Morgunblaðið - 01.11.1991, Page 48

Morgunblaðið - 01.11.1991, Page 48
1 VÁTRYGGING SEM BRÚAR sYWxmk* BILIÐ SJÓVÁairrALMENNAR FÖSTUDAGUR 1. NÓVEMBER 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Októberhitinn í meðallagi Morgunblaðið/KGA Október kvaddi með mjög fallegu veðri í gær og margir notuðu tæki- færið til að heimsækja sundlaugarnarJ Laugardal. En þrátt fyrir hlý- indakafla undanfarið er meðalhiti í október langt frá því að vera sá hæsti sem mælst hefur. Hitinn er nálægt meðaltali og svipaður því sem var í fyrra á þessum árstíma. Trausti Jónsson veðurfræðingur telur ólíklegt að hitastig fari yfir meðallag í október þrátt fyrir hlýinda- kafla undanfarna daga en þess má geta að 11 stiga hiti var í Reykja- vík um kl. 03 aðfaranótt síðastliðins miðvikudags, sem er allóvenju- legt, að sögn Trausta. Hæsti hiti sem mælst hefur í október er 15,7 stig. í nóvember hefur hiti hæst mælst 11,7 stig. Sverrir Hermannsson um áhrif aflasamdráttar á afkomu Landsbankans: Ohjákvæmilegt að bankinn tlragi harkalega saman seglin Ennfremur hefur verið sett á stofn ný nefnd, Mannanafnanefnd, sem er ætlað að skera úr ágrein- ingi sem kemur upp t.d. milli presta og foreldra eða foreldra og Hag- stofunnar, þegar ekki er um skím að ræða. Þá er nefndinni ætlað að skera úr öðrum málum sem geta komið upp í sambandi við hvernig eigi að rita nöfn. Það hefur komið upp ágreining- ur á síðustu mánuðum um nafnið Blær sem er til sem karlmanns- Leiðir til stöðvunar velflestra fyrirtælga hringinn í kringnm landið SVERRIR Hermannsson, bankastjóri Landsbankans, segir að sam- dráttur í sjávarafla muni hafa gífurleg áhrif á afkomu Landsbank- ans og óhjákvæmilegt sé að hann dragi harkalega saman seglin. „Það er áætlað að verðmætarýrnun afla upp úr sjó sé átta milljarð- ar. Landsbankinn er með rúmlega 70% útgerðarfyrirtækja og rúm- lega 70% fiskvinnslufyrirtækja landsins í viðskiptum og það þýðir 5,5 til 6 milljarða króna velturýrnun Landsbankans gróft áætlað. Svo kemur keðjuverkunin í fiskvinnslu og þjónustugreinum og því er hér um gífurlegan samdrátt að tefla sem Landsbankinn hlýtur að taka mjög föstum tökum,” segir Sverrir í samtali við Morgunblaðið. Sverrir segir að bankinn sé ný- kominn út úr stórum skuldbreyting- -Kítn og muni ekki hafa nein tök á að standa undir rekstri fyrirtækja. „Það segir sig sjálft að það leiðir til stöðvunar hjá velflestum fyrir- tækjum hringinn í kringum landið,” segir Sverrir. „Það er alveg augljóst að þessi örbirgðastefna sem stjórnvöld hafa mótað eftir ágiskunum þorskafræð- inga leiðir til að fyrirtækin geta ekki staðið í skilum við okkur og við höfum engin ráð með að halda þessum aðalatvinnuvegi okkar á floti. Þeim sem taka slíkar ákvarðanir eftir ágiskunum er ekki sjálfrátt. Það er einfalt mál og við ætlum að gera mönnum grein fyrir því fyrirfram.” Vinnuhópur innan Landsbankans hefur að undanförnu kannað afleið- ingar aflasamdráttarins sem stjórn- völd hafa ákveðið á afkomu Lands- bankans. Er greint frá því í Frétta- bréfi starfsmanna Landsbankans sem kemur út í dag. Þar er haft eftir Sverri að samdrátturinn muni leiða til þess að Landsbankinn láti við það sitja að lána fyrirtækjum einvörðungu út á afurðir. „Þegar þrengir að lausafjárstöðu bankans erum við sektaðir af rík- inu, ekki um 10, 15 eða 20% heldur 30% og svo eru menn að heimta af okkur vaxtalækkanir,” segir Sverrir við Morgunblaðið. nafn og hefur verið óskað eftir að það væri skráð sem stúlkunafn líka. Það hefur ekki verið leyft og karlmannsnafnið talið hafa for- gang. Akveðið hefur verið að nefndin birti úrskurði