Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C/D
249. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991■Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rússland:
Vilja stofna sinn
eigin seðlabanka
Gera ráð fyrir að hann fái umráð yfir
gnll- og gjaldeyriseign Sovétríkjanna
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, hefur lagt til, að stofnaður verði
sérstakur rússneskur ríkisbanki, sem fengi umráð yfir gull- og
gjaldeyriseign sovéska alrikisins. Segist Jeltsín hafa tekið þessa
ákvörðun vegna þess, að Míkhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkj-
anna, hafi viljað auka peningamagn í umferð án þess að leita
samráðs við lýðveldin.
Hanan Ashrawi, talsmaður Pal-
estínumanna, sagði að ræða Sham-
irs ylli „skelfilegum vonbrigðum”
og Farouq al-Shara, utanríkisráð-
herra Sýrlands, sakaði ísraelska
forsætisráðherrann um að fara
rangt með staðreyndir og rangtúlka
mannkynssöguna. Hann sagði að
arabísku sendinefndirnar ættu ekki
að hefja viðræður við ísraela um
efnahagssamvinnu fyrr en ísraelar
féllust á tilslakanir til að greiða
fyrir samkomulagi um hernumdu
svæðin. Hann hafnaði einnig áskor-
un Bandaríkjastjórnar um að deilu-
aðilarnir reyndu að fínna málamiðl-
unarlausn.
Shamir lagði meðal annars til að
fyrirhugaðar samningaviðræður
Israela og araba yrðu haldnar í ísra-
el og arabaríkjunum. Fulltrúar
Jórdana, Sýrlendinga og Palestínu-
manna höfnuðu tillögunni þegar í
stað og sökuðu Israela um að hafa
brotið samkomúlag við Bandaríkja-
stjórn um að viðræðurnar færu
fram í Madrid. Bandarískur emb-
ættismaður sagði þó að ekki mætti
gera of mikið úr þessum ágrein-
ingi. „Við vorum við því búnir að
sendinefndirnar myndu setja hörð
skilyrði þannig að ræður þeirra
hingað til hafa ekki komið á óvart,”
sagði hann.
Ræða Shamirs markaði tímamót
að því leyti að fulltrúar næstum
allra arabaríkjanna hlýddu í fyrsta
skipti í 43 ára sögu ísraels á ávarp
Ieiðtoga landsins án þess að ganga
út. Forystumenn friðarhreyfinga í
ísrael tóku henni vel, sögðu að
Shamir héldi „öllum dyrum opn-
um”, en urðu fyrir vonbrigðum með
að hann skyldi ekki hafa lýst því
Að sögn rússnesku fréttastof-
unnar, RIA, hefur Jeltsín sent
rússneska þinginu tillögu þess efn-
is, að gull- og gjaldeyriseign Gos-
bank, sovéska ríkis- eða seðla-
bankans, verði látin renna til nýs,
rússnesks ríkisbanka en sam-
kvæmt fyrirhuguðum efnahags-
samvinnusáttmála sovésku lýð-
veldanna eiga þessar eignir, og
skuldirnar líka, að skiptast á milli
þeirra.
Síðastliðinn mánudag hvatti
Jeltsín til þess, að komið yrði bönd-
um á peningaframboðið en hag-
fræðingar segja, að það sé alveg
stjórnlaust. Kunni Gosbank engin
önnur ráð við fjárlagahallanum en
að prenta meira og meira af seðl-
um. Snemma í síðasta mánuði fór
Gorbatsjov fram á það við bank-
yfir að landnám gyðinga á her-
numdu svæðunum yrði stöðvað um
stundarsakir að minnsta kosti til
að greiða fyrir friðarsamkomulagi.
Sjá fréttlr af friðarráðstefn-
unni á bls. 22.
ann, að hann útvegaði 30 milljarða
rúblna upp í hallann, en hann er
talinn verða 240 milljarðar rúblna
á þessu ári.
RIA hefur það eftir Jeltsín, að
þessi bón Gorbatsjovs brjóti í bága
við efnahagssáttmálann auk þess
sem Rússar vilji tengjast hinu al-
þjóðlega efnahagslífi og því verði
þeir sjálfir að geta stjórnað pen-
ingaframboðinu.
