Morgunblaðið - 01.11.1991, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991
Eggert Garðars-
son - Minning
við saman, allt frá unglingsárum og
til síðasta dags. Og fyrir þær er ég
þakklát og minningin um þær er
mér dýrmæt.
Þó að Steina hafi búið í mörg ár
í Danmörku, þá héldum við alltaf
sambandi hvor við aðra. Við skrifuð-
umst á og við hittumst þegar hún
var í heimsókn hér hjá móður sinni.
Þá kom hún alltaf í heimsókn til
okkar Ægis og þá áttum við saman
glaðar og góðar stundir.
Og oft yljaði það okkur um hjarta-
ræturnar að finna hvernig hún fyigd-
ist með strákunum okkar og lét sig
skipta hvernig þeir stækkuðu, þrosk-
uðust og vegnaði. Og hún gladdist
með okkur við hvert skref sem þeim
miðaði áfram til þroska og mann-
dóms. Þessi áhugi hennar var okkur
svo mikilsvirði og sýndi vel vináttu
hennar og hlýhug í okkar garð.
Steina var í blóma lífsins, þegar
hinn illkynja sjúkdómur, krabbamei-
nið, barði að dyrum hjá henni enn
og aftur. Þá langt komin með nám
sitt í blaðamennsku. Hún hafði líka
eignast yndislegan dreng fyrir réttu
ári, hann Þór litla.
Steina barðist við sjúkdóm sinn
eins og hetja, allt til hinstu stundar.
Aldrei missti hún vonina og stærsta
ósk hennar var sú, að fá tækifæri
til að ala upp drenginn sinn, hann
Þór, sjá hann vaxa og dafna, þrosk-
ast og mannast. Og í veikindum sín-
um fann Steina mikla gleði og ham-
ingju í hinum unga syni sínum.
Já, hún Steina er að kveðja. Mér
finnst það óréttlátt og á erfitt með
að sætta mig við það. Hún sem var
svo góð og lífsglöð. En það er hér
sem annars stjðar. Það þýðir lítt að
deila við dómarann.
En minningarnar á ég eftir og þær
getur enginn frá mér tekið. Steina
hefur ávallt skipað góðan og öruggan
sess í hjarta mínu og svo mun það
verða um alla framtíð. Blessuð sé
minning hennar.
Eg bið góðan guð að styrkja Þór
litla og aðra ástvini hennar, sem nú
eiga um svo sárt að binda. Og við
Ægir sendum þeim innilegar samúð-
arkveðjur.
Steina er farin, en minningin um
hana lýsir og lifir um alla framtíð
og Iéttir okkur hartninn. Það er okk-
ur líkn í sárum söknuði.
Sólveig Stefánsdóttir
Þó þú langförull legðir
sérhvert land undir fót,
bera hugur og hjarta
samt þíns heimalands mót.
(Stephan G. St.)
Þann 14. apríl 1956 fæddist á
Höfða á Höfðaströnd Steinunn Anna
Ólafsdóttir fyrsta barnabarn afa og
ömmu. Þó að heimili hennar væri
hjá foreldrum sínum í Hafnarfirði
kom hún heim í sveitina líkt og far-
fuglarnir á hveiju vori. Mikil eftir-
vænting var hjá okkur systkinunum
þegar von var á Steinu frænku með
rútunni að sunnan. Með komu Stein-
unnar lifnaði bærinn við og „ömmu-
herbergi” breytti um svip. Steinunn
hafði alltaf frá mörgu að segja eftir
vetrardvöl sína í höfuðborginni og
fannst okkur mikið til koma lýsinga
hennar á því sem efst var á baugi í
handboltanum, í kvikmyndahúsun-
um, og í tónlistarlífinu, að ógleymd-
um lýsingum 'hennar á sjónvarpsefni
kanasjónvarpsins alræmda. Á Höfða
var alltaf stór hópur basrna á hveiju
sumri og samkomulagið ekki alltaf
upp á það besta eins og gefur að
skilja. Einn var sá leikur sem við
iðkuðum en hann var sá að uppnefna
hvort annað. Urðu þar til uppnefni
eins og Tobba tannlausa, Gressi grís,
Skæla skögultönn, og Kekkur kisu-
barn. Voru þessi nöfn óspart notuð
í hita leiksins. En við munum líka
eftir sögustundunum, þar sem allir
söfnuðust saman í kring um kertaljós
á kvöldin og hlustuðu á afa eða Brí-
et skálda upp sögur um Grýlu gömlu,
drauga, og forynjur. Svo kom haus-
tið. Steinunn fór suður á vit ævintýr-
anna. Þannig leið bernskan í leik og
starfi. En ævintýraþráin var sterk í
Steinunni og er hún var 18 ára göm-
ul fluttist hún til Danmerkur og bjó
þar nær óslitið síðan. Þó að ferðum
hennar heim á Höfða fækkaði, fund-
um við oft fyrir því að hugurinn leit-
aði til bernskustöðvanna. Fyrir
nokkrum árum kenndi Steinunn sér
sjúkdóms, sem hún með sínum ein-
staka dugnaði yfirvann. Eftir það
ákvað Steinunn að hefja nám í blað-
mannaháskóla í Danmörku. Þarna
var Steinunn á réttri hillu, henni
sóttist námið vel og var valin úr stór-
um hópi nemenda til starfa á danska
stórblaðinu Politiken. Steinunn var á
toppnum.
