Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991 Rjúpur limlestar í Borgarfirði: Bæði reið o g sár yf- ir þessu háttalagi - segir Þórunn Eiríksdóttir húsfreyja á Kaðalstöðum II TVÆR rjúpur úr hópi 20-30 rjúpna sem hafast við vetrarlangt við bæinn Kaðalstaði í Borgarfirði voru illa leiknar af skotveiði- mönnum um síðustu helgi. Ónnur þeirra svo illa leikin af skotsá- rum að hún lifði ekki daginn, en hin tórði með annan vænginn skotinn af í nokkra daga. Þórunn Eiríksdóttir, húsfreyja á Kaðal- stöðum II, segir að hún sé bæði reið og sár yfir háttalagi þeirra er þetta gerðu enda telur hún ekki heilbrigt af þeim sem skutu á rjúpurnar að skilja við þær í þessu ásigkomulagi. Ljósmynd/Kristján Soffaníasson Rjúpan sem vængurinn var skotinn af lifði þannig í nokkra daga. „Það hefur verið hópur af ijúp- um sem dvalið hefur í tijárækt- inni við bæ okkar nú nokkra und- anfarna vetur og þetta eru alveg yndislegir og elskulegir fuglar,” segir Þórunn. „Nú í vetur hafa tjúpurnar verið alveg dauðspakar og hafst við eiginiega undir hús- veggnum hjá okkur. Og það hefur greinilega verið skotið á þennan hóp þrátt fyrir að stórt skilti hér við veginn segi að stranglega sé bannað að skjóta fugla á túnum Kaðalstaðabæjanna.” í máli Þórunnar kemur fram að ijúpnahópurinn komi í tijá- ræktina við bæinn í september, skömmu áður en veiðitíminn hefst, og haldi sig þar frameftir vetri en hverfi á brott er byijar að vora. „Okkur hér á bænum þykir orðið ákaflega vænt um þessa fugla enda eru þeir nær jafnspakir og heimilshænsni," segir Þórunn. „Það var því mjög sárt að sjá tvær af þessum ijúpum jafnilla leiknar og raun bar vitni en við höfum engar upplýsingar um hveijir voru þama að verki.” Meitilinn: Hlutafjárút- boð framlengt um mánuð STJÓRN Meitilisins í Þorláks- höfn hefur ákveðið að fram- lengja 150 milljóna króna hluta- fjárútboð sitt um einn mánuð. Utboði þessu átti að ljúka í dag, 1. nóvember. Marteinn Friðriksson, stjórnar- formaður Meitilisins, segir að á þeim mánuði sem liðinn er frá því að hlutaíjárútboðið hófst hafi ekk- ert nýtt hlutafé komið inn í fyrir- tækið. Framlenging útboðsins er hins vegar gert að beiðni hluthafa sem telja líkur á að nýtt fé náist inn á næstunni. Þótt reksturinn á Meitlinum hafi verið erfiður á síðustu árum hefur vinnsla í fyrirtækinu verið í fullum gangi allt þetta ár. Aðspurður um hvað gerist ef ekki tekst að ná inn nýju hlutafé segir Marteinn að hann geti ekki á þessari stundu spáð um slíkt. VEÐUR I DAG kl. 12.00 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 f gær) VEÐURHORFUR í DAG, 1. NÓVEMBER YFIRLIT: Um 250 km vestur af írlandi er víðáttumikil 970 mb. lægð, sem grynnist en hreyfist lítið. SPÁ Norðaustan átt, gola og kaldi. Rigning eða súld á Norður- og Austurlandi en að mestu þurrt sunnanlands og vestan. Hiti-4-10 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Vaxandi norðaustan átt, rigning eða slydda á Norður- og Austurlandi en þurrt suðvestan til. Hiti rétt yfir frostmarki norðvestanlands en allt að 10 stig á Suðausturlandi. HORFUR Á SUNNUDAG: Hvöss norðan- og norðaustan átt. Snjó- koma eða éljagangur á norðanverðu landinu en skýjað með köflum syðra. Kólnandi veður. Svarsími Veðurstofu (slands — Veðurfregnir: 