Morgunblaðið - 01.11.1991, Qupperneq 2
2
MOI&UttBLAÐlÐ PÖSTÚDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
Hásetar boða verkfall 8. nóvember:
Jólavaran að mestu
komin á þeim tíma
- segir Þórður Magnússon hjá Eimskip
HÁSETAR á kaupskipum hafa boðað allsherjarverkfall frá og með
föstudeginum 8. nóvember klukkan 13. Það þýðir að kaupskip stöðv-
ast jafnskjótt og þau koma til hafnar hérlendis. Þórður Magnússon,
framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips, segir að þetta þýði að bæði
inn- og útflutningur á sjó stöðvist, ef til verkfalls kemur. Hann segir
þó að mest af jólavörunni sé komið til landsins.
Verkfallsboðun var ákveðin á
fundi stjómar- og trúnaðarráðs Sjó-
mannafélags Reykjavíkur í gær-
kvöldi. Jónas Garðarson, fram-
kvæmdastjóri félagsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekkert
hefði miðað í samkomulagsátt í við-
ræðum við vinnuveitendur og því
væri gripið til þessa ráðs.
Þórður Magnússon sagðist í sam-
Ríkisskattstj óri:
Tvískött-
unarsamn-
ingar ná
ekki til vsk
Tvísköttunarsamningar, sem í
gildi eru milli íslands og annarra
þjóða, ná ekki til virðisauka-
skatts. Því kemur ekki til greina
að virðisaukaskattur, sem Islend-
ingar hafa fengið endurgreiddan
vegna innkaupa erlendis, verði
innheimtur hér á landi, eins og
Félag íslenskra stórkaupmanna
hefur lagt til og fram kom í
Morgunblaðinu í gær.
Garðar Valdimarsson ríkisskatt-
stjóri tjáði Morgunblaðinu í gær að
ekkert erindi þessa efnis hefði bor-
izt frá FÍS. Það hefði enda engan
tilgang, því tvísköttunarsamningar
við aðrar þjóðir næðu aðeins til tekj-
uskatts, útsvars og eignaskatts.
Þá kvað Garðar það rangt sem
fram kom hjá framkvæmdastjóra
FÍS í Morgunblaðinu í gær að tví-
sköttunarsamningur væri í gildi
milli Bretlands og íslands. Slíkur
samningur hefði verið undirritaður
í september sl. en hins vegar ætti
eftir að leggja hann fyrir brezka
þingið og öðlast hann ekki gildi
fyrr en samþykkt þess liggur fyrir.
Sjá nánar á bls. 20.
tali við Morgunblaðið ekki sammála
því að viðræður hefðu engan árang-
ur borið. Hann sagði að boðaður
væri fundur hjá sáttasemjara í dag,
og hann ætti von á að sá fundur
yrði haldinn. „Hvert stéttarfélag er
auðvitað ekki eitt og sér og kjara-
samningar eru í samhengi við kjara-
málaumræðuna í landinu í heild. Það
er Ijóst að það er mjög erfitt að
gera meira fyrir einn hóp
en annan.”
Hann sagði að Vinnuveitenda-
sambandið hefði sett það sem skil-
yrði fyrir kjarabótum farmanna að
á móti kæmi hagræðing um borð í
skipunum. Hann sagði að engar
kröfur hefðu verið hafðar uppi um
að fækka í áhöfnum, heldur kæmi
til dæmis tii greina að hásetar
gengju í fleiri störf en nú væri.
Þórður sagði að nýafstaðið verk-
fall farmanna, sem tók til nokkurra
hafna, hefði þegar valdið verulegu
tjóni hjá skipafélögunum. „Það hef-
ur þurft að umhlaða vörum og keyra
þær vítt og breitt um Evrópu, sem
kostar mikið fé,” sagði hann.
„Jólavaran er að miklu leyti kom-
in til landsins á þessum tíma,” sagði
Þórður. „Hins vegar truflar þetta
bæði inn- og útflutningsverzlun.”
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þeir létu fara vel um sig á Hjólbarðaverkstæði Siguijóns í Hátúninu í gær enda hefur veðrið á
höfuðborgarsvæðinu verið þannig undanfarna daga, að fólk er varla farið að hugleiða að setja
vetrarhjólbarðana undir bílinn. I dag er hins vegar heimilt að gera það og því eins víst að það
verði ekki eins rólegt á hjólbarðaverkstæðum borgarinnar næstu daga.