Síðasta heimsókn Steinunnar á
Höfða var í fyrrasumar er hún kom
til íslands í sumarfrí. Þrátt fyrir
langa fjarveru var Steinunn sama
náttúrubarnið og fyrr. Hennar beið
nýtt hlutverk, — móðurhlutverkið,
sem hana hlakkaði mikið til að tak-
ast á við. Þann 13. október 1990
fæddi Steinunn son sinn, Þór. Hann
var sólargeislinn í lífi hennar og sagði
hún að hann væri það mesta og besta
sem fyrir sig hefði komið í lífinu.
En það átti ekki fyrir Steinunni að
liggja að njóta móðurhlutverksins
nema í stuttan tíma. Hinn illi sjúk-
dómur sem hún hafði áður barist við
tók sig upp að nýju. Rimman var
hörð en orð skáldsins Stephans G.
lýsa Steinunni best í þeirri baráttu,
„bognar aldrei — brotnar í, bylnum
stóra seinast”. En núna er Steinunn
lögð af stað í eitt ferðalagið enn.
Við ásamt foreldrum okkar óskum
henni góðrar ferðar á vit nýrra ævin-
týra.
Elsku litli Þór, Þóra, Friðþjófur,
Oli Þór og Hjördís, við sendum ykkur
innilegar samúðarkveðjur. Minning
um góða frænku lifir með okkur öll-
um.
Yfir heim eða himin
hvort sem hugar þín önd
skreyta fossar og Ijallshlíð
öll þín framtíðarlönd.
Fjarst í eilífðar útsæ
vakir eylendan þín
nóttlaus voraldar veröld
þar sem víðsýnið skín.
(Stephan G. St.)
Systkinin frá Höfða.
Nú stöndum við enn einu sinni
frammi fyrir því að spyija okkur
hver sé tilgangur lífsins.
Maður spyr sig slíkra spurninga
þegar maður hugsar til þess að ung
móðir er kölluð burt frá sínu fyrsta
barni aðeins ársgömlu.
Vinkona mín, Steinunn Olafsdótt-
ir, sem barðist hafði við erfiðan sjúk-
dóm um nokkurt skeið, lést 25. okt-
óber sl. Steina, eins og við vinir
hennar kölluðum hana, barðist hetj-
ulegri baráttu við veikindin nú um
eins árs skeið, en áður hafði hún
kennt þessa sama sjúkdóms, sem
flestir höfðu talið, að hún hefði sigr-
ast á, en svo var ekki.
Steina átti marga og trygga vini,
sem kom best í ljós nú í hennar erf-
iðu veikindum og þannig vini eign-
ast enginn nema vel sé sáð til, og
það hafði hún svo sannarlega gert
með sínu stóra hjarta, því hún mátti
ekkert aumt sjá þá gaf hún sig alla
til að létta þeim erfiðleikana.
Það var yndislegt að sjá, en um
leið sorglegt, hvað hún elskaði Þór
litla son sinn heitt, en vegna veikind-
anna gat svo lítið haft hjá sér.
Ég vona að allt sem við ræddum
um í sambandi við hið ókomna og
tilganginn í lífínu sé elsku Steina
nú að fá svör við og að nú líði henni
betur og hafi fengið þá heilsu sem
við óskuðum svo heitt, þó það hafi
ekki orðið í þessu lífi og einhvern
tímann hittumst við öll aftur.
Þóra mín, sem sérð nú á bak
einkadóttur þinni, sem var þér svo
náin og kær sem best kom fram í
þeirri miklu hlýju og ástúð sem þú
sýndir henni meðan hún háði sína
lokabaráttu hér á jörð.
