Morgunblaðið - 01.11.1991, Blaðsíða 36
;tt r ffla'Mrmjtf .í m&Myt&in ®e/.ja'/r/oííiOM
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991’
+
Maðurinn minn,
INGÓLFUR GUÐMUNDSSON,
Litla-Kambi,
Breiðavíkurhreppi,
varð bráðkvaddur 30. október.
Guðrón Jóhanna Eggerz.
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum að kvöldi 30. október.
Lára Herbjörnsdóttir, Ásgeir Ármannsson,
Guðbjörg Vilhjálmsson, Guðmundur Vilhjálmsson.
+
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÍSAK EYLEIFSSON
fisksali,
Lyngbrekku 12,
Kópavogi,
lést 31. október.
Guðrún Elísabet Vormsdóttir,
Sigríður ísaksdóttir,
Baldvin ísaksson, Ingibjörg Hjaltadóttir
og barnabörn.
+
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
INGIMAR FINNBJÖRNSSON
útgerðarmaður,
Hnífsdal,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu, ísafirði, 26. október sl.
Jarðarförin fer fram frá Hnífsdalskapellu laugardaginn 2. nóvem-
ber kl. 14.00.
Börn, tengdabörn
og barnabörn
+
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ALDÍS BJARNARDÓTTIR,
Grænuvöllum 3,
Selfossi,
lést í Landspítalanum að morgni miðvikudagsins 30. október.
Jarðarförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 9. nóvember
kl. 13.30.
Óskar Þór Sigurðsson,
Örn Óskarsson, Kristín Runólfsdóttir,
Úlfur Óskarsson, Signhildur Sigurðardóttir,
Hrafn Óskarsson, Kristrún Gisladóttir,
Gerður Óskarsdóttir, Gunnar Sigurgeirsson,
Þrúður Óskarsdóttir,
Hreinn Óskarsson, Guðný Birgisdóttir
og barnabörn.
+
Maðurinn minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓHANN KR. KRISTJÁNSSON,
Lindargötu 22c,
Siglufirði,
verður jarðsunginn frá Siglufjarðarkirkju laugardaginn 2. nóvem-
ber kl. 14.00.
María Benediktsdóttir,
Sigurbjörn Jóhannsson, Ása Jónsdóttir,
Jóhanna B. Jóhannsdóttir, Guðmundur H. Hagalin,
Una Ásgeirsdóttir, Einar Einarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNIÞORVALDSSON
fiskmatsmaður,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 2. nóvember
kl. 14.00.
Ingibjörg Guðnadóttir, Sverrir Jóhannsson,
Andrea Guðnadóttir, Kristján Jóhann Agnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minning:
Þóroddur Hreins-
son, Hafnarfirði
Fæddur 27. maí 1900
Dáinn 22. október 1991
Þóroddur Hreinsson húsa- og
húsgagnasmíðameistari í Hafnar-
firði er látinn. Hann lést á Sól-
vangi þriðjudaginn 22. október sl.
Þóroddur var velkunnur öllum
eldri Hafnfirðingum af verkum sín-
um á vettvangi hafnfirskra iðn-
aðarmanna, fyrir störf sín í góð-
templarareglunni og að bindindis-
málum, og síðast en ekki síst fyrir
stuðning sinn við jafnaðarstefnuna
og þátttöku sína í baráttunni fyrir
brautargengi Alþýðufiokksins og
velferðarþjóðfélagi íslenskrar jafn-
aðarstefnu.
Þóroddur var fæddur 27. maí
árið 1900 í Kvíarholti í Holta-
hreppi. Foreldrar hans voru hjónin
Hreinn Þorleifsson bóndi þar og
kona hans, Þórunn Sigurðardóttir.
Til Hafnaríjarðar kom Þóroddur
árið 1920 og hóf þá smíðanám hjá
Dverg hf. Hann hefur dvalið í
Hafnarfírði alla tíð síðan eða í rúm-
lega 70 ár. Níu árum eftir komu
sína til Hafnarfjarðar kvæntist
Þóroddur Friðsemd Guðlaugsdótt-
ur, sem ættuð var úr Hafnarfírði,
dóttir hjónanna Halldóru Magnús-
dóttur og Guðlaugs Jónassonar.
