Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTBR FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
KORFUKNATTLEIKUR
Obukov
rekinn
fráVal
Tómas Holton tekur við þjálfun liðsins
VLADIMIR Obukov, þjálfara
körfuknattleiksliðs Vals, var
sagt upp störfum í gærkvöidi.
Tómas Holton, einn af leik-
mönnum liðsins, hefur verið
ráðinn þjálfari í hans stað.
Obukov tók við Valsliðinu fyrir
síðasta keppnistímabil og hef-
ur ekki náð þeim árangri í vetur
sem til var ætlast. „Obukov er fær
þjálfari, en sovéska aðferðin virðist
ekki ganga upp hjá okkur. Við erum
búnir að tapa ijórum af fyrstu sex
leikjunum og við teljum okkur vera
með allt of gott lið til þess. Það
varð því gera eitthvað og því var
þessi ákvörðun tekin,” sagði Lárus
Blöndal, formaður körfuknattleiks-
deildar Vals í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi.
Tómas Holton, sem lék með Hon-
ved í Ungveijalandi síðustu tvö ár-
in, kom aftur í herbúðir Valsmanna
fyrir þetta keppnistímabil. Hann
mun leika með liðinu jafnframt því
að þjálfa. „Við bindum miklar vonir
við Tómas sem þjálfara,” sagði
Lárus. En þetta er frumraun Tóm-
asar sem þjálfara.
Tómas Holton var í gær ráðinn þjálfari Vals. Hann mun einnig leika með liðinu.
*i
Fjórði
LIÐ ÍBK er nú efst í 1. deild
kvenna eftir sigur á íslands-
meisturum ÍS í gærkvöldi í
íþróttahúsi Kennaraháskólans.
Keflavíkurstúlkurnar hafa unn-
ið alla leiki sína og eru til alls
líklegar í vetur.
IBK-stúlkurnar byijuðu leikinn af
mikum krafti og tóku fljótlega
forystuna. Þær pressuðu stíft á
boltann og gerðu
Vanda Stúdínum erfitt fyrir
Sigurgeirsdóttir að byggja upp spilið.
skrifar Staðan í hálfleik var
28:20 fyrir ÍBK og
í seinni hálfleik juku þær forskotið
í 30 stig. Þegar átta mín. voru eft-
ir meiddist Anna María Sveinsdótt-
ir í liði ÍBK og þá náði ÍS að klóra
í bakkann. Minnkaði muninn í 15
stig. En lengra komust Stúdínur
ekki gegn sterku liði ÍBK og leikur-
inn endaði 67:52.
Pressuleikur
í Kaplakrika
á morgun
BESTU körfuknattleiks-
menn landsins verða sam-
ankomnir í Kaplakrika í
Hafnarfirði á morgun, laug-
ardag, er pressuleikur á
vegum Körfuknattleikssam-
bandsins og Samtaka
íþróttafréttamanna fer þar
fram.
Dagskráin hefst kl. 13.30
með þriggja stiga skot-
keppni, og tuttugu mín. síðar
hefst troðslukeppni. Pressuleik-
urinn sjálfur hefst kl. 14.15 og
í hálfleik verða úrslit í troðslu-
keppni og þriggja stiga keppn-
inni.
Þarna mætast landslið Is-
lands sem senn heldur í keppnis-
ferð til Bandaríkjanna og geysi-
sterkt pressulið, en í því eru t.d.
nokkrir leikmenn sem hafa verið
í landsliðinu en gátu ekki gefið
kost á sér í landsliðsferðina nú.
Auk þess eru í pressuliðinu
nokkrir útlendinga sem leika hér
á landi.
Því má bæta við að troðslu-
keppni fer fram í Kringlusporti
í Borgarkringlunni í dag, föstu-
dag 1. nóvember, kl. 16. Þar
etja kappi fimm íslendingar og
fimm útlendingar. Þar verða
einnig gefnir miðar á pressuleik-
inn í Kaplakrika.