sína árlega. Þar mun koma fram hvaða nöfn hafa komið til úrskurðar og hvort þau hafa verið heimil eða ekki. Þá á nefndin að semja skrá um eiginnöfn sem teljast heimil. Kem- ur bráðabirgðaskrá væntanlega út í byijun nóvember og mun þá verða dreift til presta. Það er Hagstofa íslands sem gefur út skrána og sér um kynningu hennar. Sjá ennfremur Bl, Daglegt líf. Coldwater: Salmonella í kjúkl- ingum í Eyjafirði Er ekki talin hættuleg mönnum SALMONELLA fannst nýlega í sýnum sem tekin voru úr fram- leiðslu frá alifuglabúinu í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Að sögn Valdimars Brynjólfssonar, framkvæmdasljóra heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar, er ekki talið að sú tegund salmonellu sem fannst í sýnunum sé hættuleg mönnum og því hafi ekki þótt ástæða til að innkalla kjúklinga frá búinu úr verslunum. Ný nafnalög taka gildi í dag: Skíra má þremur nöfnum NÝ LÖG um mannanöfn taka gildi í dag, 1. nóvember. í þeim felst m.a. að nú verður leyfilegt að gefa börnum þrjú nöfn í stað tveggja áður. Þá verða þær breytingar að framvegis má enginn skira eða nefna neinn tveimur kenninöfnum. Verður fólk því að velja á milli þess hvort það vill kenna sig við föður sinn eða móður eða hvort það beri ættarnafn. Þeim nöfn- um sem eru í gildi nú sam- kvæmt þjóðskrá verður ekki breytt. Samið við starfsfólk til 3 ára COLDWATER, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna í ^andaríkjunum, hefur nýverið gert kjarasamning við starfsmenn sína til þriggja ára, þar sem starfsmenn fá 4,1% launahækkun fyrsta árið, 4,5% annað árið og 3,6% þriðja árið. Einar Oddur Kristjánsson, for- maður Vinnuveitendasambands ís- lands, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að svona semdu menn út um allan heim. Báðir aðilar tækju nokkra áhættu. Það færi eftir verð- cttólgunni í viðkomandi landi hvort hin raunverulega kjarabót „gæti orðið 1 til 2% á ári, sem er mjög algengt,” sagði Einar Oddur. Einar Oddur sagði að Coldwater mæti það svo að raunkostnaður á unna klukkustund væri 11,2 banda- ríkjadalir, eftir þessa umsömdu hækkun. Hann sagði að sambæri- legir útreikningar hjá SH fyrir raunkostnað á unna klukkustund í frystihúsum hér á landi gæfu til kynna að hér væri hann 660 krón- ur, eða nákvæmlega 11 bandaríkja- dalir. Einar Oddur kvaðst telja að hér ætti að gera kjarasamning í líkingu við þann sem Coldwater gerði. „Af- köst, afkoma og kaup í okkar fram- leiðslugreinum hlýtur að verða að vera svipað hér og tíðkast í Banda- ríkjunum og Evrópu.” Valdimar sagði að salmonella hefði fundist úr sýnum úr fram- leiðslu sem farið hefði í sölu, en gerðar hafi verið ráðstafanir til þess að ekki færi meira af fram- leiðslunni í verslanir. Hann sagði að á fundi með yfirdýralækni hefði verið ákveðið að innkalla ekki kjúklinga frá Sveinbjarnargerði úr verslunum. „Það er búið að selja þessa kjúklinga, en það tekur alltaf ákveðinn tíma að rannsaka, þann- ig að við teljum að ekki sé hægt að ná þeim. Við teljum ekki heldur að þetta séu það slæmar bakteríur að það eigi að vera hætta á ferð- um. Það er búið að gera ákveðnar ráðstafanir í búinu sem við teljum að eigi að duga, en það verður fylgst mjög náið með þessu,” sagði hann. Salmonella fannst fyrst í ali- fuglabúinu í Sveinbjamargerði fyrir allmörgum árum, og sagði Valdimar að sennilega væri viðloð- andi sýking á búinu sem ekki tækist að losna við. Sala hefði verið frá búinu alla tíð og ætti hún ekki að stöðvast út af þeirri sýk- ingu sem nú hefur fundist nema fleiri tilfeila yrði vart.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.