Morgunblaðið - 11.01.1992, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1992
Nýjung’ar í bílatryg'gingum
eftir Gísla Örn
Lárusson
Nýjungar í bílatryggingum, sem
Skandia-Island hefur síðustu vikur
kynnt íslenskum neytendum, hafa
vakið mikla athygli og umræðu
manna á meðal. Viðbrögð neyt-
enda sanna líka ótvírætt, að þeir
taka nýbreytni félagsins fagnandi,
því satt að segja hafa átján sí-
malínur Skandia-ísland verið rauð-
glóandi síðan félagið byrjaði að
kynna nýjungar sínar á sviði bíla-
trygginganna.
Onnur tryggingafélög hafa jafn-
framt vaknað upp af blundi sínum,
og vilja nú allt í einu fara að hlúa
miklu betur að viðskiptavinum sín-
um en áður. Um það vitna til dæm-
is viðbrögð VÍS,_sem í kjölfar kynn-
ingar Skandia-Island á nýjungum
sínum á sviði bílatrygginga hefur
gripið til þess ráðs að bjóða kjör,
sem virðast tekin nær orðrétt upp
úr tilboðum okkar. Það staðfestir
hins vegar strax í upphafi, að
gömlu félögin óttast samkeppnina
frá Skandia-ísland og viðurkenna
þar með, að hinar nýju aðferðir
félagsins eru tímabærar og áttu
rétt á sér.
Á tryggingamarkaðnum hefur
alltof lengi ríkt stöðnun, sem hefur
með margvíslegum hætti bitnað á
neytendum. Sú samkeppni, sem
þegar er byijuð í kjölfar þeirra
nýjunga sem Skandia-ísland er að
innleiða, hefur þegar breytt þessu.
Og þó okkur tækist ekkert annað
en auka samkeppnina er betur af
stað farið en heima setið. Aukin
samkeppni getur ekki leitt til ann-
ars en bóta fyrir neytendur.
Hvað er Skandia?
Skandia-ísland er hluti af
Skandia-samsteypunni, sem rekur
tryggingastarfsemi um allan heim.
Skandiá lítur eigi að síður á
Norðurlöndin, þar með talið ísland,
sem sinn heimamarkað. Hinn ís-
lenski hluti þess er Skandia-ísland,
sem er hins vegar alíslenskt fyrir-
tæki, skráð hér á landi og lýtur í
einu og öllu íslenskum lögum.
Bakhjarl okkar er eigi að síður
móðurfyrirtækið Skandia. Það
byggir á afar traustum grunni.
Skandia var stofnað um miðja síð-
ustu öld, eða áður en nokkurt
tryggingafélag hóf starfsemi sína
á íslandi. Sem dæmi um fjárhags-
Iegt bolmagn þess má nefna, að
árið 1990 var velta Skandia 350
milljarðir íslenskra króna en sama
ár var heildarvelta alls íslenska
tryggingamarkaðarins 12-13 millj-
arðir.
Til að fyrirbyggja misskilning,
er jafnframt rétt að undirstrika að
Skandia-ísland býður ekki aðeins
upp á bílatryggingar, heldur allar
tryggingar. Fyrir þá sem vilja er
því hægur vandi að flytja allar
tryggingar sínar yfir til félagsins
um leið og bílatryggingarnar.
Skortur á samkeppni
Það verður að segjast umbúða-
laust, að ástandið sem enn ríkir á
bílatryggingamarkaðnum nálgast
það mjög að vera einokun. í orði
kveðnu hafa félögin verið í sam-
keppni, en í rauninni eru iðgjöld
og skilmálar ótrúlega svipuð.
Vitanlega hefur þessi skortur á
samkeppni komið niður á neytend-
um.
Við hjá Skandia-ísland höfum
Runólfur A. Þórarinsson cand.
mag., löngum fulltrúi í Mennta-
málaráðuneytinu, er sjötugur í
dag, f. á Látrum í Mjóafirði vestra
11. janúar 1922, sonur Þórarins
Helgasonar bónda þar og Kristínar
Guðrúnar Runólfsdóttur kennara.
Runólfur varð stúdent á Akur-
eyri 1944, en lauk cand. mag. prófi
í íslenzkum fræðum við Háskóla
íslands 1950, stundaði síðan fram-
haldsnám i fornleifafræði og
norskri menningarsögu við Oslóar-
háskóla 1951-52. Hann kenndi síð-
an við nokkra skóla fáein ár, unz
hann réðst fulltrúi á Fræðslumála-
„Við hjá Skandia-ísland
höfum nú ákveðið að
rjúfa þá einokun sem
ríkir á sviði bílatrygg-
inga og bjóðum því öku-
mönnum 30 ára og eldri
iðgjöld sem eru 9-26%
lægri en hin félögin
hafa gert.“
nú ákveðið að ijúfa þá einokun sem
hefur ríkt á sviði bílatrygginga og
bjóðum því ökumönnum 30 ára og
eldri iðgjöld sem eru 9-26% lægri
en hin félögin hafa gert.
