Morgunblaðið - 11.01.1992, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
Framkvæmdastjórar s]'úkrahúsanna á Akranesi og í Neskaupstað:
Niðursknrður bitnar á
minni sjúkrahúsunum
FORSVARSMENN sjúkrahúsa á landsbyggðinni eru óánægðir með
))ann niðurskurð, sem heilbrigðisráðuneytið hefur nú boðað. Sigurður
Ólafsson, framkvæmdasljóri Sjúkrahúss Akraness, segir að staðan sé
enn verri fyrir minni sjúkrahús, sem hafi mun færri starfsmenn og því
sé slíkur niðurskurður ekki raunhæfur hjá þessum sjúkrahúsum.
Sigurður segir að sér sýnist sam-
kvæmt bréfi frá heilbrigðisráðuneyt-
inu að niðurskurðurinn sé um 6,7%
í launum og um 1,3% í öðrum kostn-
aði. Sagði hann að fundur hefði ver-
ið haldinn með starfsfólki. sjúkra-
hússins á fimmtudag, en ef af skerð-
ingunni yrði þyrfti líklega að segja
upp um fimmtán manns. „Við getum
ekki sparað svona mikið nema með
því að segja upp starfsfólki og annað
væri alveg vonlaust. Öll yfirvinna
hefur nú verið bönnuð nema i sér-
stökum neyðartilvikum og ef starfs-
fólk veikist verður enginn ráðinn í
afleysingar. Mér sýnist að okkur sé
gert að spara á milli 21 og 22 milljón-
ir króna í launum og tæpar tvær
milljónir króna í öðrum kostnaði,“
segir Sigurður.
Hann segir að heilbrigðisráðuneyt-
ið þurfi að skilgreina hvers konar
stofnun Sjúkrahús Akraness eigi að
vera. „Það er alveg vonlaust að spara
svona mikið nema að draga verulega
úr þeirri þjónustu, sem hér hefur
verið veitt. Því myndi ég vilja fá
skilgreiningu á því hvers konar starf-
semi hér eigi að vera, vegna þess
að með niðurskurði sefn þessum er
ekki hægt að halda áfram þeirri
starfsemi, sem hér hefur farið fram,“
segir Sigurður.
Kristinn ívarsson, framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahúss Neskaup-
staðar, segir að á næstu dögum verði
teknar ákvarðanir um hvernig mæta
eigi niðurskurðinum, en hann sé um
8,8 milljónir króna. „Það verður mjög
erfitt að eiga við þetta. Þetta er í
raun eina sjúkrahúsið frá Húsavík
til Vestmannaeyja, sem hefur full-
mannaða skurðstofu og bráðamót-
töku. Við tökum að sjálfsögðu þátt
í þessu, en ég tel að ekki sé hægt
að spara eins og okkur er ætlað,“
segir Kristinn.
Hann segir að mun verra sé að
skera svona niður á minni stöðum
og að líklegt sé að einhvetju starfs-
fólki verði sagt upp störfum en ekki
sé hægt að loka deildum, þar sem
aðeins sé ein deild á sjúkrahúsinu.
„Það eina sem hægt er að gera er
að draga eitthvað úr þjónustunni, en
þar sem mikið er um að aðeins ein
manneskja sinni hvetju starfi er það
afskaplega erfitt,“ segir Kristinn
ívarsson.
VEÐUR
f / Heimild: Veöurslofa fslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.15 í gær)
/ DAG kl. 12.00
VEÐURHORFUR í DAG, 11. JANÚAR
YFIRLIT: Norðaustur af Jan Mayen er dýpkandi 955 mb iægð á leiö norðaust-
ur. Smálægð norður af Húnaflóa hreyfist austnorðaustur. Önnur smálægð
er skammt suður af Hornafirði og hreyfist lítið. Um 1.000 km suðvestur af
landinu er heldur dýpkandi 990 mb lægð sem mjakast norður á bóginn.
SPÁ: Fremur hæg breytileg átt fram eftir degi með smáéljum norðaustan-
lands, en víðast annars staðar úrkomulaust. Er iíða tekur á daginn fer vind-
ur að vaxa úr austri eða suðaustri og hlýnar á ný í veðri. Síðdegis verður
líklega farið að rigna um allt sunnanvert landið, en þurrt veöur nyrðra.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG: Nokkuð hvöss sunnan- og suðaustanátt
með hlýindum um land allt. Rigning um sunnan- og vestanvert land-
ið, en úrkomulítið norðaustan til.