990600. TAKN: Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað y, Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * /■»/■» Slydda / * / * * * * * * » Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir # V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súld OO Mistur —|- Skafrenningur Þrumuveður / VEÐUR IfÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 5 skýjað Reykjavík 9 léttskýjað Bergen 10 skýjað Helsinki 8 alskýjað Kaupmannahöfn 5 skýjað Narssarssuaq x0 léttskýjað Nuuk 2 rigning Ósló 5 rigning Stokkhólmur vantar Þórshöfn 6 skýjað Algarve 20 léttskýjað Amsterdam 9 mistur Barcelona 16 þokumóða Beriin 3 helðskirt Chicago 6 súld Feneyjar S þokumóða Frankfurt 4 mistur Giasgow 7 rigning Hamborg 3 skýjað London 13 alskýjað Los Angeles 10 heiðskírt Lúxemborg S þoka Madríd 13 mistur Malaga 19 mistur Mailorca 21 skýjað Montreal 7 hálfskýjað NewYork 12 alskýjað Orlando vantar París 9 alskýjað Madeira 21 léttskýjað Róm 13 þokumóða Vín 4 léttskýjað Washington 10 skýjað Winnipeg +15 léttskýjað Neyðarhnappur forðar eldsvoða TALIÐ er að neyðarhnappur hafi forðað því að ekki hlaust af slys þegar eldur kom upp á miðvikudagskvöldið í íbúð sem er í bygg- ingu Samtaka endurhæfðra mænuskaðaðra við Sléttuveg. íbúinn, sem er fatlaður, gat gert öryggisverði frá Securitas viðvart með því að senda boð með neyðarhnappi sem er tengdur stjórnstöð öryggisgæsl- unnar en íbúðin var þá að fyllast af reyk, að sögn Hannesar Guðmundssonar, framkvæmdastjóra Securitas. Tókst öryggisverðinum fljótlega að kæfa eldinn sem kom upp í eld- húsi. Kona sem var gestkomandi í íbúðinni hafði verið við elda- mennsku en þurfti að bregða sér frá og kviknaði þá í út frá pönnu. íbúinn var rúmliggjandi og sendi boð til Securitas þegar reykur barst um íbúðina. Þegar öryggisvörurinn kom á staðinn var konan komin aftur og hafði reynt að sketta vatni á eldinn en við það gaus eldurinn upp og var íbúðin að fyllast af reyk. Öryggisverðinum tókst strax að kæfa eldinn og þurfti ekki að kalla til slökkvilið. Engar verulegar skemmdir urðu af völdum reyksins. Þrír slösuðust í árekstri vegna framúraksturs Þrír menn slösuðust í hörðum árekstri á Kjalvegi, skammt frá síjóm- búðum Blönduvirkjunar í gær. Areksturinn er rakinn til framúrakst- urs. Einn mannanna var fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Borgarspítalann. Hann var mikið brotinn en ekki talinn í bráðri lífs- hættu, að sögn lögreglu. Slysið varð í brekku. Sendibíl var ekið upp brekkuna en Skoda-bíl á leið niður var ekið fram úr öðrum bíl og framan á sendibílinn. Þeir þrír sem í Skodanum voru slösuð- ust allir, farþegi í framsæti mest. Hinir lágu í gær á sjúkrahúsinu á Blönduósi, skornir og vankaðir, að sögn lögreglu. Ökumann sendibíls- ins sakaði ekki að ráði. Mornunblaðið/Sverrir Danskir dagar hófust ígær Danskir dagar hófust í öllum verzlunum Miklagarðs í gær. Þeir munu standa til 9. nóvember. Á boðstólum verða á annað hundruð danskar vörutegundir og auk þess verða margvíslegar uppákomur alla daga. Það var V. Villardsen, sendiherra Danmerkur á íslandi, sem klippti á borða og opnaði þar með dönsku daga. Viðstaddir voru fjölmargir gestir, þeirra á meðal Markús Örn Antonsson borgarstjóri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.