugilegu hliðarnar á málunum og fannst gaman í góðum félagsskap. Sumar okkar í klúbbnum hafa þekkt Ásdísi frá bernsku og var hún með okkur í Lækjarskóla og svo í Flensborg og var hún með okkur í bekka þó hún _væri einu ári yngri. Það reyndist Ásdísi ekki erfitt að fylgja þeim árgangi eftir enda var hún vel gefin og fljót að átta sig á hlutunum. Ásdís var fædd 23. febrúar 1943, dóttir hjónanna Guðmundar Hann- essonar og Ragnheiðar Ólafsdóttur. Einn bróður átti hún sem komst upp, en hann lést á þrítugsaldri eftir mikil veikindi þá nýgiftur og þriggja barna faðir. Eiginmanni hennar, Þórði Árel- íussyni, og fjölskyldu sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Saumaklúbbunnn t Konan mín, móðir og tengdamóðir, ARNDIS ÞÓRÐARDÓTTIR, Auðarstræti 17, Reykjavík, andaðist i Landspítalanum að kvöldi 2. október. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Ólafur Ólafsson, Alda Gísladóttir, Brynleifur Sigurjónsson. t Faðir okkar, MAGNÚS THORBERG andaðist í Borgarspítalanum 2. október. Þorbjörg Gyða Thorberg, Kristin Thorberg, Helga Thorberg, Gústaf Magnússon. Þetta er minning'arkort Slysavarnafélags íslands Skrifstofan sendir þau bæði innanlands og utan. Þau fást með enskum, dönskum eða þýskum texta. Sími SVFÍ er 27000. Gjaldið er innheimt með gíró. Maðurinn minn, er látinn. t BJARNI SIGURÐSSON frá Mosfelli, Aðalbjörg Sigríður Guðmundsdóttir. Sonur minn, t BALDVIN KARLSSON, Grundarhúsi 12, Reykjavík, andaðist 21. september. Jarðarförin hefur farið fram. Erla Þorsteinsdóttir. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, ELÍNAR ÓLAFS. Valgerður Guðmundsdóttir, Magni Guðmundsson, Bergljót Ólafs, Ólafur Björgúlfsson, Ástríður Ólafs, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför SVEINBJARNAR ÞÓRÐARSONAR, Ólafsbraut 30, Ólafsvík, verður gerð frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 5. október kl. 15. Systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.