Megi góður Guð blessa ykkur
mæðginin og litla dóttursoninn Þór
og gefa ykkur sinn styrk í þeirri
sorg sem nú hvílir yfir, með von um
að birti til um síðir.
Þú grátnum börnum gleymt ei fær,
ó, Guð, minn harm það bætir,
þín blessuð hjálp og hlíf er nær
í hverri neyð, sem mætir.
Burt, hryggð, úr hjarta mér,
mín huggun Drottin er,
hans eilíf ást og náð
mitt annast gjörvallt ráð.
Hann mér til góðs mig grætir.
(Ramus - H.Hálfd.)
Valgerður Guðmundsdóttir
Fleiri greinar um Steinunni
A. Ólafsdóltur bíða birtingar
og iminu birtast í blaðinu
næstu daga.
Fæddur 4. júlí 1950
Dáinn 25. október 1991
Mig langar að kveðja með örfáum
orðum Eggert Garðarsson frænda
minn, sem lést á Landspítalanum
25. október sl.
Þann dag lauk rúmlega tíu ára
baráttu við erfiðan og að því er oft
virtist óútreiknanlegan sjúkdóm.
Það eina sem við eigum öll víst í
lífinu er að við munum að endingu
deyja. Hvenær dauðinn kemur og
hvernig hann ber að höndum er
hinsvegar afar mismunandi. Ekkert
okkar hefur bréf upp á það að hafa
góða heilsu ailt okkar líf, ná hárri
elii og fá síðan að sofna svefninum
langa rétt sisvona einhvern daginn.
Gerðar eru geysimiklar kröfur um
vellíðan og ef við finnum einhvers
staðar til þá kvörtum við gjarnan
mest sem besta höfuni heilsuna. Við
horfum oft of mikið á það sem er
að til að geta séð það sem er'gott
og gleymum líka stundum að þakka
skaparanum fyrir þær miklu gjafir
sem okkur eru gefnar. Það var mik-
il Guðs gjöf hvernig Eggert tókst
að halda í við sjúkdóminn öll þessi
ár, hvernig hann hreinlega neitaði
að gefast upp. Hann stundaði vinnu
þegar heilsan leyfði, fór á manna-
mót, í ferðalög og heimsóknir til
ættingja og vina. Stundum var teflt
á tæpasta vað og oft hefur hann
mátt beita sig hörðu til að taka þátt
í einu og öðru sem fullfrísku fólki
er auðvelt. Það var hinsvegar áreið-
anlega ekki auðvelt fyrir þrítugan
mann sem alla tíð hafði verið hraust-
ur, að verða skyndilega sjúkur og
þreklítill. En svo er algóðum Guði,
læknavísindunum og hinu óbilandi
baráttuþreki Eggerts fyrir að þakka
að hann fékk að vera hér með okk-
ur þessi tíu ár, fékk að njóta sam-
vista við fjölskyldu sína, sjá bömin
sín vaxa úr grasi og gat miðlað
samferðarmönnum sínum af sinni
miklu reynslu. Hann var óþreytandi
við að fara í heimsóknir til vina og
ættingja sem þurftu að leggjast inn
á sjúkrahús. Hann skyldi líka svo
vel þörfina fyrir slíkar heimsóknir.
Eftir að hann fluttist til Reykjavíkur
lét móðir hans ævinlega vita ef hún
vissi af einhveijum héðan að norðan
sem var að fara suður á spítala.
Ég þurfti sjálf að leggjast inn á
sjúkrahús fyrir ári síðan til rann-
sóknar vegna gruns um svipaðan
sjúkdóm og Eggert var með. Sem
betur fer reyndist sá grunur ekki
réttur og fáeinum mínútum eftir að
læknirinn hafði fært mér þær frétt-
ir birtist Eggert í dyrunum. Hann
var kominn til að heilsa upp á
frænku og veita henni styrk. Það
var sannarlega gaman að sjá hann
og að segja honum þessi gleðitíðindi
var hreint stórkostlegt. Eg veit að
hann skyldi það svo margfalt betur
en ég hversu heppin ég var. Síðan
hefur þessi sjúkdómur greinst tví-
vegis í minni fjölskyldu og í báðum
tilvikum miðlaði Éggert af sinni
reynslu og var til styrktar, slíkt er
ómetanlegt. Og það eru margir fleiri
í svipaðri stöðu sem minnast hans
með þakklæti, hlýhug og virðingu.
