Morgunblaðið - 01.11.1991, Síða 47

Morgunblaðið - 01.11.1991, Síða 47
KNATTSPYRNA Breiðablik segir upp samningi við Hörð STJORN knattspyrnudeildar Breiðabliks hefur sagt upp samningi við Hörð Hilmars- son, þjálfara meistaraflokks karla hjá félaginu, „vegna samstarfsörðugleika” við hann eins og það er orðað í fréttatilkynningu frá stjórn- inni. Hörður hefur þjálfað lið Breiðabliks síðustu tvö keppnistímabil. Undir stjóm hans komst liðið upp úr 2. deild í fyrra og í sumar stýrði hann liðinu í 1. deild, og varð iiðið í fimmta sæti deildarinnar. Hörður var síðan ráðinn til eins árs til viðbótar. Skrifað var undir þann samning 24. september síð- astiiðinn — fyrir rúmum mánuði. Árni Guðmundsson, formaður knattspyrnudeildar Breiðabliks, vildi í gærkvöldi ekki tjá. sig frek- ar um málið. Sagði þetta nýtil- komið, og enn væri ekki ákveðið hver tæki við starfi Harðar sem þjálfari 1. deildarliðs félagsins. Hörður Hilmarsson vildi ekkert tjá sig um málið er Morgunblaðið hafði samband við hann í gær- kvöldi. IMÓRGUHBLÁÐIÐ ÍÞRÓTTIR l'’bsTUDÁGiUR' 1. N'ÓVKMBKR 1*991 ÚRSLIT Handknattleikur Bikarkeppni karla, 1. umferð: Ármann-b — KR-b....................15:24 Fram — KR..........................28:18 Fjölnir —ÍR.......................20:31 Víkingur-b — Haukar................27:38 ÍBV — Grótta.......................28:25 ■Zlotan Belany 9/4 og Gylfi Birgisson 8/1 voru markahæstir í liði ÍBV, en Páll Bjöms- son 7 og Svafar Magnússon 6 voru marka- hæstir hjá Gróttu. Knattspyrna Sovétríkin, 1. deild: Shakhtyor Donetsk - Dynamo Moskvu ....2:3 Efstu lið: CSKA...........29 17 9 3 55:29 43 SpartakMoskvu....29 16 7 6 55:29 39 Dynamo Kiev....29 13 9 7 43:33 35 Torpedo Moskvu....29 12 10 7 35:20 34 Odessa.........29 9 16 4 38:24 34 Dynamo Moskvu ...30 12 7 11 43:42 31 Frakkland Auxerre - Mónakó.................1:1 Sveinbjörn Hákonarson, sem leikið hefur með Stjörnunni síðustu fjögur keppnistímabil, klæðist búningi Þórs á Akureyri næsta sumar. Pyrsti sigur Skallagríms Asgeir Mkm FOLX Skallagrimur vann Hauka 117:102 í miklum baráttuleik í íþrótta- húsinu í Borgarnesi í gærkvöldi á ístandsmótinu í körfuknattleik við mikinn fögnuð heimamanna sem höfðu lengi beðið eftir því að liðið næði saman. Við erum mjög ánægðir, þetta var okkar besti leikur hingað til og rökrétt framhald af síðasta IHHmi leik okkar,” sagði TheódórKr. Birgir Mikaelsson Þórðarson þjálfari og leikmað- skrifar ur skallagríms eftir leikinn. „Við mættum ofjörlum okkar að þessu sinni. Liðsmenn Skallagríms áttu frábæran leik og ég á ekki von á að mörg lið geti unnið Borgnes- ingana á heimavelli með áhorfendur í svona stuði,” sagði Henning Henn- ingsson fyrirliði Hauka við Morgun- blaðið að leik loknum. Fyrri hálfleikur var mjög jafn. Liðin börðust af mikilli hörku. Jafnt var á flestum tölum og í leikhléi var staðan 51:48 fyrir Skallagrím. Lið Skallagríms mætti mjög ákveðið til leiks í síðari hálfleik og náði fljótlega 10 stiga forskoti qg hafði eftir það yfirhöndina til leiiís loka. Bestu menn Skallagríms voru þeir Maxim Kropatsjev sem átti stórleik að þessu sinni og Birgir Mikaelsson sem var mjög harður af sér. Hjá Haukum voru þeir Jón Arnar Ingvarsson og Henning Henningsson bestir. M ÁSGEIR Elíasson, landsliðs- þjálfari í knattspyrnu, skreppur til Skotlands í fyrramálið til að sjá Guðmund Torfason leika með St. Mirren í skosku deildinni. Næsta verkefni Ásgeirs með landsliðið er viðureignin við Frakka í París 20. nóvember. ■ GEIR Sveinsson gerði fimm mörk er