Nagladekk mega fara undir bílinn í dag:
Svipað verð á dekkjum og í fyrra
FRÁ og með deginum í dag er heimilt að setja vetrarhjólbarða
undir bíla. Verðið er svipað og í fyrra en þeir sem þurfa að
kaupa sér fjögur ný nagladekk gætu þurft að greiða tæplega
38 þúsund krónur.
Að sögn starfsmanna á hjól-
barðaverkstæðum er verð á vetr-
ardekkjum mjög svipað og í fyrra
og á flestum stöðum var viðkvæð-
ið að dekkin væru á nákvæmlega
sama verði og í fyrra.
Verðmunur á nýjum dekkjum
er mikill. Hægt er að fá fjögur
nagladekk frá kr. 26.880 og upp
í 37.900 kr. og eru dekkin þá
komin undir bílinn. Fyrir þá sem
eiga til vetrardekk er kostnaður-
inn mun minni, skipting, umfelg-
un og jafnvægisstilling kostar frá
3.400 kr og upp í 3.740 sam-
kvæmt lauslegri könnum sem bíl-
asíða Morgunblaðsins gerði í vik-
unni.
Sjá frétt/B2
Fiskiþing hafnar hagræð-
ingarsjóði og auðlindaskatti
Hart deilt um kvótakerfið
FISKIÞING hafnaði á fundi sínum í gær Hagræðingarsjóði sjávarút-
vegsins í núverandi mynd, Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins og öllum
áformum um auðlindaskatt. Nokkrar umræður urðu um hagræðingar-
sjóðinn og felld var tillaga þess efnis, að hann yrði notaður sem bjarg-
ráð illa stöddum sjávarútvegsfyrirtækjum á landsbyggðinni. Þá er
hart deilt á þinginu um kvótakerfið, en sjávarútvegsnefnd lagði þó
aðeins fram eina tillögu, þar sem núverandi mynd þess er hafnað.
Á Fiskiþingi í gær var hafizt handa um sjávarútvegsnefndar voru einnig
við afgreiðslu tillagna frá nefndum
þingsins og afgreiddar voru allar til-
lögur frá fiskiðnaðar- og tækninefnd
og fjárhagsnefnd. Nokkrar af tillög-
afgreiddar, en áður en að helzta
deilumálunum kom, kvótakerfinu,
var þingfundi slitið og verður honum
fram haldið árdegis í dag. Töluverðar
deilur urðu innan nefndarinnar og
var það naumur meirihluti hennar,
fimm nefndarmenn af níu, sem stóðu
að baki tillögunni um kvótakerfið. I
henni er kvótakerfinu hafnað, fyrst
og fremst vegna þeirrar byggðarösk-
unar, sem það er talið valda og með-
al annars bent á mikla fækkun smá-
báta í því sambandi.
í gær var samþykkt tillaga þess
efnis að leggja beri Verðjöfnunarsjóð
sjávarútvegsins niður og ennfremur
mótmælti Fiskiþing „harðlega öllum
hugmyndum um að leggja auðlinda-
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin:
Hilniar Öm fær Felixinn
fyrir bestu kvikmyndatónlist
Sigríður Hagalín tilnefnd sem besta leikkonan í aðalhlutverki
HILMAR Öm Hilmarsson hlýtur Felixinn, evrópsku kvikmynda-
verðlaunin, fyrir tónlist sína við kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks-
sonar, Börn náttúrunnar. Þá hefur Sigríður Hagalin verið útnefnd
til sömu verðlauna sem besti leikari í kvenhlutverki í evrópskri
kvikmynd, ein þriggja leikkvenna. Verðlaunin verða afhent í Berl-
ín 1. desember.
„Ég held að með þessum verð-
launum sé í og með verið að verð-
launa kvjkmyndina í heild,” sagði
Hilmar Örn Hilmarsson í samtali
við Morgunblaðið, en honum var
tilkynnt um verðlaunin í gær.
„Börn náttúrunnar hafa þegar
fengið verðlaun á kvikmyndahátíð-
inni í Montreal sem besta listræna
framlagið og þar er tónlistin aðeins
einn þátturinn,” sagði Hilmar.
