Morgunblaðið - 04.10.1991, Qupperneq 43
■ir jaiav'rr }!■ lí-/u 1.'-’ii'-tfTíf rPCfíWL • «!Mt»• sivii
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1991
43
i
i
0
J
»
0
I
I
KORFUKNATTLEIKUR/ EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
Morgunblaðið/Bjarni
„STÖÐVIÐ STRÍÐIÐ í KRÓATÍll!“ Júgóslavarnir höfðu hengt þennan borða fyrir aftan varamannabekkinn hjá sér í „Ljónagryfjunni" í gærkvöldi, vegna
ástandsins í heimalandi þeirra.
Góð tilþrtf Njarðvíkinga
dugðu ekki
GÓÐ tilþrif Njarðvíkinga dugðu
skammt gegn júgóslavnesku
meisturunum Cibona frá
Zagreb í „Ljónagryfjunni" í
IMjarðvík í gærkvöldi. Cibona,
sem talið er eitt af betri félags-
liðum í Evrópu, sigraði með 35
stiga mun, 111:76 og eru Júgó-
slavarnir með þessum sigri
öruggir í næstu umferð því
ólíklegt verður að telja að
Njarðvíkingum takist að vinna
þennan mikla mun upp.
N jarðvíkingar hófu leikinn af
miklum krafti og Teitur Örl-
ygsson gaf tóninn með glæsilegri
3ja stiga körfu, en forysta Njarðvík-
inga stóð ékki lengi
Björn, því Júgóslavarnir
Blöndal voru fljótir að rétta
KeflZíF sinn hlut °S Þe&ar 6
mínútur voru liðnar
af leiknum skildu leiðir. Þá var stað-
an 16:16 og eftir það náðu heima-
menn, sem styrktu lið sitt með Sov-
étmanninum Maxím Krupatsjev frá
Snæfelli, aldrei að ógna sigri Ci-
bona. En þrátt fyrir áberandi styrk-
leikamun á liðunum náðu Njarðvík-
ingar oft að sýna stórskemmtileg
tilþrif og var leikur liðanna fyrir
bragðið hin besta skemmtun. „Ég
vissi ekkert um Njarðvíkurliðið og
það kom mér verulega á óvart með
góðum leik, sérstaklega fannst mér
leikmaður nr. 11 [Teitur Örlygssonj
góður. Það sem réði fyrst og fremst
úrslitum þessa leiks var hæðarmun-
urinn á leikmönnum liðanna og
hraðaupphlaup. í þessum atriðum
höfðum við vinninginn. Ég er án-
ægður með hvernig fór og nú mun-
um við einbeita okkur að síðari
leiknum á laugardaginn," sagði
Mirko Novosel þjálfari Cibona eftir
leikinn.
„Við náðum oft ágætum köflum
og ég er að mörgu leiti ánægður
með þessi úrslit. Menn gerðu sig
þó stundum seka um að flýta sér
of mikið og fyrir bragðið töpuðum
við boltanum of oft. Cibona er skip-
að geysisterkum leikmönnum sem
virðast geta skorað þegar þeim
dettur í hug og skiptir hæðin þá
engu máli, því tveggja metra menn
voru að leika sér að því að skora
með 3ja stiga skotum. En við mun-
um hvergi gefa eftir í síðari leiknum
og munum verða með eitthvað í
pokahorninu fyrir þá,“ sagði Friðrik
Rúnarsson þjálfari UMFN. Teitur
Örlygsson, Rondey Robinson og
Maxím Krupatsjev voru bestu menn
Njarðvíkinga en hjá Cibona bar
mest á þeim Radulovic og Cvetican-
in sem virtust geta skorað eftir vild.
Morgunblaðið/Bjarni
Rondey Robinson lék vel með liði sínu í gærkvöldi og var stigahæstur ásaml
Sovétmanninum Krupatsjev, sem íslandsmeistararnir fengu að láni frá Iið
Snæfells í Stykkishólmi.
KRINGLUKAST
UMFINI-Cibona 76:111
íþróttahúsið í Njarðvík, Evrópukeppni
meistaraliða í körfuknattleik, fyrri leikur,
fimmtudaginn 3. október 1991.
Gangur leiksins: 3:0, 3:2, 6:2, 8:9, 10:16,
16:16, 27:29, 30:36, 36:48, 40:58, 46:64,
51:72, 59:78, 66:86, 66:94, 71:101, 76:111.
Stig UMFN: Maxírn Krupatsjev 21, Rondey
Róbinson 21, Teitur Örlygsson 19, Ástþór
Ingason 8, Hreiðar Hreiðarsson 2, ísak
Tómasson 2, Friðrik Ragnarsson 2, Jóhann-
es Kristbjörnsson 1.
Stig Cibona Zagreb: Radulovic 28, Mrsik
23, Cveticanin 20, Cutura 10, Alihodzic 10,
Knego 7, Arapovic 6, Alanovic 5, Sunara 2.
Dómarar: Colin Gerrard frá Englandi og
Pascal Dorizon frá Frakklandi sem daemdu
prýðilega.
Áhorfendur: Um 300.
• Síðari ieikur liðanna í Evrópukeppninni
verður einnig í Njarðvík; á morgun og hefst
kl. 16.00.
Ikvöld
Einn leikur er á dagskrá í 1. deild
kvenna í kvöld; Ármann og Valur
mætast í Laugardalshöll kl. 18.