Hann sýndi það og sannaði að það
er hægt að taka þátt í hinu daglega
lífi þrátt fyrir illvígan sjúkdóm.
Hann vann marga orrustuna, þó
hann tapaði í stríðinu að lokum. Og
nú er stundaglasið tæmt og Eggert
kominn til nýrra heimkynna þar sem
ég veit að honum líður vel. Dvölinni
á Hótel Jörð er lokið og samferða-
fólkið kveður að sinni með kærleika
og þökk. Ég bið algóðan Guð að
blessa minningu Eggerts Garðars-
sonar og vaka yfir sálu hans. Sömu-
leiðis bið ég algóðan Guð að varð-
veita eiginkonuna, börnin, foreldr-
ana, systurnar, tengdaforeldrana og
aðra ættingja og vini.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Hólmfríður Bjarnadóttir
Dýrðlegu sumri er að ljúka, síð-
ustu laufin falla af tijánum og vetur-
inn að taka völdin. Hetjulegri bar-
áttu Eggerts bróðui-sonar míns við
illvígan sjúkdóm er lokið, sú barátta
stóð með nokkrum hléum í tíu og
hálft ár. Það var mikið áfall þegar
uppgötvaðist vorið 1981 að um
krabbamein væri að ræða, eftir
mikla skurðaðgerð tók við geisla-
og lyfjameðferð. Eggert stóð sig
aðdáunarlega vel í þessari raun, var
mjög jákvæður og hafði mikla trú á
að tækist að lækna þetta. Hann fékk
líka sæmilega heilsu í nokkur ár en
svo fór sjúkdómurinn að taka sig
upp og meðferðirnar urðu margar
og sífellt styttri tími sem leið á milli,
en hann lét ekki bugast og átti í
raun afar erfítt ineð að viðurkenna
minnkandi þrek og starfsgetu. Ég
hefi hugsað mikið um hve sárlega
vantar í okkar heilbrigðiskerfi end-
urhæfingarstöð fyrir þá sjúklinga
sem verða að ganga í gegnum erfið-
ar geisla- og lyfjameðferðir þar sem
hægt væri að byggja þá upp undir
leiðsögn lækna og sérmenntaðs
starfsfólks.
Eggert fæddist 4. júlí 1950, sonur
hjónanna Fjólu Eggertsdóttur frá
Skarði á Vatnsnesi, Vestur-Húna-
vatnssýslu og Garðars Hannessonar
frá Hvammi í Laxárdal, Skagafjarð-
arsýslu, sein þá bjuggu í Hlíð á
Vatnsnesi og þar og í Tungukoti í
sömu sveit ólst Eggert upp ásamt
þremur systrum.
Ég kom í Hlíð um það leyti sem
Eggert fæddist og var hjá foreldrum
hans í þijú sumur, fékk ég það hlut-
verk að fóstra Eggert að miklu leyti
sumarið sem hann varð eins árs en
þá fæddist yngsta systir hans, var
hann einstaklega ljúfur og þægur
krakki.
Mikið og gott samband var með
heimilum okkar og fór dóttir mín
Unnur í sveitina fjögurra ára og var
þar á sumrin fram að fermingu og
seinna var svo Hannes sonur minn
þar líka, var mjög gott samband á
milli frændsystkininna.
Um tvítugt kom Eggert suður og
stundaði ýmis störf, fyrst í Grinda-
vík og síðar í Reykjavík, m.a. við
akstur hjá B.M. Vallá og Strætis-
vögnum Kópavogs. Eggert kvæntist
20. maí 1972 Arndísi Sölvadóttuf
frá Síðu í Víðidal, eignuðust þau
þijú börn, Sóleyju Höllu, fædd 11.
mars 1972, Örlyg Karl, fæddur 12.
apríl 1975 og Érling Viðar, fæddur
5. júlí 1977. Eggert og Dísa bjuggu
fyrstu árin í Kópavogi og Breiðholti
en fluttu til Hvammstanga vorið
1975. Vann hann þar við steypustöð
en stundaði svo vöruflutninga og
vann við mjólkurflutninga. Þegar í
ljós kom að sjúkdómurinn hafði tek-
ið sig upp og hann varð að fara í
lyfjameðferðir fluttu þau aftur til
Reykjavíkur árið 1987. Eggert tók
ökukennarapróf og starfaði við
kennslu til æviloka. Tel ég að hann
hafi undirbúið nemendur sína af
samviskusemi og miðlað þeim af
reynslu sinni af akstri við misjafnar
aðstæður.