Friðsemd var sjö árum yngri en
Þóroddur, fædd 15. júní 1907.
Konu sína missti Þóroddur 13.
ágúst 1958 og varð þeim engra
barna auðið.
Þóroddur Hreinsson var vandað-
ur og velvirkur smiður, traustur
og farsæll í öllum verkum. Hann
var ágætlega menntaður í iðn-
greinum sínum og var með meist-
araréttindi bæði í húsasmíðum og
húsgagnasmíði. Margir þekktir
iðnaðarmenn í Hafnarfírði nutu
tilsagnar hans og lærðu fræði sín
og handleiki hjá Þóroddi. Ég nefni
menn eins og Jónas 0. Hallgríms-
son, Stefán Rafn, Sigurbjart Vil-
hjálmsson og Vigfús Sigurðsson,
allt valinkunnir sómamenn og góð-
ir merkisberar hafnfírskra iðnaðar-
manna.
Þóroddur Hreinsson bar málefni
iðnaðarmanna í Hafnarfírði mjög
fyrir brjósti og var áhugasamur
um hagsmunamál þeirra og virð-
ingu. Hann var heiðursfélagi í Iðn-
aðarmannafélagi Hafnarfjarðar.
Það segir sína sögu um störf Þór-
odds á þessum vettvangi. Á þriðja
tug þessarar aldar sáu hafnfirskir
iðnaðarmenn um að reisa Hótel
Þrastarlund og var Þóroddur
Hreinsson forystumaður og stjórn-
andi í þeim hópi. Hótel Þrastar-
lundur var timburhús á steyptum
grunni og þótti sérstaklega fallegt
hús og vandað og ber smiðum sín-
um fagurt vitni. Örlög þessa fal-
lega húss urðu það að það brann
á stríðsárunum.
Þóroddur Hreinsson var formað-
ur í Iðnráði Hafnarfjarðar 1937-
1941. Hann tók við formennsku
af Emil Jónssyni, sem verið hafði
formaður ráðsins frá stofnun þess
árið 1929. Verksvið iðnráðs var
m.a. að vera iðnaðarmönnum til
ráðuneytis um mál þeirra og einn-
ig áttu þau að vera sveitarstjórnum
og lögreglustjórum til aðstoðar,
þegar um málefni iðnaðarmanna
var að ræða. Ennfremur átti iðnráð
að hafa eftirlit með því, að lögum
um iðju og iðnað væri framfylgt.
Allar iðngreinar áttu fulltrúa í iðn-
ráði. Formennska Þórodds í Iðn-
ráði Hafnarfjarðar sýnir vel það
traust sem hann naut meðal iðnað-
armanna í Hafnarfirði.
Þóroddur Hreinsson var áhuga-
samur um þjóðfélagsmál og lét sig
þau skipta. Hann sveið undan mis-
réttinu sem hann sá í samfélaginu
í kring um sig. Hann vildi eiga
hlut að því að koma á auknum
jöfnuði og réttlæti ásamt öryggi
hinna verst settu í þjóðfélaginu.
Þóroddur Hreinsson gerði sér
snemma ljóst hvílíkur vágestur
áfengisneyslan var í þjóðfélaginu,
hvernig hún víða eyðilagði fjöl-
skyldur og stefndi öryggi þeirra í
voða. Hann var því ákveðinn bind-
indismaður og félagi í góðtempl-
arareglunni. Hann starfaði í stúk-
unni Daníelsher nr. 4. og var þar
félagsmaður allt til æviloka. Þar
innti hann af hendi trúnaðarstörf
af sömu kostgæfni og annars stað-
ar þar sem hann fór.
Þóroddi lá það í augum uppi að
bindindisstarfsemi og jafnaðar-
stefna á samleið eftir götunni fram
til betra og réttlátara þjóðfélags,
fram til öryggis og hamingju fjöl-
skyldna og heimila.
Þóroddur Hreinsson gekk ungur
+
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför
JÓHANNESAR GUÐMUNDSSONAR,
Heiðarási 10,
Reykjavík.
Ásbjörn Jóhannesson, Elin Aðalsteinsdóttir,
Jóhannes Ásbjörnsson.