Vésteinn:
66.68 m
Vésteinn Hafsteinsson
VÉSTEINN Hafsteinsson,
HSK, náði áttunda besta ár-
angri í heiminum íár í kringlu-
kasti í Laugardal í gærkvöldi
— kastaði lengst 66,68 m.
Rok var í gærkvöldi og að-
stæður því góðar fyrir
kringlukastara. Árangur Vésteins
er aðeins um einum metra frá
íslandsmeti hans, sem eru 67,64
m. Metið setti Vésteinn 1989.
Pétur Guðmundsson, betur
þekktur sem .íslandsmethafi í
kúluvarpi, varð í öðru sæti með
55,70 m og Andrés bróðir hans
þriðji með 53,00 m.
Einnig var keppt í sleggju-
kasti. Þar sigraði Svíinn Juhan
Packalen með 64,52 m, annar
varð landi hans Tommy Erickson
með 59,80 m og þriðji Jón Sigur-
jónsson, sem kastaði 56,10 m.
KNATTSPYRNA
Guðni í beinni
Leikur Everton og Tottenham í
ensku 1. deildinni í knattspyrnu
verður sýndur í beinni útsendingu
á morgun í Sjónvarpinu. Leikurinn
hefst kl. 14 en útsending frá Goodi-
son Park í Liverpool fimm mín. fyrr.
Fullvíst má telja að Guðni Bergs-
son verði í liði Tottenham á morg-
un. Hann hefur leikið í stöðu hægri
bakvarðar í undanförnum leikjum;
síðast í Evrópukeppninni gegn
Hajduk Split í fyrrakvöld á White
llart Lane, er Tottenham vann tT:0
og tryggði sér sæti í 2. umferð.
HANDBOLTI
Fordæmis-
gildi?
Tveimur leikjum var frestað
í 1. umferð 1. deildar karla
í handknattleik í fyrrakvöld, eins
og greint var frá í gær; KA-Val-
ur og ÍBV-HK. KA-menn og
Vestmannaeyingar voru óhress-
ir með það. Bjarni Ákason,
formaður handknattleiksdeildai-
Vals, segir lið sitt hafa ætlað
með flugi norður, og verið til-
kynnt af flugmönnum að það
væri mögulegt, en vélinni yrði
þegar í stað flogið suður á ný -
ekki yrði beðið eftir liðinu. „Við
fórum því í það að reyna að
útvega okkur rútu til að komast
suður eftir leik, en heyrðum þá
viðvörðum Almannavarnanefnd-
ar, þar sem sagði að veðrið yrðrt
verst í sveitum norðanlands,
reiknuðum því ails ekki með að
nokkur rúta myndi fara suður.
Menn urðu að vera komnir í
vinnu hér fyrir sunnan í morgun
[gærmorgun] og svo erum við á
leið í Evrópukeppni," sagði
Bjarni — en Valsmenn fara í
bítið í dag áleiðis til Svíþjóðar,
þar sem þeir mæta Drott í Evr-
ópukeppninni á morgun og
sunnudag.
„KA-menn ættu að vera
þakklátir en ekki með læti út
af þessu. Með þessu hljótum við
að hafa iækkað rekstrarkostnað
handknattleiksdeildar KA. Ef
eitthvað er að' veðri þurfa þeir
varla lengur að koma suður upþ*^
á von og óvon um að þeir kom-
ist ekki strax norður aftur eftir
leik. Þetta hlýtur að hafa for-
dæmisgildi," sagði Bjarni Áka-
son.
URSLIT
Handknattleikur
íslandsmótið
2. deild karla, sem hófst í gærkvöldi:
ÍR-Ármann......................27:13
■Markahæstir; ÍR: Magnús Ólafsson 7,
Jóhann Ásgeirsson 5, Sigfús Orri Bollason
4. Ármann: Magnús Guðmundsson 5.
Ögri - Fjölnir.;;............. 19:zv
■Markahæstir; Ögri: Jóhann Ágústsson
8, Rúnar Vilhjálmsson 6. Fjölnir: Anton
Guðmundsson 6, Sigurður Sumarliðason 5.
Afturelding - tH.............. 26:14
■Markahæstir; UMFA: Siggeir Magnús-
son 10, Lárus Sigvaldason 4 Dagur Jónas-
son 4.1H: Jón Þórðarson 7, Ólafur Magnús-
son 3.
Knattspyrna
Evrópukeppnin
Síðari leikir í fyistu umferð:
Partizan (Júgósl.) - Gijon (Spáni) .........2:0
Mijatovic (86.), Krchmaravic (88.) Áhorf-
endur: 7.000 Samanlögð úrslit 2:2.
■Gijon vann 3:2 í vítakeppni.
AEK Aþenu - Slikoder (Albaníu)....
Papaioanou (6.), Batista (88.) Áhorfendur:
22.000. IAEK vann 3:0 samanlagt.
Öster (Svíþjóð) - Lyon (Frakkl.).....1:1
Jan Jansson (14.) Stephan Rosch (53.)
Áhorfendur: 4.628
■Lyon vann 2:1 samanlagt.
Genoa (ítaliu) - Real Oviedo (Spáni).3:1
Skuhravy (20., 89.), Caricola (73.) - Carlos
(37.) Áhorfendur: 50.000.
■Genoa vann 3:2 samanlagt.
Cannes - Salgueiros (Portúg.) ....1:0
Francois Omam-Biyik (85.) Áhorfendur:
13.000. ■Samanlögð úrslit 1:1. Cannes
vann 4:2 i vítaspyrnukeppni.