---------------
Pólland:
Flokkur Mazo-
wieckis með
flesta þingmenn
Lýðræðissambandið, flokkur
Tadeusz Mazowieckis, fyrrum
forsætisráðherra, fékk flest at-
kvæði í þingkosningunum sem
fram fóru í Póllandi á sunnu-
dag.
Talningu atkvæða lauk í gær-
kvöldi og samkvæmt upplýsingum
þeim sem Morgunblaðið aflaði sér
í Varsjá, höfuðborg Póllands, hlaut
flokkur Mazowieckis 12,31% at-
kvæða og 62 menn kjörna. Næstir
komu fyrrum kommúnistar, sem
buðu fram undir nafni Lýðræðis-
bandalags vinstrimanna, en þeir
fengu 11,98% atkvæða og 60
menn kjörna. 460 fulltrúar sitja í
neðri deild pólska þingsins. Bilun
í tölvukerfi olli því að úrslitin voru
ekki birt fyrr en í gærkvöldi.
Reuter
Palestínumenn á Vesturbakka Jórdanar fagna ræðu eins af fulltrúum þeirra, Haidars Abdel-Shafis, á
ráðstefnunni um frið í Miðausturlöndum í Madrid í gær. Arabar út um allan heim fylgdust af athygli
með því er Abdel-Shafi hvatti Israela til að fallast á stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna.
Miðausturlandaráðstefnan í Madrid:
Skilyrði deiluaðilanna fyrir
frekari viðræðum stangast á
Agreiningur um hvar efna skuli til frekari samningaviðræðna
Madrid. Reuter.
FULLTRÚAR ísraela og araba á ráðstefnunni um frið í Miðaustur-
löndum lögðu í gær fram skilyrði fyrir frekari viðræðum, sem stöng-
uðust mjög á. Yitzhak Shamir, forsætisráðherra Israels, varaði við
því að arabar myndu hætta á að viðræðurnar sigldu í strand ef
þeir héldu til streitu kröfu sinni um að ísraelar létu af hendi land-
svæðin sem þeir hernámu í stríðinu árið 1967. Arabísku sendinefnd-
irnar lögðu hins vegar áherslu á að ekki væri hægt að semja um
varanlegan frið í þessum heimshluta nema Israelar skiluðu her-
numdu svæðunum. Þá kom upp ágreiningur um hvar efna skyldi til
fyrirhugaðra samningaviðræðna í kjölfar ráðstefnunnar.
Bandaríska tímaritið Forbes gagnrýnir Grænfriðunga:
Tryggðu hvalveiðibann með
prettum og fjárframlögum
VIRT bandarískt viðskiptatímarit, Forbes, hefur birt grein, þar
sem fram kemur hörð gagnrýni á umhverfisverndarsamtökin
Grænfriðunga og David McTaggart, fyrrverandi formann og
núverandi heiðursformann þeirra. Samtökin eru þar sögð hafa
beitt prettum og varið milljónum dala til að tryggja að Alþjóða-
hvalveiðiráðið samþykkti bann við hvalveiðum árið 1982.
Tímaritið hefur eftir Francisco
Palacio, fyrrverandi ráðgjafa
Grænfriðunga, að hann og Mc-
Taggart hafi ásamt samstarfs-
mönnum sínum fundið leið til að
fá bannið samþykkt. Þeir hafi
notfært sér fátæk ríki og nokkur
smáríki, sem höfðu nýlega öðlast
sjálfstæði, og fengið þau til að
ganga í ráðið. Samtökin hafi
greitt árgjöld vegna aðildar ríkj-
anna að ráðinu, 20-30.000 dali
(1,2-1,8 milljónir ÍSK) fyrir hvert
ríki, og einnig staðið straum af
kostnaði vegna þátttöku þeirra á
fundum þess.
Palacio segir ennfremur að for-
ystumenn samtakanna hafi skipað
sjálfa sig eða vini sína sem vís-
indamenn eða fulltrúa þessara
ríkja á fundum hvalveiðiráðsins.
Hann hafi sjálfur verið fulltrúi
St. Luciu, en hann er kólumbískur
ríkisborgari og býr í Miami í
Bandaríkjunum. Fulltrúi Antigua
var bandarískur vinur Palacios og
Panama franskur vinur
McTaggarts.