Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991 ALLT fyrirGLUGGANN úrval, gæöi, þjónusta <0>-gardínubrautir eftirrnáli meö úrvali af köppum í mörgum litum. Ömmustangir, þrýsti- stangir, gormar o.fl. Sendum í póstkröfu um land allt. <12 Einkaumboð á íslandi Síðumúla 32 - Reykjavík Sími: 31870 -688770 Tjarnargötu 17 - Keflavík Sími 92-12061 Glerárgötu 26 - Akureyri Sími 96-26685 líGrænt númer: 99-6770 felk í fréttum HNEYKSLI Fegurðardrottning gómuð berfætt með giftum karli! Þú svalar lestrarþörf dagsins _ ásjöum Moggans! Ungfrú Lu Shung Fang, nýlega krýnd ungfrú Taiwan var í vikunni svipt titlinum og keppir því ekki til úrslita í Ungfrú Heimur-keppninni sem fram fer í Lundúnum í næsta mánuði. Lin Chan Chieh, 23 ára gömul verður því fulltrúi kín- verska alþýðulýð- veldisins. Þetta var meiri háttar hneyksli, en Lu var gefið að sök að hafa verið gómuð inn á hót- elherbergi með giftum manni og berfætt í þokka- bót! Chang Wen Zhe, fram- kvæmdastjóri fegurðarsam- keppninnar í Kína sagði að það þætti öllum hlut- aðeigandi miður að grípa til slíkra ráða að svipta Lu titlinum, en það mætti ekki hinn minnsti skuggi falla á ungfrú Kína og það væri ekki til siðs í Kína að kvenfólk væri berfætt á hótelherbergjum, hvað þá í tygjum við gifta karla. Lu er sögð þrumu lostin og niðurbrotin stúlka. Hún full- yrðir að karlinn í herberginu hafi skrökvað sig fulla, hann hefði sagst vera ein- hleypur og lofað henni gulli og grænum skógum. Því var Lu gripin, að eiginkona um- rædds karls, sem er sagður auðug- ur kaupsýslu- maður, hafði ráð- ið einkaspæjara Lu er nú ekki lengur gjaldgeng. til að fylgjast með STÓRKOSTLEG HATÍÐ í Háskólabíói laugardaginn 2. nóvember kl. 15.00 Skólakór Kársness Stjórnandi: Þórunn Björnsdóttir Dómkórinn Stjórnandi: Marleinn H. Friðriksson Karlakórinn Fóstbræður Stjórnandi: Arni Harðason Kór Öldutúnsskóla Stjórnandi: Egill Friðleifsson Kór Langholtskirkju Sljórnandi: Jón Stefánsson Karlakór Reykjavíkur Stjórnandi: Friðrik S. Kristinsson Kynnir: Baldvin Halldórsson Miðar seldir í Hljófæraverslun Poul Bernburt;. Tónasttíðinni Óðinsgtítu 7. og i Háskólabíói. ALLUR ÁG0DI RENNUR í HÚSBYGGINGASJÓÐ FELAGSÍSLANDS ferðum hans þar sem hún treysti honum svona rétt mátulega og ætlaði ekki að láta hann komast upp með neitt. Hún féllst á dóm- sátt gegn því að Lu greiddi sér 37.000 dollara. Taiwan sendi keppendur til al- þjóðlegra fegurðarsamkeppna árið 1988 , eftir 23 úti í kuldanum. Yfírvöld á eyjunni tóku fýrir þátt- töku stúlkna sinna árið 1965, eft- ir að fulltrúi Taiwan í Ungfrú Al- heimur-keppninni það árið gerði sér lítið fyrir og gerðist fatafella á náttklúbbi í Los Angeles í stað þess að hverfa heim til fjölskyldu og náms í lok keppninnar. HARKA De Niro harð- ur í horn að taka Þótt Robert De Niro viti ekki aura sinna tal eins og títt er um hina þekktari kvikmynda- leikara þá er ekki þar með sagt að honum sé nokk sama í hvað seðlunum er sólundað. Fyrir skömmu var hann samt vinum sínum að sumbli á veit- ingahúsi í New York. Sat hóp- urinn um hríð og þjónn nokkur lagði sig allan fram um að gera fólkinu til hæfís. De Niro var mjog ánægður með það og þegar _______________ fólkiö kvaddi, Robcrt De Niro. skyldi De Niro eftir 5.000 krón- ur í þjórfé. En er hann var í fatahenginu sá hann að ókunnur maður nokkur stóð upp, gekk rakleiðis að borðinu, snaraði peningunum í vasann og gekk hratt á dyr, í sömu mund og þjónninn kom aðvífandi til að hreinsa til á borðinu. Ekki líkaði De Niro það sem hann sá og þrátt fyrir að þjófurinn væri bæði yngri og þreklegri heldur en hann sjálfur, hljóp hann eins og fætur toguðu á eftir kappan- um, náði honum, snéri hann nið- ur og tók af honum peningana! Gekk síðan til baka og kom seðl- unum í réttar hendur. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Þorbergur Halldórsson og Hulda Marinósdóttir eiginkona hans. LISTIÐNAÐUR Gullsmiðja og gallerí Fyrir skemmstu opnaði Þorberg- ur Halldórsson gullsmiður verslun og verkstæði á Skólavörðu- stíg undir nafninu G15. í kjallara hússins opnaði hann um sama leyti galleríið G15. Þorbergur lærði hjá Oskari Kjartanssyni hér á landi og útskrifaðist frá Gullsmíðaháskólan- um í Kaupmannahöfn í vor, en við það tækifæri nældi hann sér í verð- laun Margrétar Þórhildar Dana- drottningar, Kunsthaandværker- prisen. Einnig hefur Þorbergur numið við Schuola Lorenzo di Medici í Flórens á Italíu. Þorbergur sagði ástæðu þess að hann setti upp gallerí samhliða gullsmiðju vera þá að að hans mati hafi lengi vantað lítinn sýningarsal þar sem hægt væri að sýna verk og hönnun gull- smiða. „Þó gullsmíðar verði í aðal- hlutverki, verður einnig boðið upp á sýningar sem tengjast öðrum hönnunar og listgreinum, t.a.m. grafískri hönnun, arkitektúr, iðn- hönnun, málverki, skúlptúr, ljós- myndun og fleiru.” Fyrstur sýndi í Galleríinu Jón Axel Björnsson smámyndir ýmissar gerðar. Þorbergur, Jón Axel Björnsson og Sigurður Halldórsson arkitekt, sem hannaði innviði verslunarinnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.