HORFUR Á MÁNUDAG: Suðvestanátt. Heldur kólnandi og slyddu-
él á Vestfjörðum og vestan til á Norðurlandi, en annars áframhald-
andi þíðviðri. Rigning með köflum á Suður- og.Vesturlandi, en lík-
lega þurrt á Norðaustur- og Austurlandi.
Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
-| 0 Hftastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hlti veöur Akureyri -i-3 skýjað Reykjavík 1 þokumóða
Bergen 3 alskýjað
Helsinki +10 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 léttskýjað
Narssarssuaq +8 léttskýjað
Nuuk +15 snjókoma
Ósló +6 skýjað
Stokkhólmur +2 skýjað
Þórshöfn 9 alskýjað
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 4 léttskýjað
Barcelona vantar
Berlín 3 léttskýjað
Chicago vantar
Feneyjar 8 rigning
Frankfurt 5 rigning
Glasgow 0 mistur
Hamborg 3 léttskýjað
London 7 léttskýjað
Los Angeles 9 heiðskírt
Lúxemborg 5 rigning
Madríd 6 léttskýjað
Malaga 14 skýjað
Mallorca 14 léttskýjað
Montreal +8 léttskýjað
NewYork 6 léttskýjað
Orlando 18 alskýjað
París 7 suld
Madeira 18 léttskýjað
Róm 15 skýjað
Vín 4 þokumóða
Washington 5 léttskýjað
Winnipeg +8 skýjað
Morgunbiaðið/Ólafur Bemódusson
Fálkinn að snæðingi.
Jólabráð
fálkanna
Kærleiksboðskapur jólanna
virðist ekki hafa náð til fálkanna
sem menn urðu varir í fjörunni
í miðju þorpinu nú í lok jólanna.
Fálki renndi sér þar á stokkand-
arkollu drap hana og fór svo að
rífa í sig. Frá þessu jólaborði fálk-
ans eru ekki nema um 10 metrar
upp á aðalgötuna svo óneitanlega
vakti þetta óvenjulega borðhald
töluverða athygli vegfarenda. All-
margir stöðvuðu bíla sína og fylgd-
ust með meðan fálkinn saddi hung-
ur sitt. Fálkinn hafði auga með
bílunum en hreyfði sig hvergi frá
bráð sinni fyrr en einhver fór út
úr bíl, þá flaug hann upp og færði
sig 100 metra frá í bili. Síðan sett-
ist hann aftur að snæðingi þegar
enga hreyfingu var lengur að sjá
meðal áhorfendanna. Þegar fálkinn
hafði étið fylli sína flögraði hann
burt en maki hans, sem hafði hald-
ið sig í hæfilegri fjarlægð fram að
því, settist að veisluborðinu og át
það sem sá fyrri hafði skilið eftir
af mildi sinni.
Athugulir menn vissu reyndar
að fálkahjón höfðu veipt í nágrenni
kauptúnsins í sumar en þetta er í
fyrsta sinn sem vitað er til að þau
geri sig svo heimakomin.
- Ó.B.
Sparisjóðirn-
ir lækka yfir-
dráttarvexti
SPARISJÓÐIRNIR lækka vexti
á yfirdráttarlánum í dag um
0,25%. Síðdegis í gær var ekki
vitað um aðrar vaxtabreytingar
hjá bönkunum en í einhverjum
þeirra er verið að undirbúa
breytingar á næsta vaxtadegi,
21. þessa mánaðar.
Yfirdráttarvextir flestra spari-
sjóðanna voru 18% og lækka því í
17,75%. Tveir sparisjóðir eru al-
mennt með hærri vexti.
Stórfækkun
gjaldþrota
eftir hækkun
á tryggingafé
672 gjaldþrotaúrskurðir voru
kveðnir upp hjá skiptarétti
Reykjavíkur á nýliðnu ári og
fækkaði þeim úr 932 á árinu á
undan. Ragnar H. Hall borgar-
fógeti segir að fækkunin hafi
öll komið fram á síðasta fjórð-
ungi ársins, en frá og með 1.
september var fjárhæð trygg-
ingar sem kröfuhafi verður að
reiða fram þegar óskað er eftir
gjaldþrotaskiptum hækkuð úr
12 þúsund krónum í 150 þúsund
krónur.