lið hans, Avidesa, tapaði 22:23, fyrir meisturum Barcelona í spænsku 1. deildinni í handknatt- leik í fyrrakvöld. ■ JÚLÍUS Jónasson gerði eitt mark er Bidasoa gerði jafntefli, 22:22, gegn Granollers. ■ LLOYD Sergent, Bandaríkja- maðurinn 1 körfuknattleiksliði Breiðabliks er meiddur á ökkla og verður frá í minnst þrjár vikur. Breiðablik leikur gegn IR í kvöld og kemur fjarvera Sergents til með að veikja Kópavogsliðið. ■ BRYNJAR Valdimarsson sigraði B. Mawa frá Zimbabe, 4:0, í 4. umferð á heimsmeistaramóti áhugamanna í snóker í Thailandi í gær. Eðvarð Matthíasson tapaði fyrir Surya frá Thailandi, 2:4.^- . ■ ÞRÍR bestu þátttakendurnir á opna Parísarmótinu í tennis innan- húss, Stefan Edberg, Boris Bec- ker og Jim Courier, féllu allir úr keppni í gær. ■ EDBERG, sem var efstur á styrkleikalista mótsins og átti titil að verja, tapaði í þremur lotum fyrir Bandaríkjammanninum Mic- hael Chang. Courier tapaði fyrir Omar Camporese frá Ítalíu í tveimur lotum og Becker datt út án þess að keppa — fékk flensu. ■ VÍKINGUR leikur fyrri leikinn í Evrópukeppninni í handknattleik gegn Avidesa í kl. 10.30 að íslensk- um tíma á sunnudag. Liðið heldur utan í dag. Flogið verður til Losk don og þaðan til Madridar og sío- an til Valencia. ■ ALEXEJ Trúfan, sem verið hefur meiddur síðustu vikurnar fer með Víkingum til Spánar og er reiknað með að hann leiki aðeins í vörninni. ■ GUÐMUNDUR Guðmunds- son, þjálfari og leikmaður Víkings, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að leikurinn yrði mjög erfiður. „Við höfum verið að skoða mynd- band af leik liðsins. Það er greini- legt að þetta er mjög sterkt lið. Það verður því við ramman reip að draga. En við ætlum okkur að standa í þeim því við erum líka með gott lið,” sagði Guðmundur. Birgir Mikaelsson þjálfari og ieik- maður Skallagríms. Sveinbjöm feríÞór SVEINBJÖRN Hákonarson, knattspyrnumaður sem leikið hefur með Stjörnunni síðustu fjögur keppnistímabil, hefur ákveðið að ganga til liðs við 1. deildarlið Þórs frá Akureyri. Sveinbjörn hefur verið fyrirliði Stjörnuliðsins. „Það finnst kannski mörgum skrýtið að ég sé að yfirgefa Stjömuna, fyrirliði liðs- ins, en það er af persónulegum ástæðum en ekki félagslegum og í fullri sátt við Stjörnumenn,” sagði Sveinbjörn við Morgunblaðið í gær. „Þessi fjögur ár hafa verið góður tími; ég vann þriðju deild með liðinu svo aðra deild og hef nú leikið með því í fyrstu deild í tvö ár. En nú er kominn tími til að breyta um umhverfi,” sagði Sveinbjörn. Þess má geta að hann heldur upp á þijá- tíu og fjögurra ára afmælið í dag, föstudag. Sveinbjörn á að baki 161 leik í 1. deild, þar af 126 með ÍA, og hefur í þeim gert alls 42 mörk. Auk þess lék hann tvö sumur með Stjörnunni í neðri deildunum, og tvö sumur lék hann i Svíþjóð, 1980 og 1981. Þess má geta að í sjö sumur lék Sveinbjörn ásamt Sigurði Lárus- syni, núverandi þjálfara Þórs, í Skagaliðinu. Sumarið 1979 ogsíðan 1982-’87. FRJALSIÞROTTIR Martha sjöunda iPans Martha Ernstdóttir úr ÍR hafnaði í sjöunda sæti í alþjóðlegu götuhlaupi sem fram fór í úthverfi Parísar um síðustu helgi og nefnist Foulée Suresnes. Hún tók þátt í þessu sama móti fyrir tveimur árum og náði að bæta tíma sinn nú um 21 sekúndu — hljóp að þessu sinni á 12.00,30 mínútum. Martha var í baráttunni um fyrsta sætið lengst af í hlaupinu. Sigurvegari var Salinak Chichir frá Kenýa og í öðru sæti varð þekkt frönsk hlaupakona, Rosario Murcia. Martha Ernstdóttir KORFUKIMATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.