Eggert var félagslyndur maður,
sötighneigður og tók þátt í kórsöng
og lionskiúbbnum Bjarma og naut
þess að vera í glöðum vinahóp. Stóð
hann fyrir því að kalla saman föður-
systkin sín ásamt börnum og mökum
á fjölskyldumót en við vorum þúsett
víðsvegar um landið og varð það
upphaf þess að nú hittumst við
reglulega á tveggja ára fresti og
verður þar stórt skarð vandfyllt.
Eggert bar hag fjölskyldu sinnar
mjög fyrir bijósti og var það frá
upphafi bæn hans og von að fá að
ferma börnin sín. Það var því glaður
og stoltur faðir sem á skírdag síðast-
liðinn vetur lét ferma yngri soninn.
Ég vil þakka læknum og starfs-
fóki Landspítalans góða umönnun
svo og öðrum sem studdu hann í
veikindum hans. Að ieiðarlokum
þakka ég og fjölskylda mín Eggerti
fýrir samfylgdina og votta eigin-
konu, börnum, foreldrum, systrum
og öðruin vandamönnum dýpstu
samúð.
Hvíl í friði.
Lovísa Hannesdóttir
35
í tilveru okkar stöndum við stund-
um frammi fyrir svo erfíðum stað-
reyndum að vart virðist yfirstígan-
legt. Ein slík staðreynd er sú að vin-
ur okkar á besta aldri er skyndilega
kvaddur burt af sjónarsviðinu.
Vinur okkar, Eggert Garðarsson,
lést á Landspítalanum 25. október
síðastliðinn.
Hann fæddist 4. júlí árið 1950.
Foreldrar hans eru Garðar Hannes-
son og Fjóla Eggertsdóttir.
Eggert ólst upp í foreldrahúsum
í Hlíð á Vatnsnesi við ástríki foreldra
sinna og systra. Systur hans eru:
Sigurósk fædd 1947, Bára fædd
1949 og Hanna fædd 1951.
Fyrstu kynni mín af Eggerti voru
þegar ég kom með yngstu systur
hans, sem seinna varð eiginkona
mín, á ættarmót í Skagafirði. Fann
ég þá strax hlýju hans og konu hans,
Arndísar Sölvadóttur. Það hélst
óbreytt þau ár sem við fengum að
njóta samfylgdar hans. Var jafnan
gott að koma á heimili þeirra hjóna,
þar sem við nutum alúðlegs viðmóts
hvernig sem á stóð.
Eggert var vinsæll og vel liðinn í
starfi. Lengst af vann hann við bif-
reiðaakstur m.a. hjá Vörubifreiða-
stöðinni Þrótti og Strætisvögnum
Kópavogs. Síðustu árin starfaði hann
farsællega sem ökukennari. Eftirsjá
er að slíkum kennara.
Eggert sinnti mörgu í tómstund-
um. Hann söng í kórum og lék vel
á harmóníku og gítar. Æðsta áhuga-
mál hans var þó fjölskylrian, velferð
hennar og vellíðan. Hann kvæntist
eftirlifandi eiginkonu sinni, Amdísi
Sölvadóttur, 20. maí 1972. Börn
þeirra eru: Sóley Halla, fædd 1972,
Órlygur Karl, fæddur 1975, og Erl-
ing Viðar, fæddur 1977.
Hjónaband þeirra Eggerts og Dísu
var ástríkt og gott. Var Dísa manni
sínum ómetanleg stoð í starfi hans
og nú síðast í erfiðum, þungbærum
veikindum.
Eggert átti við veikindi að stríða,
sem hann tókst á við af æðruleysi.
Var aðdáunarvert hvað hann lifði
eðlilegu lífi þrátt fyrir það. Félaga
sína, sem áttu við svipuð veikindi að
stríða, studdi hann dyggilega.
Eggert batt tryggð við vini sína
og nutum við hjónin þeirrar dyggð-
ar. Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur. Við hjónin erum
þakklát fyrir að eiga ljúfar minning-
ar um svo góðan dreng. Guð blessi
elsku Dísu okkar, Sóley, Svenna,
Ölla og Vidda og styrki þau á erfíð-
um stundum. Við þökkum Eggerti
fyrir allt sme hann gaf okkur, minn-
ingin um góðan dreng lifír að eilífu.
Margs er að ininnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Sigfús og Hanna
ERFISDRYKKJUR
í þægilegum og
rúmgóöum salar-
kynnum okkar.
Álfheimum 74,
sími 686220