Þiálfaranámskeió
KSÍ
Fræðslunefnd KSÍ heldur A-stigs þjálfaranám-
skeið 8.-10. nóvember og B-stigs þjálfaranám-
skeið 22.-24. nóvember nk. í fundarsal ÍSÍ í
Laugardal. Skráning er hafin á skrifstofu KSÍ,
sími 91-814444. Þátttökugjald kr. 7.500.
GÓÐ ÞJALFUN - BETRI KNATTSPYRNA
Fræóslunefnd KSÍ
íkvöld
Körfuknattleikur
Japísdeildin kl. 20:
Njarðvík UMFN - Þór Ak.
1. deild karla kl. 20:
Akranes ÍA - Reynir
Digranes UBK - ÍR
Handknattleikur
Bikarkeppnin kl. 20.30
KA-hús KA - Haukar b
1.DEILD KVENNA
Anna María Sveinsdóttir gerði 20 stig fyrir ÍBK gegn ÍS, en meiddist
þegar 8 mínútur voru eftir.
HANDKNATTLEIKUR
Rússarnir koma
Landslið lýðveldisins Rússlands í handknattleik mun koma hingað til
lands milli jóla og nýárs og leika hér þijá landsleiki við íslenska lands-
liðið. Reiknað er með að leikið verði í Reykjavík, á Akureyri og á Húsavík.
HSI hafði áður verið í viðræðum við Kóreumenn um að koma hingað
með landslið sitt á sama tíma, en af því gat ekki orðið og því var leitað
til Rússlands.
sigur ÍBK
ÚRSLIT
Skallagr.-Haukarl 17:102
Iþóttahúsið í Borgarnesi, íslandsmótið í
körfuknattleik - Japísdeildin, fimmtudaginn
31. okt. 1991.
Gangur leiksins: 4:7, 7:7, 15:13, 17:15,
37:41, 44:44, 51:48, 59:52, 65:57, 73:69,
80:75, 87:77, 117:102.
Stig Hauka: Jón Arnar Ingvason 34, Henn-
ing Henningsson 27, ívar Ásgrímsson 15,
Jón Örn Guðmundsson 8, Pétur Ingvarsson
6, Sigfús Gizurarson 4, Þorvaldur Henn-
ingsson 4, Eggert Garðarson 2, Reynir
Kristjánsson 2.
Stig Skallagríms: Maxím Kropasjev 38,
Birgir Mikaelsson 30, Hafsteinn Þórisson
15, Eggert Jónsson 18, Þórður Helgason
8, Elvar Þórólfsson 8, Gunnar Þórðarson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Helgi
Bragason.
Áhorfendur: Um 300.
A-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
KR 6 5 1 606: 517 10
UMFN 5 4 1 432: 393 8
UMFT 6 2 4 532: 553 4
SNÆFELL 6 2 4 446: 536 4
SKALLAGR. 6 1 5 491: 558 2
B-RIÐILL
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 6 6 0 611: 474 12
UMFG 6 4 2 492: 471 8
HAUKAR 6 3 3 553: 590 6
VALUR 6 2 4 536: 553 4
ÞÚR 5 0 5 393: 447 0
ÍS-ÍBK 52:67
íþróttahús Kennaraháskólans, 1. deild
kvenna í körfuknattleik, fimmtudaginn 31.
október.
Stig ÍS: Hafdís Helgadóttir 23, Kristín Sig-
urðardóttir 10, Vigdís Þórisdóttir 8, Díanna
Gunnarsdóttir 8, Ema Jónsdóttir 2, Kolbrún
Leifsdóttir 1.
Stig ÍBK: Olga Færseth 20, Anna María
Sveinsdóttir 20, Kristín Blöndal 14, Björg
Hafsteinsdóttir 10, Katrín Eiríksdóttir 5,
Elínborg Herbertsdóttir 4.
1. DEILD KVENNA
Fj. leikja U T Stig Stig
ÍBK 4 4 O 280: 182 8
ís 3 2 1 157: 137 4
l'R 3 1 2 127: 13C 2
HAUKAR 3 1 2 129: 140 2
KR 2 1 1 85: 141 2
UMFG 3 0 3 110: 153 0