Með þessu tilboði vill félagið
gefa landsmönnum tækifæri til að
leggja sitt af mörkum til þess að
iðgjöld á íslandi verði sambærileg
við önnur lönd. Viðbrögð neytenda
við nýjungum okkar ráða hins veg-
ar úrslitum um hvort viðleitni okk-
ar til að innleiða samkeppni og þar
með lægri iðgjöld nær árangri.
skrifstofunni 1956, gegndi því
starfi 10 ár, en var svo síðan deild-
arstjóri 2 ár. Að því búnu var hann
skipaður fulltrúi í Menntamála-
ráðuneytinu.
Ekki verða hér talin öll þau
mörgu nefndarstörf, er hann vann
á vegum ráðuneytisins né heldur
greint frá þátttöku hans í ýmsum
félagsmálum, heldur er einungis
ætlunin að þakka samstarfið við
hann á liðnum árum og gömul og
góð kynni allt frá skólaárunum.
Þar sem Runólfur starfaði dengi
í safna- og listadeild ráðuneytisins,
átti ég oft erindi við hann vegna
Gísli Örn Lárusson
Öðru vísi þjónusta
Ein af þeim aðferðum, sem
móðurfyrirtæki Skandia-ísland
hefur notað til að bæta þjónustuna
Landsbókasafns. Leysti hann þau
erindi jafnan vel og stundum mjög
Afmæliskveðja:
Runólfur A. Þórar-
insson cand. mag.
samfara því að lækka verðið, er
að færa tengsl viðskiptavinarins
og tryggingafélagsins sem mest
yfir á símasamskipti. Með því er
tryggt, að viðskiptavinurinn getur
haft mjög skjót og góð sambönd
við félagið, án þess að þurfa að
leggja á sig sérstaka ferð á skrif-
stofur þess. En um leið verður
þjónustan ódýrari í framkvæmd,
og þannig er hægt að koma í kring
enn frekari verðlækkun.
Þessi aðferð ryður sér nú ört til
rúms í bílatryggmgum vítt um
lönd, og Skandia-ísland hefur nú
tekið upp þessa aðferð hér á landi.
íslendingar eru hins vegar lítt van-
ir þessu samskiptamynstri í við-
skiptum sínum við tryggingafélög,
og því óvíst hvernig þeim líkar
það. En gefi þetta góða raun, þá
munum við freista þess að lækka
verðið enn frekar í framtíðinni.
Að lokum er vert að minna á,
að um 40% trygginga á einkabílum
endurnýjast 1. mars. Ætli menn
að skipta um félag geta þeir það
ekki nema segja upp tryggingunni
fyrir 1. febrúar. Ánnars eru þeir
bundnir hjá gamla félaginu í eitt
ár enn. Þetta ættu þeir að hafa í
huga, sem hyggjast af eigin raun
notfæra sér þau lágu iðgjöid sem
Skandia-ísland býður nú upp á.
Höfundur er forstjóri
Skandia-ísland.
snarlega, þegar því var að skipta.
Hefði Runólfur ekki hleypt
heimdraganum, heldur gerzt bóndi
og útróðrarmaður við Djúp, hefði
hann getað tekið undir með Sig-
hvati skáldi, er hann orti:
Kátr vask opt, þás úti
örðigt veðr á fjörðum
vísa segl í vási
vindblásit skóf Strinda.
Runólfur situr nú á afmæli sínu
suðrá Spáni. Trúi ég ekki öðru en
konur þar syðra muni líta út, þeg-
ar svo riddaralegur maður sem
Runólfur gengur þar um götur.
Eða líkt og segir í einni ferðavísu
Sighvats skálds:
Ut munu ekkjur líta
allsnúðula prúðar,
fljóð séa reyk, hvar ríðum
Rögnvalds í bæ gögnum.
Ég árna Runólfi Þórarinssyni
allra heilla á sjötugsafmæli hans
og vona, að hann megi lengi iifa
glaður og ern.
Finnbogi Guðmundsson.
\
UTSALA - UTSALA
Alllað 70% afsláttur
HAGKAUP
s4C£tí eimtl £ená