+
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og jarðarför föður okkar,
ODDS J. TÓMASSONAR
málarameistara.
Sérstakar þakkir til starfsfólks vistheimilisins Víðinesi.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við fráfall
GÍSLAS. MAGNÚSSONAR
sjómanns,
22. október sl. Bálför hefur varið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Elva Gunnarsdóttir,
börn og barnabörn.
jafnaðarstefnunni á hönd og skip-
aði sér í sveitir hafnfirskra jafn-
aðarmanna. Hann var ódeigur að
hveiju sem hann gekk og var í
fylkingarbrjósti ungra jafnaðar-
manna í Hafnarfirði strax á árdög-
um þess félags. Þannig var hann
t.d. einn af sex ræðumönnum Fé-
lags ungra jafnaðarmanna í Hafn-
arfirði í kappræðufundi við Stefni,
félag ungra sjálfstæðismanna, árið
1930. Þóroddur þótti alla tíð vera
vel máli farinn og fylgja máli sínu
fast eftir.
Víða tók Þóroddur til hendi í
málefnum þeim sem Alþýðu-
flokkurinn bar fyrir brjósti og bil-
aði þá hvorki hugur né hönd. Gott
dæmi um þetta eru störf hans í
þágu Byggingarfélags alþýðu. Það
var stofnað 28. apríl 1934. Þórodd-
ur sat strax í fyrstu stjórn þess
og var þá féhirðir félagsins. Form-
aður þess var hann 1963 til 1975
eða um 12 ára skeið.
Byggingarfélag alþýðu í
Hafnarfirði hóf starf sitt af miklum
dugnaði. í september 1934, um
fjórum mánuðum eftir stofnun
þess, var ákveðið að félagið byggði
fjóra verkamannabústaði við Sel-
vogsgötu. Og auðvitað var Þórodd-
ur Hreinsson fenginn til þessa
verks. Hann stjómaði því byggingu
þessara húsa, var byggingarmeist-
ari þeirra. Og sem oftar lét Þóodd-
ur góð verk tala. Það var flutt inn
í fjórða og síðasta bústaðinn í júlí
1935 og voru þá liðnir um 10
mánuðir frá því smíðin á verka-
mannabústöðunum fjórum hófust.
Svoná gátu nú verkin gengið fyrir
sig á þessum tíma, þegar öruggur
hugur og hönd fylgdu verki.
Þóroddur Hreinsson var meðal
fyrstu félagsmanna í Félagi ungra
jafnaðarmanna í Hafnarfirði og
varð síðar félagi í Jafnaðarmanna-
félagi Hafnarijarðar og Alþýðu-
flokksfélagi Hafnarfjarðar. Þar
sem annars staðar reyndist hann
traustur og góður félagi, áhuga-
samur og ötull jafnaðarmaður.
Hann gegndi ýmsum störfum
fyrir Alþýðuflokkinn, var m.a. rit-
ari Alþýðuflokksfélags Hafnar-
fjarðar um skeið og gegndi ýmsum
öðrum störfum fyrir félagið. Hann
sat líka í byggingarnefnd og áfeng-
isvarnarnefnd og ýmsum fleiri
trúnaðarstörfum gegndi Þóroddur
fyrir Alþýðuflokkinn.
Ég kynntist Þóroddi Hreinssyni
á vettvangi Alþýðuflokksins og
jafnaðarstefnunnar. Ég fann fljótt
að þar fór góður liðsmaður og
traustur félagi. Þeim málum var
vel borgið, sem Þóroddur tók að
sér. Hugurinn var hlýr, brosið bjart
og glettnin skein úr augunum á
góðra vina fundi.
Þóroddur Hreinsson skipar
virðulegan sess í hugum okkar
hafnfirskra jafnaðarmanna. Við
ferðalok þökkum við honum sam-
fylgdina. Við þökkum honum verk-
in hans bæði stór og smá. Við
þökkum honum félagsskapinn,
dugnaðinn og vináttuna.
Hann var góður félagi og traust-
ur jafnaðarmaður bæði í orði og
starfi. Góður drengur er genginn.
Minningin lifur um jafnaðarmann-
inn Þórodd Hreinsson, farsælan í
hveiju verki. Blessuð sé minning
hans.
Hörður Zóphaníasson