Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 32
m M0RGUNBLAEH© 'FÖaTOÐA'GUR & INÓIVEMBBR 1391,' ATVINNU AUGL YSÍNGAR Framkvæmdastjóri Fiskmarkaður Breiðafjarðar hf. óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu og menntun á sviði markaðs- og viðskiptamála og að viðkomandi geti hafið störf strax. Umsóknarfrestur er til 7. nóvember. Umsóknum skal skilað skriflega til Viðskipta- þjónustunnar sf., Ennisbraut 1, Ólafsvík. Bókhald - skrifstofustarf Innflutningsfyrirtæki óskar eftir að ráða starfskraft til framtíðarstarfa við tölvubók- hald (Alvís) sem fyrst. Starfið er fólgið í skráningu og uppgjörs- vinnslu ásamt öðrum almennum skrifstofu- störfum. Verslunarmenntun æskileg, svo og einhver starfsreynsla. Umsóknir sendist auglýsingardeild Mbl., merktar: „Bókhald - 11066.” Lögreglumenn óskast Lausar eru til umsóknar nokkrar lögreglu- þjónsstöður í Keflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýslu. Skilyrði er að umsækjendur hafi lokið námi frá Lögregluskóla ríkisins. Umsóknareyðublöð fást hjá yfirlögregluþjóni, Lögreglustöðinni í Keflavík, er veitir nánari upplýsingar um starfið. Umsóknarfrestur er til 15. nóvember nk. Lögreglustjórinn íKeflavík, Grindavík, Njarðvík og Gullbringusýslu, Jón Eysteinsson. Matsvein vantar á Vísi SF-64 sem er á dragnót. Upplýsingar í síma 97-81593 eða í farsíma 985-20643. Kerfisfræðingur /operator Þjónustustofnun óskar eftir að ráða kerfis- fræðing til starfa. Vinnuumhverfi verður í Unix-stýrikerfi með gátt til SKÝRR. Leitað er að aðila, sem hefur kerfisfræði- menntun og getur jafnframt sinnt stjórnun á vélbúnaði. Þekking á Adabas/Natural er æskileg, þó ekki nauðsynleg. Þekking á kerf- um, sem vistuð eru í SKÝRR, er einnig æski- leg. Viðkomandi þarf jafnframt að vinna við ýmsa aðra gagnagrunna. í boði er góð vinnuaðstaða, áhugaverð verk- efni og góð laun fyrir réttan aðila. Umsóknir er tilgreini aldur, menntun, fyrri störf og annað sem máli kann að skipta sendist auglýsingadeild Morgunblaðsins fyrir 8. nóvember nk. merktar: „PF - 3407". Með allar upplýsingar verður farið sem trún- aðarmál. KENNSLA Gítarkennsla Nú getur þú lært á gítar í gegnum bréfa- skóla. Bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Námskeið í rokk og blús hefjast í hverri viku. Upplýsingar í síma 91-629234. GEYMIÐ AUGLÝSINGUNA. Félag íslenskra gítarleikara. 50 fm, 30 fm og 16 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði við Eiðistorg er til leigu strax. Upplýsingar í síma 813311 á skrifstofutíma. knattspyrnudeild Aðalfundur Aðalfundur knattspyrnudeildar K.R. verður haldinn í félagsheimili K.R. við Frostaskjól í kvöld kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Iðnþróunarfélag Kópavogs heldur aðalfund fimmtudaginn 14. nóvember kl. 20.00 í Félagsheimili Kópavogs, 2. hæð. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins um aðalfund. Lagabreytingar. Framsóknarvist verður spiluð nk. sunnudag, 3. nóvember, kl. 14.00 í Danshúsinu, Glæsibæ, Álf- heimum 74. Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna. Haraldur Ólafsson lektorflyt- ur stutt ávarp í kaffihléi. Aðgangseyrir kr. 500. Kaffiveitingar innifaldar. Framsóknarfélag Reykjavíkur. EES-samningar Góðir eða slæmir? Framsóknarfélögin í Reykjavik, ásamt S.U.F., gangast fyrir opnum hádegisverð- arfundi um EES-samningana á Hótel Lind í dag, föstudaginn 1. nóvember, kl. 12.00. Frummælandi verður Jón Baldvin Hanni- balsson, utanrikisráðherra, sem jafnframt mun svara fyrirspurnum. Á fundinn mun einnig mæta Bjarni Einars- son, stjórnarmaður í Samstöðu um óháð ísland. Léttur hádegisverður á kr. 800. F.F.R. og S.U.F. Síldarkvóti Vil láta síldarkvóta í skiptum fyrir bolfisk- kvóta. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. fyrir 6. nóvember merkt: „Síldarkvóti - 9617". Nauðungaruppboð á eftirtöldum eignum fer fram í skrif- stofu embættisins, Hörðuvöllum 1, þriðjudaginn 5. nóv. ’91 kl. 10.00: Dynskógum 18, Hveragerði, talinn eigandi Guðmundur Sigurðsson. Uppboðsbeiðandi er Byggingasjóður ríkisins. EDISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Kópavogsbúarathugið Laugardaginn 2. nóvember verða þeir Guðni Stefáns- son, bæjarfulltrúi og formaður bygginga- nefndar, og Jón Kristinn Snæhólm, varafulltrúi og vara- formaður umhverf- isráðs, til viðtals í Hamraborg 1, 3. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Kópavogsbúar eru hvattir til að mæta. Heitt á könnunni. Sjálfstæðisfélögin í Kópavogi. Vélritunarkennsla Morgunámskeið byrjar 4. nóv. Vélritunarskólinn, sími 28040. I.O.O.F. 12=17311018Vz=9.ll Frá Guðspeki- félaginu Ingólfsstræti 22. - Áskriftarsfml Ganglora er 39573. í kvöld kl. 21.00 flytur Guðlaugur Bergmann erindi, „Nú er tími til aö vaknal", í húsi félagsins, Ing- ólfsstræti 22. Á morgun, laugardag, er opið hús frá kl. 15.00 til kl. 17.00 með stuttri fræðslu og umræðum kl. 15.30. Allir eru velkomnir og aögangur ókeypis. Kirkjuvegi 2, Stokkseyri, þingl. eigandi Júlíus Geirsson. Uppboðsbeiðandi er Byggingasjóður ríkisins. Oddabraut 24, n.h., Þorlákshöfn, þingl. eigandi Hjörtur B. Jónsson. Uppboðsbeiðandi er Byggingasjóður ríkisins. Syðri-Brú, Grímsneshr., þingl. eigandi Guðmundur Snæbjörnsson. Uppboðsbeiðendur eru Stofnlánadeild landbúnaðarins og Ævar Guð- mundsson hdl. Þelamörk 5, Hveragerði, þingl. eigandi Högni J. Sigurjónsson. Uppþoðsbeiðendur eru Byggingasjóður ríkisins, Guðmundur Péturs- son hdl. og William Th. Möller hdl. Þóruhvammi, Ölfushr., þingl. eigandi Tómas A. Tómasson. Uppboðsbeiðandi er Björn Jónsson hdl. Annað og síðara, miðvikudaginn 6. nóv. '91 kl. 10.00: Fiskeldisstöð Bakka I, Ölfushr., þingl. eigandi Vatnarækt hf. Uppboðsbeiðendur eru Jón Kr. Sólnes hrl., Guðjón Ármann Jónsson hdl., Gjaldheimtan í Reykjavík, Jón Magnússon hrl. og Eggert B. Ólafsson hdl. Sólvöllum, Stokkseyri, þingl. eigandi Edda Hjörleifsdóttir. Uppþoðsbeiðendur eru Jóhannes Ásgeirsson hdl. og Byggingasjóður ríkisins. Sýslumaðurinn i Árnessýslu. Bæjarfógetinn á Selfossi. I.O.O.F. 1 = 1731118V2 = Samvera fyrir fólk á öllum aldri í kvöld í Suðurhólum 35. Bænastund kl. 20.05. Samveran hefst kl. 20.30. Lofgjörð. Vitnisburður: Pétur Ásgeirsson. Opinn deildarráðs- fundur. Ungt fólk á öllum aldri velkomið. QlúimsT HALLVEIGARSTÍG 1 • REYKJAVÍK • SÍMI 14806 Dagsferðir sunnud. 3. nóv. Kl. 10.30: Póstgangan 22. áfangi Hraungerði - Selfoss - Kotferja. Kl. 13.00: Skálafell á Hellisheiði Sjá nánar í laugardagsblaði. Sjáumst! Útivist. Metsölubloð á hverjum degi!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.