492 einstaklingar voru úrskurð-
aðir gjaldþrota í fyrra, ýmist að
eigin ósk eða að kröfu lánar-
drottna, og _ 180 lögaðilar urðu
gjaldþrota. Árið 1990 urðu 688
einstaklingar og 244 lögaðilar
gjaldþrota.
Að sögn Ragnars H. Halls hefur
það heyrt til undantekninga eftir
1. september að farið væri fram á
skipti í eignalausum búum.
0,3% hækkun
vísitölu
framfærslu
VÍSITALA framfærslukostnað-
ar í janúar er 160.2 stig eða 0.3%
hærri en í desember. Jafngildir
hækkunin 0.3% verðbólgu á
heilu ári.
Verðhækkun á matvöru olli ríf-
lega 0.1% hækkun vísutölunnar og
vegur þar hæst 1.1% hækkun kjöt-
vöru og 4% hækkun á grænmeti
ávöxtum og beijum. Vöru og þjón-
ustuliðir hækkuðu vísitöluna um
0.3% en verðlækkun á bensíni olli
0.1% lækkun.
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísi-
tala framfærslukostnaðar hækkað
um 7.2%. Undanfarna þijá mánuði
hefur vísitalan hækkað um 0.6%
og jafngildir sú hækkun 2.3% verð-
bólgu á heilu ári.
Stefniríló
milljóna vinn-
ing í Lottó
ÞREFALDUR pottur er í Lottói
laugardagsins og búast má við
að um fimmtán milljónir verði
I fyrsta vinning, að sögn Vil-
hjálms Vilhjálmssonar, fram-
kvæmdastjóra Islenskrar get-
spár.
Stærsti þrefaldi potturinn til
þessa var í september 1990, 15,6
milljónir. Stærsti fyrsti vinningur
Lottós frá upphafi var um 29
milljónir þegar potturinn varð
fjórfaldur árið 1989.
Ný gjaldskrá
heilsugæslu
og læknis-
þjónustu
GJALDSKRÁ fyrir heilsugæslu
og læknisþjónustu breytist frá
og með 15. janúar, en þá geng-
ur í gildi ný reglugerð um hlut
sjúkratryggðra í heilbrigðis-
þjónustu. Hámarksgreiðsla ein-
staklings árið 1992 eru 12.000
krónur og 3.000 krónur fyrir
elli- óg örorkulífeyrisþega.
í frétt frá Tryggingastofnun
ríkisins, segir, að öll börn undir
16 ára aldri í sömu fjölskyldu,
hafi sameiginlegt hámark, sem
sé 12.000 krónur. Að hámarks-
greiðslum náðum fæst fríkort hjá
Tryggingastofnun ríkisins gegn
framvísun kvittana og undanþigg-
ur það handhafa frekari greiðlum
fyrir þessa þjónustu, nema lækn-
isvitjun sem greiða skal lægra
gjald fyrir.
Tryggingastofnunin hefur látið
gera veggspjöld, þar sem hinar
nýju reglur eru kynntar og er
ætlast til þess að þau verði hengd
upp á biðstofum, en einnig hefur
verið gefínn út bæklingur í sama
tilgangi.
Um 120 millj-
ónir töpuðust
á gjaldþroti
SKIPTUM í þrotabúi Kaupfé-
lags Önfirðinga á Flateyri, sem
úrskurðað var gjaldþrota í okt-
óber 1989, er nýlega lokið. Til
kröfuhafa greiddust um 21
milljón króna en höfuðstóll
krafna sem ekkert greiddist
upp í úr búinu nemur um 105
milljónum króna.
Kröfur utan skuldaraðar námu
um 38,6 milljónum króna og
greiddust upp í þær rúmar 15
milljónir króna, eða um 38,8%.
Upp í forgangskröfur, sem námu
rúmum 9,7 milljónum króna,
greiddust um 5,9 milljónir, eða
um 61,4%. Ekkert kom hins vegar
í hlut almennra kröfuhafa, sem
lýstu‘77,8 milljóna króna kröfum
í þrotabúið.