Hann sagði að evrópsku kvik-
myndaverðlaunin gætu haft tals-
verða þýðingu fyrir frama sinn á
sviði kvikmyndatónlistar erlendis.
„Á þessu ári buðust mér þrjú verk-
efni við kvikmyndir og í sjónvarpi
en á endanum höfnuðu framleið-
endumir mér vegna þess að ég var
óþekktur. Nú get ég slegið um
mig næsta árið með þessu,” sagði
Hilmar Öm Hilmarsson.
„Ég er fyrst og fremst hissa og
undrandi,” sagði Sigríður Hagalín
Hilmar Örn
Hilmarsson
Sigríður
Hagalín
í samtali við Morgunblaðið. „Ég
tek þessum fréttum ósköp rólega.
Ég er orðin svo gömul í hettunni,
að ég býst ekki við neinu. En það
verður gaman að fara til Berlínar
og sjá allt tilstandið þar,” sagði
Sigríður.
Hún sagðist hugsa til Gísla
Halldórssonar, sem var meðleikari
hennar í Börnum náttúrunnar en
á milli þeirra hefði verið náið sam-
starf. Gísli var útnefndur til verð-
launa sem besti leikari á kvik-
myndahátíðinni í Montreal fyrir
sinn leik í myndinni.
Myndin Börn náttúrunnar
komst sjálf í hóp fimm mynda, sem
kepptu um Felixinn í flokki ungra
leikstjóra. I gær var þeim myndum
fækkað í þrjár og féll Börn náttúr-
unnar þá úr keppninni.
íslenskir leikarar og kvikmyndir
hafa áður verið tilnefnd til evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunanna
en ekki hlotið þau.
skatt á sjávarútveginn, í hvaða formi
sem er, þar á meðal veiðileyfagjald”.
Harðar umræður urðu um Hagræð-
ingarsjóð sjávarúvegsins. Frá fjár-
hagsnefnd þingsins komu þijár til-
lögur um sjóðinn. Sú fyrsta þess efn-
is, að Fiskiþing skoraði á stjórnvöld
að leggja niður Hagræðingarsjóð
sjávarútvegsins í núverandi mynd,
samanber samþykkt síðasta Fiski-
þings. Sú tillaga var samþykkt með
18 atkvæðum gegn 11. Með þeirri
samþykkt var hinum tveimur hafnað,
en þær voru eftirfarandi: „50. Fiski-
þing fellst ekki á að hagræðingar-
sjóði verði ráðstafað til að kosta
rekstur Hafrannsóknastofnunar,
enda bíða hans brýn verkefni samj
kvæmt lögum.” og „50. Fiskiþing
beinir því til Alþingis íslendinga að
tryggt verði að lögum hagræðingar-
sjóðs verði komið til framkvæmda á
þann hátt, að sjóðurinn hafi það afi
markaða verkefni, að kaupa upji
gjaldþrota sjávarútvegsfyrirtæki þar
sem að minnsta kosti 50% íbúa við-
komandi byggðarlags hafa sína at|
vinnu af sjávarútvegi. Sjóðurinn fái
það hlutverk að endurskipuleggja
rekstur þessara fyrirtækja og koma
þeim á réttan kjöl.”
Hvað varðar ráðstöfun hagræðt
ingarsjóðs til að kosta hafrannsóknir
vöruðu menn meðal annars við þeirrj
hættu, að næst yrði sjóðurinn látinn
kosta Siglingamálastofnun, þar næst
Landhelgisgæzluna og síðan koll af
kolli og þótti það ekki fýsilegt.
Snarpar umræður urðu milli lands-
byggðarmanna, einkum Vestfirð-
inga, annars vegar og fulltrúa af
suðvesturhorni landsins, hvað varðj
aði það hlutverk sjóðsins að enduri
reisa gjaldþrota sjávarútvegsfyrirí
tæki. Vestfirðingar voru á þessarj
leið og töldu rétt að útvegurinn tæki
að sér að leysa vanda fyrirtækjanna,
en hinir töldu það pólitískt mál hvern-
ig staðið væri að atvinnuppbyggingu
í landinu, en ekki sjávarútvegsins
sjálfs.